Þjóðviljinn - 05.11.1953, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 5. nóvember 1953
þlÓiiyiUBNN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistanokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjórl: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraidsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg.
19. — Sími 7500 (3 línur).
Ajskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Samfylking gegn hernáminu
Höfuðmálgagn ameríska hernámsins á íslandi ber þess merki
í gær að það telur málstað og hagsmuni húsbænda sinna hafa
orðið fyrir alvarlegu áfalli við úrslit stúdentaráðskosninganna um
síðustu helgi og þá samv'nnu sem tekizt hefur með öllum and-
stæðingum íhaldsstúdenta um stjórnarkjör í stúdentaráði og and-
stöðu gegn amerísku yfirdrottnuninni á íslandi.
Fyrirsögn Morgunblaðsms yfir frétt þess af stjómarkjörinu
var svohljóðandi í gær:
„Kommúnistar ráða lögum og lofum í stúdentaráði. Meðan
Vaka hafði meiri hluta var lýðræðissamvinna ög kommúnistar
einangraðir".
Hann leynir sér svo sem ekki söknuðurinn út af því að íhaldið
hefur verið svift meiri hluta sínum í stúdentaráði Háskólans og
að samstarf hefur tekizt milli allra andstæð:nga þess um stefnu
og störf stúdcutaráðs. Og vitanlega finnst Morgunblaðinu það
alvarlegra en nokkuð annað að hverju samstarfið beinist, að
höfuðmarkm'ð þess er að hefja að nýju að hún meðal háskóla-
stúdenta fána djarfrar, þjóðlegrar baráttu gegn ameríska her-
náminu á íslandi, afsiðunaráhrifum þess og margháttaðri spill-
ingu. meðal æskulýðsins og þjóðarinnar allrar.
En þótt íhaldið og Morgunblað:ð sé haldið hryggð og ótti þess
við samfylkingu hernámsandstæðinga sem tekizt hefur meðal
Háskólastúdenta leyni sér ekki gegnir öðru máli um alla þjóð-
holla íslendinga. Almenningur í landinu fagnar af heilum hug
ósigri íhaldsins í Háskólahum og þeim straumhvörfum sem sam-
vinna andstæðinga þess boðar í afstöðu. stúdenta til hinnar
ge:gvænlegu hættu af hernáminu. Háskólastúdentar voru lengi
vel í broddi fylkingar í baráttunni gegn herstöðvakröfum Banda-
ríkjanna unz Ihaldinu tókst að sundra þeim fyrir nokkrum árum
og draga þá í dilk með hernámsliðinu. H'q nýja samvinna her-
námsanastæðinga í Háskólanum boðar nýja sókn íslenzkra stúd-
enta gegn-spillingu hemámsins en fyrir uppsögn hernámssamn-
in^sins og brottflutningi alls herliðs af íslandi. Heiður sé þeim
sem að þeirri samvinnu hafa unnið. Heill fylgi störfum þeirra og
baráttu fvrir málstað íslenzku þjóðar'miar og frelsi lands henn-
ar undan ameríska kúgunarokinu.
Söluskatturinn
Stjórnarflokkarnir hafa einu sinni enn farið þess á leit
við Alþingi að það framlengi þær milljónaálögur á þjóðina
sem felast í hinum óvinsæla söluskatti. Kom frumvarp um
þetta efni til 2. umræðu á þingi í fyrradag og þarf varla
að efa að þingmenn íhalds og Framsóknar hlýði eins og
að venju og geri þaö sem fyrir þá er lagt af ríkisstjórninni.
Um leið og Einar Olgeirsson mótmælti frumvarpinu
harðlega fyrir hönd Sósíalistaflokksins flutti hann tvær
breytingartillögur. Er önnur um að undanþiggja allar ís-
lenzkar iðnaðarvörur söluskatti og hin að felld skuli niður
heimildír. til að stöðva atvinnurekstur manna vegna ó-
greidds söluskatts.
Söluskatturinn hefur ekki hvað sízt komið hart niður
á íslenzka iönaðinum, sem átt hefur í vök að verjast vegna
þeirrar fráleitu stefnu stjórnarflokkanna að hrúga inn í
landið fullunnum erlendum iðnaðarvörum, sömu tegund-
ar og ísienzk iðnaðarfyrirtæki framleiða á fullkomlega
samkeppnisfæru verði. Hefur með þessu verið kreppt mjög
aö iðnaðinum, þeim unga og efnilega atvinnuvegi, sem
veitir sífellt stærri hluta þjóðarinnar atvinnu og sparar
gjaldeyri í stórum stíl.
Sú fruntalega innheimíuaðferð ríkísstjórnarinnár aö
stöðva rekstur fyrirtækja og einstaklinga án allrar misk-
unnar sé söluskatturinn ekki greiddur er fyrir löngu
landskunn að endemum. Er vissulega tími til kominn að
Alþingi grípi hér í taumana og hindri slíkar innheimtú-
aðfer'ðir eftirleiðis. Mun áreiðanlega fylgzt meö því af vak-
andi athygli hverja afgreiðslu þessar sjálfsögðu breyt-
ingatillögur Einars Olgeirssonar við söluskattsfrumvarp-
ið hljóta af hálfu Alþingis.
Almemtingur í Bandaríkjunum
snýst gegn stjérn Eisenhewers
Dýrtið og atvinnuleysi hrjá verkamenn
en verSfall bœndur
Fjótt Dwight Eisenhower hafi
ekki setið nema hálfan tí-
unda mánuð í forsetastóli
Bandaríkjanna er bandarískur
almenningur þegar búinn að fá
nóg af honiun og stjóm hans.
Fyrir ári síðan var*E:senhow-
er 'kjörimi forseti með atkvæði
442 kjörmanna en keppinaut-
ur hans, Adlai Steveuson, fékK
aðeins 89. I haust liafa hins-
vegar hverjar aukakosningarn-
ar af öðrum gengið í mót for-
setanum og flokki hans. Er
það nú ahnennt viðurkennt i
Bandaríkjuniun að kosninga-
úrslit þessi beri vott megnri
óánægju meirihluta kjósenda
með stefnu stjómar Eisen-
howers og vonbr'gðum yfir
embættisrekstri hans.
Fyrir þremur vikum kom
. fyrsta áfallið fyrir re-
publikana, andstöðuflokkur
þeirra demókratar fckk í
fyrsta skipti í sögunni kjörinn
þingmann á sambandsþingið í
Washington í níunda kjördæmi
Wisconsinfylkis. I fyrradag
var svo kosið á ýmsum stöðum
og alla þá bardaga sem fylgzt
var með af mestri eftirvænt-
ingu unnu demókratar. Fram-
bjóðandi þeirra, Robert Wagn-
er yngri, var kjörinn borgar-
stjóri i New York. Demókrat-
inn Robert Meyner var kjör-
inn fylkisstjóri í New Jerseý
og republikanar töpuðu auka-
kosnmgu um sambandsþings-
sæti úr sama fylki. í Virginia
þóttust republikanar ömggir
um sigur í fylkisstjórakosn-
ingu en töpuðu þrátt fyrir
mjög lélegt framboð demó-
krata.
T^essi kosningaúrslit em svo
* samhljóða að eng:nn vafi
leikur lengur á því að í augum
bandarískra kjósenda eru E:s-
enhower og stjóm hans veg-
in og léttvæg fundin. Eftir
aukakosninguna í Wisconsin
reyndu sumir foringjar re-
publikana í Wash’ngton að
hugga sig við það að kosninga-
þátttaka hefði verið lítil og
úrslitin væri því ekki að
marka. Frambjóðandi republik
ana, sem tapaði í kosningunn:,
sagði þá: „Úrslitin sýna svo
ekki verður um villzt að bænd-
um og verkamönnum gezt ekki
að stefnu núverandi ríkis-
stjómar". Sá dómur hefur nú
verið eftirminnilega staðfest-
ur. Wisconsin er eitt af latid-
búnaðarfylkjunum um miðbik
Bandaríkjanna. New Jersey,
þar sem republikanar töpuðu
í fyrradag, er hinsvegar eitt af
helztu iðnaðarríkjummi á At-
lanzhafsströndimii og f)rlk:s-
stjórnin hefur verið í höndum
republikam frá því árið 1940
þacigað til nú. Ef republikan-
ar tapa einnig aukakosningu
t:l sambandsþingsins í Kali-
forníu 10. þessa mánaðar, verð
ur ekki um það deilt að um
öll Bandaríkin eru kjósendur
að snúast gegn forsetanum
sem þeir kusu með yfirgnæf-
andi meirihluta fyrir ári síð-
an.
Oepublikönum tókst að koma
því svo fyrir að forseta-
kosnngamar snerust aðallega
um menn en ekki málefni og
þar vann auðvitað liin víð-
fræga og vinsæla stríðshetja.
En bandarískum almenningi er
ekki lemgur efst í huga góð-
látlegt kosningabrosið á svip-
m'klu andliti Ike, heldur af-
leiðingamar af gerðum millj-
óciaranna, sem blekktu liann
upp á kjósendur með sömu
auglýsingaaðferðum og beitt
er til að selja bíla og
unar var að draga úr „of-
þenslu“ ým’skonar fram-
kvæmda og það liefur saneiar-
lega tekizt. Framkvæmdir liafa
dregizt saman, notkun stáls og
annarra hráefna frá iðnaðin-
tun minnkað og verkafólki ver-
ið sagt upp eða vinnutími
styttur hvarvetna. Kaup-
sýslutimaritið U. S. News &
World Report skýrði frá því
9. október að atvinnuleysi væri
vaxandi og myndi komið upp
í fjórar milljónir um mitt
næsta sumar. Blað'ð bætti því
við að minna atvinnuleysi en
þrjár til fjórar milljónir
manna mætti telja ,,óeðl;legt“.
Erlend
tíðindi
Dwight Eisenhower
sígarettur, og hafa síðan not-
að valdið sem hann gaf þeim
yfir stjórnartaumum Banda-
rikjanna tii að maka krókinn
á kostnað alþýðu manna. Full-
trúar hringavaldsins í ráð-
herrastöðunum í stjórn E'sen-
howers hafa með verkum sín-
um ýtt rækilega við bændum
og verkamönnum Bandaríkj-
anna.
IJændur hafa enn sem komið
" er orðið harðast úti. Milli-
liðir hækkuðu útsöluverðið á
landbúnaðarvörum til neyt-
enda, en vjð það drógst salan
saman. Sölutregðan olli verð-
falli til framleiðenda. en smá-
söluverðið hefur haldið áfram
að hækka. Jafnframt hafa
nauðsynjar bænda hækkáð í
verði svo að kjörvjieirra hafa
versnað að mun. Er nú svo
komið að ríkisstjórain hefur
bannað bændum að sá hveiti
og baðmull í eins sfóra akra
og undanfarin ár. Nautgripa-
ræktarbændur fóru í síðasta
mánuði hundruðum saman til
Washington að bera upp vand-
ræði sín fyrír Benson landbún-
aðarráðherra en fóru heim aft-
ur án þess að hafa fengið
nokkra úrlausn.
m
Otóriðjuhöldurinn Humphrey,
^ sem E senhower gerði að
fjármálaráðherra í stjóm
sinni, beið ekki boðanna þegar
hann var seztur í ráðherrastól-
inn og skipaði lánsstofnunum
að draga úr útlánum. Yfirlýs-
ur tilgangur þessaxar ráðstöf-
Sama blað skýrði frá því 16.
október að „viðskiptrdofna
smátt og smátt vegna sam-
dráttar í eftirspurn neytenda
og fyrirtækja eftir vörum.“
Rekur það síðan verðfall á ma-
ís, svínum og húðum í síðastl.
mánuði, bendir á að upp-
sögnum verkama.nna. fer stöð-
ugt fjölgandi og eru komnar
upp í 50.000 á viku, getur um
mmnkandi eftirspurn eftir
stáli og slær því laks föstu
að bílaframleiðsa í Bandaríkj-
unum verði 14% minni á
næsta ári ea þessu vegna vax-
andi sölutregSu. Jafnframt
hækkor vöruverö t.il neytenda
jafnt og þétt. Vísitala fram-
færslukostnáðar í Bandarikj-
unum hefur hækkað -mánuð
eftir mánuð síðan í apríl í
vor. Sérstaklega hefur húsa-
leiga hækkað ört síðan stjóm
Eisenhowers lét falla úr gildi
lög um hámarkshúsaleigu.
A uðhringamir þurfa lrnsveg-
ar ekki að kvarta. Skýrsl-
ur um gróða þeirra á þriðja
ársfjórðungi yfirstandandi árs
sýna aukinn gróða stórfyrir-
tækja eins og Du Pont, Gene-
raj Electric, Shell oliufélags-
ins (aukning 52%), Republic
stálfélagsins (aukning 172%)
o. s. frv. Það er því ekki
furða þótt skoðunarkönnunar-
stofnun Gallups komist að
raun um það að vinsældir Eis-
cohowers forseta hafa minnk-
að ört síðustu vikurnar og
algengasta orsökin er það álit
að hann og stjórn hans hafí
svikið kosaingaloforð sín um
blómlegt atvinnulíf, þvert á
móti hafi stjórnin valdið at-
vinnuleysi, skaðað bændur og
verkamenn en h1aðið undir
stóreignamenn og atvinnurck-
endur. Ekki bætir það heldur
úr skák að forsetinn hefur sí-
fellt verið áð skreppa frá
Washington til að leika golf
eða fiska svo að með sama á-
framhaidi mun hann taka sér
frí tvo mánuði af fyrsta.
stjómarári sínu.
17'osningar til fulltrúadeildar
Bandarílcjaþings og þriðj-
ungs sætanna í öldungadeild-
inni fara fram að ári. Nú
hafa republikanar 47 sæti í
öldungadeildinni, demókratar
48, og einn er utan flokka. I
Framhald á 1L slðu. i
4