Þjóðviljinn - 09.05.1953, Blaðsíða 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 9. maí 1953
Eftir kröfu tolJstjÓrans í Reykjavík og að undan-
gengnum úrskurði verða lögtök látin fram fara án
frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð rík-
issjóðs, að áttadögam liðnum frá birtingu þessarar
auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Bifreiðaskatti,
skoðunargjaldi af bifreiðum og vátryggingariðgjaldi
ökumanna bifreiða, sem féllu í gjalddaga 2. janúar s.I.
söluskatti 1. ársfjórðungs 1953, sem féll í gjalddaga
15. apríl s.l., áföllnum og ógreiddum veitingaskatti,
gjaldi af innlendum tollvörutegundum, vélaeftirlits-
gjaldi og skipulagsgjaldi af nýbyggingum.
Borgarfógetinn í Reykjavík, 9. maí 1953
Kr. Kristjánsson
Áiagslakmötkim dagana 10.-17. maí írá
klnkkan 10.45—™! 2.30:
Sunnudag 10. maí ........ 1. hverfi.
Mánudag 11. maí ......... 2. hverfi.
Þriðjudag 12. maí ........ 3. hverfi.
Miðvikudag 13. maí ...... 4. hverfi.
Fimmtudag 14. maí ....... 5. hverfi.
Föstudag 15. maí ........ 1. hverfi.
Laugnrdag 16. maí ....... 2. hverfi.
SSratimuriim verSm roíinn skv. þessu þegar
og aS svo nsikm leyti sem þörf krefur.
Sogsvirkjunin
Félag íslenzkra hljóðfa raleikara
verður haidinn í fé'.aginu sunnudaginn 10. þ.m. kl. 5
eftir hádegi í Breiðfirðingabúð, uppi.
Fundarefni:
Sinfónhihljómsveitarniál o.fl.
Stjómin
RITSTJÚRl. FRÍMANN HELGASON
Reykjavíkurrnótið:
ÍÍR vann Þrótt 4;0
Hðdfundur
Skógrækiarfélags Beykfavíkur
verðu.r haldinn í Tjarnarcafé þriðju-
daginn 12. maí klukkan 8.30 síðdegis.
Dagskrá samkvæmt félagslögum
Stjórnin
Lið KR: Sigurgeir Guðmanns
son, Hreiðar Ársælsson, Guð-
bj. Jónsson, Helgi H. Helgason,
Steinn Steinsson, Steinar Þor-
steinsson, Ólafur Hannesson,
Ilörður Felixson, Hörður Ósk-
arsson, Gunnar Guðmannsson
og Þorbjörn Friðriksson. —
Lið Þróttar: Kristján Þórisson,
Gunnar Aðalsteinsson, Hilmar
Bjömsson, Emil Emilsson,
Halldór Backmann, Gunnar Pét
ursson, Tryggvi Eyjólfsson,
William Shirreffs, Tómas Stur-
laugsson og Sigurgeir Bjarna-
son.
Mörkin gerðu: Þorbjörn, ■—
Gunnar, — Ólafur — og eitt
markið var sjálfsmark. Dóm-
ari var Guðmundur Sigurðs-
son.
Satt að segja var beðið eft-
ir þessum leik með nokkurri
eftirvæntingu, þar sem Þróttur
lék nú í fyrsta sinn í meistara-
flokki. Byrjuðu þeir vel og var
fyrri hálfleikur nokkuð góður
eða svo að gamla KR hafði
enga verulega yfirburði, og
mark það er kom í þeim hálf-
leik kom fyrst og fremst vegna
smámisskilnings í vörninni. Það
kom raunar fljótt i ljós að
sókn Þróttar virtist lenda í
vandræðum er upp að marki
KR kom, en þar voru KR-ing-
ar ákveðnari og í þessum hálf-
leik lágu yfirburðir KR; þeir
áttu hægara með að skapa sér
tækifæri sem þó misnotuðust.
I síðari hálfleik virtust Þrótt
arar missa tökin og gefa eftir
og þegar eftir 6 mín. gerir
Gunnar mark. Lá nú allmjög
á Þrótti og leikur þeirra meira
og minna í rnolum og staðsetn-
ingar óöruggar, og fá KR-ing-
ar nú mörg tækifæri en þau
misnotast og um miðjan hálf-
leikin hleypur Hörður Felixson
fram vinstra megin og spym-
ir fast fyrir mark og lendir
knötturinn í bakverði Þróttar
og í markið 3:0. Síðasta markið
setti svo Ólafur Hannesson,
Ekki er hægt að segja að
heppni væri jTir Þrótti hvað
veðrið snerti. I fyrri hálfleik
léku þeir gegn nokkrum vindi
en í leikhléi og byTjun síðari
hiálfleiks snerist vindur og varð
nærri logn. Eðlilega vantar
þetta unga lið lœppnisvana og
hefur það átt meiri þátt í hin
um slappa leik þeirra í síðari
liálfleik en úthaldsleysi. En
þar eru innanum efnilegir menn
sem með meiri reynslu og góðVi
æfingu geta gert Þrótt jafnoka
félaganna hér. Má þar nefna
markmanninn Kristján sem er
þegar orðinn ágætur. Hægri bak
vörður Gunnar Aðalsteinsson,
vinstri framvörður Guanar Pét-
ursson, miðherjinn Tómag Stur-
laugsson og William Shirrsffs
eru allt menn sem lofa góðu.
Iialldór Backmann hélt Herði
Óskars líka vel í skefjum. Sig-
urgeir er duglegur og hlaupari
mikill en til þess að það not-
ist þarf haein meiri leikni.
Ýmsir menn í liðunum leyfðu
sér einleik venjulega til tjóns.
Um styrk KR • er ekki gott
að ssgja. I fyrri hálfleik sýndu
þeir ekkert sérstakt, samleik-
ur enn of í molum og stað-
setningar og spyraur óöruggt
og spörkin öft 'lítt hugsuð. I
síðari hálfleik gekk allt betur
enda var mótstaðan þá mun
minni. Þá vantaði markmann-
icin en Sigurgeir Guðmannsson
brá sér í búninginn og gerði
stöðunni gó'ð skil og hélt mark
inu hreinu. Innherjarnir Hörð-]
ur Felixson og Gunnar voru
beztu menn liðsins. Steinn og
Steinar voru líka ágætir; sem
heild mun liðdð heilsteyptast
af þeim fjórum sem keppt hafa
í þessu móti.
Það spillti nokkuð leik þess-
um að rigna tók mjög í síðari
hálfleik og gerðist völlur og
knöttur þungur. Þrátt fyrir
ve'ðrið voru allmargir áhorfend-
ur.
Tékkóslóvakía vaim
Ifalk 2:0
Fyrir nokkru for fram fyrsta
knattspyrnukeppnia milli
Tékkóslóvakíu og Italiu eftir
stríðið og fór leikurinn fram í
Prag. Lauk honum með sigri
Tókka 2:0 (0:0).
Keppt var á Sportak-Soko-
lovo-vellinum og horfðu 40 þús.
á vioureignina. I byrjun sér-
staklega sýndu Tékkar mikla
yfirburði í leik sínum, þó þeim
tækist ekki að skora fyrr cn í
þeim síoari. Belgíumaour
dæmdi leikinn, Franken að
nafni.
Ungverjalatad og ftuslui:-
ríki sklldn l'álíi
Leikur þessara landa sem
beðið var með mikilli eftir-
væntingu endaði 1:1. Leikur-
inn fór fram í Búdapest.
Þórsgöíu 1 — Sími 7510
Skrifstofan gefur allar upplýsingar varðandi kosningarnar
Kjörsferá liggur frammi
Flokksfélagar og aðrir, sem þurfa upplýsingar varðandi kosningarn-
ar, eru beðnir að hafa sem fyrst samband við skrifstoíuna.
Skrifstdan er opin daglega kl. 10—10
0' Bzien kastar kúSn
17.89
Olympíusigurvegarinn O’
Brien nálgast óðum heimsmet
Fuch í kúluvarpi. Á háskóla-
móti í Los Angeles kastaði
hann 17,89 m en heimsmet
Fuch er 17,95. Árangur O’Brien
á Helsinki var 17,41. Á þessu
sama móti kastaði Svíinn Ro-
land Nilscn 17,01, en Roland er
við nám vestra um þessar
mundir.
Roland Nilson hefur einnig
náð ágætum árangri í kringlu-
kasti þar vestra. Á móti í
Fíladelfíu kastaði hann 53,13
sem var bezti árangur á því
móti.
Síðasti leikurinn á 17. get-
raunaseðlinum fór fram á
fimmtudagskvöld og var því ekki
hægt að athuga vinninga fyrfi
en í gær. Endanleg úrslit á seðÞ
inum urðu:
Víkingur 2 — Fram 3 2!
Þróttur 0 — KR 4 2
Blackpool 4 — Bolton 3 1'
Arsenal 3 •— Burnley 2 l!
Aston Villa 0 — Newcastle 1 1]
Chelsea — Manch. C fellur út
Derby — Preston fellur út
Sunderland — Oardiff fellur út.
Brentford 1 — Birmingh. 2 2
Doncaster 1 — Luton 0 1
Hull — Leicester fellur út
Lincoln 4 — -West Ham 0 ll
Vegna fjölda raða með 6 og 7,
réttum verður aðeins 1 vinning-i
,ur fyrir 8 rétta. Komu fram 61]
röð með 8 réttum og koma 63
kr. fyrir hveria röð. Beztur árang
ur náðist á 12 raða kerfi, semí
var með 8 rétta í hverri röð!.
Stafar það ,af því, að tryggingj
arnar voru á leikjum, sem félluí
niður. Vinningur seðilsins verðujj
756 kr.
Vinnuskóli Reykjavíkurbæj ar tekur til starfa
um mánaðamótin mai-júní þ.á. cg starfar fram í
septemb&rbyrjun aö frádregnu hálfsmánaðar sum-
arleyfi. 26. júlí — 9 ágúst.
í skólann veröa teknir unglingar sem hér segir:
Drengii- 13 — 15 ára, incL
StúJkur 14 — 15 ára, incl.
Umsóknum sé skilaö til Ráöningarstofu Reykja-
víkurbæjar, Hafnarstræti 20, 2. hæð, fyrir 16.
maí n.k. og eru þar alhent eyöublöö undir þær.