Þjóðviljinn - 19.06.1954, Blaðsíða 8
8) — ÞJÖÐVILJINN — Laugardagur 19. júní 1954 —
% ÍÞRÓTTiR
RITSTJÓRl. FRtMANN HELGASON
Iþróttasýningar og keppni settu svip á
17. júní
Eins og að venju fór einn
þáttur hátiðahaldahna 17. júní
fram á íþróttavellinum. Voru
þar sýningar og keppni og
lauk þar hinu árlega 17. júní
frjálsiþróttamóti. Viðstaddur
sýningar þessar var forseti Is-
lands, en hann er sem kunn-
ugt er verndari íþróttasam-
bandsins. Ennfremur voru þar
ráðherrar og sendiherrar er-
lendra ríkja.
Hinir nýútskrifuðu stúdentar
settu líka svip sinn á áhorfenda
stúkuna.
Fylking íþróttamanna frá
mörgum félögum gekk einn
hring undir fánum , en
fyrir henni gengu skátar með
fánaborg. Mótið setti Gísli
Halldórsson form. l.B.R.
Þá flutti forseti Islands á-
gætt ávarp og að því loknu af-
henti hann forseta I.S.l. bikar
einn mikinn og fagran er veit-
ast skyldi þeim íþróttamanni í
landinu er beztum árangri næði
í frjálsum íþróttum 17. júní.
Ymsar sýningar.
Þá hófust sýningarnar og
sýndu þá fyrst 60-70 stúlkur
11-14 ára úr Ármanni undir
stjórn Guðrúnar Nilsen, og
vakti sýningin hrifhingu á
horfenda, en sýningin var
byggð upp með hugkvæmni sem
Gurúnu Nilsen er lagin; undir-
leik á píanó annaðist Carl
Billich.
Leikfimiflokkur KR undir
stjórn Benedikt3 Jakobssonar
vakti einnig hrifningu. Piltun-
um hefur farið mjög fram frá
því þeir sýndu síðást, og það
á öllum áhöldunum, enda
munu þeir eftir tvær vikur
fara til Halden í Noregi til
þátttöku í stóru fimleikamóti,
sem þar er haldið í byrjun
næsta mánaðar.
Þá fór fram knattspyrnu-
kappleikur í IV. fl. milli Austur-
og Vesturbæjar og lauk með
sigri Austurbæjar 1:0.
Bændaglíma var háð og
stjórnaði Þorst. Einarssor
henni. Voru aðeins 4 keppendur
í hvorri sveit en bændur voru
Gísli Guðmundsson^og Sigurð-
ur Sigurjónsson. Keppendur
voru aðeins frá KR og Ármanni.
cg vantaði vissulega menn úr
UMF Reykjavíkur. Var glíma
þessi ekki sérlega hrífandi, og
cf fámenn.
Frjálsíþróttamótið var fjöl-
mennt og komu þar fram marg-
ír efnilegir íþröttamenn, sem
eiga eftir að láta til sín taka
• og gefst þá betri tími til að
vikja nánar að þeim
Bezta árangri í einstakri
keppnisgrein hér í Reykjavík
náði Hörður Haraldsson fyrir
100 m hlaup sitt sem gefur 908
stig, eftir nýju töflunni.
tírslit:
jtOO m hlaup
Hörður Haraldsson Á. 11,0
Ásmundur Bjarnason, KR 11,1
Guðmundur Vilhjálmsson IR
11,1.
Stangarstökk
Bjarni Linnet, IR 3,65
Valbjöm Þorláksson, KR 2,50
Heiðar Georgsson, iR 3,20.
Langstökk
Einar Frímannsson, UMF Self.
6,47
Björn Jóhannsson, UMFK 6,38
Helgi Björnsson, ÍR 6,29.
Kúluvarp.
Guðmundur Hermannsson KR
14,23
Skúli Thorarensen, Á. 14,02
Hallgrímur Jónsson Á 12,43
1500 m hlaup.
Sigurður Guðnason ÍR 4.06,0
Svavar Markússon KR 4.08.4
Halldór Pálsson UMFK 4.25,2.
400 m hlaup.
Guðmundur Lárusson Á. 49,8
Þórir Þorsteinsson Á. 51,3
Björn Jóhannss. UMFK 55,8
- 1000 m boðhlaup.
Giímufélagið Ármann, 2.01,1
KR 2.07,2
IR 2.07,8
Framhald á 11. síðu.
7 5 ára í dag
Lárus J.
Guðjón Einarsson fimmtugur
Þeir sem fylgzt hafa með
íþróttamálum höfuðborgarinn-
ar, og þá sérstaklega knatt-
spyrnumálum, hafa ekki kom-
izt hjá því að kynnast afmæl
isbarninu frá í gær, svo mjög
hefur hann hrærzt og lifað í
íþróttastarfi. Sem drengur var
Guðjón Einarsson þátltakandi i
starfi og „stríði“ strákafélag-
anna, sem í þann tíð settu viss-
an „svip á bæinn.“ Þessi at-
hafna- og félagsþörf Guðjóns
var aðeins byrjun á því sern
koma átti. Hann gerðist félagi
í Víkingi, og keppti þar um
langt skeið í aðalliði félagsins.
Hann sat þar í stjóm, og var
formaður Víkings um nokkurt
skeið, fulltrúi í KRR auk ó-
teljandi trúnaðarstarfa, sem
hann hefur gegnt fyrir félag
sitt og íþróttahreyimguna í
heild. Það sem þó hefur einna
mest aukið orðstír Guðjóns eru
afskipti hans af dómaramál-
um, og hæfni hans sem knatt-
spyrnudómari. Er hann nú eini
íslenzki dómarinn, sem hefur
viðurkenningu sem alþjóða-
dómari, og segir það nokkuð til
um álit það sem hann nýtur
sem dómari.
Myndugleiki Guðjóns og form
festa hefur átt sinn mikla þátt
í því að gera honum kleift að
halda leikjum sem hann dæmir
í hendi sinni, en það er einkenni
góðra dómara. En Guðjón hef-
ur haft afskipti af fleiri íþrótta
greinum en knattspyrnu. Hann
tók að iðka badminton fyrst
og fremst til gamans og hress-
ingar en árangurinn lét ekki á
sér standa. Hann komst brátt
í fremstu röð badmintonleikara,
og hefur unnið mikið fyrir þá
íþrótt í leik og stjórn, og líka
þar — sem ágætur dómari.
Um nokkurt skeið hefur Guð-
jón setið í stjóm íþróttasam-
bands Islands og er varaforseti
þess.
Hér hefur verið stiklað á ör-
litlu af öllum þeim störfum
sem Guðjón hefur af hendi
leyst, og enn hvíla á honum
föst störf sem hann á vissu-
lega eftir að hafa með höndum
í mörg ár enn, svo ungur sem
hann er í sjón og raun. Fyrir
allt þetta stendur íþróttahreyf-
ingin í mikilli þakkarskuld við
Guðjón. Því starf hins sanna
áhugamanns fyrir íþróttahreyf-
inguna verður aldrei fullþakk-
að.
En Guðjón hefur komið víð-
ar við en í íþróttahreyfing-
ingunni. Hann hefur stund-
að leiklist með ágætum árangri
og hann hefur tekið rnikinn
þátt í félagssamtökum verzlun-
armanna hér í bæ.
Heill þér fimmtugum.
Þegar ég var drengur og ný-
orðinn læs eignaðist ég tvo
árganga af „Unga íslandi" frá
árunum 1907 og 1908. Á einni
síðu þessarar bókar gaf að
líta mann alklæddan, búinn
hlífðarfötum sjómanna í leður-
stígvélum með sjóhatt á höfði
bundinn undir höku. Með mynd
þessari fylgdi grein og frásögn
um það að 15 dögum áður en
ég fæddist í þennan heim hefði
maður þessi, Lárus J. Rist að
nafni, synt yfir Eyjafjörð, frá
Glerárósum að Leiru. Aðdrag
andinn að þessu afreki fannst
mér ekki síður ævintýralegur
og stórbrotinn. Við strákarnir
lásrnn í greininni, að rétt uppúr
áramótum sama ár hefði Lár-
us þessi í römrnustu alvöru og
í viðurvist fjölda manna gert
heitstrengingu, sem líkari hefði
verið köppum fornsagnanna
sem við dáðum og þráðum að
líkjast. Og við lásum: „Stíg ég
á stokk og strengi þess heit að
synda yfir Eyjafjörð innan
jafnlengdar, alklæddur og í sjó-
fötum, á leiðinni frá Glerárós-
um inn að Leiru, en áskil mér
rétt til þess að kasta klæðum á
sunainu, ella minni maður
heita.“ Og við strákarnir tókum
þennan Lárus þegar í tölu
kappanna. Hann hafði staðið
við heit sitt, og unnið afrek, að
vísu ekki í því að fella marga
menn eins og kappar fortíðar-
innar gerðu. Tilgangurinn var
í orðsins fyllstu merkingu þver-
öfugur.
Hann segir sjálfur frá til-
ganginum í bók sinni „Synda
eða sölckva", að með sundi
þessu vildi hann afsanna þá út-
breiddu kenningu „að sund-
kunnátta væri sjómönnum
einskis virði, og þeir sem í sjó-
inn féllu drukknuðu jafnt hvort
þeir væru syndir eða ekki. —
Eg vildi hrekja þessa kórvillu
með áþreifanlegri sönnun og
sýna að hver sá fullhraustur
Glæsileg gjöf
Sendið vinum og viðskiptasamböndum erlendis fallegu
myndabókina ISLAND VORRA DAGA
Fæst í öllum bókavesizIuÁmm
Afgreiðsla:
Davíð S. jónsson & Co
Þingholtsstræti 18 — Sími 5932
Ferðbúinn til sunds yfir
Eyjafjörð 6. ágúst 1907.
maður sem dytti í sjóinn inni
á Eyjafiröi ætti að geta bjarg-
að sér til lands öðru hvoru
megin", eins og hann segir
orðrétt í bókinni. Og Lárus
hafði á réttu að standa, og fyrir
þessari skoðun sinni hefur
hann ‘ barizt alla ævi. Nú er
það viðurkennt af öllum að
sundkunnátta er nauðsyn og
hefur bjargað hundruðum Is-
lendinga frá drukknun. Þetta
atvik, er Lárus Rist synti 6.
ggúst 1907 yfir Eyjafjörð hef-
ur vissulega haft sín miklu á-
hrif til örfunar sundiðkana, og
aukið trúna á þýðingu sunds-
ins fyrir þjóð okkar sem hefur
orðið og verður að sækja björg
á brimótt haf og ferðast ura
vötnótt land.
Áhugi Lárusar fyrir sund-
íþróttinni og raunar íþróttum
yfirleitt hefur ætíð verið einlæg
ur og ákafur, og með orðum og'
athöfnum hefur hann verið ó-
trauður, að berjast fyrir áhuga
málum sínum.
„Orusturmar í Laugaskarði",
þ.e.a.s. í Hveragerði mun lengi
minnzt og þess sigurs sem Lár-
us vami þar. Þótt Lárus sé í
dag 75 ára hefur hann ekki
lagt árar í bát, Hann er ptadd-
ur á Akureyri, sem eitt sinn
var athafnasvæði hans, og ætl-
ar í dag að sýnda 200 m, og
þeir sem þekkja frískleik af-
mælisbarnsins vita að honum
verður ekki mikið fyrir því, og
það þó hann verði ao synda með
kerlingu Elli á baki!
Iþróttamenn og þá sérstak-
lega sundmenn um land allt
þakka Lárusi J. Rist ötult
starf og érna honum allra
heilla á þessu merkisafmæli.
Maroianð meistari
Heimsmeistarinn í hnefaleik —<
Rocky Marciano, varði meistara-
titilinn í fyrradag; sigraði
Ezzard Charles á stigum í 15
lotum.