Þjóðviljinn - 10.07.1953, Side 6

Þjóðviljinn - 10.07.1953, Side 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 10. júlí 1953 jllÓOUIUlNN Ctgðfsndl: Sameinlngarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurinn. Rltstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Slgurður Guðmundsson. Fréttaetjórl: Jón Bjarnason. Biaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benedilttsson, Guð- mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmlðja: Skólavörðustíg. 19. — Sími 7500 (3 línur). Áakriftarverð kr. 20 á mánuðl í Reykjavík og nágrennl; kr. 17 aniiars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakiö. Prentsmiðja Þjóðviijane h.f. __________________________________________________1 Stalrsysilsr gegn öskursáróðri Þó enginn hefði vitað neitt una ,,áhuga“ auðvaldsins á Vest- nrlöndum fvrir erfiðlevkum og ,,uppreisnum“ í alþýðuríkjunum, hc-fði hinn göbbelski öskurkór undanfarandi vikur fært hverjum hugsandi manni heim sanninn um samstöðu spilltustu aftur- haldsafla auðvaldslandanna og þeirra, sem skipulögðu uppþotin í. Austur-Þýzkalandi í júní. Þegar blöð eins og Morgunblaðið og Tíminn, sem þekkt eru að því að berjast gegn hverri einustu tilraun íslenzkra verkamanna til umbóta á kjörum sínum, þekkt að því að fylla dálka sína rógi og liíði um verkamenn á íslandi hvenær sem þdir gera verkfall til að knýja fram kröfur sínar, — þegar slík blöð fara allt í einu að öskra um ást sína á verkamönnum og baráttu þeirra , — þá er hætt við að ís- jf nzk alþýða finni að hc.r er eitthvað óhreint. Og þegar Morgun- blaðið, Tíminn og Vísir lepja dreggjarnar jif áróðurslygum vesturþýzkra nýnazistablaða, og taka allt sem þaðan kemur sem heilagau sannleika, þá verða þau blöð og vandamenn þeirra að hafa það, að bent sé á að hér er tekinn upp þráðurinn fráþví þessi blöð tóku feginshendi áróðurslygum Göbbels & Co., að 3:ér er svipað að gerast og þegar Morgunblaðið fagnaði áróðurs- lyginni um ríkisþinghúsbrunann. En það er óhrekjanleg staðreynd, að áhugi auðvaldsstjórna Vesturlanda. fyrir ,,uppreisnum“ í Austur-Evrópu er ekki ný- tjlkominn Það er til dæmis ekki leyndarmál, heldur hefur það ,Verð raatt á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, að ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur á fjárlögum sínum áætlað 100 milljónir dollara eða sem svarar 1632 milljónum íslenzkra króna til notkunar á einu ári i njósnir, skemmdarverk og upplausn sós- íalisku rikjanna innan i'rá. Það er líka staðre\Tid, að undanfarið rafa forseti og utanríkisráðherra Bandaríkjanna hvað eftir aimað lýst yfir þeirri ætlun sinni að „frelsa“ þjóðir alþýðu- rikjanna >-fir í hinn milda náðarfaðm heimsauðvalds'ns. Það or einnig staðreynd, að í Vestur-Þýzkalandi hefur orðið uppvíst um „tortímingarsveitir“, er Bandarikjaher skipulagði, þjálfaði og kostaði, og höfðu það göfuga ætlunarverk að myrða komm- únista, sósíaldemókrata og frjálslynda stjórnmálamenn og loma af stað uppþotum í Austur-Þýzkalandi. Og kannski gæti það verið til einhverrar leiðbeiningar fyrir núverandi ritstjóra Alþýðublaðsins að minna hann á þann dóm blaðs vinstri sósial- demókrata Bretlands, New Statesman and Nation; að „óeirð- irnar í Austur-Þýzkalandi hefðu aldrei orðið, nema Vesturveldin hefðu hvatt til þeirra“. Ein frétt frá óeirðunum lýsir betur eðli þeirra en margar blaðagreinar. Svo vill til, að þessi frétt kom í Ríkisútvarpinu Jslenzka, sem annars hefur orðið sér tíl háborinnar skammar þessu máli eins og oftar, þegar ríkisstjórninni liggur á hrotu «f áróðri í fréttagerfi: Einn þeirra leiðtoga óeirðanna 17. júní sem dæmdir voru til dauða var kona, Erna Dorn, 42 ára. Hver var húci þessi kona sem tók forystu i „baráttu verkamanna gegn kúguninni", ef dæma má eftir fyrirsögnum hinna nýju „verkamannablaða“ ? Erna Dom sat í fangelsi í Halle, dæmd fyrir stríðsglæpi. Á Hitlerstímunum var hún ein af böðlunum í fangabúðunum, m.a. hinum hryllilegu kvennafangabúðum i Ravensbriick. Óeirð- armennimir í Halle velja sér þessa konu að foringja, ná henni ur fangelsinn og hún tekur tafarlaust stjórn óeirðanna í borg- jnni, stjórn „baráttunnar gegr. kúguninni“, stjóm baráttunnar tyrir hinu vestræna frelsi“. Eins og i svipleiftri sýnir þessi fregn, sem af einhverjum misgáningi komst meira að segja inn i Ríkisútvarpið íslenzka, hvað þarna er að gerast. Hver málstaður velur sér leiðtoga, er hann telur sér hæfa. Uppreisnarinenn, sem sækja böðlana nr fangabúðum Hitlers í fangelsin til að stjórna baráttu sinni, gefa með því skýrar og ótvíræðar upplýsingar um eðli þeirrar bar- áttu. Þær upplýsjngar eru jafneindregnar þó þeim skuggaöflum sem skipulögðu óeirðirnar í Austur-Þýzkalandi 17. júní tækist að hagnýta sér óánægju nokkurra hópa verkamanna með vissar láðstafanir austurþýzkra stjórnarvalda. Það er harmsaga, sem ekki er ný í sögu verkalýðsbaráttunnar, að auðvaldsöflum. tak- ist að beita hópum verkamanna sem peðum í svikatafli sínu um völd og arðránsaðstöðu. Og engum þarf að koma það á óvart, þó það bragð yrði auðveldast meðal þjóða, sem áratugi lágu undir jámhæl nazismans og mega heita nýsloppnar þaðan. Stefnubreyfirigi Ot.iómarskiptin í Ungveíja- ^ landi um síðustu heigí og stefnuyfirlýsing nýju stjórnar- innar sýna að þjóðfélagsbylt- ingin sem verið hefur að ger- ast þar eins og í öðrum Aust- ur-Evrópulöndum siðan heims- styrjöldinni síðarj lauk, er komin á nýlt stig. Öllum Vest- ur-Evrópumönnum sem til þekktu í Austur-Evrópu árin milli heimsstyrjaldanna ber saman um að 'hessi bylting hafj verið orðin óhjákvæmileg, þjóðfélagshættir og atvinnulíf hafði stirðnað svo í úreltum for.mum að ekkert nema rót- tæk umbylting megnaði að hrinda hjóli framvindunnar af stað. Hvergi hefur þó kannski þörfin á breytingu verið eins aðkallandi og í Ungverjalandi. A.llt fram til loka heimsstyrj- aldarinnar síðari ríkti hreint og beint miðaldafyrirkomutag á landsbyggðinni, þar sem yfir- gnæfandi meirihluti Úngverja bjó og býr. Þrjár milljónir jarðnæðislausra landbúnaðar- verkamanna voru nánast á- nauðugir þfælar aðalsættanna, sem áttu sumar land svo hundr- uðum þúsunda hektara skipti. IT’ftir helmsstyrjöldina fyrri varð uppreisn í Ungverja- landi gegn veldi aðalsins en hún var brotin á bak aftur. Horty aðmíráll brytjaði verka- menn og bændur niður þús- undum saman með fulltingi erlendra hersveita og setti á laggimar fyi’stu fasistastjórn Evrópu. Aðall og auðborgarar héldu síðan Ungverjalandí í helgreipum, fyrst með stuðn- ingi Bretlands og- Frakklands, síðan Ítalíu og loks Hitlers- Þýzkalands fram á útmánuði 1945 þegar sovétherinn sótti inn í landið á hæla herjum Þjóðverja. Fyrsta verk þeirrar stjói’nar flokka verkamanna og bænda, sem þá tók við völdum, var að skipta stórjarðeignum •aðalsins milli leiguliða og jarð- næðislausra landbúnaðarverka- manna. Landbúnaðarráðherr- ann, sem stjórnaði framkvæmd þeirra laga, er Imre Na-gy sá sem nú er orðinn forsætisráð- herr.a Ungverjaiands. ¥?r jarðaskiptingin hafði verið framkvæmd var tekið að þjóðnýta iðnað og verzlun. Eyrst voru öll fyrirtæki, sem höfðu hundrað menn eða fleir' í þjónustu sinni, þjóðnýtt árið 1948. Jafnframt var tekinn upp áætlunarbúskapur og megin- áherlza jögð á að konut upp stóriðjufyrirtækjum. Áætlan- irnar hafa að mestu staðizt o" framleiðsla iðnaðarvara hefur stóraukizt. Ljóst er að þessir sigrar hafa stigið ýmsum for- ystumönnum Ungverjalands ti] höfuðs, þeir hafa fest sjónir á guPnum framtíðardr.aumum en ekki gætt eins nútíðarinnar og þarfa Hðandi stundar. Eftir sameiningu kommúnistaflokks og sósíaldemókrataflokk.s Ung- verjalands í Verkalýðsflokkinn, hafði hinn sameinaði flokkur tögl og hagldir í ríkisstjórninni. Innan flokksins réðu þeir Uppskerutími á ungverskum kornakri. mestu, sem stefna vildu að því að koma uPP stóriðnaði í Ung- verjaLandi, afnema einkarekst- ui- i iðnaði og verzlun, reka á eítir bændum að taka upp sam- yrkjubúskap og ganga milli bols og höfuðs á leifum hinnar gömlu yfirstéttar. ÍT'yrir þrem árum, þegar iðn- væðingarstefnan kom fil framkvæmda fyrir a’vöru, lét Imre Nagy af ráðherrastörfum. Nú er hann orðinn forsætis- ráðherra og fyrsta verk hans var að tilkynna algera stefnu- breytingu í efnahagsmálunum. I stað þess að koma upp mikl- u.m stáliðnaði í lartdi, þar sem hvorki er að finna járnmálm, steinkol né vatnsafl til raf- orkufram’eiðslu, verður nú lögð { Eriemd tíðindi \' megináhe.rzla á að efla lan-d- búnað Ungverjalands, sem er einhver frjósamasti blettur Ev- rópu. Ungverjasléttan er gam- all haí'sbotn og þar vaxa svo suðræn.ar jurtir sem tóbak og maís. Undanfarin sumur hefur árað illa í Ungverjalandi og auk þess dró sú röskun á hög- um bænda, sem fylgdi herferð hins opinbera til að útbreiða samyrkjubúskap, úr landbúnað- arframieiðslunni. Jarðrækt, i Ungverjalatidi eins og víðast hvar annars st.aðar í AustUc- Evrópu er þann veg háttað, að samvrkju- eða samvinnubú- skapur í einhverri mynd hlýt- ur að komast þar á fyrr eða seinna. Önnur leið er ekki til að hagnýta landbúnaðarvé’ar nútímans á landi, þar sem jarð- næði hvers bónda er vegna misjafnra jarðargæða skipt í margar smáskákij- víðsvegar umhvérfis þorp hans, En jafn- ljóst er hi-tt, að frumkvæðið til samvinnunnar verður að koma frá bændum sjálfum. Sam- vinnubúskapurinn hefur það markmið að auka afrakstur jarðarinnar en framkvæmd samyrkju með valdboði ofan frá hefur orðið til þess að dr.aga úr framleiðslunni. Il/B'esta þjóðfélagsvandamál Austur-Evrópu er að sjá þeim fjölda, sem ofaukið er í þéttbýlum sveitum, fyrir líf- vænlegri atvinnu. Öreigalýður sveitanna var svo fjölmennur í ■ Ur.gverjalandi á árunum milli heimsstyrjaldanna að það var þá nefnt land hinna þriggja milljóna betlara. Eina færa leiðin er auðvitað að skapa þessu fólki framíæri við ,aff vinna úr þeim hráefnum, sem völ er á. Þetta var ekki hægt meðan erlendir auðhringar réðu yfir iðnaði landsins, eins og var til loka heimsstyrjaldarinn- ar fyrri. Hráefnin voru flutt lítt eða ekki unnin út úr land- inu. í landbúnaðarlandi eins og Ungverjaland; er það auð- vitað léttur iðnaður sem bein- ast liggur við. Á þessari stað- reynd byggist stefna nýju rík- isstjórnarinnar í iðnaðarmál- um. Af því leiðir að hægt er að draga úr fjárfestingunni, sem. verið hefur gífurleg vegna þungaiðnaðarframkvæmdanna, og .beina framleiðslugetunni meira en hingað tú að því að framleiða neyzluvörur fvrir al- menning. . „Við vinnum ekki hai’a fyrir fr.amtíðina heldur einnig okkur sjálf. Ekkj bara bömin okkar heldur við sjálf njótum ávaxtanna af erfiði Framh. á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.