Þjóðviljinn - 21.07.1954, Blaðsíða 2
2) — MÓÐVILJINN -- Miðvikudagur 21. júlí 1954
Auga fyrir auga og
tönn fyrir tönn
... Og var Þorsteinn inni —
bann átti þar fyigjukonu — en
Jón stóð úti undir vegg og talaði
við Steinunni húsfreyju.
I»á ríða menn fyrir húsin, Víð-
fcunnur Línuson og Vigfús. Hann
faafði þá öxina Steinsnaut, en
Víðfcunnur hafði sviðu og silfri
rekinn Ieggurinn og allra vopna
bitrast, járni vafið skaftið. Þeir
hljópu þegar að Jóni og sögðu,
að þá, skyldu þeir launa honum
atferðir og eltingar, og lagði Víð-
fcunnur til hans með sviðunni.
En Steinunn rann á Vigfús og
hélt honum. Jón hafði öxi víða
og lágt skaft í. Hann laust af
sér lagið og greip sviðuna og Ias
áð höndum honum. Þá vildi Víð-
fcunnur bregða saxi. En Jón tók
hann. Og þá k'enndi aflsmunar,
og hörfaði Víðkunnur undan. Þá
kom Þorsteinn út, og varð ekki
tilræði hans. Og er Jón sá það,
hratt hann Víðkunni frá sér svo
hart, að honum lá við fall. Síðan
hjó hann til hans, og kom um
þvert ennið, og var það ærið
banasár.
Þessi áverki var mjög lofaður af
flestum mönnum.
(Sturlu saga).
_ i 1 dag er miðvikudagurinn 21.
^ júlí. I’raxedes. — 202. dagur
ársins. — Aukanætur. — Sólarupp-
rás kl. 3:57. Sólarlag kl. 21:08. —
Tungl í hásuðri kl. 5:42. — Árdeg-
Isháflæði kl. 9:55. Síðdegisháfkeði
klukkan 22:20.
Frá Breiðfirðingafélaginu.
Breiðfirðingafé'agið efnir til hóp-
ferðar næstkomandi laugardag 24.
þm. vestur í Dali á hóraðsmótið
að Laugum. < Komið til baka að-
faranótt mánudags. Þátttaka til-
kyimist sem fyrst í síma 1367 eða
80883.
LYFJABOÐIR
4PÓTEK AUST- Kvöldvarzla tll
UBBÆJAB kl. 8 alla daga
ir nema laugar-
HOI.TS AI’ÓTEK iaga UI kL 4.
Fastir liðir eins og
veniu’ega. 19:30
Tónleikar: Óperu-
lög. ”20:20 Útvarps-
sagan: María
Grubbe, eftir J. P.
Jakobsen. 20:50 Léttir tónar. Jón-
as Jónasson sér um þáttinn. 21:35
Erindi: Gildi hugsjóna (eftir Stef-
án Hannesson bónda í Lit a-
Hvammi. Andrés Björnsson f'yt-
ur). 22:10 Á ferð og fugi, frönsk
skemmtisaga. 22:25 Kammertón-
leikar: Strengjakvintett í g-moll
(K516) eftir Mozart (Lénerkvart-
ettinn og D’Oliviere leika). 23:00
Dagskrárlok.
Næturvarzla
er í Lyfjabúðinni
7911.
Iðunnl, sími
Söfnin eru opiní
Listasafn rfkisins
kl. 13-16 á sunnudögum, kl.
13-15 á þriðjudögum. fimmtu-
dögum og Iaugardögum.
Ltstasafn Elnars Jónssonar
kl. 13:30-15:30 daglega. Gengið
inn frá Skólavörðutorgi.
Þjóðmlnjasafnlð
kl. 13-16 á sunnudögum, kl.
13- 15 á þriðjudögum, fimmtu-
dögum og laugardögum.
Landsbókasafnlð
kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla
virka daga, nema laugardaga
kl. 10-12 og 13-19.
Náttúrugripasafnið
kl. 13:30-15 á sunnudögum, kL
14- 15 á þriðjudögum og fimmtu-
dögum.
Síðastiiðinn iaug-
ardag voru gefin
saman í hjóna-
band ungfrú Björg
Valgeirsd. (hafnar-
stjóra Björnsson-
ar) og Eggert Kristjánsson, lög-
fræðingur (Sigurðssonar frá Dag-
verðareyri).
Kvöld og nseturvörður
í læknavarðstofunni Austurbæjar-
skólanum, sími 5030: kl. 18-0.30.
Gisli Ólafsson; kl. 24-8 Óskar Þ.
Þórðarson.
Pan American
Flugvéi frá New York er væntan-
leg í fyrramálið kl. 9:30 til Kefla-
víkur. Fiugvélin he’dur áfram eft-
ir skamma viðdvöl áleiðis til
Helsingfors um Ósló og Stokk-
hólm.
i '■.'■$*■■
Breiðfirðlngafélagið
efnir tii hópferðar næstkomandi
laugardag vestur í Dali á héraðs-
mót að Laugum. Komið til baka
á mánudagsnótt Þátttaka tilkynn-
ist sem fyrst í síma 1367 eða
80883.
Gengisskráning
Sölugengi:
1 ster’ingspund .... 45,70 kr
1 Bandaríkjadollar .. 16,32 —
1 Kanadadollar ..... 16,70 —
100 danskar krónur .... 236,30 —
100 norskar krónur .... 228,50 —
100 sænskar krónur .... 315,50 —
100 finnsk mörk ....... 7,09 —
1000 franskir frankar .. 46,63 —
100 belgískir frankar .. 32,67 —
100 svissneskir frankar . 374,50 —
100 gyliini ......... 430,35 —
100 tékkneskar krónur . 226,67 —
100 vestur-þýzk mörk .. 390,65 —
1000 lírur ............ 26,12 —
Kaupgengi:
1 sterlingspund .... 45,55 kr
1 Bandaríkjadoilar .. 16,26 —
1 Kanadadollar ...... 16,26 —
100 danskar krónur ...
100 norskar krónur ...
100 sænskar krónur ...
100 finnsk mörk .......
1000 franskir frankar .
100 belgískir frankar .
100 svissneskir frankar
100 gyllini ........... 428,95
100 tékkneskar krónur . 225,72 —
1000 lírur .............. 26,04 —
100 vestur-þýzk mörk .. 389,35 —
235,50 —
227,75 —
314,45 —
46,48 —
32,56 —
, 373,30 —
ÆFit-félagar. Skrifstofan er opln
daglega klukkanfr-7 nema laug-
ardaga klukkan 3-5. Hafið sam-
band við skrifstofuna og greiðlð
félagsgjöld ykkar.
SIGFÚSABSJÓÐUB
Þeir sem greiða fram’ög sín
til sjóðsins smám saman eru
minntir á að skrifstofan á
Þórsgötu 1 er opin kl. 10-12 og
2-7 alla virka daga nema laug-
ardaga kl. 10-12.
Minningarspjöld Krabbameins-
félags lslands
fást í öllum lyfjabúðum í Reykja-
vík og Hafnarfirði, Bióðbankan-
um við Barónsstíg og Remedíu.
Ennfremur í öllum póstafgreiðsl-
um á landinu.
Nýtt töluhlað
Prentarans flytúr
fremst grein er
heitir: Merkar
breytingar átfcjgxá
samningi. G. H.
skrifar: MUdlvægum áfanga náð.
Af mælisgreinar eru um Björn
Benediktsson og Óskar Söebeck.
Spurt er: Hvað á prentarafélagið
að gera við Miðdai i Laugardal ?
Þá er skýrt frá alþjóðlegri verð-
launasamkeppnl meðal prentara
— og ýmislégt fleira er í ritinu.
Bókmenntagetraun
I gær voru þrjár vísur í Draum-
kvæðirm norska í þýðingu Krist-
jáns E.djárns þjóðminjavarðar,
birt í bókinni Á góðu dægri er
tileinkuð var 65 ára afmæli Sig-
urðar Nordals 1951. Hér eru enn
fyrnri vísur:
Stúkku átta,
en einn af þeim
hver harðsleginn
heill af þolli;
fram gengu þeir,
en forn jötunn
sjónum leiddi
sinn andskota.
Sagði el honum
hugur vel þá,
er hann sá gýgjar gTætl
á gólf kominn;
þar voru þjórar
þrir of teknir,
bað senn jötunn
Bjóða ganga.
Ferðafélag lslands
fer tvær sumarleyfisferðir um
næstu helgi. önnur ferðin er 12
daga ferð um Norðurland og Aust-
urland, og verður komið við á
flestum merkustu stöðum á þeirri
leið. Hin ferðin er 8 daga ferð
um Lónssvelt, Öræfi og Horna-
fjörð. — Upplýsingar eru í skrif-
stofu félagsins, sími 3647.
Krossgáta- nr. 419
Lárétt: 1 lindýr 7 skst 8 æpi 9
þrir . eins 11 lærði 12 atviksorð 14
dautt tímarit 16 fyrir ofan 17
keyrði 18 sérhljóðar 20 sparisjóð-
urinn.
Lóðrébt: 1 fiskur 2 dans 3 ein-
kennismerki 4 . skst 5 tyfta 6 deila
10 hrós 13 fór með vindi 15 áhalda
16 sigli 17 skst 19 greinir.
Lausn á nr. -418
Lárétt: 1 kanna 4 IR 5 rá 7 Ari
9 inn 10 slæ 11 ans 13 nú 15
ei 16 terta.
Lóðrétt: 1 KtR 2 nár 3 ar 4 ís-
inn • 6 ágæti 7 ana 8 iss 12 nær
14 út 15 EA.
Eimskip
Brúarfoss kom til Rvíkur í fyrra-
dag frá Rotterdam. Dettifoss fer
frá Hamborg 27. þm til Antverp-
en, Rotterdam, Hull og Rvíkur.
Fjallfoss fór frá Akureyri í fyrra-
dag til 'Rvíkur. Goðafoss kom til
Rvíkur 17. þm frá N.Y. Gullfoss
.cr frá Leith í fyrradag til Rvík-
ur. Lngarfoss fór frá Kaupmanna-
höfn í ;;-rradag til Flekkefjord og
norðurlar.dsíns. Reykjafoss fór frá
Rvík í fyrradag til Haugasunds.
Belfoss kom ,ti. Grimsby í fyrra-
dag, fer þaðan til Prtterdam og
Antverpen. Tröllafoss ícr frá N.Y.
í dag til Rvíkur. Tungufoss kom
til Vopnafjarðar i gærmorgun, fer
þaðan til (Raufarhafnar og norð-
urlandsins.
Skipadeild SIS.
Hvassafell fór frá Þorlákshöfn á-
leiðis til Álaborgar 15. þrn. Arnar-
fel fór frá Rostock 19. þm á-
leiðis til Reyðarfjarðar. Jökulfe l
fór frá Rvík í gær vestur um
land. Disarfell er í Dublin. Blá-
fell fór 12. júlí frá Riga áleiðis til
Húsavíkur. Litlafell fór vestur og
norður í nótt. Sine Boye lestar
salt í Torrevieja. Kroonborg er á
Aðalvík. Wilhelm Nubel lestar
sement í Á’aborg. Jan lestar sem-
ent í Rostock um 26. júlí.
Skipaútgerð ríkisins.
Hekla er væntanleg til Kaupm-
hafnar i kvöld. Esja var á Isa-
firði í gærkvöld á suðurleið. Herðu
breið kom til Rvíkur í gærkvöld
frá Austfjörðum. Skja'dbreið fer
frá Rvík á morgun til Breiðafj.
og Vestfjarða. Þyrill fór frá (Rvik
síðdegis í gær vestur og norður.
Skaftfellingur fór frá Rvík í gær-
kvöld til Vestmannaeyja.
Gúllfaxi, millilanda
flugvél F'.ugfélags
Is ands, fer til
Óslóar og Kaup-
mannahafnar kl.
8 árdegis í dag. Flugvé’in kemur
aftur til baka undir miðnætti í
kvöld.
Edda, millilandaf’ugvél Loftleiða,
er væntanleg til Rvíkur kl. 11 ár-
degis í dag frá N.Y. Flugvélin fer
héðan kl. 13 áleiðis til Stafangurs,
Óslóar, Kaupmannahafnar og
Hamborgar.
KilWijlTl
Eftir skáldsöfu Charles de Costers ik
389. dagur
Hundarnir eru hér mjög nálægt, sagði
Ugiuspegill. Hvílíkur ógnarhávaði. Hjört-
urinn! Varaðu þig, vinur minn Lambi.
Þetta andstyggilega grimma dýr — ;þáð
hefur varpað vini minum til jarðar, milli
ofna og potta, panna og annarra auvirði-
legra eldhúsáhalda.
Nú flýja kor.ur og böm, tryllt af hræðslu.
Hvað, það bíæðir úr þér, vinur minn og
hjálparhella. — Já, þú getur hlegið, hund-
spottið þitt, sagði Lambi. Já, það blæðir
úr mér, hann stakk hornunum beint i
rassinn -á. mér. Sjáðu hvemig buxumar
mínar eru — og rasskinnin.
Komdu aftur að matnum þínum, sagði
gamli maðurinn. Hjörturinn er dauður. —
Það verður góð má’tíð, sagði Lambi, Þið
bjóðið mér vonandi til. velzlunnar. En segið
mér nú í hreinskilni, eruð þið ekki hrædd-
ir við eftirlitsmenn ekógarins?
Við erum alltof margir til þess, svaraði
gamli maðurinn. Þeir eru þvert á móti
hræddir við okkur og láta okkur þess-
vegna alveg í friði. Sama er að segja um
dómarana óg lögreglumennina. Fólkið í
bæjunum elskar okkur, þvi við gerum
aldrei neitt á hluta neins. u
MiÖvikudagur 21. júlí 1954 — ÞJÓÐYILJINN — (3
Engin veiði né sö
SE Siglnfirði hafa bræti 39,9 þús. mái —'
Saltaðar hafa verið samtals 6985 tnnnur
Siglufirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Engin veiði hefur verið síðan í fyrradag, en veður fór
batnandi í gærkvöld.
Saltaðar hafa verið hér á Siglufirði samtals 6 þús. 985
tunnur og síldarverksmiðjur ríkisins hafa tekið á móti
39 þús. 974 málum til bræðslu.
Samnorræna snndkeppnin:
Eldri kynsiéðin lætur sitt eftir Eiggja
í samnorrænn sundkeppninni
Allir sundfærir menn nema 2 í Kirkju*
bólshreppi á Ströndum háfa synt 200 m
Þaö er eldri kynslóðin sem fram að þessu hefur látið
sitt eftir liggja í samnorrænu sundkeppninni og fer nú
að veröa tími til kominn fyrir þá eldri að láta ekki sitt
eftir liggja.
Til Rauðku hafa borizt 4 þús.
mál og til verksmiðjunnar á
Húsavík 1566 mál.
Ægir kom hingað í fyrradag og
er farinn aftur í leiðangur.
Söltunin skiptist á stöðvarnar
sem hér segir:
Síldin h.f. 164 tunnur, Sam-
vinnufélag ísfirðinga 471, Njörð-
son, forstjóri og framkvæmda-
stjóri, Magnús Jónsson, lögfræð-
ingur, gerðu grein fyrir störfum
stjórnarinnar á síðasta sarfsári.
Höfðu mörg mál komið til kasta
félagsins .03 voru helzt þeirra
húsaleigufrumv’arpið 02 bruna-
tryggingar húsa í Reykjavík, þá
hafði einnig verið lögð á það
áherzla við bæjarstjórn að bæta
úr vatnsskorti á ýmsum stöðum
í bænum. Félagsblaðið hafði
komið út með ýmsum leiðbein-
ingum til félagsmanna og skrif-
stofa félagsins og framkvæmda-
stjóri höfðu haft með höndum
ur h.f. (KEA) 91, Nöf 728, Sölt-
unarstöð Þórodds Guðm. 112,
Sunna h.f. 394, Reykjanes h.f. 277,
Dröfn h.f. 407, ísafold s.f. 225,
Friðrik Guðjónsson 95, íslenzkur
fiskur h.f. 254, Hafliði h.f. 1119,
Ólafur Ragnars h.f. 256, Sigfús
Baldvinsson 662, Óli Hinriks 33.7,
Gunnar Halldórsson 214, Hrímnir
h.f. 155, Pólstjarnan 748.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga þeir Jón Sigtryggsson og
Guðjón H. Sæmundsson, húsa-
smíðameistari. Baðst Guðjón
undan endurkosningu. Voru
kosnir í stjórnina þeir Jón G.
Jónsson, umsjónarmaður, og Jón
Guðmundsson, skrifstofumaður.
ðþnrrkar úti í
Eyjafirði
Dalvík. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans.
Heyskapur hefur gengið stirt
um nokkum tíma vegna ó-
þurrka. Spretta er í meðallagi.
Frekar lítil síld hefur borizt
hingað enn til söltunar og munu
ekki hafa verið saltaðar hér
enn nema um 900 tunnur.
Engir bátar eru gerðir út
héðan á þorskveiðar sem stend-
ur, en vinna er þó mikil, er m.a.
unnið hér að húsbyggingum.
Óþurrkar —
aflaleysi
V estmannaeyj um.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Undanfarið hefur verið mikil
óþurrkatíð hér í Eyjum og er
því heyskapur enn ekki nema
hálfnaður.
í sumar hafa verið stundaðar
handfæraveiðar héðan á um 30
trillubátum og fengu þær ágætis-
afla fram undir júnilok, en afli
fór þá að tregast og hefur verið
.lítill undanfarið.
Hveragerði er nokkuð gott
dæmi upp á þetta. Þar eru 570
íbúar og af þeim eru 370 eldri
en 20 ára. Af þeim sem eru yf-
ir tvítugt hafa aðeins 34 synt
200 metrana í sumar en af
þeim yngri hafa þegar 109 lok-
ið sundinu.
Samt miðar hægt í áttina og
munu kaupstaðjrnir yfirleitt
vera komnir upp í 20%. Marg-
víslegar annir hafa valdið hve
þátttakan í 200 metrunum er
hægfara, en nú ættu menn að
fara að athuga að ljúka sund-
inu sem f>Trst.
íbúar í Klrkjubólshreþpi á
Háskólafyrir-
lestur á föstudag
Dr. Henry Goddard Leacli
flytur fyrirlestur í hátíðasal
háskólans næstk. föstudag 23.
júlí kl. 6.15. Fyrirlesturinn
nefnist „The Ameriean-Scand-
inavian Foundation: An Ex-
periment in International Edu-
eation.”
Öllum heimill aðgangur.
Ströndum gáfu nýlega gott for-
dæmi í því efni. Allir syndir
inenn í hreppnum, að undan-
skiidum aðeins tv’eim, fórn í
hópferð um síðustu helgi að
Ktúku í Bjarnarfirði og syntu
þar. Heima hjá sér hafa þeir
enga laug, en i Bjarnarfirði,
skamrnt fyrir ofan Kaidrananes,
er laug sem kennd er við Guð-
mund biskup góða.
Reykvíkingar aftarlega.
Þótt kauptún og ýmsir kaup-
staðir séu komin vel á veg með
þátttöku erum við Reykvíking-
ar heldur aftarlega, eða með
14,5%, aðeins skárri en Akur-
eyringar með 11% — en Hafn-
firðingar eru komnir í 18%.
Akurevrarf erðir
komnar í samt lag
Áætlunarbílarnir komast
nú á svipuðum tíma og
áður
Framhald á 11. síðu.
Islandsmeistarar KR i þríðja flokki
fara í keppnisför til Danmerkur
Aðalfundur Fasteignaeigendafél.
Aðalfundur Fasteignaeigendafélags Reykjavíkur var
haldinn í Vonarstræti 4 s.l. mánudagskvöld 21. þ.m.
Formaður félagsins, Jón Lofts-
margvíslega fyrirgreiðslu fyrir
félagsmenn.
Jón Loftsson baðst eindregið
undan endurkosningu og var
Jón Sigtryggsson, dómvörður,
kosinn formaður í hans stað.
í næstu viku fara íslandsmeistarar KR í III. flokki til
Danmerkur, þar sem þeir munu keppa í knattspyrnu við
danska, norska, sænska og finnska jafnaldra sína.
KR-ingar fara utan í boði
danska knattspyrnufélagsins
Danski drengja-
kórinn syngur
í kvöld
Vegna fjölda áskorana endur-
tekur Drengjakór KFUM í Kaup-
mannahöfn söngskemmtun sína
í Austurbæjarbíói í kvöld kl.
18.45. Kórinn kom hingað til
lands með síðustu ferð Gullfoss
frá Höfn og hélt tvær söng-
skemmtanir hér í Reykjavík í
fyrri viku við mikla aðsókn og
ágætar viðtökur. Drengirnir hafa
undanfama daga dvalizt í sum-
arbúðum KFUM í Vatnaskógi en
heimleiðis halda þeir á laugar-
claginn.
4 skip til Krossa-
Bagsved Forening í tUefni af
10 ára afmæli þess. Munu þeir
að sjálfsögðu keppa við lið BF
auk liða frá Noregi,
Svíþjóð og Finn-
landi, sem einnig
eru gestir danska
félagsins. Drengirn-
ir fara utan með
Drottningunni 30.
þ. m. og koma aft-
ur heim með sama
skipi seint í næsta
mánuði. — Myndin
er af íslandsmeist-
urum KR í þriðja
flokki. — 1 efri röð
frá vinstri: — Tóm-
as Árnason, Ólafur
Juníusson, Reynir
Schmidt, Pétur Stef-
ánsson, Garðar Árna
son, Gunnar Sig-
urðss., Þórir Ragn-
arsson. — Neðri
röð frá vinstri: Örn Sein-
sen, Leifur Gíslason, Óskar
Sigurðsson, Guðgeir Petersen,
Ellert Schram, Þórólfur Beck.
610 Cl# éiXHi ■# s — 4 r 4 ^ é ; - .
Bæjartogarar
landaí Vest-
mannaeyjum
Vestmannaeyjum.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Togarinn Vilborg Herjólfsdótt-
ir landaði hér nýlega 180 tonn-
um af fiski er fór í frystihúsin.
Von er bráðlega á togaranum
Keflvíkingi með afla hingað, en
hann mun leggja hér upp á næst-
Vegurinn til Akureyrar er nú
orðinn fær öllum bílum aftur
og Norðurleið hefur nú tekið
upp allar sömu áætlanir og áður,
og eru bílarnir farnir að komast
milli Akureyrar og Reykjavíkur
á nær sama tíma og áður en
skriðuhlaupin urðu.
Unnið er jafnt og þétt að end-
urnýjun vegarins, borið ofan ,í
hann og þegar hafa verið steypt
allmörg ný ræsi. Þá er byrjaður
undirbuningur að byggingu
nýrrar brúar á Valagilsá, en . til
þráðabirgða var komið upp
bjálkabrú yfir ána, og tók það
verk aðeins sólarhring.
AlþjóSIegt kynningarmót framlialds-
skólanemeíida
ness
í gær lönduðu þrjú skip í
Krossanesi, Snæfell, Víðir og
Kristján og Auður var á leið
þangað. Voru þau aðeins með
smáslatta, frá 100—300 mál.
Leiðrétting
Ranghermt var í blaðinu í
gær nafn móður mannsins er
drukknaði af togaranum Kald-
bak, hún heitir Margrét Vil-
mundardóttir.
Eyfirzkir hreppar keppa um bikar
Fjórir hreppar í Eyjafirði, sem
standa að sundlauginni að Lauga-
landi í Hörgárdal keppa nú í
200 metrunum — ekki aðeins við
aðra landsmenn heldur innbyrðis.
Heíur Haraldur Sigurðsson í-
þróttakennari gefið mikinn og
fagran bikar sem hrepparnir
keppa um. Telja ýmsir að engum
manni í hreppum þessum, en
þeir eru Öxnadals-, Skriðu-, Arn-
arness-, og Glæsibæjarhreppar,
muni haldast það uppi að synda
ekki 200 metrana.
Dagblaðið New York Herald
Tribune hefur tjáð ráðuneytinu,
að á vegum blaðsins verði efnt
til alþjóðlegs kynningarmcts
framhaldsskólanemenda í New
York frá 26. des. n. k. til 31.
marz 1955. Gert er ráð fyrir
að þátttakendur, sem verða á
aldrinum 16—18 ára, verði frá
34 löndum. Tilgangur með móti
þessu er sá, að gefa ungmenn-
um frá mörgum löndum tæki-
færi til þess að kynnast. Enn-
fremur að kynna erlendu náms-
fólki skólakerfi einstakra skóla-
hverfa í Ameríku, efla þekkingu
þess á amerísku menningarlífi
og siðast en ekki sízt gefa þátt-
takendum tækifæri til þess að
kynna lönd sín í Randarikjun-
um.
Er svo ráð fyrir gert, að
þátttakendur verði vaidir með
ritgerðarsamkeppni. Ritgerðar-
efnið er: „VeröjLdin eins .og við
viljum að: hún sé“. Lengd rit-
gerðarinnar á 'áð vera hm 1500
orð.
Frá íslandi verður valinn einn
nemandi úr hópi þátttakenda í
ritgerðarsamkeppninni. Er það
sérstök nefnd, skipuð af ráðu-
neytinu og sendiráði Bandaríkj-
anna, sem dæmir ritgerðirnar.
Sá, sem sigrar, fær ókeypis
far til Bandarikjanna og heim
aftur, svo og þriggja mánaða
dvöl þar, sér að kostnaðarlausu.
Það er Pan American flugfélag-
ið, sem lætur í té ókeypis flug-
far.
Öllum framhaldsskólanem-
endum, sem fæddir eru hér á
landi, eru íslenzkir ríkisborgar-
ar, hafa sæmilega þekkingu á
enskri tungu og orðnir eru
fullra 16 ára fyrir 1. janúar
1955 og eigi eldri en 19 ára
þann 30. júní 1955, er frjálst
að taka þátt í ritgerðarsam-
keppninni.
Ritgerðirnar eiga að vera á
ensku og skulu hafa borizt
menntamálaráðuneytinu jfyr'r
15. október n. k. (Frá méhhta-
málaráðuney tinu).