Þjóðviljinn - 01.05.1954, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 01.05.1954, Blaðsíða 11
Laugardagur U maí 1954 — ÞJÓÐYHJU^N—- (11 SKÁKÞÁTTIIRIM Framhald af 4. síðu. hlaut 5 vinn. á fyrsta borði, Þór- ir Ólafsson 6 vinn. á öðru borði, Ingvar Ásmundsson 4 vinn. á þriðja borði og Jón Einarsson 4 vinn. á fjórða borði. .Þetta var strangt mót þótt ekki væri það langt, tefldar níu um- jferðir á 7% degi. fslendingarnir voru ekki nema fjórir og urðu þvi allir að tefla allar skákirnar, en ýmsar af hinum þjóðunum höfðu einn eða tvo varamenn og igátu því hvílt sína menn. Svo er ráð fyrir gert að þessi etúdentamót verði haldin ár hvert. Verður næsta mót senni- lega haldið í Moskvu, Suður- frakklandi eða Norðurítalíu. Þegar jafn fjarskyldar þjóðir tnætast og hér, er skorturinn á Sameiginlegu alþjóðamáli til- finnanlegur og torveldar sam- ræður og nánari kynni. Kortnoj var eini sovétskákmaðurinn er talaði annað en rússnesku, Búlg- árarnir töluðu heldur ekki fram- andi tungur og erfiðlega gekk Norðurlandabúunum að skilja ítali og Frakka. Hins vegar töl- uðu Tékkarnir þýzku ef á þurfti að halda. Ekki hefur birzt neitt af skák- Um frá þessu móti ennþát en hér kemur skák Ingvars við Finnann Sahlberg, en gegn Finn- Um unnu fslendingarnir einn sinn stærsta sigur, fengu þrjá og hálfan vinning gegn hálfurn. Kóngsindversk vörn. Ingvar Sahlberg 1. d2—d4 Rg8—f6 !: 2. c2—c4 g7—g6 ;• 3. Rbl—c3 Bf8—g7 i 4. e2—e4 d7—d6 5. f2—f3 0—0 j 6.Bcl—e3 e7—e5 7. d4—d5 Rb8—d7 8. Bfl—d3 Rf6—h5 9. Rgl—e2 f7—f5 10. e4xf5 g6xf5 11. Ddl—d2 a7—a5 12. Bd3—c2 Rd7—c5 15. h2xg3 Hf8—f7 16. g3—g4 Dd8—e8 17. Hhl—h5 e5—e4 Svartur reynir réttilega að opna sér línur. 18. g4xf5 Bc8xf5 19. Be3xc5 b6xc5 20. Rc3xe4 Bf5—g6 Svartur er í vanda. Freistandi er að drepa riddarann til að fá fram mislita biskupa og gagn sókn á b2, en sókn hvíts eftir h-línunni er þá óþægileg og hætt er við að hann verði á undan. 21. Hh5—hl Ha8—b8 22. Re4—c3 Hb8—b4 23. Bc2xg6 h7xg6 24. Hdl—el De8—b8 Betra var áreiðanlega He7, það dugar ekki að eftirláta hvít mið borðið. 25. Hel—e4 Hf7—f5 26. f3—f4 Kemur í veg fyrir He5, 26. ... Db8—c8 27. Dd2—el Hf5—f8 28. He4—e6! Þessi djárflegi leikur er upp'naf lokasóknarinnar. Ingvar skilur peðin á c4 og Í4 eftir í uppnámi til þess að loka svörtu drottning- una úti og koma mönnum sín- um í sóknaraðstöðu. 28. ... Hb4xc4 29. Del—h4 Hf8xf4 Eða Hbxf4 30. Dxh7f Kf7 31. Dxgöt Kg8 32. Dh7f Kf7 33. Re4. 30. Dh4—h7t Kg8—fl 31. Dh7xg6ý Kf7—f8 ABCDEFGH Ingvar teflir byrjunina áreynslu- laust, því að þetta er síðari um- ferð dagsins og í þeirri fyrri lenti hann í þessari sömu byrj- un gegn Búlgaríu og nýtur nú góðs af þeirri reynslu. Síðasti leikur hvíts rýmir til og er jafn- framt gerður í þeirri fánýtu von að svartur freistist til að vinna peð með 12. Dh4ý og 1.3. Dxc4, en það mundi kosta drottn- ingu. 13. 0—0—0 b7—b6 14. Rg3 Rh5xg3 Hér ték Ingvar De8 og er það skynsamlegri leikur. öUr tmusiöcáö stcmsmactrasðoa Minningarkortin ern tii sölu í gkrifstofu Sósiaiista- flokksins, Þórsgötu 1; af- greiðslu Þjóðviljans; Bóka búð Krou; Bókabúð Máls og menningar, Skólavörðnr stíg 21; og í Bókaverzlnn Þorvaidar Bjarnasonar í Hafnarfirði ♦ ♦ ■ Hér stóð Ingvari til boða skemmtilegt framhald: Hh7! Varnarleikir leiða þá skjótlega til ósigurs, t. d. 32.—Hf7 33. Hf6! Dd7 34. Dxg.7f!, eða 32. — Hg4 33. Hf6ý! og vinnur. En 32. Hh7 skilur fyrstu. röðína eftir óvarða og við takmarkaðan umhugsunartíma er erfitt að sjá i gegnum þær flækjur er koma eftir 32. - Hflý t.d. 33. Kd2 Hd4ý Kc2 (Kóngurinn má ekki fara út á e-línuna) Hf2f 35. Re2 Dd7 36. He8+! og mát í næsta leik). Ingvar velur því aðra leið. 32. Hhl—el Hf4—f7 33. Dg6—d3 Hc4—b4 Eina leiðin til að verjast næstu. hótun hvíts. 34. Dd3—e3 Hb4—b8 35. He6—e7 Hf7—f6 Með einni smáhótun: Bh6!. En hvitur er á undan. Betri vörn var 35. Hxe7 36. Dxe7ý Kg8 og því næst Df8 (eða De8 sein svar Hfl). 36. He7xg7! Kf8xg7 37. De3—g5ý Kg7—f7 38. Dg5—h5t Hf6—g6 39. Dh5—h7t Kf7—16 40. Dh7—e7t Kf6—f5 41. Hel—flt Kf5—g4 42. De7—e4f Kg4—h5 43. Hfl—hlf Kli5—g5 44. De4—h4t Kg5—Í5 45. Hhl—flf mát í næsta leik. EKI FXD TlÐINDI Framh. af 6. síðu. phu vakti ekki aðeins fyrir þeim að hafa þar bækistöð fyr- ir sókn inn í norðvesturhluta Viet Nam. Þeir hugsuðu lengra. Það var markmið bandarísku herstjórnarinnar að koma upp í Dienbienphu flugstöð, sem vegna legu sinnar yrði ein hin þýðingarmesta í Suðaustur- Asíu. Dienbienpþu er miðdepill í hring sem nær yfir stórar sneiðar af Kína, Burma og Thailandi. Vegna þess hve langt var frá bækistöðvum okkar til Di- enbienphu og vegna samgöngu- leysisins í þessum strjálbýla landshluta bjuggust óvinirnir ekki við- að þurfa að heyja hér varnarorustu. Því var það að þegar Alþýðuherinn settist um virkið varð franska herstjórnin að flytja þangað lið frá öðrum vígstöðvum í Indó Kina ásamt nýjustu hergögnum frá Banda- ríkjunum. í þriggja vikna bar- daga höfum yið gert tvo fimmtu a£ liði óvinanna óvirka, náð tökum á nyrztu útvirkjum þeirra, einangrað suðurvirkin frá aðalvirkjunum í miðjunni og gert flugvöllinn ónothæfan. Óvinirnir hafa misst svigrúm til að hreyfa lið sitt og skipu- leggja vörnina. Þegar svo er komið reiða óvinirnir sig að mestu á loftárásjr með benzín- hlaupi og tundursprengjum en tap okícar af völdum loftárása hefur verið hverfandi.“ /^alamandrei spurði Vo, hvað hann teldi’ vera stærstu skyssuna sern Frakkar og bandarískir ráðunautar þeirra gerðu við Dienbienphu. Yfir- hershöfðinginn svaraði: „Stærsta skyssán var að þeir gerðu sér ekki grein fyrir því, hvað þjóð sem berst fyrir sjálf- stæði sínu megnar. Þeir van mátu þroska hers okkar og þá gífurlegu orku sem býr með þjóðinni. Franska herstjórnin hefur neyðzt til að flytja svo TIl LIGGUIL LEIÐIN Ódýrt — Ódýrt Bróflergarn Nælon herraskyrtur Herrabindi Herrasokicar Barnasokltar Nælon blússur Nælon döinubuysir Stórar kvenbuxur Amerískur varalit’ur Alls konar snyrtivörur AIls konar hreinlætis- vörur Ódýrar tóbaksvörur Nýjar vörur daglega. Vörumarkaðurinn Hverfisgötu 74. mikið lið úr Rauðáróshólmun- um, suðurhluta Viet Nam, Laos og Cambodia að setulið þar er víða berskjaldað. Þetta hefur gert liði okkar fært að hefja sókn á óshólmunum og háslétt- unni og taka hundruð stöðva í suðurhluta Viet Nam.“ L okaorð Vo við ítalska blaða manninn voru: „Orustan um Dienbienphu er mesta við- ureignin í frelsisstríði okkar. Sigrar okkar þar sýna hve ört her. okkar vex ásmegin. Áföllin sem heimsvaldasinnarnir hafa orðið fyrir eru sönnnn unv. að máistaðuf. þeirra. er glat- aður. Eins og Ho Chi Minh forseti hefur komizt að orði,.. myndi þjóð okkar ekki eiga í stríði ef, frönsku innrásarsegg- irnir og bandarisku heims- valdasinnarnir hefðu ekki knú- ið hana til að verja fr.e)si og sjálfstæði Viet Nam með vopn- um. Þrátt fyrir síaukna íhlutun . Bandaríkjanna erum við full- vissir um sigur málstaðar okk- ar vegna stuðnings friðarafl- anna í Frakklandi og annars- staðar í heiminum." Leikdómurinn um Vitiiendina Framhald af 7. siðu- beina að honukn athyglinni öðrum fremur, gera, hinn ó- hugnanlega sannleikspóstula að þungamiðju leiksins. Jón Aðils og leikstjórinn fara aðra leið; leikur Jóns er mjög hlé- drægur, hann mælir lágt og fremur ástríðulaust, lætur ó- trúlega lítið áð . sér kveða. Túlkun þessa má styðjá með rökum — Gregers er óþrosk- aður en góðviljaður hugsjóna- maður, barnalegur og auð- trúa. En, hann er þó framar öllu hættuíegur ofstækismað ur, sálarlíf lians sjúkt og fært úr lagi; og hann er sá sem bölinu veldur. Þeir sem leikinn sjá hljóta að renna til hans illu^guga, hata hann áður en lýkur, sízt af öllu má þeim standa á sama um hann. Leikur Jóns er of mátt- lítill, skortir ofstæki og innri glóð, lýsir ekki til hlítar þján ingum þeim og samvizkubiti sem búa í brjósti þessa ó- happamanns. Hlutur Gregers Werle er of smár á sviðinu; og við það raskast nokkuð hin réttu hlutföll í leiknum. í annan stað sópar að Werle stórkaupmanni í með- förum Vals Gíslasonar, hann er maður mjög virðulegur á- sýndum, fastur fyrir og sýni- lega stórauðugur og vanur að hafa örlög fólks í hendi sér. Stórkaupmaðurinn er beggja handa járn og hefur allt annað en hreinan skjöld; Valur leggur áherzlu á hans betri mann án þess að draga fjöður yfir galla hans. — Arndís Björnsdóttir er frú Sörby og lýsir skýrt góð- semi hennar og glaðlyndi, og er i öllu hin geðfeldasta kona, en ekki sú heimskona sem ætla má að liún eigi að vera. — Molvik segir fátt, en er engu síður mikilsverð hlið stæða Hjálmars Ekdals, og er vel borgið í traustum höndum Róberts Arnfinnssonar. A1 gerir aukaleikarar eru þjónar og gestir stórkaupmannsins — Klemenz Jónsson er Grá- berg bókhaldari, sennileg manngerð, og þjónarnir tveir Ævar Kvaran og Baldvin Halldórsson, skemmtilegar andstæður. Lárus Ingólfsson, Valdimar. Helgason og Þor- grímur Binarsson eru veizlu- gestir og karnmerráð. að nafn- bót. Þýðing. Halldórs Kilj^ns Laxness er þróttmikil og snjöll sem vænta má, og máli Ibsens mjög snúið til ís- lenzkra talshátta. Einstaka setningu er. ég þó ósammála og stöku orði, til að mynda „andsetinn” um „demonisk". Ibsen gerir greinilegan mun á villiönd og viltri önd, en þann mun tekur Laxness ekki til gi-eino.. Langt er síðan jafnánægju- legt hefur verið að sitja í Þjóðleikhúsinu sem þetta kvöld, þar var hvert sæti skipað og gestirnir fylgdust með leiknum af áhuga og at- hygli og gerðu að honum hinn bezta róm; loks var frú Gert Grieg ákaft hylit með lófataki, blómum og ræðu þjóð!eikhúsgtjóra. Öll þökkum við henni ágætt starf og væntum þess að hún komi sem fyrst aftur — og færi okkur þá annað af tveimur snilldarverkum manns hennar Nordalils Grieg, hins ógleym- anlega skátds. A. Hj. " Meistaramóti íslands í körfu- knattleik lauk 28. f. m. í meist- araflokki léku til úrslita ÍR og ÍKF og sigruðu ÍR-ingar 31—24. f II. fl. léku til úrslita ÍR og Gosi og vann ÍR 31—23. f III: fl. sigraði Gosi ÍR 34—22. — Ben. G. Waage, forseti ÍSÍ, af- henti sigurvegurunum verðlautt og sleit mótinu. ------------------------- Kvenfélg Búsiaðsóknar heldur hinn árlega bazar sinn þriðjudaginn 4. maí n. k. í Góðtemplarahúginu (uppi) kl. 2 e.h. í».a e b » *.£»• ** - ' ' “ p Bazarnefnðin. m innuifyarápjo r? á n Ö • ~~ • Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför GUÐRfHAR DAVÍÐSDÓTTUR. Börn og tengdaðætur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.