Þjóðviljinn - 10.12.1953, Blaðsíða 1
Vishinski fær
Lenínorðuna
Skýrt var frá því í Moskva í
gær að Andrei Vishinski, aðal-
fulltrúi Sovétríkjaniía • hjá SÞ,
hefði verið veitt Leninorðan,
æðsta heiðursmerki Sovétríkj-
anna, á sjötugsafmæli haus.
Tuiðvikudaginn 9. desember 1953 — 18. árgangur — 278. tölublað
Hernámsflokkamir þrír samfylkja til
ai útiloka sósíalista úr nefndum
Þjóðvarnarflokkurinn hafnar kosningasamvinnu, sem
tryggt hefði hsrnámsandstæðingum mikilvæga aðstöðu
Allsögulegar kosningar fóru fram í sameinuöu Al-
þingi í gær. Hafði þingflokkur Alþýðuflokksins gert sam-
fylkingu viö íhald og Framsókn í því skyni aö útiloka
fulltrúa sósíalista úr öllum þeim nefndum sem kjósa átti
til, en tryggja Alþýöuflokknum sæti sem hann á ekki
samkvæmt þingfylgi sínu.
Sósíalistaflokkurinn og Þjóð'varnarflokkurinn hefðu til
samans getað komið manni í allar fimm manna nefnd-
irnar. Bauð Sósíalistaflokkurinn að kjósa Þjóövarnar-
flokksmann í útvarpsráö og menntamálaráð gegn stuön-
ingi hans við hinar nefndirnar. Þessu boöi hafnaði mið-
stjórn Þjóðvarnarflokksins, en vegna uppstillingar sósí-
alista virtust böndin ekki halda, og voru fulltrúar af
lista sósíalista kosnir í menntamálaráð og útvarpsráð.
Eftir uppstillingu Alþýðu-
flokksins að dæraa virðist
Stefáns Jóhanns-klíkaa nú búin
að ná meirihluta í þingflokkn-
um með því að innbyrða Egg-
ert Þorsteinsson, og munu for-
nmður og ritari Alþýðuflokks-
ins hafa skilað auðu við allar
kosningarnar í gær!
Tjrslit kosninganaa urðu sem
hér segir.
Menntamálaráð. Af lista her-
námsflokkanna þriggja með 40
atkv.: Valtýr Stefánsson, Pálmi
Hannesson, Vilhjálmur Þ. Gísla
son, Haukur Snorrason. Af lista
sósíalista: Einar K. Laxness
stud. mag., með 9 atkv., 2 seðl-
ar auðir. Fimmti maður her-
aámsflokkanna var Guðmundur
Hagalín, sem Alþýðuflokkurinn
ætlaði að troða þar inn í stað
Barða Guðmundssonar.
tJtvarpsráð'. Af lista hernáms
flokkanna: Magnús Jónsson
fyrrv. form. fjárhagsráðs, Þór-
arinn Þórarinsson, Sigurður
Bjarnason, Rannveig Þorsteins-
dóttir og af lista sósíalista
Björn Th. Björnsson. — Sá sem
féll af hernámslistanum var
Framhald á 3. síðu.
Sambúð Breta og Frakka stór-
versncsðí vl§ i<
Magnar andstöðu íranskra þingmanna
gegn V-Evrópuhernum
Harold King, fréttaritari brezku fréttastofunnar Reut-
ers í París, sagöi í gær að þess sæjust þar ljós merki að
sambúð Bretlands og Frakklands hefði stórversnað við
Bermúdafund æöstu manna Vesturveldanna.
King segir, að ráðamenn í
Frakklandi séu mjög gramir
framkomu Churchills á Bermúda-
fundinum, þar sem hann veitt-
ist að ráðherrunum Laniel og
Bidault með brigzlum um franskt
-stefnuleysi og dáðleysi. Gremja
þessi setur svip á skrif íranskra
blaða um Bermúdafundinn og
King segir það deginum ljómra
•að hún muni magna andstöðuna
á þingi gegn fullgildingu samn-
inganna um stofnun Vestur-Ev-
rópuhers.
Ósamkomulag
Vesturveldanna
Franska íhaidsblaðíð Le Monde
-segir að tilkynningin, sem gef-
■in var út i lok Bermúdafundarins,
sé rislág og þar reki sig eitt á
annars horn.
Framhald á 11, siðu
Einar K. I,axness
kosinn af lista sósíalista í mennta-
má’aráð.
Björn Th. Björnsson
kosinn af lista sósíalista í
varpsráð.
Samið um víðari
landhelgi Færeyja
Samkomulag sagt í London um 4 mílur
frá beinum grunnlínum
Það kvisaöist í gær að lokið væri í London samning-
um danskra og brezkra stjórnarvalda um stækkun land-
helgi Færeyja.
út-
Reutersfréttastofan segir að
samkomulag hafi orðið um það
að Bretar viðurkenni við Færeyj-
ar fjögurra sjómílna landheigi
Dregur til tíðinda
í Indó Kína
Franska herstjórnin í Iadó
Kína tilkynnti í gær að búast
mætti við stórorustum þar á
næstunni. Sagði hún að ein
herdeild sjálfstæðishreyfingar-
inaar Viet Minh sækti í tveim
fylkingum að tveim borgum í
norðvesturhorni Tokin, nyrsta
hluta Viet Nam. Önnur er Lai-
chau, höfuðstaður landsvæðis
þess í Indó Kína sem byggt er
þjóðinni Thai, sem eitinig bygg-
ir Thailand og héruð í Burma
og Kína.
Andvígir Eis-
enhower
Urgur er í ýmsum flokks-
bræðrum Eisenhowers forseta
á Bandarikjaþingi yfir tillögu
hans um kjarnorkustofnun SÞ.
Fulltrúadeildarmaðurinn Ker-
sten sagði í gær að ekki næði
neinni átt að taka upp neitt
samstarf við Sovétríkin á þessu
sviði og Duran úr kjarnorku-
nefnd þingsins sagði að þingið
myndi aldrei samþykkja tillögu
Eisenhowers eins og hann hefði
sett hana fram.
Hafnfirðingar
Sósíaiistaflokkiuiiin hefuj- opn-
aö skrifs.tofu til undlrbúnlngs
bæjarstjórnarkosningununi. —
Skrifstol'an er í Strandgötu 41
og opin daglega kl. 4—7. —
Sími 9521.
„Frelsisskráin" miklei orðin
iurðu hversdagslegt Irumvarp!
Brynjólfur Bjarnason deilir á loddaraleik stjórnar-
flokkaniia í f járhagsráðsmálinu
Það var eins og Ingólfur Jónsson viðskiptamálaráö-
herra ætti lítiö eftir af hrifningunni miklu úr neöri deild
er hann lagði nýja fjárhagsráðsfrumvarpiö fyrir efri-
deild í gær, og fór bónarveg að þingmönnum aö hleypa
málinu til nefndar án verulegra umræðna.
Þessi stórkostlegu ,,frelsisskrá“ sem hann og Ólafur
Thors sungu fegurst um fyrir nokkrum dögum, var nú
oröið mjög hversdagslegt frumvarp, sem „gefur manni
góðar vonir um aukið frelsi“ svo viðhaft sé orðalag ráð-
herrans.
Brynjólfur Bjarnason tók
,,frelsisskránni“ tak í stuttu
máli. Benti á hve mjög virtist
nú dregið af forsvarsmönnum
frumvarpsi.ns. Hann minnti á
öll þau miklu loforð sem
stjórnarflokkarnir hefðu gefið
er þeir voru að setja lögin
um fjárhagsráð. í framkvæmd
þeirra hefðu fá lög orðið óvin-
sælli. Nú kæmi ríkisstjórn
sömu flokka og þeirra, scm alla
ábyrgð bera á fjárhagsráðslög-
unum og framkvæmd þeirra,
og t'eldu sig ekki geta gert
þjóðinni meira góðverk en af-
nema þau, afnema fjárhagsráð!
Með þessu ómerkilega frum-
varpi væri verið að láta líta
svo út sem ríkisstjórnin ætlaði
að láta undan þrýstingi fólks-
ins og hverfa frá stefnu sinni.
En meginefni frumvarpsins
væri það, að breyta um nafn
á fjárhagsráði og fella niður
öll fögru loforðin sem gefin
voru í fjárhagsráðslögunum.
Samt felst undanhald í þeim
sýndarráðstöfunum sem hér eru
Framhald á 3. síðu.
og sé hún miðuð við beinar
grunnlínur f.vrir flóa og sund.
Séu þær dregnar eftir sömu regl-
um og þeim, sem beitt var við-
landhelg'sákvörðun við Noreg og
Bretland kærði árangurslaust
fyrir aiþ.ióðadómstó’.num í Haag.
Háværa’r kröfur um stækkun
landhelginnar komu upp i Fær-
eyjum eftir að landhelgin við ís-
land var stækkuð.
'íóbahið seht*
sala mlnnhar
Sigarettusala í Bandaríkj-
unum hefur minnkað verulega
á fáum vikum s’ðan læknar
tilkynntu að það væri endan-
lega sannað að efni J tóbaks-
reyk geta valdið krabbameini.
Samtímis voru birtar skýrslur
sem sýna að krabbamein í
lungum er meira en 20 sinn-
um tiðara meðal mikilla si'ga,-
rettureykingamanna en meðal
samsvarandi hóps sem ekki
reykir.
Ahrif þessara tíðinda eru
nú farin að ,gera vart við sig
í verðbréfaviðskiptum á kaup-
höllinni í New York. f gær
lækkuðu hlutabréf í sígarettu-
verksmiðjum i verði á kaup-
höllinni frá einum dollar til
fjóra dollara hvert.
Stýrislaust skip
með 644 farþega
Norska stórskipið Stavanger-
fjord missti í gær stýrið jí of-
viðri á Atlanzhafi. Var það á
Ieið frá Bandaríkjununt með
644 farþega. Sltipið er með
tvær skrúfur og hví ekki stjórn
laust en öðru skipi frá sama
félagi hefur verið snúið við til
að fylgja Stavangerfjord til
hafnar.
' ----------------■---\
Jólatrésfagnað'
nr Sósíalista-
félagsins
að Hótel Borg 30.
desember
Sósíalistafélag Reyltjavíkur
gengst fyrir jólatrésfaghaði
fyrir böm félagsmanna og
stuðnlngsmanna sinna að Hótel
Borg miövikudaginn 30. desem-
ber síðdegis. I»eir sem hug
Iial'a á að taka þátt í jólatrés-
fagnaðinum eru beðnir vmi að
minnast dagsins. Nánar verður
auKlýst síðár um fyrirkonmlag
skemmtunarinnar.
V.