Þjóðviljinn - 01.11.1953, Qupperneq 11
Sunnudagur 1. nóvember 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (lt
Bandarí$k kjarnorkuhernaðaráætSun
Heimilisþátturinn
Framhald af 10. síðu.
Framhald af 6. síðu.
um herafla í Vestur-Þýzka-
landi og Jap.an. Ætlunin er sem
sé að láta þasr þjóðir, sem
bundnar hafa verið í hernaðar-
bandalag við Bandaríkin,
leggja fram mannafla sem á
að vera ódýrt fallbyssufóður í
kjarnorkustyrjöld. Sjálfir eíga
Bandarikjamenn svo að hafa
ráð þessara bandamanna í
hendi sér í krafti yfirburða í
kjarnorkuvopnum.
17isenhower forseti hefur vafa-
^ laust sagt satt þegar hann
lýsti yfir að ekki væri nú i
ráði að flytja bandaríska her-
inn í brott frá Vestur-Evrópu
en hvað síðar kann að verða
sagði hann ekkert um. Nokkr-
ar bending.ar hafa þó sést um
það, sem verið er að undirbúa.
C. L. Sulzberger, yfirmiaður
fréttaritara New York Times
utan Bandaríkjanna segir í
skeyti frá Bonn, höfuðborg
Vestur-Þýzkalands, að Þar séu
uppi ráðagerðir um „skjóta
gerð beins hernaðarbandalags
milli Bandaríkjanna og Vestur-
Þýzkalands“ ef fyrirætlanirn-
ar um Vestur-Evrópuher fari
endanlega út um þúfur, Sulz-
berger kemst svo að orði:
„Ábyrgir Þjóðverjar viður-
kenna að ef horfið væri að
þeirri varaáætlun sem þeir
mæla með, værj Atlanzhafs-
bandalagið þar með úr sög-
unni. Þeir búast við að þá
verði að koma upp kerfi banda-
lagssamninga írá Tyrklandi
og Spáni til Vestur-Þýzka-
lands, sem allir væru byggðir
á bandarískri og vonandi
brezkri þátttöku". (New York
Times, 20. okt. bls. 5 í flug-
póstútgáfunni). Þarna er sett
íram fyrirætlun, sem vitað er
að Arthur Radford aðmíráll,
forseti bandaríska yfirherráðs-
ins, hefur verið hlynntur.
Hernaðaráætlun byggð á kjarn-
orkuvopnum myndi hafa það í
för með sér að Atlanzhafs-
bandalaginu yrði varpað til
hliðar en allt kapp lagt á að
Hyggja Bandaríkjunum aðgang
'að flug- og flotastöðvum á hem-
aðarlega mikilvægum stöðum
með tvíhliða bandalagssamn-
ingum.
Dollaleggingar þessar hafa
meiri þýðingu fyrir okkur
Islendinga en virðast kann í
fljótu bragði. Auðvitað stafar
okkur sama tortímingarhætta
af kjarnorkustyrjöld og öðrum
þjóðum. En þar .að auki myndi
Þýðing, herstöðýa á fslandi fyr-
ir Bandaríkin aukast ef af því
yrði að hætt yrði við að koma
upp stórum landher á megin-
landi Evrópu vegna andstöðu
Frakka gegn Evrópuher með
þýzkri þátttöku og horfið að
kjarnorkuhernaðaráætlun. Við
megum því búast við tilraun-
um. af hálfu Bandaríkjamanna
til að festa sig enn betur í
sessi hér en þegar hefur verið
gert. Jafnframt því myndi líka
hersetan leiða stórum aukna
hættu yfir þjóðina. M. T. Ó.
íþróttii
Framhald af 8. síðu.
þrjár fyrstu loturnar, en svo var
það búið', Olsson hamraðíi á
honum hvað eftir annað upp v:ð
kað!ana með næstum vélrænum
áhlaupum og gat notað þar all-
ar tegundir högga en rothöggið
kom þó aldrei og er það talið
stafa af þreytu Olssons er á
leikinn leið.
Áhorfendur voru um 18000
sem er fleira en nokkru sinni
fyrri í hnefaleikakeppni í milli-
vigt og því met í Madison Square
Garden.
Grindavík
Framh. af 7. síðu.
heim í fleiri vertíðir. Manns-
lífin eru okkur íslendingum
það mikils virði, að okkur er
ekki leyfilegt að fara svona gá-
leysislega með þau.
Eg skora Því á vitamála-
stjórnina að bregðast hér fljótt
og vel við og láta.. setja upp
innsiglingaljós í Grindavík fyr-
ir næstu vetrarvertíð, sem sjó-
mennirnir geta treyst á þótt
rafstraumurinn sé rofinn í
landi.
LJósvíkingur
Framhald af 7. síðu.
Ólafi litla Ljósvíking í fjör-
unni undir Fótarfæti, að fyr-
ir honum ætti að liggja að
vera vegirun á móti hertogan-
um af Marlborough, eða að
Bjartur bóndi og búrtík hans
gætu orðið þröskuldar á
heimsfrægðarferli Sir Win-
ston Churchills. Þeir íslenzku
bændur og barnakennarar,
sem fjargviðrast mest um það
að Halldór Kiljan níði niður
land sitt og landa með bók-
um sínum mættu ígrunda þá
staðreynd, að á s'ðustu ára-
tugum hafa engir lyft hróðri
íslands hærra á erlendum
veEtvangi en. stettarbræður
þeirra, kotbóndinn í Sumar-
húsum og barnakennarinn í
Litlu Bervík.
konan vera farin að slá slöku
við. Kcnan ætti að leggja að-
aláherslu á einfaldan mat fyrst
í stað, þegar hún fer að æf-
ast í maíargerðarlistinni getur
hún farið að spreyta sig. á
flóknari réttum. Kauptu góða
matreiðslubók og farðu ná-
kvæmlega eft.r uppskriftunum;
reyndu ekki að breyta þeim
eða betrumbæta; það gefur
sjaldan góða raun hjá byrj-
endum. Þegar æfingin er kom-
ira gegnir öðru máli; þá er hægt
að finna upp nýja rétti sjálfur.
Og svo að lokum: Þegar
gestir koma, reyndu þá ekki
að gera of mikið veður út af
þýí. Líttu ekki á það sem
skyldu þina að bera fram eins
margar kökutegundir og hún
Sigga konan hans Halla; gættu
þess umfram allt að lenda ekki
út í þeim ógöngum að reyna
alltaf að hafa meira á boðstól-
um en vinkonurnar. Ef Gunna
vinkona ber fram þirjár köku-
tegundir, átt þú ekki endilega
að bera fram fjórar. Oft hef-
ur það sýnt sig, að gestir eru
þakldátir og fegnir látlausri
framreiðslu. Það er ekki ætlun-
in að húsmóðirin eigi að strita
látlaust allan daginn vegna
þess að von er á nokkrum gest-
um og því síður að öll fjár-
hagsáætlunin fari út um þúf-
ur. Segðu gestunum aðeins að
koma og borða óbrotinn mat
og vertu ekkert að afsaka að
maturinn sé ekki íburðarmeiri
og framreiðslan glæsilegri,
líttu á það sem sjálfsagðan
hlut. Ef þú ert vön því hvers-
dagslega að bera matarpott-
inn inn á borðið, því skyldirðu
þá ekki geta. borið pott með
sjóðheitum mat inn á borðið,
þótt nokkrir góðvinir þínir hafi
komið í heimsókn ?
FEBMING
Framhald af 2. síðu.
Hjördís Jensdóttir,
Hjallavegi 26
Magnea Miagnúsdóttir,
Hverfisgötu 83
Valgerður Pétursdóttir,
Melgerði 20, Sogamýri
Þorbjörg Jónsdóttir,
Njálsgötu 75
Þorbjörg Signý Höskuldsdóttir,
Hverfisgötu 60
Þórdís Númadóttir,
Laugarneskamp 14
Þrúður Guðrýn Sigurðardóttir,
Skaftahlíð 5.
' ------V
Námskeið í Esperanto
eru að hefjast. — Kennt í Edduhúsinu miðviku-
dagskvold Þátttökugjald, 20 stundir, 150 kr. —
Uppl. og innritun í Bókabúö KRON, sími 5325.
Tllkynmng
um aivinEuieysisskrániugu
Atvinnulgysisskráning samkvæmt ákvöröun laga
nr. 57 frá 7. maí 1928, fer fram á Ráöningarstofu
Reykjavikurbæjar, Hafnarstræti 20, dagana 2., 3.,
og 4.^nóv. þ. á., og eiga hlutaöeigendur, er óska
að skrá sig samkvæmt lögunum, aö gefa sig þar
fram kl. 10—12 f.h. og 1—5 e.h. hina tilteknu daga.
Óskaö er eftir, aö þeir sem skrá sig séu viðbúnir
aö svara, meöal annars spurningum:
1. Um atvinnudaga og tekjur síðustu þrjá mánuði.
2. Um eignir og skuldir.
Reykjavík, 30. október 1953.
Borgarstjórinn í Beykjavík
Kvennadeiid Slysavarnalélagsins í Beykjavík
heldur
FUND v.
v ■ ~ rúiÁVfV i\i Tirf>F
mánudaginn 2. nóv kl. 8.30 í Sjálfstæðishúsinu.
Til skemmtunar: Kvikmynd — Einsöngur — Dans.
Fjölwennið! — Stjórnin.
HraSsuÖupoiiar.......kr. 294.00
Hraðsuðupoitar_______— 366.00
Hraðsuðukaflar IV21. kr. 236.00
Hraðsuðukatlar.......— 316.00
Hraðsuðukaflar 3 1. .. — 370.00
Brauðrisiar........... kr. 145.00
Brauðristar ........... — 445.00
Handryksugur........ kr. 495.00
Byksugur............... — 1055.00
BÚSÁHALÐADEILD
Bankastrætj 2 — Sírni 1248
að verðmæti er fyrsti vinnirígur
í happdrætti Þjóðviljans.
Vinningurinn er dagstofuhúsgögn
eftir eigin vali.
Miðinh kostar 5 krónur
Hregið vcrour 5. desember n.k.
Annar vinningur happdrættis
Þjóðviljans er svefnherbergis-
húsgögn að verðmæti
10.500 krónur.
Einnig eftir eigin vali.