Þjóðviljinn - 10.07.1954, Blaðsíða 6
€) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 10. júlí 1954 ------
---—------------------------— ----———-----------$
lllðOVItllNN
■Itg'efandl: Samelnlngp.rflokkur alþýðu — SósíaHstaflokkurtun.
aitstjórar: Magnús Kjartansson (ób.), Sigurður Guðmundsaoa.
Jkéttastjórl: Jón Bjarnason.
Slaðamenn: Ásmundur Sigurjónssof., Sjarnl Benediktsson, Gu3-
mundur Vigfússon, Magnús Torfi Olafsson.
JiUglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Rltstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentomiðja: SkólavörðuatSg
.9. — Sími 7600 (3 línur).
Áakriftarverð kr. 20 á ménuðl í Beykjavík og nógrenni; kr. 17
vnnars staðar á landínu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
3rentsmiðja Þjóðviljans h.f.
é-----------*--------------■---------------------'*>
Njésnarar crlends vaSds
Ungur háskólastúdent hefur undanfarna daga lýst hér
í blaðinu spillingarhverfi því sem byggt hefur verið upp
kringum atvinnuna á Keflavíkurflugvelli, þar sem fram-
kvæmdar eru blygðunarlausar njósnir og atvinnuofsókn-
jr af bandaríska hernámsliðiiiu ög íslenzkum umboðs-
mönnum þess. Til þess að komast í vinnu hjá hernum
þurfa menn fyrst að fá aðstoð einhvers áhrifamann-s i
hernámsklíkunni:
„Eftir skoðunina sendir hann viðkomandi með pappíra
á sérstakar skrifstofur hernámsflokkanna eftir atvikum.
Fer þar fram ný athugun. Er þar um þrjár leiðir að rœða:
Framsóknarmenn eru sendir til Þráins Valdimarssonar,
Edduhúsinu; íhaldsmenn sendir til Gunnars Helgasonar,
Holstein, og hœgrikratar til Vilhelms Ingimundarsonar,
Alþýðuhúsinu. — Það hafa sagt mér greinargóðir menn,
að þegar komið er inn á þessar skrifstofur sé flett upp
í • njósnaskrám, og ef maðurinn sleppur í gegnum þetta,
þá er hcegt að tala við ráðningarstjórana á Vellinum“.
Þar suðurfrá tekur síðan við lokaathugunin sem verið
hefur í höndum Framsóknarmannsins Sigmundar Sírnon-
arsonar annarsvegar og ínaldsmannsins Konráðs Axels-
aonar hinsvegar, og hefur sá síðarnefndi verið sérstakur
trúnaðarmaður hins illræmda Hamiltonfélags og einn af
tengiliðunum rnilli njósnadeildar hersins og Sjálfstæðis-
flokksins.
Þannig gegna flokksskrifstofurnar sjálfar beinum verk-
eínum fyrir erlent vald, stunda njósnir í þágu Banda-
ríkjarnanna og þiggja í staðinn ríflega greiðslu sem renn-
ur bæði til einstaklinganna og í flokkssjóði. Er ekki sízt
iróðlegt fyrir Alþýðuflokksmenn að íhuga aðstöðu Vil-
helms Ingimundarsonar, en hann er einn helzti vika-
piltur Stefáns Jóhanns og berst fyrir því af alefli að hann
fái aftur yfirráð yfir flokknum — og hann þarf ekki langt
að sækja herkostnaðinn í þeirri baráttu.
Það ætti að vera óþarfi að taka það fram að þessi starf-
semi er algert bi’ot á stjórnarskrá íslands, og ef til væri
í landinu eitthvert óháð réttarkerfi yrðu agentar hins er-
lenda valds dregnir fyrir lög og dóm og dæmdir. Að vísu
heíur núverandi utanríkisráðherra lýst yfir því á Alþingi
að hann myndi ekki þola neina skoðanakúgun á Kefla-
víkurflugvelli — en hann hefur ekkert gert til að upp-
ræta njósnakerfið; þvert á móti er nú unniö að því að
gerá aðstöðu Framsóknar sem bezta innan kerfisins. Það
er sama sagan og um reglurnar frægu, sem ráðherrann
hefur ekki enn þoraö að birta af ótta við að styggja
Bandaríkjamenn þá sem eiga að fylgja þeim!
Þetta birtist einnig Ijóslega í deilum þeim sem undan-
farið hafa orðið milli stjórnarflokkanna, en þar hefur
margt óíagurt komið fram í dagsljósið um þjónustu-
sernina við hið erlenda vald. En deilurnar hafa ekki snú-
izt um þau verk, heldur hafa stjórnarflokkarnir ásakað
hvorn annan fyrir slælega framgöngu í makkartíisma og
xeynt að halda því aö Bandaríkjamönnum að hinum
væri ekki treystandi. Bæði Framsókn og íhaldið vilja
hafa forustu í njósnunum og þiggja fyrir verðuga um-
bun.
Bandaríkjamenn hafa víða tryggt sér aðstöðu í lönd-
•um Vesturevrópu á undanförnum árum. Þó mun óhætt að
jullyrða að hvergi hefur þeim orðið einsvmikið ágengt og
hér, hvergi annarsstaðar hafa flokksskrifstofur borgara-
llokkanna lotið svo lágt að gerast opinberar njósnar-
•stöðvar erlends valds gegn dollaragreiðslu; Bandaríkja-
menn hafa orðið að leigja sérstaka agenta til þess. Það
er vitað mál að kjósendur borgaraflokkanna íslenzku
hafa fulla andstyggð á þessu athæfi — en er ekki ráð
að þeir taki í taumana og tryggi þó ekki sé nema ein-
hvem snefil af velsæmi. Hærri kröfur verða víst ekki gerð-
ar í bili. ;
Dómar bíaSa á NorSurlöndum um
ínnrásina I Guafemaía
Bandaríkjastjórn heíur sigrað
í Guatemala. Innrásarfor-
inginn Castilo Armas er orðinn
forseti herforingjaklíku, sem
kallar sig. stjórn landsins. .
Fyrstu lotu vann hann með
árásum bandarískra orustuflug-
véla á varnarlausar borgir og
bæi Guatemala. Árum saman
hafði stjórn landsins leitazt við
að fá keyptar herflugvélar og
loftvarnabyssur en Bandaríkja-
stjórn tókst að koma í veg fj'rir
það. í annarri lotu sáu þeir
Peurifoy og McDemott, sendi-
herrar Bandaríkjanna í Guate-
mana og E1 Salvador, um að
Armas fékk tögl og hagldir
í herforingjaklíkunni. Eisenhov/-
er forseti og Dulles utanríkis-
ráðherrá hans hafa báðir hælzt
óspart um sigurinn yfir þjóð-
kjörinni stjórn Guatemala.
Augu þeirra hafa ekki enn
opnazt fyrir þvi, að margir sigr-
ar af þessu tagi munu ríða á-
hrifaaðstöðu Bandarikjanna í
heiminum að fullu. Sigurinn í
Guatemala er sannarlegur
phyrrusarsigur.
Síðan Eisenhower og milljón-
ararnir, sem hann valdi í
stjórn sína, tóku við völdum í
Washington, hefur áliti og virð-
ingu Bandaríkjanna hrakað
jafnt og þétt. Einkum hefur
þessi þróun verið hröð í Vest-
ur-Evrópu. Rikisstjórnirnar þar\,
verða sífellt óleiðitamari við
stjórnarherrana í Washington
en þó skiptir hitt enn meira
máli að traust almennings í
löndum þessum á stefnu og
starfsháttum Bandaríkjánna í
heimsmálurium er þorrið.
Þessi staðreyrid hefur aldrei
komið greinilegar í ljós en í
blaðaummælum um árásina á
Guatemala. Blöð borgaraflokk-
anna og hægrisósíaldemókrata,
sem hingað til hafa varið út-
þenslustefnu Bandarikjanna
kappsamlega, hafa snúið við
blaðinu og benda nú á, hví-
líkur háski sjálfstæði smáþjóð-
anna og friðnum í heiminum
er búinn af yfirgangi banda- i
rískra valdamanna. Áróðurinn;
frá Washington finnur engan
hljómgrunn lengur. ^
A f borgarablöðum Danmerkur
-h*- gekk til skamms tíma ekk-
ert lengra í Bandaríkjaáróðri
en Information. Þeim mun at-
hyglisverðari er eftirfarandi
kafli úr ritstjómargrein blaðs-
ins um Guatemala: „Eftir að
Bandaríkjastjórn hafði svikið
SÞ svo gersamlega, að hún
leyfði ekki einu sinni að Örygg-
isráðið hlýddi á kæru Guate-
mala, varð Arbenz forseti að
viðurkenna að orustan væri
Ek
töpuð, og eins og svo oft hefur
gerzt við svipaðar aðstæður hef-
ur hann tekið sína beizku á-
kvörðun „til að forða landi og
þjóð frá enn rneiri ógæfu“. Eft-
ir það sem á undan er gengið
er ekki hægt að láta hjá líða
að geta sér þess til, hvaða frek-
ari áhrif bandarískir dollarar
gætu hafa haft á forystumenn
í Guatemala.
Tíægt er að slá því föstu, að
þetta stríð vann United
Fruit Company of America. Ef
þessi verða málalokin í Guate-
mala . . . er einnig hægt að slá
föstum nokkrum geysi afdrifa-
ríkum ósigrum. SÞ hafa beðið
r ——--------s
Erleud
tíðiudi
\ ■ ■ - y
ósigur. Sáttmáli SÞ mælir ský-
laust svo fyrir að lögleg ríkis-
sljórn eigi rétt á því að Örygg-
isráðið eða Allsherjarþingið
fjalli um mál hennar og rétt
til að neita að láta skjóta rnáli
sínu til nokkurrar annarrar
stofnunar. Sú vernd, sem SÞ
áttu að tryggja smáríkjunum,
er að engu orðin og þessi ósigur
samtakanna er þeim mun al-
r.~* r—
Guillermo Toriello, fyrrverandi
utanríkisráðherra Guatemala,
sem kærði innrásina í landið
fyrir SÞ. Ilann hefur nú ásamt
um 500 öðrum stuðningsmönn-
um þjóðkjörinnar stjórnar
landsins leitað hælis í sendiráði
Mexikó í Guatcmalaborg
varlegri sem það eru Banda-
ríkin sem í þetta skipti hafa
þverbrotið lög SÞ. Það er á-
nægjulegt að danska ríkisstjórn-
in hefur komið rétt fram í Ör-
yggisráðinu og sú afstaða virð-
ist studd af öllum flokkum og
allri þjóðinni. En það hefur í
för með sér að öll danska þjóð-
in hefur misst traust á Banda-
ríkjunum, forystulandi A-
bandalagsins. Vér vitum ekki,
hve mörg stig hlutabréfin í
United Fruit Company hækka í
dag á kauphöllinni í New York.
En vér vitum með fullri vissu
að gengi útibús þessa banana-
fyrirtækis, ríkisstjómar Eisen-
howers, er lægra en nokkru
sinni fyrr i almenningsáliti
allra þjóða, þar sem virðingin
fyrir stjórnarfarslegum sjálfs-
ákvörðunarrétti þjóðanna og
helgi alþjóðlegra réttarfars-
reglna er einhvers metin“. (In-
formation 28. júní).
essi hvössu umrnæli Infoíma-
tion eru síður en svo eins
dæmi í dönskum blöðum. Ýrnis
af málgögnrim sósialdemokrala,
stjórnarflokks Danmerkur, hafa
tekið í sama streng. Til dæmis
segir í forystugrein í Aften-
Posten, blaði flokksins í Silke-
borg: „Hlutabréfin í bandaríska
félaginu United Fruit, sem á
miklar eignir í Guatemaia og
er grunað um að standa ásamt
Bandaríkjastjórn að innrásinni
í þetta smáríki í Mið-Ameríku,
hækkuðu í verði þegar valda-
ræningjum úr hernum tókst að
steypa hinum framfarasinnaða
Arbenz forseta frá völdum er
landið var í sem mestri hættu.
Wall Street hefur fest 93 mill-
jónir doilara í Guatemala og
það dró andann léttara, því
að nú eru horfur á að þær gefi
enn meiri arð en áður. Kluta-
bréfin hækkuðu i verði á kaup-
höllinni í New York, en jafn-
framt hafa hlutabréf Banda-
ríkjanna fallið meðal annarra
þjóða, sem býður við að sjá
gömlu doliaraheimsvaldastefn-
una setta i öndvegi á ný í allri
nekt sinni og hundingjahætti.’
Smáriki varð fyrir utanaðkom-
andi árás, vegna þess að það
vildi ekki beygja sig fyrir
bandariskum fésýsluhagsmun-
um og fulltrúi Bandaríkjanna í
Öryggisróðinu beitti skemmdar-
starfsemi til að hindra þá íhlut-
un af hálfu SÞ, sem lögleg
stjórn Guatemala átti kröfu á.
Framkoma Bandarikjanna er til
skarnmar fyrir ríki, sem þykist
haida fána frelsisins hátt á lofti.
Það er ekki furða þótt blaðales-
endum um heim allan klígi við,
þegar þeir lesa tilkynninguna
um fúnd Eisenhowers og Churc-
hilis, þar sem lýst eý yfir með
svo fögrum orðum þeim ásetn-
ingi að efla sjálfstæði og full-
veldi allra þjóða. Heyr á en-
demi, þcim er víst betra að
móðga ekki United Fruit og önn-
ur bandarísk einokunarfélög“.
A nnað af blöðum danskra
■t* sósialdemokrata, Demokrat-
cn í Árhus, kemst svo að orði
í forystugrein: „Hinum voldugu
Bandaríkjum hefur ekki einung-
is tekizt að ryðja úr vegi ríkis-
stjórn smáþjóðar, sem þeim
geðjaðist ekki að, heldur býst
bandarískt auðfélag einnig við
að fá ríkulega vexti af því fé,
sem það lagði í „uppreisnina“.
Sannarlega hefur „frægur sig-
ur“ unnizt, en reyndar af því
tagi, að Bandaríkin ættu ekki
að óska sér of margra slíkra,
ef þeim er þá nokkuð umhugað
um mannorð sitt í Evrópu“.
TT'olkpartiet heitir stærsti
* borgaraflokkur Svíþjóðar
og helzta málgagn hans er blað-
ið Stockholms-Tidningen. í for-
ystugrein undir fyrirsögninni
Framhald á 11. síðu.