Þjóðviljinn - 17.03.1954, Side 11

Þjóðviljinn - 17.03.1954, Side 11
 ,4«S - Miðv'ikudagur 17, marz 1954—• 'ÞJ-Ó©VIIi‘jrNN — '(11 Faust-sögnin að fornu og nýfu Barátta skipasmiða Framhald af 7. síðu. But his dominion that exceeds in all this, Stretcheth as far at doth the mind of man...*) Það hefur verið sagt um þetta leikrit Marlowe, að það sé eina verkið um Faust-sögn- ina, þar sem engrar tilgerðar gæti.**) Það er ekki undrunar- efni. Marlowe skrifaði ekki að- eins um Faust-sögnina. Hann lifði hana líka. Faust-sögnin er enn tákn- rænni nú en hún var á dögum Marlowe. Vandi mannkynsins á 20. öldinni er að finna leið til að færa sér í nyt frelsi sitt, vald sitt yfir umhverfinu, án þess að fara sér að voða. Marxisminn er lausn á þeim vanda. En að geta ráðið fram úr þeim vanda eða geta það ekki skilur milli þess að hafa eða hafa ekki traust á mann- inum. III. Prófessor Ilarry Levin, höf- undur þessarar nýjustu bókar um -Marlowe er allþekktur fyr- ir bók sina um James Joyce. Hann er lærður vel í enskum bókmenntum frá 16. öld og set- ur ekki ljós sitt undir mæliker. Stíll hans flóir yfir af spak- mælum. Og margar snjallar at- liugasemdir hrjóta raunar úr penna hans: -Hann - skilgreinir • Marlowe méð alls. kyns sáman- burði við gamla og nýja höf-'- unda. Það ef' cngin tilviljun, að ' í nafnaskránni má lesa hlið við hlið nöfn: Picasso og Pindar, Sade og Sankti Ágústus, Sappó og Sartre. Ýmsir gagnrýnendur hafa ekki getað fallizt á sumar nið- urstöður prófessors Levin, eins og gengur. í snjöllum, nafn- lausum ritdómi í Listener 18. febrúar 1954 segir: „Fyrirmynd Tamburlaine er ekki Akilles Hómers, heldur Herkúles Senecu. (Sjá: M. Praz: Machiavelli and the Elizabethans). Prófessor Levin fylgir þelrri hefð að telja „Hero and Leander“ brot, en nýlega hafa ungfrú Bradbrook í Englandi og dr. Gabriele Baldini í ítalíu leitt sterk rök að því, að Marlowe hafi ætlað sér að láta kvæðið enda á þennan hátt“. Þrátt fyrir mælsku og lær- dóm Levin, sýnist Marlowe alltaf vera honum framandi. Skýring þess er ekki vandfund- in. Hann skýrir Marlowe að- eins að litlu leyti í ljósi sögu þess tímabils, sem hann lifði á og skóp hann. —H—r~---,--- *) Ó, hvílík veröld gagns og gleði, áhrifa, heiðurs og alveld- is stendur opin ástundunar- sömum vísindamanni! Allt, sem hrærist milli hinna hljóðu heimsskauta skal vera á valdi mínu: keisurum og konung- um er aðeins hlýtt í umdæm- um þeirra, en veldi þess, sem skarar fram úr í þessu (þ. e. vísindum) nær eins langt og hugur manns. **) E. M. Butler: The Fortun- es of Faust; Cambridge 1952. efni. Marlowe skrifaði ekki að- eins um Faust-sögnina. Hann llfði hana líka. To-morrow is Already Here. By Robert Jungk. Ilart-Davis. 16 s. Robert Jungk er blaðamaður við svissneskt borgarablað. í bók þessari segir hann frá ferð sinni um Bandaríkin fyrir nokkru. Þótt stíll lians minni óþægilega á bókmenntir þær, sem á ensku eru kallaðar „science fiction", er útleggst orðrétt „vísindaskáldskapur“, er frásögn hans um margt at- hyglisverð. Á ferð sinni gerði hann sér einkum far um að kynnast kjarnorkurannsóknum og vísindalegum tilraunastöðv- um. Hann skýrir ý-tarlega frá leynd þeirri og tortryggni, sem hvílir yfir allri þeirri starf- semi. Og hann vekur um leið máls á að öryggisráðstafanir þær og leyniþjónusta, sem eru í kringum rannsóknir þessar og vopnasmiðjur, séu ekki lengur einskorðaðar við þær, heldur hafi breiðzt út um allt þjóðlíf Bandaríkjanna. Jungk fær ekki betur séð en það liryllilega þjóðfélagsaf- . styrmi, sem Orwell uppmálaði í skáldsögu sinni 1984, sé að verða staðreýnd i Bandaríkj- unum. Eins og marxistiskum gagnrýnendum varð ekki skota- skuld úr að segja fyrir, hefur martröð þeirra Huxley og Or- well reynzt vera fyrirboði um þróun auðvaldsþjóðskipulags- ins í stað þess að verða ádeila á samvirkt þjóðfélag, eins og borgaralegir gagnrýnendur vildu hafa fyrir satt. Kingslby Mar.tin,, r|tstjóri fabíanska tímaritsins New Statesman and Nation og einn fremsti rithöfundur Verka- mannaflokksins um þjóðfélags- mál, skrifar ritdóm um bók þessa í tímarit sitt 6. fébrúar 1954 af tregablandinni angur- værð að hætti skárstu máls- vara þess stefnulausa flokks. Hann kemst svo að orði: „Ef við tökum ekki lengur undir hróp Swinburne: „Lof og dýrð sé manninum, því að hann er herra tilverunnar“, þá er það sökum þess, að vísindin eru komin ægilega nálægt því að uppfylla þau fyrirheit sín. Heimsspekingar og skáldsagnar höfundar hafa tekið höndurti saman við blaðamenn til þess að sannfæra þessa kynslóð, að vísindin hafi lagt harðstjórum kúgunartæki upp í hendur með því að ráða gátur efnis- heimsins, og að trúarbrögð framfaranna, sem voru leiðar- ljós viðleitni mannkynsins um fjórar aldir, kunni nú að leiða' til þrælkunar en ekki lausnar úr áþján. Hugsjón þessara trú- arbragða er mestu horfin sjón- um. Hún var sú að létta erfða- syndinni af herðum mannkyns- ins, að drepa úr dróma sköp- unarmátt þess og gefa tóm til sjálfsræktar þeim, sem strita í sveita síns andlitis; markmið hennar var að uppræta sjúk- dóma og fátækt í þeirri trú, að með batnandi kjörum yrðu mennirnir vitrari, betri og hamingjusamari ekki síður en hreinni, auðugri og heilbrigð- ari. En í dag hafa rithöfundar eins og Hauxley og Orwell dregið upp myndir af þjóðfé- lagi því, sem vísíndin eru að búa mannkynlnu, þjóðfélagi, sem sækir að okkur í svefni, unz við vöknum æpandi með andfælum urn miðjar nætur“. „Gagnstætt kommúnistum, sem eru nægjusamir og láta sig dreyma um að útrýma fá- tækt og styrjöldum með vald- boði, stefna þeir (þ. e. for- ráðamenn Bandaríkjanna) að því að fljúga til tunglsins, leggja undir sig Marz og ger- ast súpermenn“. Höfundur bókar þessarar heldur ekki, að Bandaríkin eigi aðra leið út úr öngvegi því, i,sem þau eru komin í, en að teppa allar framfarir í vísind- um og tækni. Hann virðist ekki fremur en leiðtogar þess þjóð- félags, sem hann skrifar um, sjá fram á neina leið til þess, að maðurinn • geti fært sér í nyt vald sitt yfir náttúrunni án þess að fara sér að voða. Lundúnum, 12. marz 1954. Haraldur Jóhannsson. Framhald af 3. síðu. mannsson, Jón Guðjónsson. Auk þess vom kjörnir tveir varaendurskoðendur og tó!f manna trúrtaðarmannaráð. Þá var og skýrt frá úrslitum atkvæðagreiðslu um lagabreyt- ingar, sem fra.m fóru samtím- is og voru þær samþykktar með 159 atkvæðiun gegn 144. Skrifstofustjóri félagsins las rekstrar- og efnahagsreiking þess og voru- þeir samþykktir samhljóða. . Greici.dir ^tyrkh' á árinu námu nær 42:0(K>,0Ó;1{r; Reksturshagn aður ársins reyndist vera kr. 145.750,00, sem skiptist á hina ýni3u sjóði félagsins. Eignir fé- lagsins nertia nú rösklega 1,1 milljóti króna: Skrifstofustjóri ■ félagsins er Ragnar Þórarinsson og hefur yerið það frá stofnun skrifstof- unnar. Fi&MræM Framhald af 4. síðu. tegúndir nytjafisks, önnur teg- undin var vatnakarfi en hin nefnist ,,tila-pia“. Síðarnefnda tegundin þykir góð til átu en aðalkostur þessa fisks til rækt- unar er talinn vera sá, að hann vex ótrúlega ört og viðkoma hans er svo mikil, að eitt par getur hæglega eignazt 10.000 afkvæmi á ári. Á fjórum mán- uðum vaxa tilapia seiðin frá því að vera smáseiði í ætan fisk. Það virðist ekki skipta máli fyrir velliðan tilapia-fisks- ins hvcrt hann <-r frjáls ferða sinna, eða er ræktaður í fiski- þróm og lokuðum vötnum. Vatnakarfinn, er einkum er ræktaður í Indlandi, er einnig talin góðfiskur. En sá er galli á, að þegar hanei er hafður í haldi í þróm eða vötnum hætt- ir hann að hrygna. Nú hafa fiskifræðingar í Brasilíu fundið ráð, að því að talið er, til að gera fisk frjósaman á ný með því að gefa þeim hormóna. Líkar tilraunir hafa verið gerðar í Japan og á Indlandi. Því miður liggja ekki fyrir enn öruggar vísindalegar sann- anir, en þær rannsóknir, sem þegar hafa verið gerðar, gefa góðar vonir um að auka megi fiskrækt með hormónagjöfum. Framhald af 1. síðu. vinnu og nýbyggingar, til þess að- hafa næg verkéfni allt árið. Aðeins ein eða tvær viðgerðarstöðvar eru þannig settar, að þær geti þrifist á viðgerðarvinnu allt árið um kring.“ „Með tilliti til alls þess, sem fram hefur komið, við athugun vora, og til endurreisnar, upp- byggingar og réttlátrar verndun- ar hins íslenzka tréskipaiðnað- ar, leggjum vér til, að eftirfar- andi ráðstafanir verði gerðar, áð- ur en yfirstandandi Alþingi verður slitið: 1. Innflutningur notaðra og nýrra tréskipa undir 200 rúm- lestum verði takmarkaður þann- ig, að alls cngin innflutnings- og gjaldeyrisléyfi verði veitt, fyrr en nákvæm rannsókn héfur leitt í ljós óyggjandi nauðsyn slikra ráðstafana. 2. Öll nýsmíði, sem flram- kvæmd er erlendis fyrir íslenzka aðila, skal háð eftirliti Skipa- skoðunar ríkisins. Skylt skal kaupanda að kosta mann, sem Skipaskoðun ríkisins viðurkennir, til þess að hafa stöðugt eftirlit með smíðinni, þar tii henni er lokið. 3. Óheimilt skal vera að taka innflutt, notuð skip til siglinga hér við land, fyrr en þau hafa verið styrkt upp og þeim breytt i samræmi við íslenzkar reglur. Óheimilt skal skipaskoðunar- st.ióra að veita undanþágur frá þessu ákvæði. 5. Óheimilt skal vera að festa kaup á notuðu skipi, fyrr en það Íiefur verið - skoðað og sam- þykkt sem liæft til breytinga í samræmi við íslenzkar reglur. Einiungis skipaskoðunarstjóri, eða maður viðurkenndur af lion- um, skal annast slíka skoðun. 5. Af cif-verðmæti innfluttra skipa skal greiða tilskilin gjöld til ríkissjóðs og er ráðherra ó- lieimilt að gefa þau eftir eða endurgreiða þau í neinu formi. 6. Allir tollar og bátagjald- eyrisálag á efni í innlenda báta skal endurgreitt, t. d. með vissri uppliæð á rúmlest. Skal þessi upphæð háð endtír- skoðun sámkvæmt ákvörðuu ríkisstjórnarinnar. Eins og stend- ur skal þessi upphæð teljast kr. 1.362,00 á rúmlest. Skal liún greiðast á tímamót- um í smíðl bátsins, samkvæmt nánari reglum, sem Alþingi eða ríkisstjórn setur. 7. Um leið og samið hefur verið um smíði báts, skal ríkis- sjóður hefja greiðslu verðupp- bótar, sem með núverandi verð- lagi skal yera kr. 2.400,00 á rúm- Iest. Heimilisþáttas Framhald af 10. síðu. grind innan á skáphurftinni, Þetta eru aðeins nokkrar tillögur, _ en þegar maður er farinn að betrumbæta tilhög- unina lijá sér kemur alltaf fleira og fleira í ljós sem hægt er að lagfæra með lítilli fyrirhöfn og litlum tilkostnaði, en getur þó verið til mikils léttis í hinum daglegu störfum. Ef einhverjir af lesendum Heimilisþáttarins hafa ein- hverjar tillögur í þessum efn- um eru þær þakksamlega þegn- ar. Greiðsla þessarar uppbótar skal fara fram á tímamótum í smiði bátsins, samkvæmt nánari reglum, sem Alþingi eða ríkts- stjóni setur. 8. Bátasmiður skal setja ful!- nægjandi tryggingu fyrir því, að smíði báts, sem hann fær greiðsl- ur út á skv. 6. og 7. gr„ verði lokið innan tiltekins tíma. \ 9. Illutazt verði til um, að Fiskveiðasjóður íslands greiði að öðru jöfnu frekar fyrir lánum til inniendra bátabygginga. 10. Alþingi heimili ríkisstjórn- inni að lilutast til um, að hafin verði nú á næstunni smíði allt að 1000 rúnxlestum fiskibáta und- ir 100 rúmlestum hver, og skal hú.n leitast við að dreifa smíð- inni á sem flestar skipasmíða- stöðvar úti um land og þá að öðru jöfmi þar, sem árstíðabund- ins atvinnuieysis gætir mest cg það er tilfinnanlegast. Æskilegt væri, að heimildin gerði ráð fyr- ir, að ■ næstu f jögur ár yrðu smiðaðar 800-1200 vúnilestir árlcga. 11. Framkvæmd verði gagn- gcr athugun á viðgerðar- og ný- byggingarskilyrðum hinna ýmsu skipasmíðastöðva uti uin land, og Alþingi heimili lánveitingar til cndurbóta á þessum skilyrð- uni þar, sem rannsókn leiðir í ljós, að þau eru ófullnægjandi fyrir þá útgerð, sem rekin er á staðnum eða í nágrenni hans. Skai fyrst og fremst heimila lán- veitningar til endurbóta og/eða nýbygginga dráttarbrauta þar, sem þcim er ábótavant eða vant- ar aiveg. Það skilyrði skal. sett fyrir Iánveitingunni, að dráttar- brautin taki a. m. k. 110 rúm- lesta skip. Nákvæm skýrsla um þetta efni liggi fyrir næsta reglulegu Al- þingi. 12. Hafin veröi skipuleg rann- sókn á þvi, livaða stærðir báta verði lieppilegastar með tilliti til þeirra breyttu aðstæðna, sem nú eru að skapast vegna hinnar breyttu landhelgislínu, og enn frekar reynt að samræma og „standardisera“ staérðir og gerð- ir þeirra báta, sem smíðaðir verða víðsvegar urn landið með tilstyrk ríkisins. 13. Allar skipasmíðastöðvar, sein smíða báta með tiistyrk rík- issjóðs, skulu skila sundurlið- uðöm kostnaðarreikningi yfir raunverulegt kostnaðarverð báts- ins. Rikissjóður skal eigi inna af höndum síðustu greiðslu skv. 6. og 7. grein, fyrr en fullnægj- andi reikningsskil liafa verið gerð. Skulu útbúin sérstök eyðu- blöð og leiðbeiningar um sundur- liðun byggingarkostnaðarins. 14. Settar verði strangar reglur um gæði og ineðliöndlun efni- viðar í báta, með það fyrir aug- um að fyrirbyggja, að þurrafúi taki sig upp. Hafin vcrði víðtæk rannsókn á því, hvaða ráðum skuli beitt, til þess að fyrir-i byggja skemmdir á máttarviðum bátaima af völdum þurrafúa og fúa yfirleitt. 15. Framkvæmd verði gagn- ger athugun á íslenzku smíðareglunum með það fyrir augum að finna, hvort nokkrar breytingar mætti gera á þeini, sem ííklegar væru til þess að gera bátana ódýrari f smíði, án þess þó að rýra gæði og styrk- ieika þeirra.“

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.