Þjóðviljinn - 25.03.1953, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 25.03.1953, Blaðsíða 1
Flokksshólinn FELLUR NIÐUR í kvöld Almeimur fundur Sósíalistaflokksms 30. marz. - Sjá 8. síðu Miðvíkudagur 25. marz 1953 — 18. árgangur — 70. tölublað Lögregluárás á bækistöðvar franska alþýðusambandsins VerkaÍýSsleiSfogar teknir höndum I gærmorgun réðust hundruð lögregluþjóna inn í aðalbækistöðvar al- þýðusambandsins franska í París og aðrar skrifstofur verkalýðssamtakanna í borginni. Jafnframt gerði lögreglan húsrannsókn á heimilum ým$ra verka- lýðsleiðtoga og voru tveir af riturum sambandsins handteknir og auk þeirra ritstjóri blaðs kommúnista í París, L’Humanité. Auk þess var fyrirskipuð handtaka aðalritara sambandsins, en lögreglunni hafði ekki 'tekizt að hafa upp á honum,. þegar síðast fréttist. Rannsóknardómari herdóm- stólsins í París, sem franska stjómin hefur sett á stofn til að standa fyrir ofsóknum gegn verkalýðshreyfingunni og kom- múnistaflokknum, fyrirskipaði lögregluárásirnar og handtök- urnar. Var þetta gert nú, eins og áöur, undir því yfirskyni, að verkalýðshreyfingin , og kommúnistaflokkurinn ógnuðu öryggi landsins með baráttunni gegn nýlendustríðinu í Indó- kína. Tveir ritarar alþýðusam- bandsins voru, eins og áður segir, handteknir, og fyrirskip- uð handtaka þess þriðja, sem dvelst í Vínarborg. Einnig var fyrirskipuð handtaka annars aðalritara sambandsins, Benoit Frachon, en hinn, Alain Le Le- ap, hefur setið í fangelsi síð- an í október sl., ákærður fyrir að hafa skrifað greinar, þar sem stríðið í Indókína var for- dæmt. Frachon er borinn sömu sökum. Þegar síðast fréttist í gærkvöld, hafði lögreglunni enn ekki tekizt að hafa upp á hon- um. Óstaðfest fregn hermdi, að hann héldi sig heima hjá Jac- Mkunntus F’ulltrúaráðsfundur Sósíal- istafélags Reykjavikur verður í kvöld kl. 8.30 á Þórsgötul. Til umræðu: Undirbúningur alþingis- kosninga. Félagar, mætið stundvís- loga. Fjölmenr ið. ques Duclos, aðalritara komm- únistaflokksins. Stil handtekínn í fyrra André Stil, ritstjóri L’IIum- anité, var handtekinn í júní í fyrra um sama ieyti og Jacques Duclos, og þá ákærður fyrir greinar sem hann ritaði í blað sitt gegn Ridgway. Hann var látinn laus rúmum mánuði síðar. Stil er einn af snjöllustu yngri rithöfundum Frakka og hefur þegið Stalíns- verðlaun fyrir bókmenntaafrek sín. Um leið og iögreglusveitir frönsku stjórnarinnar réðust fyrirvaralaust inn í bækistöðv- ar verkalýðssamtakanna, lagði hún, einnig fyrirvaralaust, samning milli fjármálará.&herr- ans og bankastjórnar Frakk- landsbanka um 80 milljarða lántöku franska ríkisins í bank- anum fyrir fjárveitinganefnd iþjóðþingsins til staðfestingar. Nefndin neitaði að staðfesta samninginn með 18 atkv. gegn 7, en 17 sátu hjá. Deildu nefnd- armenn fast á stjómiina fyrir að hafa ekki látið nefndina neitt vita fyrr en samningurinn var gerður. Mayer forsætisráðlaerra mætti .fyrir nefndinni og sagði, að Á því leikur enginn vafi, að franska stjórnin hefur fyrir- skipað þessar fruntalegu árásir á verkalýðshreyfinguna með hliðsjón af fyrirhugaðri betli- för Mayers forsætisráöherra og Bidaults utanríkisráðherra ti! Washington, en ætlunin var að þeir legðu af stað í gær- kvöld. Stjóm alþýðusambands- ins mótmælti lögregluárásinni þegar i gær og skoraði lá öll félög innan sambandsins, sem hafa 4 millj. meðlima, að fylgja mótmælunum eftir. nauðsyn bæri til, að ríkisstjórn. in fengi þetta fé, ef hún ætti að geta staðið við skuldbind- ingar sínar út mánuðinn. En fortölur hans og meðráðherra komu fyrir ekki. Betra tók ekki við, þegar málið kom fyr- ir þjóðþingið, og um stund leit út fyrir, að þingið mundi taka sömu afstöðu og fjárveitinga- nefindin. Mayer tilkynnti þá, að yrði ekki gengið frá málinu í snatxi og stjóminni veitt heim- ild til lántökunnar, yrði ekkert úr fyrirhugaðri heimsókn hans og annarra ráðherx’a til Wash- ington, — en ætlunin var að lagt yrði af stað í gærkvöld — þar sem Frakkland yrði ráð- Fraxr>bald á 9. síðu Mayer valtur í sessi Franska stjórnin var nær fallin í gær á atkvæðagreiðslu í þjóðþinginu um lántökuheimild. Hún þraukaði af með aöeins 32 atkvæöa meirihluta. Morgunblaðið hefur löngum verið frægt fyrir sið- lausa blaðamennsku, en síðustu daga hefur keyrt svo um þverbak að engu tali tekur, og er engum efa bundið að þetta málgagn Bandaríkjanna á íslandi hefur algert heimsmet í ruddaskap og flónskulegum lygum. Það er engu líkara en að ritstjórnin öll hafi geggj- ,ast fu’ikomlega, þegar Stalín forsætisráðherra Sovét- ríkjanna lézt. 1 gær segir blaðið til dæmis á forsíðu: „Josep Stalín Iiætti aldrei manndrápum, enda var einræðisstjórn hans bráðnauðsynlegt að ryðja úr vegi beim milljónum manna, sem ekki vildu gangast undir okið. Hann tlrap þangað til hann lézt, já, meira en það. Ifann drap á vísindalegan hátt, eftir föstum regl- um, — skefjalaust“. Þetta er málgagn utanríkisráðherrans á íslandi sem þannig. skrifar um nýlátinn leiðtoga vinsamlegrar þjóð- ar, og það er fullvíst að slíkur úrþvættis dónaskapur gæti hvergi komið fyrir nema á Islandi. Greiiiin fjallar að öðru leyti um það að Stalín hafi drepið 10 milljónir kúlakka. Það er óþarft að geta þess að ekki mun hafa verið nema rúm milljón kúl- akka i Sovétríkjunum eftir byltinguna; Morgunblaðs- mönnum er ekki ofgott að drepa þá tíu sinnum, þeir hafa drepið allar Sovétþjóðirnar a.m.k. jafnoft. I næstu grein á forsíðu er svo skýrt frá því sem sönnun um hörmungarástandið í Sovétríkjunum að 550 menn hafi flúið þaðan síðan 1948. Sé sú tala tekin trúanleg samsvarar liún því að einn maður flytjist búferlum af íslandi á þrettán ára fresti. Væri ekki at- hugandi fyrir Morgunblaðsmenn að snúa sér til jTir- valdanna og fá tölur um það hve margir íslendingar hefðu flutzt búferlum til útlanda síðan 1948 og reikna síðan út liversu margfalt verra ástandið er á íslandi en í Sovétríkjunum, Benoit Fraclion. André Stil Alain Le Leap. Gerðar ráðstafanir til að íorða flngárekstrum? Btcfar taka boði Sjmkoffs um ráðstefnu Churchill tilkynnti í brezka þinginu í gær, að stjórn hans hefði ákveðið að taka boði Sjúikoffs, formanns eftirlitsnefndar Sovétríkjanna í A.-Þýzkalandi, um ráðstefnu til að forða frekari árekstrum í lofti yfir Þýzkalandi. Það var á fimmtudaginn í síð- ustu viku, að Sjúíkoff gerði brezku stjóminnii það boð, að Haldin yrð.i ráðstefna sérfræð- inga til að rannsak a hvaða ráð- stafanir væri hægt að gera til að koma í veg fyrir, iað atburð- ir eins og sá, þegar bi-ezk her- flugvél v-ar skotin niður yfdr A-Þýzkalandi nýlega af sovétor- ustuflugvélum, endurtækju sig í framtíðinni. Það var þá þegar talið, iað það mundi verða erfitt fyrir brezku stjórninia .að liafna boð- jnu, og er það nú komið á dag- inn. Þegar kunnugt varð um til- boð Sjúikoffs, sxxgði fréttaritari Reuters í Bonn: „Það er álit óháðra stjórnmálaf'ræðinga, að tilboð Sjúíkoffs, sem bar vitni um óvenjumikla sáttfýsi, hafi Fi’amhald á 9. síðu þiÓÐVILJINN ÞJÓÐVILJINN er eina íslenzka dagblaðlð sein býður upp á er- leuda fréttaþjónustu. Alþýðublaðið og Tíininn birta engar erlendar fréttir að heita má, og ðlorgun- blaðið birtir móðursýklsskrlf lianda geðveikisjúklingum í frétta- stað. Ef menn vilja fá, traustar. lálegar b s ýtaijlegar erlendur fréttir og fylgjast með }»ví sem gerist í umheiminum verða þeir að lesa Þjóðviljann. Ásluifendimi Þjóðviljans fjölgar einnig dag frá degi og æ fleiri bætast við sem greiða 10 kr. auka- gjaid á mánuði. — Síminn er 7500.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.