Þjóðviljinn - 24.12.1953, Síða 18

Þjóðviljinn - 24.12.1953, Síða 18
18 ÞJÓÐVILIINN Jólin 1953 tilgangslaus, moð því að lcsa létta skáldsögu — hann gat ekki einbeitt sér að neinu alvarlegu efni, hann var stöðugt á verði og hrökk upp við niinnsta marr í hurð eða vcikan óm af fótataki í fjarska. Einu sinni læddist hann eins og þjófur að gangdyrunum, en þær voru kyrfilega læstar. Hann forðaðijst heimili stúlkunnar í fyrstu, hélt að það væri skynsamlegast að sýna sig þar sem sjaldnast eftir þenn- an ieynifund með henni. Á íjórða degi stóðst liann samt ekki mátið lcngur og fór í heimsókn til móður hennar. Hún tók honum jafn vingjarnlega og að vanda og bauð honum að snæða hádegisvcrð mcð fjölskyldunni. Inging kom tii borðs. Svipur hennar var kaJdur og settlegur eins og áður, svo að engan hefði getað grunað af hinni minnstu hroyfingu, að þeim hefði nokkuð sérstakt farið á milli. Hann beið eftir einhverju sliku merki, en stúlkan var sannkallaður blekk- ingameistari. Ilún deplaði ekki brá, þó hann liti til hennar nærgöngulum augum. I-Iann ímyndaði sér, að móðir henn.ar kynni að ala á einhverjum grun, og því væri þessi ofurvar- kárni. Einhvcr ástæða hlaut að vera fyrir þögn hennar. Tvær vikur liðu án þess nokkuð gerðist frekar. Iíann minntist ekki á þetta við Jang vin sinn, og ef hann bauð honum að kvöldi að gista-hjá sér, þá stóð hann fast á því að fara heim í klaustrið af ótta við, að hann kynni annars að missa af heimsókn hennar. Ilann gat ekki slitið sig frá þessum stao. Ilann samdi langt kvæði, ein scxtíu vísuorð, þar sem sagði frá kynlegri reynslu hans af kynnum við huldu- mey, hrifningu hans til hæstu tinda og djúpri þrá- — „Ög hafdjúpin æst; svo hátt sem ský; en huldan koni aldrei síðan“. Kvöld eitt nær miðnælti, var eins og bæn hans væri svar- að með marri í ganghurðinni. Hann þaut til og opnaði hana; Húngníang stóð fyrir utan. Hún trúði honum fyrir því, að húsmóðir sín hefði látið gera lykil að skránni, svo að þau gætu hitzt í vestursalnum. Hún hefði kornið því svo fyrir, að hcngilásinn myndi sýnast aftur, cn hann gæti ýtt honum upp og komizt eftir stuttum gangi inn í vesiursalinn. Þó Júan væri allur í uppnámi af fögnuði, hlaut hann að undr- ast af hvílíkri dirfsku og kænsku unnusta hans hafði lagt þessi drög til funda með þeim. Upp frá þessu kvöldi kom Inging til móts við hann í vest- ursalnum aðra hverja nótt, eða svo oft sem hún féklc við kornið, og alltaf sendi hún boð með þernunni, ef ekki gat orðið af samfundum þeirra. Hún kom næstum alltaf að afliðnu miðnætti og hvarf aítur til herbergja sinna fyrir dögun. Júan var eins og ölvaður af harpingju. Stúlkan opnaði hon- um hjarta sitt og unni honum ákaílega. Þau hétu hvort öðru tryggðum, hvað sem fyrir kæmi. Það var erfitt að skilja, að jafn litill líkami skyldi búa yfir svo mikilli ást. Hugsun hennar var þroskuð, og hún hafði áhuga fyrir öllu, sem hann fékkst við og ætlaðist fyrir. Þau hvíldu saman í myrkrinu, hlið við hlið, og töluðu í hvíslingum, því þau áttu á hættu að uppvist yrði um fundi þcirra, enda þótt Júan væri sífellt á varðbergi. Samt lét hún aldrei í ljós, að hana iðraði gerða sinna hið minnsta. Eina skýringin sem hann fékk, er hann vék að þessu, var ástríðufullur koss hennar og lcæít hvísl: „Ég get ekiei að því gert, ég elska þig svo heitt“. „En ef móðir þín kemst nú að þessu?“, spurði hann einu sinni. „Þá verður hún að gera þig að tengdasyni sinum“, svaraði Inging og brosti. „Ég tala við móðux- þína, er þar að kemur“, sagði Júan, og' Inging vék ekki tali þeirra lengra inn á þessa braut. Svo dró að því, að þau hlytu að skiljast. Júan sagði Inging, að hann yrði að fara til höfuðborgaiánnar. Hún lét engin von- brigði í ljós, en sagði rólega: „Ef þú þarft þess, þá verður svo að vera. En það er aðeins fárra daga fcrð héðan tii höfuð- borgarinnar. Þú kcmur aftur í sumár. Ég vil að þú komir aftur“. Hún var svo örugg um sig. Kvöklið íyrir brottför sína bjóst hann til að eiga stefnu- mót yið hana að vanda, en af cinhvcrjum ástæðum kom hún ekki. , Seint um sumarið kom hann aftur í stutta heimsókn, i'étt áður eh hin keisaralegu haustpróf skyldu hefjast. Þess sáust cngin mcrki, að móðir Inging vissi neitt um samband þeirra. Ilún tók honum jafn hjartanlcga og áður og bauð honum að dveljasl heima hjá þeim. Ef til vill vakti fyrir henni, að hún kýnni að eiga eftir að gifta honum dóttur sína. Júan hugsaði til þess með gleði að fá að sjá Inging að degi til. Þau voru saman í eina unaðsiega viku. Hún var nú ekki framar íeimin við hann og stundum sá hann hana leika sér við bróður sinn, bregða bát úr blöðum og strám og fleýta honum niður eftir lindinni í bakgarðinum. Leynd ást þeirra var honum uppsprelta rikrar gleði. Það fór ekki fram hjá Jang vini hans, hve hamingjusamur hann var. Hann kom í heimsókn og sá hvaö var í ofni, óðar og orðalaust. „Hvað er hér á seyði, Veisj.í?“ sagði Jang og ávarpaði Júan með kurteisisnafni. Júan brosti. Móðir stúlkunnar sá það líka. Daginn áður en Júan fór, spurði hún hana um unga manninn, og Inging svaraði af óhagganlegu trúnaðartrausti: „Hann kemur aítur- Ilann þarf að fara til að taka landsprófin“. Þeim gafst tækifæri um kvöldið ti-1 að vera ein saman. Júan var mjög hryggur og barst illa af, en Inging treysti ást hans til fullnustu. Það brá til um tvennt í fari hennar- Stúlkan, sem titraði í faðmi hans eins og strá, hún var laus við viðkvæmni og skýr í hugsun á úrslitastundum. Hún mælti ekki óþarfa orð. Hún sagði við hann rólega: „Vertu

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.