Þjóðviljinn - 23.07.1953, Side 11
FTT r.
. Pirnwtudagur 23. júlí 1953 ÞJÓ©VIWINN>t- (iD(0i:
Hver erfir ríki Churchills?
virðast nú ætla að verða of-
an á. — Þetta sjónarmið má
til sanns vegar færa. Þeir
Churchill eru sízt minni í-
haldsmenn en andstæðingar
þeirra, en þeir meta hags-
muni Bretlands og brezka
heimsveldisins meira en sam-
eiginlega baráttu auðvalds-
rikjanna gegn sósíalistísku
löndunum, þegar þau tvö
sjónarmið rekast á.
Þar eð ágreiningurinn inn-
an Ihaldsflokksins ristir eins
djúpt, og raun ber vitni, mun
það ekki ósennilega ráða úr-
slitum um stefnu hans á kom-
andi árum, liver næsti leið-
togi hans verður. Eden get-
ur ekki lengur talizt sjálf-
kjörinn arftaki Churchills
Kemur hvort tveggja til
greina, að hann hefur átt við
langvinn vei'kindi að stríða og
að stjórn utanrikismála síð-
ustu tvö árin hefur sízt orðið
til að afla honum aukinna
vinsælda, enda aðstaða öll
erfið. Veikindi Churchills, sem
kominn er hátt á áttræðisald-,
ur, hafa þess vegna leitt til
þess, að sú spurning hefur
verið mjög ofarlega á baugi,
hver eftirmaður hans verði.
Enn mun Eden samt sem
áður standa öðrum nær því
að taka við af Churchill, þótt
skæðasti keppinautur hans,
R. A. Butler standi honum
ekki langt að baki. Þá eru
stundum nefndir sem hugsan-
leg leiðtogaefni þeir Harold
MeMillan, húsnæðismálai’áð-
herra og.Sir D. Maxwell Fyfe,
innanríkisráðherra. /Vðalstign
in er Salisbury lávarði f jötur
um fót, því að forsætisráð-
herra verður að eiga sæti í
neðri málstofu þingsins, (en
aðalsmenn hafa ekki rétt til
þess).
Af leiðtogum Ihaldsflokks-
ins er Eden tvímálalaust sá,
sem Churchill hefur mest dá-
læti á. Eden sagði af sér sem
utanríkisráðherra stjórnar
Chamberlains 1938, þegar
hocium varð ljóst hvert
stefndi. í stríðstjórn Churc-
hill fór hann aftur með utan-
ríkismál. Meðan Verkamanna-
fiokkurinn sat að völdum, var
Eden varamaður Churchills
sem leiðtogi stjórnarandstöð-
unnar. Au'k þess að vera nán-
ir samstarfsmenn eru þeir
Churchill og Eden nátengdir.
R. A. Butler er foringjaefni
þeirra, sem eru andstæðir
Churchill og stefnu hans inn-
an Ihaldsflokksins. Er hann
maður skarpskyggn, ötull og
fylginn sér. Viðskiptakjör
Breta fóru bataandi allt s.l.
ár, svo að hagur landsins
virtist taka stakkaskiptum
undir stjórn Butlers. Gagn-
stætt Edea hefur hann þess
vegna vaxið i áliti af ráð-
lierradómi sínum nú. Ef
! stjórnarstefna Churchills bíð-
ur a.]varlegan hnekkí er ekk-
ert líklegra ea Butler taki
við fo/ýstu Ihaldsflókksins.
Greina má átökin innan I-
haldsflokksins að baki, skip-
ana Churchills í sæti þeirra
Edens í forföllum þeirra.
Þegar Churchill tók sér hvíld
frá störfum og ferð á hend-
ur til Jamaica í janúarmán-
uði, var Eden skipaður for-
sætisráðherra í f jarveru hans.
Er þeir Churchill og Eden
fóru til Washingtcn í janúar
1952, var Crookshank falið
að sitja í öndvegi á ráðuneyt-
isfundum, en ekki Butler, sem
stóð því nær. Butler sat fyrst í
forsæti á ráðuneytisfundum
fáeina daga í september í
fyrra, en án sérstakrar skip-
unar. Að þessu sinm hefur
Butler á sama hátt ekki ver-
ið skipaður varaforsætisráð-
herra, — jafnvel ekki til
bráðabirgða, — heldur ein-
ungis falið að gegna störfum
forsætisráðherra. Þótt mjótt
kunni að sýnast á mununum,
má af þeirri staðreynd ráða,
að Churchill forðast að gera
híut Butlers meiri en nauð-
syn krefur.
I sömu átt bendir skipun
Salisbury lávarðar til að fara
með utanrikismál, þótt hún
eigi sér fordæmi frá því í jan-
úar 1952. I neðri málstofu
brezka þingins mælist það
allt anaað en vel fyrir að ut-
anríkisráðherrann eigi sæti í
lávarðardeildinni í skjóli gegn
gagnrýni hennar. Með því að
fela e'kki meðferð utanríkis-
mála Sir David Maxwell Fyfe,
eins og ýmis brezku blaðanna
bjuggust við, hefur Churchill
enn viljað forðast að gera
neitt, sem veikt gæti aðstöðu
Edens. Sá meinbugur hefði
verið á útnefningu Sir David
Maxwell Fyfe, að hún hefði
bundið enda á óskorað for-
ræði Edens í utanríkismálum
innan íhaldsflokksins og veikt
aðstöðu hans þannig óbein-
línis, en styrkt aðstöðu Butl-
ers að sama skapi.
E<.i eins og sakir standa
fer Butler með forystu I-
haldsflökksins og virðist, eftir
úrslitum þríveldafundarins í
Washington að dæma, vera
farinn að setja svip sinn á
stefnu brezku -stjórnarinnar
Ef Churchill og Eden verða
lengi fjarvistum mun aðstaða
Butlers og fylgismaqna hans
styrkjast og átökin um stefnu
og forystu Ihaldsflokksins
vera liin tvísýnustu.
harjóh.
Frá sfarfí SameinuSu
þjóSanna
i
Hjúkrunarkona frá heilbrigðisstofnun sameinuðii þjócaima að
íitarfi á ráðleggingarstöð fyrir barnshafandi konur í smábæ í
Paraguy, Suður-Ameríku.
Framh. af 7. síðu.
bættinu. Konungsvaldið var
enn ekki ’svo sterkt, að það
gæti staðið gegn æðsta valdi
kirkjunnar í siík-um málum og
veitt skjólstæðingum sínum
nægan styrk. Það var ekki fyrr
en komið var fram á 16. öld,
.að slíkir atbúrðir, gerast, en
við þekkjum þá undir nafninu
siðaskipti. Um þessar mundir
voru konungar einungis með
stjórnkænsku að elda grátt
silfur við kirkjuna, en urðu
jafnan að láta undan, þegar í
harðbakkann sló. Öll menntun
tímabilsins var í höndum kirkj-
unnar og klerkanna, en leikir
aðalsmenn lítt lærðir til bókar-
innar. Þeir voru því háðari
skriftlærðum klerkum en hóf-
legt var um þjóna konungs-
valds, sem vildi knésetja kirkj-
una og efla tekjur sínar. Kóng-
arnir áttu í rauninni í skæru
hernaði við kirkjuvaldið og
tóku feginshendi hverjum þeim
lærðum manni, sem vildi ger-
ast flugumaður þeirra innan
kirkjunnar. Þannig stendur
því, að óhlutvöndum ævintýra-
mönnum skýtur stundum upp í
háembættum kirkjunnar á
Norðurlöndum á 15. öld, en
tveir slíkir menn eru frægir
í íslenzkri sögu, þvi að kon-
ungar Norðurlanda komu þeim
á biskupsstólana hér, þegar þeir
gátu ekki lengur hamið þá í
embættum annars stáðar í
rikjum sínum. Annar þessara
manna er Jón Gerreksson
Skálholtsbiskup. Honum var
drekkt í poka í Brúará^eins og
frægt er orðið. Hinn var Mar-
cellus S'kálholtsbiskup. Hann
félck páfavéitingu fyrir embætt-
inu, en auk þess skipaði hans
heilagleiki hann innheimtu-
mann allra páfatekna af öllum
Norðurlöndum. Þegar til
Norðurlanda kom. gerðist hann
vinur Pg ritari Kfistjáris kon-
ungs I. og ritaði páfa miklar
lygasögur um krossferðir kon-
ungs á hendur heiðingjum
þeim, sem riefnást Rússar. Með
söguna. þessum , vildi Marcellu.;
sanna páfa, að Kristján I. gæti
ekk[ lagt neitt af mörkum til
'baráttunnar við Tyrki eða innt
af höndum alíar sfnár 'greiðsl-
ur til páfastólsins. Að lokum
varð konungur að senda Mar-
cellus -frá sér; og ætlaði hann
þá áð vitja stóls síns í Skál-
holti, en'- drukknaði á leiðinni.
Heimiiisþátturisn
Framhald af 10. síðu.
einnig hægt að hekla þá úr mis-
litu garni; ljósgrænt, gult og
blátt igetur verið mjög fallegt,
þó.tt bleikt sé oftast of barnalegt.
Oftast er aðeins hægt að fá
baðmullargarn í ljósum, daufum
litum, og sé það til í sterkari
litum er mjög hætt við að það
upplitist. Ráðlegast e,r að halda
sér við Ijósu litina, einkum hvítt.
ÚTBREIÐIÐ
ÞJÓÐVILJANN
Starfsmenn Heilbrigðisstofnunar SÞ að starfi í Kabúl, Afghan-
istan, í baráttu við taugaveiki.
Þjóðviljinn er eina dagblað bæjarins, sem
birtir daglega sérstakan þátt sem helgaður er
konunni og hennar störíum.
hefur þegar unnið sér miklar vinsældir
meðal kvenna (og karla?). Eí þér eruð
ekki fastur kaupandi blacsins, þá ætt-
uð þér að hringja strax í dag til af-
greiðslu þess og tilkynna áskrift yðar.
sími 7500
n» •4--» -