Þjóðviljinn - 13.04.1954, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 13. apríl 1954 — ÞJÓÐVIUINN — (il
Viðfalið
við Elías
Framhald af 6. siðu. j
félag nefnt fyrr. Síðan hef ég
verið verklýðssinni.
Ég vissi raunar áður hvað
samtök gátu þýtt. Ég þekkti
vel til í Krýsuvíkursókn er ég
var ungur. Þar var aldrei til
búnaðarfélag né heldur verzl-
unarsamtök, enda eyddist
byggðin. En þegar ég kom í
Óspakseyrarhrepp í Bitrufirði,
þar sem aðeins voru 10 bæir,
þá var þar búnaðarfélag sem
átti plóg og herfi frá Torfa
í ÓiafsdaL og gengu þessi
verkfæri milli bændanna. Af
því að þeir áttu þau í félagi
gátu þeir á þeim árum slétt-
að tún sín og búið í haginn
fyrir sig. Auk þess höfðu þeir
pöntunarfélag. jí dag tala
verkin: I Krýsuvíkursókn er
e.nginn maður, en velmegun í
Óspakseyrarhreppi. Ég hef
heyrt þeir eigi milljón. En út
af þessu skildi ég, áður en
ég kynntist verklýðsfélögun-
um, að samtök eru lífsnauð-
S;/n. Það er allt sprottið af
þessari rót að ég er sósíalisti.
Ég treysti þeim flokki bezt
að lei'ða menn til samvinnu
og samtaka. Mér finnst dæm-
• ið um Krýsuvíkursókn og
Öspakseyrarhrepp svo s!á-
andi Á báðum stöðunum voru
þrekmiklir dugnaðarmenn.
En annarsvegar voru samtök,
hinsvegar samtakaleysið — ég
sé ekki að neitt annað skilji
þar á milli.
Svo fer Elías Guðmundsson
méð nokkrar vísur fyi'ir mig,
að íslenzkum sið. Nokkrar
blaðagreinar hef ég párað,
segir hann. og dálítið á ég af
sneplum. Og hann hefur hald-
ið erindi í útvarpið. En það
kemst ekki fyrir núna, því
þetta er aðeins ágrip af at-
vinnusögu mannsins sem fór
að vinna sjálfboðastarf fyrir
hugsjón þegar hann átti loks
kost á því að setjast í helg-
an stein, eftir búskap og sjó-
mennsku og trésmíðar í hálfa
öld. í dag er hann sjötugur,
og hann segist ekki vera
þreyttur í fótum þótt hann
þrammi götur Reykjavíkur
sjö til átta stundir á dag.
Hann vinnur þýðingarmikið
verk fyrir framgangi sósíal-
ismans á íslandi. Má og vera
að það sé einmitt þetta starf
sem heldur honum svona ung-
um, bæði í fótunum og and-
anum. — B. B.
Tilkynning frá skattstofu Reykjavíkur
Heimilisþáftur
Framhald af 10. síðu.
Eftirfarandi uppskrift er líka
ágæt til tilbrey tingar: 75 g
rifinn ostur, tómatpuré, smjör
og salt. Osturinn hrærður út
með tómatmaukinu og smjöri
þar til haan er mátulega mjúk-
ur til að smyrja honum á
brauð. Salti bætt í eftir smekk.
VeiklýðsSél. Hiútlirðinga
Framhald af 7. síðu
flot með kauptöxtum hliðstæðra
félaga. Fullur forgangsréttur
að allri vinnu hjá kaupfélag-
inu hefur og náðst, enda ekki
óeðlilegt að forráðamönnum
kaupfélagsins hafi verið Ijúfara
að eiga orðræður um slíka
hluti við rétta menn með rétt-
ar skoðanir, en við ranga menn
með rangar skoðanir.
Þá hafa og allar þær kjara-
bætur, sem náðst hafa fyrir
Vegna þeirra breytinga á skattalögunum, sem Alþingi
hefur nú samþykkt, og gilda eiga við skattálagningu á
þessu ári, er framteljendum hér með bent á að kynna sér
þessi nýju ákvæði. Skattalögin í heild, ásamt leiðbeining-
um um framkvæmd hinna nýju ákvæða, hafa nú verið sér-
prentuð og fást gögn þessi á skattstofunni.
Nokkrar þeirra auknu frádráttarheimilda, sem lögin á-
kveða, eru þess eðlis að frekari upplýsinga er þörf en í
framtali greinir. Er hér á eftir getið þessara nýmæla og
þeim tilmælum beint til allra þeirra, er telja sig eiga rétt
til skattlækkunar samkvæmt þeim, að láta skattstofunni í
té nauðsynlegar upplýsingar eftir þvi sem bent er á um
hvert einstakt atriði.
!. Skatlfrelsi sparifjá?.
Samkvæmt 7. grein d-lið og 22. grein laganna er viss
hluti af innstæðum í bönkum, sparisjóðum og innláns-
deildum félaga, og vextir af sömu innstæðum, undanþegið
framtalsskyldu og tekju- og eignaskatti. Skattfrelsið gildir
um allar innstæður þeirra skattgreiðenda, sem ekkert
skulda hinn 31. desember ár hvert, eða sé um skuldir að
ræða, er skattfrjáls sá hluti heildarinnstæðu, sem er um-
fram heildarskuldir. 1 þessu samhandi skal þó draga frá
heildarskuldum fasfceignaveðlán sem tekin hafa verið til 10
ára eða lengri tíma og sannanlega verið teldn til kaupa
eða endurbóta á fasteignum skattgreiðandans.
Allir þeir, sem telja sig eiga að njóta skattfrelsis af
sparifé samkvæmt ofanskráðu, en hafa talið fram skuldir,
og einhver hluti skuldanna er lán gegm veði í fasteignum
til lengri tíma en'10 ára, verða að gera grein fyrir eftir-
farandi várðandi hvert einstakt fasteignaveðlán.
a. Á hvaða fasteign hvílir lánið?
b. Hvenær var lánið tekið og til hve langs tíma?
c. Hverjar voru eftirstöðvar lánsins hinn 31. desember
1953? Tilgreina skal sérstaklega áfallna vexti frá
síðasta gjalddaga til ársloka.
d. Vegna kaupa, byggingar eða endurbóta á hvaða
fasteign var lánið tekið ? .
. ,;Úl -Ú '1 >.U --r': • SCí' 50* J.4
6t 2. Húsalelgufráðráttnr.
I’IO. grein, m-lið éru eftirfarndi ákvæði um húsaleigu-
f rádrátt:
„Nú færir leigutaki í íbúðahhúsnæði sönnur á að
hann borgi hærri húsaleigu en því nemur, sem afnot
húsnæðisins mundi talin til tekna, ef það væri sjálfsí-
búð, og er honum þá heimilt að telja hálfan muninn til
frádráttar tekjum, áður en skattur er á þær lagður.
Frádráttarheimild iþessi gildir þó ékki fyrir einiileypa,
og húsaleigufrádrátturinn má ekki nema meiru en kr.
600,00 á ári á hvem mann, sem framteljandi hefur bæði
á framfæri og í heimili".
Þeim leigutökum sem eiga kunna rétt á leigufrádrætti
samkvæmt ofangreindu, en hafa ekki gert fulla grein fyrir
húsaleigugreiðslum sinum, eða stærð leiguhúsnæðis, eins og
krafizt var í skattframtali, er hér með gefinn kostur á að
bæta úr þeirri vanrækslu.
3. Iðgjöld aí Hísábysgðnm.
Hámark frádráttarbærra iðgjalda hefur verið hækkað
í 'kr. 2.000,00.
4. Iðgjöld al élögboðnum Hleyiistsyggmgum.
í 10. grein d-lið er heimilað að draga frá tekjum til
skatts iðgjöld af ólögboðinni líífeyristryggingu, er nemi
allt að 10% af launum eða hreinum tekjum. þó ekki meiru
en kr. 7.000,00 á ári.
Þeir, sem é s.l. ári hafa greitt slík iðgjöld, verða að
gera grein fyrir fjárhæð iðgjaldsins og hjá hvaða sjóði
eða stofnun lífeyristryggingin er keypt.
Öllum eftirlauna- og lífeyrissjóðum og öðrum stofnun-
um, er slíkar tryggingar annast, er bent á að kynna sér
þau skilyrði, sem sett eru í d-lið 10. greinar laganna og
sameiginlega baráttu verkalýðs-
samtakanna síðastliðin ár, fall-
ið félaginu í skaut fyrirhafn-
arlaust.
Þótt ýmsir félagsmenn hafi
ekki farið dult með andúð
sína á slíkri baráttu, meðan
hún stóð yfir, má segja þeim
uppfylla verður til þess að iðgjaldagreiðslur til þeirra megi
draga frá tekjum.
5. FerðakostnaSni.
Samkvæmt 10. grein, staflið i, mega þeir skattgreíð-
endur, sem fara langferðir vegna atvinnu sinnar, draga frá
ferðakostnað eftir mati s'kattyfirvalda.
Það telst því aðeins langferð að ferðakostnaður milli
heimilis og atvinnustaðar nemi a. m. k. kr. 250,—• fram og
til baka, enda sé miðað við venjuleg og óhjákvæmileg út-
gjöld. Auk fargjalds má taka tillit til fæðis- og gistingar-
kostnaðar. Frádráttur þessi hjá hverjum gjaldenda kemur
að jafnaði aðeins til greina vegna einnar slíkrar lang-
ferðar á ári hverju.
Hver sá, sem telur sig eiga rétt til frádráttar samkvæmt
þessum lið, verður að gera nákvæma grein fyrir ferðakostn-
aði sínum.
.6. HHfðarfatakostitaðcr Hskintacna.
í 10. grein h-lið er heimilað að veita fiskimönnum frá-
diátt vegna sérstaks hlífðarfatakostnaðar.
Af skipverjum á togurum njóta þessa frádráttar: há-
setar, bátsmaður og 2. stýrimaður og nemur frádráttúriiin
kr. 300,00 fyrir hvern mánuð, sem skipverji er lögskráður.
Á öðrum fiskiskipum njóta allir skipverjar frádráttar-
ins, kr. 200,00 fyrir hvern mánuð, sem skipverji er slysa-
tryggður í skiprúmi.
Þeir, sem frádráttarins eiga að njóta, leggi fram vott-
orð um, .hve lengi þeir hafi verið í skiprúmi, annað hvort
frá lögskráningaryfirvaldi eða hlutaðeigandi útgérð.
1. Fsádmttns vegna stelimnar heimilis.
1 10. grein k-lið er ákveðinn sérstakur frádráttur þeim
til handa, sem gifzt hafa á skattárinu. Þar sem skattstofan
hefur í höndum aðeins takmarkaðar upplýsingar um hjóna-
vígslur ,er nauðsynlegt, að í framtölum hlutaðeiganda séu
fullnægjandi upplýsingar þetta. varðandi.
8. Frádráttur vegca keyptrar heimiiisaðstoðar.
Samkvæmt- 10. grein j-lið, skal með vissum takmörkun-
um, veita frádrátt vegna keyptrar heimilisaðstoðar:
1. Ef gift kona, sem er samvistum við mann sinn, vinn-
ur fyrir skattskyldum tékjum og kaupir í staðinn
heimilisaðstoð.
2. Ef einstæð móðir, sem framfærir börn sín eða aðra
ómaga á heimili sínu kaupir heimilisaðstoð vegna öfl-
unar skattskyldra tekna.
3. Ef ekklar og ógiftir menn, sem hafa börn eða óm&ga
á framfæri á heimili sínu kaupa heimilisaðstoð þess
vegna.
Keypt heimilisaðstoð telst i þessu sambandi laun og
hlunnindi ráðskonu eða vinnukonu og greiðslur fyrir börn
á dagheimilum.
9. Söluhagcaðc;.
Vakin er athygli á hinum breyttu ákvæðum í 7. grein
e-lið um skattskyldu söluhagnaðar af fasteignum.
Þá er og atvinnurékendum bent á að kynna sér hinar
nýju reglur í sömu lagagrein um skattlagningu á fyming-
um af seldu lausafé, enn fremur fyrirmæli í framannefnd-
um leiðbeiningum varðandi þessi efni. Af ákvæðum þess-
um leiðir m.a. að öll skattskyld fyrirtæki verða nú og fram-
vegis að láta nákvæmar fymingarskýrslur fylgja ársreikn-
ingum sínum.
Þeir sem telja sig eiga rétt til skattlækkunar samkvæmt
einhverjum framangreindra atriða, verða að hafa komið
nauðsynlegum upplýsingum þar að lútandi til skattstof-
unnar skriflega eða munnlega, — ekki í síma, — í síðasta
lagi fimmtudaginn 22. þ.m.
Þeir, sem senda upplýsingar bréflega tilgreini fullt
nafn, fæðingardag og heimilisfang nú og á fyrra ári.
Skattstjórinn I Reykjavik
það til verðugs hróss, að eng-
inn hefur nokkru sinni haft á
móti því að hagnýta sér árang-
urinn.
En hvað um það. Þótt eitt-
hvað kunni stundum að hafa
á það skort að félagið eða ein-
stakir meðlimir þess hafi skil-
ið til fulls afstöðu sína og
skyldur í hinni sameiginlegu
hagsmunabaráttu verkalýðsins,
er engum vafa undirorpið, að
félagið vex frá slíkum gelgju-
skeiðseinkennum innan tíðar.
Enda ég svo þessar línur
með þeirri afniælisósk að rétt-
I
indi þau sem áunnizt hafa þessi
tuttugu ár megi haldast og
aukast, og að hver félagi geri
sér á hverjum tíma ljósar þær
skyldur sem því fylgja að vera
þátttakandi í hinni sameigin-
legu hagsmunabaráttu vinn-
andi manna.