Þjóðviljinn - 01.11.1953, Qupperneq 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 1. nóvenaber 1953 -----------------
þi5®yiyiiSS"
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sóaíallstaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjóri: Jón Ejarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg.
19. — Sími 7500 (3 linur).
Áakriftarverð kr.,20 á mánuði i Reykjavík og nágrennl; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
AtvinnuleysistryggÍHgar
' Þrátt fyrir þær umbætur sem fengizt hafa á síðari árum
á þjóðfélagslegum réttindum verkalýðsins og alþýðu yfir-
leitt, fyrir atbeina verkalýðssamtakanna og pólitíska bar-
áttu verkalýðsstéttarinnar í landinu, býr verkalýðsstéttin
enn við þá frumstæðu aðstöðu að þjóðfélagið lætur sig það
engu skipta þótt heimili hennar standi uppi bjargarlaus
á atvinnuleysistímum, þegar undan er skilinn möguleik-
inn til að sækja um opinberan framfærslustyrk.
Fyrir löngu síðan hófu verkalýðssamtökin baráttuna
fyrir því að fá lögfestar atvinnuleysistryggingar. Þing
eftir þing hefur Sósíalistaflokkurinn flutt þetta réttlætis-
og hagsmunamál íslenzkrar verkalýðsstéttar á Alþingi og
háð haröa baráttu fyrir framgangi þess. Hefur frumvarp-
ið um atvinnuleysistryggingarnar verið flutt að tilhlutun
yerkamannafélagsins Dagsbrúnar, hins reynda og trausta
forustufélags íslenzku verkalýðsstéttarinnar. Fjölmörg
verkalýðsféiög víðsvegar um land hafa sent Alþingi áskor-
anir um aö samþykkja frumvarpið og sama er aö segja
um undanfarandi þing Alþýðusambands íslands. Allt
hefur þó komið fyrir ekki. Frumvarpið um atvinnuleysis-
tryggingar hefur ekki fengizt afgreitt úr viðkomandi þing-
nefnd fyrr en á síðasta þingi, er minnihluti heilbrigðis-
og félg.gsmálanefndar neðri deildar, þeir Jónas Árnason og
Gylfi Þ .Gíslason, lagði til aö frumvarpið yrði samþykkt
með smávægilegumi breytingum, en meirihlutinn, fulltrú-
ar íhalds og Framsóknar, lagöi til að því yrði vísaö til
ríkisstjórnarinnar. Var sú tillaga samþykkt en ekkert hef-
ur síðan um málið heyrzt frá ríkisstjórninni.
í desemberverkföllunum í fyrra gerðu verkalýðssam-
tökin kröfuna um atvinnuleysistryggingar að einu helzta
baráttumáli sínu og gerðu ráð fyrir að fyrirkomulagi
þeirra yrði hagað meö líkum hætti og lagt hefur veriö
til í frumvarpi Sósíalistaflokksins. Þessi krafa verkalýös-
samtakanna náði þó ekki fram að ganga. Enn er því þessi
sjálfsagði réttur verkalýðsins ótryggður, enn eiga íslenzkir
verkamenn engan aðgang aö atvinnuleysissjóðum þegar
atvinnuleysið herjar, enn verða þeir þegar í nauðir rekur
að sætta sig við skortinn eða leita á náðir hins opinbera
um framfærslustyrk.
Þetta ástand er ekki aöeins óviðunandi fyrir verkalýðs-
stéttina heldur er þaö þjóðfélaginu til háborinnar skamm-
ar. Það er til skammar að þjóðfélagið skuli ekki búa
verkamanninum þann sjálfsagða rétt sem felst í atvinnu-
leysistryggingum í stað þess að dæma hann til skorts eða
þvingandi göngu á fund opinberra framfærsluyfirvalda
þegar fylgja auðvaldsþjóðfélagsins, atvinnuleysið, ber aö
dyrum. Meðan málum er svo háttaö að verkalýðnum hef-
ur ekki verið búið fullkomið atvinnuöryggi hlýtur hann
því að halda áfram baráttiínni fyrir sem fullkomustum
atvinnuleysistryggingum.
Sósíalistaflokkurinn hefur því enn á ný lagt fram á
Alþingi frumvarpið um atvinnuleysistryggingar á vegum
verkalýösfélaganna. Er þaö flutt af þrem þingmönnum
flokksins í neðri deild, þeim Gunnari Jóhannssyni, Sig-
urði Guðnasyni og Einari Olgeirssyni. Hefúr Gunnar
Jóhannsson þegar fylgt frumvarpinu úr hlaði og sýnt
með ljósum rökum hins þaulkunnuga verkalýðsleiðtoga
íram á nauðsyn þess að þetta réttlætismál nái fram að
ganga. Eigi að síöur er fullvíst að til þess að Alþingi eins
og það nú er skipaö samþykki frumvarpið þarf að rísa á
ný sterk og öflug alda meðal alls verkalýðs í landinu fyrir
framgangi málsins. Það má ekki undir neinum kringum-
stæðum fara fram hjá alþingismönnum að það er- ein-
róma krafa og vilji allrar íslenzku verkalýðsstéttarinnar
aö atvinnuleysistryggingarnar verði lögfestar.
Verkalýðsstéttin verður að bera þetta mikla hagsmuna-
mál sitt fram til sigurs. Einhuga barátta hennar hefur
áður tryggt henni 8 stunda vinnudaginn, 15 daga orlof
og togarasjómönnum 12 stunda hvíld. Gegn öllu þessu
stóðu atvinnurekendur og afturhaldsöflin meöan stætt
var en uröu að lokum aö láta undan þunga „samtakanna.
Söm veröur reynslan um atvinnuleysistryggingamar en
verkalýðsstéttinni er það mikið nauðsynjamál að þær nái
fram aö gang» án frekari tafar. -
Stjómendur Bandaríkjanna yfirvega
gjörbreytta hemaðaráætlun
YfirherráSiS fylgjandi einbeitingu aS
kjarnorkuhernaSi
á íundi sínum með blaða-
mönnum í síðustu Viku
varði Eisenhower Bandaríkja-
forseti miklum tíma til að
bera til baka fregnir af þvi að
fyrir dyrum stæði fækkun her-
liðs Bandarikjanna í Evróþu og
Asíu. Fregnir þessar voru
runnar frá sjáfum iandv.arna-
ráðherra Bandaríkjanna, Char-
les Wilson, sem sagði blaða-
mönnum 19. október að með
tímanum þegar ný vopn jrrðu
tekin í notkun myndi verða
hægt að fækka bandarísku her-
liði erlendis. Bent; hann á að
nokkrar fallbyssur, sem skjóta
má úr kjarnorkusprengikúlum,
hefðu nýlega verið sendar til
Vestur-Þýzkalands, en jafn-
framt hætt við fyrirætlun um
Eriend
tíðindi
að senda þangað fullbúna véla-
herdeild í viðbót við þær sem
fyrir eru.
IJandarísk blöð haía mjög
" rætt mál þetta undanfarið.
Þeim blaðamönnum, sem greið-
astan aðgang eiga að æðstu
eipbættismönnum Bandaríkj-
anna, ber saman um að á döf-
inni séu fyrirætlanir um ger-
breytfca bandariska hemaðar-
áætlun en engin endanleg á-
kvörðun hafi verið tekin enn
og verði varla tekin fyrr en
einhvern tíma á næsta ári. I
haust var algerlega skipt um
menn ' í yfirherráði Bandaríkj-
anna. James Reston, yfirfrétta-
ritari New York Times í Was-
hington, sem venjulega veit
svo vel hvað' er að gerast bak
við tjöldin í Washington að
stéttarbræður hans stríða hon-
um á því að hann virðist ala
mestallan aldur sinn undir
gólfteppunum í skrifstofum
ráðherranna og forsetans, seg-
ir 21, október að yfirherráðinu
hafi verið falið að athuga,
. hyemig hægt sc að lækka her-
kostnað Bandaríkjanna án þess
að herstyrkurinn minnki við
það. Reston skýrir frá því að
yfirherráðið sé nú búið að
segja forsetanum að vilji hann
að þa<ð lækki hernaðarútgjöld-
in á fjárlögum verði hann að
leyfa þvi að fækka banda-
rísku herliði erlendis og draga
úr framleiðslu eldri vopna-
gerða til að hægt sé að leggja
megináherzlu á framleiðslu og
notkun kjarnorkpvopna.
1>eston segir að það sé þegar
orðið greinilegt í Washing-
ton að al'ar hemaðaráætlanir
hneigist í áttin.a til einbeiting-
ar að kjamorkuvopnum og
minnkaðs herstyrks erlendis en
ákvarðanir um meiriháttar
stefnubreytingar hafi ekki ver-
ið teknar og komi ekki til
kasta Eisenhowers og Þjóðarör-
yggisráðsins fyrr en að vori í
fyrsfca lagi. í Þjóðaröryggis-
ráði Bandaríkjanna eiga auk
forsetans sæti utanríkisráðherr-
ann, landvamaráðherrann,
fjármálaráðherrann og yfir-
maður leyniþjónustunnar. Ráð-
ið fjallar um öll meiriháttar
mál sem snerta hernað og
skipti við önnur ríki. Yfirher-
ráðið hefur hinsvegar gert und-
irbúningsrannsóknir og segir
Reston að það sé þeirrar skoð-
unar að kjamorkuvopn séu
þúsund sinnum ódýrari en
eldri vopn með sama eyðing-
armætti.
'%Terði það úr að Bandaríkja-
’ stjórn hverfi að þvf ráði
að byggja hernaðarmátt sinn
að mestu á • kjamorkuvopnum
þýðir það að hún getur ekki
þótzt vilja semja um bann við
kjarnorkuvopnum og alþjóð-
legt eftirlit með framkvæmd'"
þess, segir Reston. I öðru lagi
yrð; iafleiðlr.gin sú að takmark-
aðar styrjaidir eins og sú í
Kóreu yrðu háðar með kjarn-
orkuvopnum með allrj þeirri
auknu hættu á stórst'yrjöid sem
iaf því myndi le.ða. Reston seg-
ir í grein í New York T mes
25. október að liklegt sé að
rökin fyrir einbeitingu að
kjarnorkuhervæðingu fái yfir-
höndina í Washington. „Her-
menn sem hugsá í eyðingar-
mætti, hagfræðingar sem hugsa
í fjárhagsstyrk og stjómmála-
menn sem hugsa í stjórnmála-
valdi sjá allir mikinn hag við
breytinguna", segir hann.
¥ Tmmæli ýmissa bandarískra
^ áhrifamanna styrkja þessa
skoðun Restons. Til dæmis
sagði Wilson landvarnaráð-
herra við blaðamenn 19. októ-
ber að ,3andaríkin gætu vegna
yfirburða sinna hvað kjarn-
L Gordon Dean
--f. ~
Charles Wilson.
orkuvopn snertir, ráðizt á Sov-
étr kin frá flugstöðvahring sín-
um i kringum rússneska heims-
ve'dið . . . Fólkinu gæti orðið
það til veru’egrar hughrevst-
ingar ef það vildi gera sér í
hugarlund hvernig því myndi
líða ef það byggi í Sovétrikj-
unum — .byggi þar vitandi af
því að (Bandaríkin) hafa yf-
irburði í kjamörkuvopnum og
ráða yfir stöðvum hringinn í
kring um Sovétríkin, sem hægt
er að beita þessum vopnum
frá“. (New York Times 20. okt.
bls. 8 í flugpóstútgáfunni).
Skýrar hefur aldrei verið lýst
yfir tilganginum með banda-
rískum herstöðvum í öðrum
löndum.
¥»á var Gordon Dean, sem var
formaður kjarnorkunefnd-
ar Bandarikjastjórnar þangað
til á þessu ári, ekki myrkur
í máli í ræðu í veizlu Verzl-
unarráðsins í Los Angeles 23.
október. Dean, sem er einn af
eigendum Lehman bankans í
New York, sagði: „Við ættum
að láta Rússana vita .af því að
við erum reiðubúnir að nota
kjarnorkusprengjuna ef þörf
krefur . . . Við skulum gera það
deginum liósara að ef Rúss-
land hreyfir sig beinlínis eða
óbeiniínis í Kóreu, í Mið-Aust-
ur’.öndum eða í Norðurheim-
skautslöndunum munum við
ekki aðeins
heldur verð
um við að
tortíma
liffærum
þeirrar
hreyfingar
— sérhverri
járnbraut-
arstöð, sér-
hverri
birgðastöð,
öllu því iðnverkafólki sem að
þessu vinnur . . . Segjum þeim
að við munum ekki þola nein-
ar umræður um hvað sé árás.
Slíkar umræður kynnu ,að
standa árum saman. Höfum
við árás fyrir augunum mun-
um við kannast við hana. En
leiki nokkur vafi á skulum við
gera það deginum ljósara að
um árás sé að ræða ef sprengja
eða vébyssuvagn írá Skoda-
verksmiðjunum I Tékkósló-
vakíu finnst í grennd við dauð-
an mann frá hinum Vestræna
heimi. Það er nóg ef MIG-flug-
vél, sem notuð er til að aðstoða/
við árás, verður rakin til rúss-
neskrar verksmiðju“. (New
York Times 24. okt. bls. 5 í
flugpóstútgáfuqni). Þessi banda-
ríski stórlax krefst þess sem
sagt arf Bandaríkjastjórn lýsi
því yíir að hún áskilji sér rétt
til að hefja gjöreyðingar-
styrjöldt'með kjarnorkuvopnum
hvénær sem henni þóknast.
¥jiréttaritari brezku fréttastof-
unnar Reuters í Washing-
ton, Paul Scott Rankine, skýrir
í skeyti frá flestu hinu sama
og Reston. Bretinn bætir því
þó við að bandarísk íjárhags-
aðstoð verði í vaxandi mæli
notuð „til ,að koma upp, vopna
cg birgja evrópskar herdeildir
búnar venjulegum vopnum, því
að ódýrara ér að halda þeim
útí en bandarískum herdeild-
um“. Restoij lætur orð liggja
að hinu sama er h-ann segir, að
ekki sé hægt að fækka að
neinu ráði bandariskum her-
sveitum í öðrum löndum fyrr en
búið sé .að koiha upp veruleg-
FramhaJd & 11. eíðu.