Þjóðviljinn - 09.05.1953, Síða 4

Þjóðviljinn - 09.05.1953, Síða 4
4) ÞJÖÐVILJINN — Laugardagur 9. maí 1953 Sonnetta ÞversBÍngslns Á Ö5ru kvöldi Þjóðarráðstefnunnar kom fyrir skemmtilegt at- vlk. Stjóruandi fundarins, Petuv Péturssön útvarpsþulur, til- kynnti í hijóðnemann að-Sigríður Sælánd ljösmóðir vaeri beðin að fara i s.natri suður í Hafnarf jöi-ð; það væi-i að fæðast nýr Þveræingur. Ilm kvöldið orti Jóhannes úr Kötlum sonnettu þá sem hér fer á eftir og flutti hana ráðstefnunni í fyrrakvöld. Vor eyja er fögur, vor eyja er dýr, í eldi þar jöklarnir bræðast, til Ijóssins hver elfur afl sitt knýr, við ilmjurtir sárin .græðast. En við það hlið sem í vestur snýr er Varnarsveit dauðans að læðast og herjum myrkursins hugar frýr að hvetja bað vopn sem er skæðast. En látum bann anda sem ljósið flýr að lífinu sjálfu hæðast. — Eyjunnar framtíð í barninu býr, — því barni sem kann ekki að hræðast. Kom, Ijósmóðir norðursins, ljúf og hýr, og lát oss vorskrúði klæðast: í hugskoti þessarar þjóðar er nýr Þveræingur að fæðast. ja sér undir merki ' anáspymáreyíingannnar Þjóðarráðstefnunní gegn her í laadi var flutt eftirfarandi ávarp frá ungum listamönnum: Við undirriíuð fögnuni því, að barátta hefur verið liafin fyrir þjóðareiningu gegn dvöl erlends hers á íslandi og hugmyndinni um stofnun innlends hers. Við heitum á íslenzkan æskulýð að fylkja sér imdir merki andspymuhreyfingarinnar og styðja hana með ráðum og dáð. Einar Bragi Elías Mar Ólafur Jóh. Sigurðsscn Jóhannes Steinsson Bjarni Benediktsson Halldóra B. Björnsson iBöðvar Guðiaugsson Krístján Einársson frá Djúpalæk Eiríkur Smith Gestur Þorgrimsson Hörður Ágústson Björn Th. Björnsson Jón Óskar Stefán Hörður Grímsson Gísli Ilalldórsson Sigurður Róbertsson Hjörtur Halldórsson Kristján Bender Kjartan Guðjónsson Ási í Bæ Kristján Davíðsson Jóhannes Jóhannesson Egill Jónssoa Kristinn Pétursson Steinar Sigurjónsson. Aðalfundur STEFS Aðalfundur STEFS var haldinn fyrir skönimu við bezíu aðsókn og mikla einingu fundarmanna. Jón Leifs, er var í einu hljóði endurkjörinu formaður, skýrði frá störfum sambandsins. Skáldin í Austur- bæjarkío Það var bókmenntakynning Helgafells 3. þ.m. Eg valdi mér sæti fyrir miðju og horfði á ungu skáld- in koma hvert af öðru inn á sýtiingarpallinn og taka sér stöðu. Fimm skáld stigu fram og lásu sögur og kvæði. Elías Mar, Jón Óskar, Indriði Þorsteins- son, Einar Bragi og Ásta Sig- urðardóttir. Sögurnar sem lesnar voru grípa allar á vandamálum líð- andi stundar og gerast í Rvík. Og þessi skáld hafa öll sögu að segja. Sögurnar af verkamanninum sem vinnur baki brotnu fyrir sér og sínum T skorti og er jafmframt að byggja borgina stig af stigi án eigin vitundar um mikilvægi lifsstarfsins, án þakklætis. Söguna um íslenzka menn- ingu sem varpað er í götuna af valdhöfunum og troðin und- ir járnhæl dollara og her- stefnu, sem í draumsýn skálds- ins þokar þó að lokum fyrir uppreisn fólksins, „þar sem hið stráfelda lið, er hið sterkasta lið.“ Söguna um þá hættu sem sið menningu okkar og virðingu fyrir íslenzkri tungu stafar af' sambýli við erlendan her í landinu, og hvernig hver ó- menningin sem leidd er yfir þjóðina, býður annarri heim. Kvæðið um folann unga sem stendur bundinn við hestastein inn og þráir hlíðina fögru og frelsið, en skáldið slítur hlekk- ina af folanum og opnar fyrir honum hliðrð. ’ Og að síðustu söguna um bölvald æskunnar og heimilis- lífsins, bölvald fegurðar og gleði; brennivínið, sem endar með dauða. ,,Og þetta var allt út af einni jurt, sem óx í skjóli og var slitin burt“. Þessi orð skáldkonunnar í lok sögunnar, voru táknorð inntaksins á næstum samfelldum upplestri. Ég er skáldunum þakklátur. Komið aftur og komið fleiri. Tryggvi Emilsson. Eftir fyrsta hæstaréttardójji á ísfandi í máli STEIFS er nú samningum félagsins loikið við samitök veitinigamanma og kvik- myndahúsaeigenda og önnur fé- la'giasumbönd. Ósamið er aðeins við Hótel Borg, Tónilistarfélagið, Sinfoiníuihljómisveitina og nokkra .atvinnurelkendur, aðilia úti' um land og' minni félög, en samn- ingar standa enn ýmist yfir eða málshöfðanir eru í gangi. Formaður ský.rði frá fundum norræna „Stefjasamibandsins" og frá jafnvirðiskaupum íslenzka STEFS við -hin erlendu sam- band'sfélöig. Jafnframt skýrði 'hann frá fundum „Norræna „tón sk'áldaráðsins", er hann stjórn- ar sem forseti þess, og frá und- ir.búningi að norrænni tónlistar- há.tíð í Reyikjiavík á næsta ári, svo og frá vaxandi samvinnu tónskáldaráðsins við tónmennta- ráð UNESCO. Á aðalfundinum var svo- hljóðandi álykitun einróma: „Aðalfundur STEFS haldinn 25. apríl 1953 samþykki.r iað beina eftirfarandi tilmælum til útvarpsstjória íslenzk.a ríkisút- varpsins: 1) Að hefia nú þegar dag- skrárskipti við erlendar útvarps- stöðvar á íslenzkri og erlendri itónlisf. 2) Að 'ganga nú þegar til Siamninga við STEJF um greiðsl- ur fyrir upptökúréttindi is- tenzkra tónverka. 3) Að hækfca frá síðustu ára- mótum að tejja greiðslu höf- undaliauna tdl STEFS til sam- ræmis við þá almennu hækkun k.aupgjalds í landinu, sem átt hefur sér stað síðan samningur STEFS og ríkisútvarpsins var gerður á árinu 1949. en greiðsl- ur ríkisútvarpsins til STEFS ve'gn,a tónlistarflutninigs eru ó- brey.ttar sáðan greindur samning- ur var undirritaður." Stjórn fél'agsins skipa nú: Jón Leifs, Snæbjörn Kaldalóns, Skúli Halldðrsson, Siguringi E. Hjör- leifsson og Sigurður Reynir Pét- ursson. — Á 'aðalfundinum v.ar mættur Björgvin Guðmundsson á fyrsta sinn; á tónskáldafundi, og Jét hann í ljósi mikla ánægju með starf félagsins. Framlengdir hafa nú verið til næstiu 'ára samningar STEFS við Jón Leifs sem forstjóra féiagsins o.g við Sigurð Reyni Pétursson 'sem Viaraforstjóra. Er verka- skipting þeirra í höfuðatriðum þannig að Jón Leifs annast v.ið- 'skiptin við erlend sambandsfé- lög, stjórn útihilutunar ög önnur lis-træn .atriði, en Sigurður Reyn- ir Pétursson stjórnar innheimtu féla'gsins og veitir lögfræðilcga aðstoð. Hisifsdalssöfii- ynÍEBEii Ifkir 15. þessa mámhr Um leið og við þökkum öll- um þeim, gömlum Hnífsdæliog- um og öðrum, einstaklingum og fyrirtækjum, sem þegar hafa lagt skerf til söfnunarinnar — viljum við hér með beina þeim vinsamlegu tilmælum til þeirra, er hafa hugsað sér að styrlcja Hnífsdalssöfnunina með fjár- framlögum eða öðru, að gera það helzt fyrir 15. þ.m. þar eð gert er ráð fyrir því, að söfnuninni 1 júki þá. Þá eru þeir allmörgu víðs- vegar um landið, sem feagu söfnunarlista frá nefndinni, góðfúslega beðnir að skila þeim" um miðjan mánuðinn. Að sjálfsögðu mun söfnunar- nefndin- og Haífsdælingar heima, þrátt fyrir framanskráð tilmæli, veita móttöku með þökkum hvers konar gjöfum, sem af óviðráðanlegum ástæð- um kunna að berast síðar — og er því engan veginn uhi það að ræða, að eftir 15. maí verði of seint gott að gjöra í þessu efni. 1 söfnunarnefnd Haífsdæl- inga eru: Baldvin Þ. Kristjánsson, Elísa- bet Hjartardóttir og Páll Hall- dórsson. Félagar! Komið í skrifstofu Sósíalistafélagsins og greið- ið gjöld ykkar. Skrffstofan er opin daglega frá ki. 10-12 f.h. og 1-7 e.h. Er ásíæða til að óskapast yíir æskunni? Ljósir punktar E. M. skrifar: „Þegar talað er 1 um það, hversu ísíenzk æska sé spillt og leidd á villgplur, minnast menn þess alltof sjaid- ■ah, að sá hópur er se.n telur fer miklu stærri, sém ekk' hef- ur spillzt og ekki er i neirmi sérstakri hættu hvað það snert- ir. Um þennnn megmþorra ís- lenzks æskufcriks er sjaldan tal- að, þess er sjaldan getið, að börn hér á iandi eru gædd r.á- fcvæml. sömu „kostum“ og „löst um“ og börnannarra landa. Þau ærslast og fremia prakkara- strik á vissum aldri, vaxa síð- an upp úr þeim, langflest, og verða nýtir borgarar. En þsð hefur \ íst verið einkenni fuil- orðn.a fólksins á ölhiiri tírnabii- um m mnkyn ss;>.t< 'nnar að ó- sfeapast yfir þeim. sem yngri eru, oig eru :il rnargar sögur iim það, æskan hefur verið tal in spil’.tari, guðlausari og hæftu legri en nokkru sinni fyrr. A miðöldum var barm refsað, ef það brosti við matborð á vit- lausum tírr.a; sömuleiðis ef lrsð 'brosti ekk', þegar fullorðna fólkið vildi láta það brosa. ★ EN NÚ er öldin önnur Nú er frjálsræði unga fólksins óneit- 'anlega mikið, og að sjálfsögðu eru þeir til, sem telja það allt- of mikið oig vilja setja æskuna í höft gamaUar venjiu, þekking- arleysis og yfirdrepsháttar. En hvorug ileiðin er æskileg. — Æskilegt er hinsvegar, að upp- rennandi kynslóð hafi alltaf nóg að starfa. Starf við góð skil- yrði er bezti uppalandinn, sem æsk'an getur fengið. Uppfræðsla um nauðsyiileigustu hluti og 'helzt sem bezt skólamenntun er iíka jákvæð leið til útilokunar spillingu. íslenzk æska hefur ♦ ■aldrei komizt af eigin reynd í kynni við hörmuleg lífsskilyrði stórhorgaæskunnar, þar sem börnunum er lífsnauðsyn að fcunna að stela o.g fremia aðra glæpi; þar sem menntun er ó- fær leið allri alþýðu og skiln- ir.gur á lífinu hlýtur að tak- markast við múgsefjun, ótta og forheimskiun. — Þessu hefur ís- lenzk æska aldrei kynnzt, nema jþá gegnum k'vikmyndir, sem hún botnar raunveruiega lítið í, og vonandi þurfium við aldrei af þessu að segja. — Aftur á móti hefur verið troðið inn á íslenzkan æskulýð fullkomlega að ó'þörfu, meira og minna dul- búinni hnrnaðardýrkun í gervi myndabófca, hasartolaða, kvik- mvnda, leikfanga ýmiskonar og allskonla.r áróðurs óbeint. Gildi vinnunnar hefur enn ekki ver- ið metið sem skyldi, og eru þó áiþreifanJeg dæmi til um það, að þetta er að færast í betra horf. Vinnuskóli Reykjavikur er bezta dæmið um það. Starf hans er áreiðanlega meira virði en þótt stofnuð hefðu verið tíu hæli til betrunai-vistar fyrir unglinga eftir að þeir hefðu spiHzt; Sjóvinnunámskeiðin, s'kólagarðarnir og leiðtoeining- arnar um skógræfctina eru ijós- ustu punktarnir í sögu ís- ilenzkr.a uppeldismála að undan- förnu. Á toak við b.að liggur mikið starf nokkurra manna, se.m seint verður metið að verð leikum. Aðeins má ekki gieyma því, að ekki er nóg að vernda og ala upp æskuna. Það þarf líka að gæt'.a hagsmuna og tryggja öryggi mannsins eftir að hann er vaxinn upp cg far- inn að sjá fyr.ir öðrum. Það þarf að útiloka atvinnuleysi fullhraustra manna. Það má ekki drepa þá lífsvon og lífs- gleði, sem kveikt er í baminu meðan það er ungt. — E. M.“

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.