Þjóðviljinn - 17.11.1953, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 17.11.1953, Blaðsíða 12
Nyfa ílnán fékm 1 nöfkun 10. okt. - hilaSi i fyrsfa sinn 160 nóvember I fyrrinótt biluffu báðar rafleiðslurnar frá Soginu, svo irni tíma hafði Reyjavik ekki rafmagn nema frá Elliðaárstöðinni. Viðgerð var lokið síðdegis í gær. Nýja linan bilaði skömmu fyrir kl. 7 í gærmorgun. Slitn- iuðu vírar skammt frá rafstöð- inni við Sogið. Gam’a línan bilaði um stund- arfjórðung fvrir kl. 8 í gær- morgun og höfðu vírar slegizt saman. Um noiikurn tima hafði Reykjavík því aðeins rafmagn frá Elliðaárstöðinni. í gærkvöldi fékk Þjóðviljinn þær upplýsingar að lokið væri viðgerð á nýju línunni. Handarfsk fftaigvél frá Keffta- vfkfirflngvelfii talin af Talið er fullvíst að flugbátur frá bandaríska hernum á Keflavíkurflugvelli, með 5 manna áhöfn, hafi farizt vestan við ísland s.l. sunnudagsmorgun. Flugbátur þessi var af gerð- inn Grumman Albatros SA 16, var þetta björgunarflugvél og iagði hún af stað kl. 8.25 í gær- morgun og var förinni heitið til Bluie West I flugvallarins' á Grænlandi. Kl. 9.44 sendi flug- vélin ske.vti um að hún hefði snúið við, annar hrevfijlinn hefði stöðvazt og að flugvélin lækkaði stöðugt, hefði lækkað úr 10000 fetum í 7000 fet. Jafn- framt gaf flugvéiin upp staðar- ákvörðun. Það var það síðasta sem heyrðist til vé’.arinnar. Björgunarflugvél var send frá Keflavíkurflugvelli kl'. 12.20 og varð hún einskis vör á staðnum er hin fiugvélin hafði gefið upp, enda var skyggni afleitt. Veður- athuganaskip fór einnig á stað- ánn, en varð einskis vísara. í •gærmorgun var ekki hægt að senda flug\'élar til að leita vegna veðurhæðar. Er því talið að flug- vélin muni hafa farizt. Þrátt fyrir rokið Áætlunarflugvél frá Pan ‘American Airlines var á leið til Keflavíkurflugvallar í gær- (kvöldi frá Bandaríkjunum, væntanleg til Keflavíkurflug- vallar og mun hafa haldið ferð sinni áfram í nótt. Áætlunarflugvélar Pan Amer- ican-fclagsins eru af gerðinni DC 6 B eða stærsta og nýjasta gerð skymastervéla.Þærtalca 48 farþéga. Að þær geta halöið ferð s.’ani áfram- i veðri eins og í gær kemur af því að þær fljúga fyrir ofan storminn í loftinu. BÆR-þing seft — og frestað Ársþing BÆR — Bandalags æskulýðsfélaga Reykjavíkur var sett s. 1. sunnudag. Formaður BÆR, Ásmundur Guðmundsson prófessor setti þ.'ngið og minntist hins látna biskups, Sigurgeirs Sigurðssonar er var forgöngumaður að stofnun bandalagsins og studdi það í hví- vetna,- Forseti þingsins var kosinn Jónas B. Jónsson fræðsTufulltrúi og annar forseti þess Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi. Þing- haldi var frestað um hálfan mánuð, til 27. þ. m., og munu jiefndir starfa á ' þessu tímabili. Snæfel! m Siai 2000 mál komin til Iírossaness Akureyri. Frá frétta- ritara Þjóðviljans. I gær var ekki veiðiveður á Eyjafirði, sökum suðvestan- storms, að öðru leyti var veð- ur sæmilegt. Bátarnir voru að veiðum á sunnudaginn en fengu lítinn afla. Alls liafa nú verið lögð á land í Krossanesi 2000 mál. Isafirði. Frá fréttar't- ara Þjóðviljans. Tveir bátar hafa hafið hcð- an línuveiðar, en afli verið tregur, eða 2-3 tonn í róðri. Einn bátur fór á síldveiðar. Leitaði fyrst síldar í Jökul- f jörðunum, en íór síðan til Grundarfjarðar. Togararnir hafa báðir fiskað fyrir inalendan markað, aflinn verið lát'nn í frystihúsin. hér. Vélbáturinn Snæfell og Súl- an lentu í lirakningum í óveðr- inu mn helgina, en Snæfellið dró Súluna sem var með bilaða vél. Vél Súlunnar b'laði í Grund- arfirði og ætlaði Snæfellið að draga hana til Reykjavíkur í fyrradag. Komust þeir suður fyrir Snæfellsnes en urðu þá að snúa við. Slitnaði dráttartaug- in hvað eft:r annað. Ætlunln var að komast til Ólafsvíkur, en enn slitnaði dráttartaugin og horfði óvænlega um tíma að Súluna ræki stjómlaust undan storminum, án þess að yrði gert, en loks tókst Sciæfellinu að draga hana inn t’l Ólafs- vikur og var hún bundin þar v:ð bryggju um tvöleytið. JÖÐVIUmN Þriðjudagur 17. nóvember 1953 — 18. árgangur — 259. tölublað svívirðingum og ósannindum Morgunblaðsms og Vísis Þjóðviljanum barst í gær eftirfarandi samþykkt stúd- entaráðs, sem gerð var með 5 atkv. gegn 4. „Stúdentaráð samþykkir á fundi sínum, 12. nóv. 1953, að víta Iiarðlega þau skrif, sem birzt hai'a í siunum dagblöðum bæjarins um störf ráðsins, þar sem hiaðið hofur verið saman svívirðUegum og rakalausum ósann- indum, sem virðast eingöngu til l>ess gerð, að sverta meirihluta ráðsins og gefa almenningi villandi mynd af störfum þess. Stúdentaráð harmar þessi óviðeigandi afskipti af sér- málum stúdenta“. Gctmla fólkið og öryrkjar eiga réttlætiskröfu á hærri lífeyri FrMtnvearp sésíalisfa ym breyf- ”mgar á tryggingarlögunum Í€@pwiS fii 2. umrceðu 1 bátar siitnuSu ipp í Nafnarfirði í ofviðrinu í fyrrinótt dró togarinn Maí (gamli Maí) legu- færin þar sem hann lá á ytri höfninni, svo hann lokaði næst- um um tíma 'nnsiglingunni. Tveir bátar, Hafdís og Fiska- klettur, slitnuðu frá að aftan þar sem þeir lágu við vestari bryggjuna í Hafnarfirði og rak þá upp í króknum við bryggj- una. Náðust þeir á flot aftur á f lóðinu. Um skemmd'r er eklci vitað, en þeir láku ekki. Njósnamál i Noregi Norska leynilögreglan tilkynnti í gær að í fyrrinótt hef3u fjórir menn í Kirkenes í Norður-Noregi verið handteknir fyrir njósnir i þágu erlends ríkis. Forstöðumaður leynilögreglunnar sagði í gær að menn þessir hefðu ekkert hver um annan vitað, þeir hefðu eng- um þýðingarmiklum upplýsingum komið úr landi og þeir yrðu sótt- ir til saka eftir lögum, sem há- marksrefsing við að brjóta er tveggja ára nauðungarvinna. Það er réttlætismál, aö búa vel að þeim, sem skilaö nafa löngu ævistarfi og eins hinum, sem ekki hafa afl til þess aö framfleyta sér og sínum, sagði Karl Guöjóns- son í gær, í snjallri framsöguræöu fyrir frumvarpi um breytingar á tryggingarlögunum, sem hann flytur á- samt Sigurði Guönasyni og Gunnari Jóhannssyni. Veigamesta breytingin sem frumvarpiö flytur er 25% hœkkun á ellilífeyri og örorkulífeyri á 1. verölagssvæði úr 533 kr. í 667 kr. fyrir einstakling á mánuöi, en úr 854 kr. í 1067 kr. fyrir hjón (miðaö við vísitöluna 157). Jafnframt hækka skeröingartakmörkin, svo að einstakl- ingur hefði samkvæmt reglum frumvarpsins mátt hafa 7586 kr. tekjur (í staö 6069) árið 1952 án þess að lífeyrir hans skertist, og hjón 12138 kr. í staö 9710 kr. Aðrar breytingar em þær að heiðurslaun, ólögboðin, skuli ekki dregin frá elliliífeyri þess er þau hlýtur, éins og nú er — að fjölskyldubætur nái einnig til þeirra bama, sem bamalíf- eyrir er greiddur með. Nú fá t.d. öryrkjar engar fjölskyldu- bætur vegna bama sinna, ekki heldur gamalt fólk sem fær ellilífeyri og hefur börn í fóstri, né aðrir sem hafa börn í fóstri og fá með þeim barnalífeyri — að réttur giftra kvenna tll sjúkrabóta verði sami og ann- ðfviðri en litlar skemmdir Sandgerði. Frá fréttarit- ara Þjóðviljans. Ofsaveður gekk hér yfir í fyrrinóít og einnig var hvasst í gær. Mörgum mun ekki liafa orð- ið svefnsamt í fyrrmótt, en skemmdir af völdum veðursins urðu litlar, miðað við veður- hæðina. Nokkrar járnplötur fuku áf tveim húsum, rúður brotnuðu og tr'llubát sleit upp, en hann skemmdist lítið. Eng- inn var á sjó þegar óveðrið skall á. arra, en úr gildi numið það fáránlega ákvæði að giftar kon- ur fái þvi aðeins greiddar sjúkrabætur, að þiær færi sönn- ur á að maður þeirra geti ekki séð þeim farborða. Frumvarpinu var að lokinni umræðu vísað til 2. umr. og nefndar. Sökk við áreksteir, 21 rirukknaðn Franskt 7000 tonna skip, Perú, s'gldi í gær ítalska 3000 tonna skipig Vittoria Claudia í kaf á Ermai-sundi. Sökk Vittoria Claudia á fimni mínútum. Brezk- ir björg-unarbátar komu á vett- vang og björguðu fimm mönn- um úr sjónum og fundu sex Iík. AUs liafa 20 menn farizt. styrk úthlutað Á fundi sínum 13. þ. m. skipti bæjarráð þeim 150 þús. kr. sem veittar eru á fjárhagsáætlun yf- irstandandi árs til sumardvalar- starfsemi. Var styrknum úthlut- að þannig: Rauði Kross íslands 104 þús. kr., Vorboðinn 36 þús. kr. og Mæðrastyrksnefnd 10 þús. Bráðabirgða- stjórn í Fiimlandi Tuomioja ríkisbankastjóri í Finn’.andi, sem reynt hefur undan- farið að mynda nýja stjórn, lauk í gær við að semja ráðherralista sinn og leggur hann í dag fyrir Paasikivi forseta. Ráðherrarnir eru menn af öllum flokkum nema sósíaldémókrötum og lýðræðis- bandalagi kommúnista og vinstri- sósíaldemókrata. — Ráðherrarnir sitja í stjórninni á eigin ábyrgð en ekki fyrir hönd flokka sinna. Meginverkefni stjórnarinnar verð- ur að láta fara fram nýjar kosn- ingar. Kvöldvökur góðtemplara Þingstúka Reykjavikur og góðtemplarastúkumar í bænum efna nú í vikunni til kvöldvaka í Góðtemplarahúsinu. Samkom- ur þessar standa yfir fjögur kvöld í röð og var hin fyrsta í gærkvöldi. Á kvöldvökum þess- um flytja ýmsir þjóðkunnir menn ræður og erindi. Auk þess verður þama kórsöngur. kvartettsöpgur og einsöngur; meðal þeirra sem þarna syngja einsöng verðn: séra Þorsteinn Björnsson og Sigfús Halldórs- son. Þá eru leikþættir, upp- lestrar og þjóðdansar og kvik- myndasýning. ÖMmð kona sftasast Um sexleytið í gær varð nær hálfáttræð kona, Hanna Kolbeins- dóttir að nafni, fyrir bíl á Vestur- götunni. Gekk hún út á götuna fyrir bílinn, en aö öðru leyti eru tildrög slyssins óljós. Þess má þó geta að mjög var sleipt á göt- um bæjarins í gær. Konan var þegar flutt á Lands- spítalann. Er Þjóðviljinn hafði tal af kandxdat á spíta’anum í gær- kvöidi sagði hann að konan væri mikið veik, en þó með fullri rænu. Kvað hann meiðsli hennar ekki fullkönnuð, en þó mundi konan vera eitthvað brotin:

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.