Þjóðviljinn - 17.11.1953, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 17.11.1953, Blaðsíða 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 17. nóvember 1953 fil/FUB UTANGAEÐS 40. DAGUR Bóndinn í Bráðagerði A ÍÞR9TTIR RlTSTJÓRl FRtMANN HELGASON ekki neytt undirstöðufæðu frá því daginn áður, rifjuðu þarfir magans upp fyrir honum söknuðinn eftir góðmetið horfna, er hann hafði haft með sér að heiman. Kom vatn í munn hans er hann minntist magálsins og síðunnar, en afþví hvorugt var leingur tiltækt hlaut hann að leita annarra fánga til þess að fullnægja þessum þörfum ijkamans. Á þessari gaungu rak hann alltíeinu augun í glugga einn alístóran hvar margskonar fæðutegundir voru til sýnis. Snar- síansaði Jón við þessa sjón og neri augu sín sín áðuren hann sannfærðist um að um ofsjónir væri ekki að ræða. Einsog hann stóð þarni var ekki um að villast, að innanvið rúðuna gaf á að líta drifhvítan lúðu'dkling, einnig hákarlsbeitu snjó- hvíta og skínandi í sárið einsog sólskinsblett í heiði. Þegar Jón var nokkrum sinnum búinn að kýngja munnvatni sínu rf íiaungun stóðst hann ekki leingur freistinguna, en brá sér innfyrir og bað um tiltekið magn af þessu hnossgæti, og hvarfl- nði ekki að honum að prútta um prísana að þessu sinni, þótt eftilvill væru þeir í hærra lagi. Hélt hann þaðan sporléttur heimtil herbergis síns. Hitti svo vel á, að prángarinn var ekki heima, svo hann gat haft alla sína hentisemi. Var hann ekki fyrr sestur á rúmstokkinn, en hann dró upp sjálfskeiðing sinn í-g tók ósleitilega til matar. Hákallinn var hæfilega morkinn, fa'o hann smakkaðist vel, og ryklíngurinn var ekki þrárri en f.vo að þurft hefði meira en meðal matvendni til þess að fúlsa við slíkum kræsíngum. Þegar Jón var mettur átti hann ennþá nokkuð óétið. Vafði hann leifunuum innaní bréf, bréfinu stakk hann niðurí sokk- bol. en sokknum síðan niðurí pokann, er hann geymdi undir höfðalaginu niðurvið rúmbotn. Hallaði sér útaf, stángaði úr "öanum og lét sér líða í brjóst. En þegar af honum létti höfg- anum eirði hann ílla kyrrsetrnni. Vildi þá svo lánlega til að orð gamla mannsins, sem dagmn áður hafði leyst úr persónu- legum þörfum hans, runnu upp fyrir honum. Afré'ð hann því að halda á fund TJtvarpsins til þess að fá úr því skorið, hvort stofnun sú ætti elcki í fórum sínum eitthvert það hljóðfæri, er því væri einginn akkur í. Skammt var að fara og ekki í kot vísað þegar þánga'ð kom. Úr anddyri lágu stigar upptil hæða, en afþví hann vildi ekki eiga yfir sér frekari stigamennsku en þá, er hann hafði þegar kynnst á þessum degi, var honum um og ó að klífa bratt- ann. Mitt í þessum vanda birtist honuum alltieinu maður í dyr- nm. Sneri Jón sér að honum, og spurði hógværlega hvar hann mfti að bera niður til þess a'ð komast í talfæri við Útvarpið. Maðurinn kvaðst eiga hægt með að stytta honum leið og bað hann að gánga innfyrir, hvað Jón lét ekki segja sér tvisvar. Lcka'ði maðurinn dyrunum að baki þeirra og bað Jón að taka sér sæti. Téð vistarvera var klefi þraungur að þvermáli og ófýsilegur til leingri dvalar. Jón hafði rétt tyllt sér, er klefinn tók kipp uppávið, varð honum dálítið bylt við þessi óvæntu •hðbrögð, svo hauti spratt úr sæti, en maðurinn sagði að ekk- ert væri að óttast og bað hann sitja kyrran. Þessi ævintýra- :ega upphafníng stóð skamma stund. Þegar henni lauk, opn- aðl maðurinn dyrnar og benti Jóni innan eftir laungum gángi, og skyldi hann knýja þar á dyr, er hann staðsetti nánar. Þessa góðu og óvenjulegu fy/irgreiðslu þakkaði Jón hjartan- lega, en klefamaður seig aftu.r niðurí djúpið. Jón hélt hina filvísuðu leið, drap þar á dyr og opnaði síðan vel til hálfs án þess að bíða eftir svari. Stórt bor'ð hlaðið skjölum náði yfir, drjúgan hluta gólfs, en við borðið sat maður og taiaði í síma. Komdu sæll, sagði Jón. Mig lángar til þess að tala við Út- varpi'ð. Maðurinn var einmitt að Ijúka talinu, svo hann sneri sér að gestinum. Komið þér sælir, tók hann undir. Svo, þér viljið tala við Útvarpið ? Það er Ijúft og. skylt að verða vi'ð svo lítilli bón. Gjörið þér svo vel og gángið þér innfyrir. Fáið yður sæti og svo röbbum við saman, því til þess að koma í veg fyrir hugs- anlegan misskilníng er rétt að ég taki það fram, að ég er Út varpið og Útvarpið er ég. — Eg þykist sjá, að þér eruð hér ekki daglegur gestur, en því betra, það er ekki svo oft, að við sjáum ný andlit hér í Útvarpinu. s Jón þekktist hið vingjarnlega boð mannsins og fékk sér sæti, og því til staðfestíngar, áð hann væri þarna velkominn rétti Útvarpið honum höndina. Jón leist þegar vel á þenna altillega mann, sem auk þess að vera maður var heil stofnun og það ekki nein smástofnun. Útlit mannsins var í fullu samræmi við umhverfið, vei á sig kominn, ekki ýkja hár, en Keppa íslendingar og Danir í frjálsum íþróttum næsta sumar? í síðasta tölublaði „Sports- manden“ er skýrt frá því að fulltrúar frá Norðurlöndun- um hafi hitzt nýlega í Stokk- hólmi til þess að taka afstöðu til ýmissa frjálsíþróttamála og landskeppna landanna á næsta keppnistímabili. Ennfremur var gengið frá því að meistaramót Danmerkur, Svíþjóðar og Nor- egs færu fram dagana 12. og 13. ágúst og Islands 7. og 8. ágúst n.á. Frá því er ennfremur skýrt í blaðinu að ísland og Dan- mörk keppi í frjálsum íþrótt- um á næsta sumri og að sú keppni fari fram í Reykjavík. Þó mun ekki gengið frá ýmsum hlutum í þess. sambandi og því varlegt að treysta því að þetta só endanleg ákvörðun. Fulltrúi FRÍ á fundmum var Bragi Kristjánsson og er hann ný- kominn heim. Munu nánari fréttir berast frá fundi þess- um, þegar hann hefur gefið frjálsíþróttasambandinu skýrslu sína. Fulltrúar á fundinum í Stokkhólmi urðu sammála um að leggjast gegn keppni Banda ríkjanna og Evrópu næsta sum ar, þar sem hún myndi ekki geta fallið inni keppnisáætlun Norðurlandanna næsta ár. En þetta mál verður tekið fyrir á þingi IAAF, sem haldið verður í Briissel í þessum mánuði. Áætlunin um landskeppmir Norðurlandanna lítur þann'g út: 16.-17. júní: Finnland-Júgó- slavía í Helsingfors. 29.-30. júlí: Svíþjóð-Ung- verjaland í Stokkhólmi. 2.-3. ágúst: Noregur-Ung- verjaland í Oslo. 20. -21. ágúst: Danmörk- Norðurþýzkaland í Khöfn. 21. -22. ágúst: Finnland-Sví- þjóð-Noregur. Drengjakeppni í Finnlandi. Noregur og Saar gerðn jafntefli 0:0 Um síðustu helgi kepptu Saar og Noregur í knattspyrau -'og fór leikurinn fram í Saar í viðurvist 45 þús. áhorfenda. Leikur þessi var einn af undir- búningsleikjum H.M. keppninn- ar á næsta ári. Jafntefli varð og ekkert mark sett, en e gi að síður var leikurinn „spenn- andi“ og tvísýnn til síðustu stundar. Vörn Norðmanna var þeirra sterka hlið en innherj- arnir brugðust og þar með all- ur kraftur í sókninni. Saarliðið var jafnara, og sérstaklega var sóknin virkari, en sú norska. Thorbjörn Svenson og As- björn Hansen voru beztu menn norska liðsins. Dómari í leikn- um var Horn frá Hollandi, en hann er sá sem dæma á le k- inn milli Englands og Ungverja- lands 25. þ.m. Næsti leikur Nor- egs er við Þýzkaland. 29. ág.-12. sept.: Noregur keppir við Jugóslavíu, Grikk- land og Tyrkland í nefndum löndum. 11.-12. sept.: Finnland-Sví- þjóð í Helsingfors. Sept.: Finnland-Frakkland í París. Öákv.: Island-Danmörk. Svíar gerlu jaíntefla m England 3:1 írland Svíar og Ungverjar háðu landsleik í knattspyrnu á sunnudaginn var. Fór leik- urinn fram í Budapest og lauk með jafntefli 2:2. Fyr- ir leikinn hafði verið skýrt frá því, av ungverska liðið yrði sk'pað sömu mönnum og léku í úrslita’eiknum við Júgóslava á olympíuleikj- unum í fyrra, en þann leik unnu Ungverjar með 2 mörk nm gegn engu. Fyrra sunnudag voru Svi- arnir í Biibao á Spáni og kepptu við spænska lands- láð'ð. Jafntefli varð þar einn ig, 2:2. Tékkóslóvakía — Búlgaría 0:9 Síðasta leik í hópi nr. 8 um þáfttöku í H.M. keppninni, leik- num Tékkóslóvakía og Búlg- aría lauk með jafntefli 0:0. Úr- slit leiksins höfðu engin áhrif á úrsl'tin í þessum hópi því Tékkóslóvakía hafði áður tryggt sér örugga forustu. Tékkóslóvakía hefur 7 stig, Rúmenía 4 og Búlgaría 1 stig. Á miðvikudaginn í fyrri viku háðu Englendingar og Ir- ar landsleik í knattspyrnu. Sigr uðu Englendingar með 3 mörk- um gegn einu og tryggðu sér þar með þátttökurétt í úrslitum heimsmeistarakeppninnar, sem fram fer í Sviss í júnímánuði ciæsta ár. Fyrir leikinn við Ira hafði enska liðið unnið Wales- búa, og gert jafntefli við Skotá en líklegt er að þeir verði einnig með í úrslitakeppn nni í Ziirich. 1341 kí. fysir 11 réSta í síðustu viku komu fyrir 11 leikir réttir á föstum 4 raða kerfisseðli, en með ágizkunum eftir liðum og möguleikum, voru 10 réttir það bezta. Fyrir 4 raða kerfi (1/H, 2/10, 1/9), sem kostar aðeins 3.00 kr. hlýtur eig- andinn 1341 kr. En fyrir utan þennan vinning voru flestir beztu vinninganna fyrir 10 rétta einnig íyrir fasta seðla. Þetta er einnlg bezta þátttökuformið fyrir þá, sem ekki eiga aðgang að umboðsst.að í nágrenni sínu, og síðasta vika sýnir, að mögu- leikar eru sízt minni með föstum röðum. Víðast hvar er reynslan sú, að þátttaka í getraunum er afr þreyipg og dægradvöl í skamm- deginu og vex þátttakan með minnkandi dagsbirtu. Virðist það sama ætia ;að verða hér, og með versnandi tíð jókst þátttakan í síðustu viku um tíunda hluta. Vinningar skiptust þannig: 1. vinningur: 1211 kr. fyrir 11 rétta (1). 2. Vinningur: 60 kr. fyrir 10 rétta T20). 3. vinningur: 10 kr. fyrir 9 rétta (129).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.