Þjóðviljinn - 21.07.1954, Blaðsíða 8
8) — ÞJÖÐVILJINN — Miðvikudagur 21. júlí 1954
% fÞRÓTTIR
RITSTJÚRl. FRlMANN HELGASON
Knattspyrna:
Iþrótt á ölduda!
n
Fyrir fáum árum þótti það
mjög ófullnægjandi aðbúnaður
fyrir reykvíska knattspyrnu-
menn að hafa aðeins einn völl
til æfinga fyrir I. aldursflokk
allra fjögurra félaganna sem
þá voru starfandi hér, auk
vallar fyrir II. og IH. fl. og
svo IV. fl. Á aðalvellinum fóru
svo öll knattspyrnumót fram
í meistara- og I. fl. og svo
frjálsíþróttamót. Þessi skoðun
var rétt og höfðu knattspyrnu-
menn þeirra tíma nokkra af-
sökun að geta ekki annað flú-
ið til æfinga. Afleiðing þessara
þrengsla var svo sú að félögin
fóru eitt eftir annað að ráðast
þau stórvirki að gera sér
eigin velli og vera því óháð
leikjum og mótum sem fram
verða að fara á Melavellinum.
Nú hafa Fram, KR og Valur
eignazt velli til eigin afnota
en á sama tíma hefur aðeins
eitt nýtt félag tekið til starfa.
Það má því fullyrða að knatt-
spyrnuvellir þeir, sem nú eru
hér til, fullnægja þörfinni í
bili.
Við, sem dreymdum um þess-
ar vallarbyggingar, gerðum
ráð fyrir að þær yrðu sú lyfti-
stöng knattspymunnar hér í
bæ sem um munaði. Það eru
því ekki lítil vonbrigði að vera
sannfærður um að knattspyrn-
an í I. aldursflokki hefur ekki
um margra ára skeið verið svo
léleg sem hún er í dag. Nú
er ekki um að kenna vallar-
vandræðum. Orsakanna verður
að leita annarstaðar.
j fyrra mánuði háðu Danir og Ungverjar landskeppni í
iennis. Einn skemmtilegasti leikur keppninnar var mílli
Danans Torbens Ulrich og Ungverjans Stolpa Adams og
<sru myndirnar frá leik peirra. Á efri myndinni sést Ung-
verjinn, sem sigraði, en á peirri neðri Daninn.
í riSur í líidó Kíua
Framhald af 1. síðu.
IKína er þyngsta áfall sem utan-
rikisstefna Bandarikjanna hefur
•orðið fýrir. Dulles, utanríkisráð-
J-.erra Bandaríkjanna, yfirgaf ráð-
Ætefnuna í Genf viku eftir að hún
li.ófst 26. apríl. Reyndi hann að
4 i Breta og Frakka til að koma
é iaggirnar hernaðarbandalagi í
Suðaustur-Asíu til að berjast á-
Jram í Indó Kína í stað þess að
í mja frið. Bretar höfnuðu
’j 'ssu með öllu en vegna áhrifa
Thijlesar á Bidault, fyrrverandi
t enríkisráðherra Frakklands,
í 'ii ekki að rofa til á ráðstefnunni
í-rr en franska þingið hafði fellt
stjórnina vegna stefnr Bidaultí
Beðið aS sfá með
eigin augam
Framhald af 12. síðu.
flokksstjórnin gaf út tii að rök
styðja fylgi sitt við' stofnun
Vestur-Evrópuhers með vestur-
þýzkri þátttöku. Segir Ulbricht
að flokksstjórnin hafi látið
blekkjast til að taka trúanleg-
ar ósannar fregnir af alþýðu-
lögreglunni í Austur-Þýzka-
landi. Býður hann nefnd frá
Verkamannaflokknum að heim-
sækja Austur-Þýzkaland til
þess að kynna sér málin af
eigin raun.
og falið Mendés-France að mynda
stjóm.
Menn æfa of Iítið
Margir þeirra sem horft hafa
á leikina í vor hafa látið í
ljósi undrun sína yfir því á-
huga- og viljaleysi sem kemur
fram hjá leikmönnum undan-
tekningarlítið.
Jafnmargir spyrja: Hvernig
stendur á þessu? Er knatt-
spyrnan ekki eins skemmtileg
og hún hefur verið? Er þetta
ekki lengur hressileg viður-
eign ungra og skapmikilla
manna ?
Þeir sem lesið hafa frásagn-
ir frægra fþróttamanna tun
afrek sín og sigra, komast nær
alltaf að raun um að gleði
þeirra og ánægja í kappraun-
inni er fyrst og fremst fólgin
Pfrie keppir
ekki á EM
Það hefur valdið hálfgerðri
þjóðarsorg í Englandi að Gor-
don Pirie getur ekki tekið þátt
í EM í Sviss. Hann hefur verið
lasinn í fæti undanfarið og
hefur nú gefið upp alla von um
að geta verið með þar sem
hann verði ekki heill fyrir
þann tíma.
i þvi að þeir hafa fullkomið
vald á hreyfingum sínum,
þekkja sjálfa sig eftir langa
og markvissa þjálfun, vita
hvað þeir mega bjóða líkama
sínum, vita hvað hann er fær
um að afreka í þolraun og í
leikni. Það er líka kunnara en
frá þurfi að segja að margur
maður verður leiður að vinna
verk sem hann aldrei nær
tökum á og aldrei leggur sig
fram um að læra og gera að
list. Vinnuafköstin verða lé-
leg og vinnugleðin að sama
skapi. Héý erum við komin að
hinum snögga bletti á reyk-
vískum knattspyrnumönnum.
Þeir æfa ekki nóg. Þeir ná
ekki valdi yfir líkama sínum.
Þeir ná ekki valdi yfir knett-
inum. Þeir verða leiðir á þessu
öllu, koma þó til leiks af göml-
um vana og samkvæmt leikja-
skránni. Þeir finna ekki til
ánægju af skemmtilegri æfingu
í góðu veðri, í glöðum hóp, í
félagslegri samheldni. Það virð-
ast allir daufir, allir þreyttir,
allir gamlir. Líkami þeirra og
andleg félagsleg uppbygging
hefur ekki fengið þann undir-
búning sem þarf til að
ná árangri. Þessa menn skortir
því líkamlegt þrek til að leika
knattspyrnu í 2x45 mín. með
þeim hraða sem kref.iast verð-
ur af mönnum sem bjóða upp á
leik sinn fyrir ærna peninga.
Það er ekki skynsamlegt að
gera ráð fyrir að svo illa vilji
til í ár, að menn séu líkamlega
ver undir það búnir en áður.
Nei, þeir sneiða hjá öllu sem
heitir undirbúnings þjálfun
vegna þess að þeir nenna því
ekki. Þeim þykir það erfitt og
leiðinlegt, og meðan sá hugs-
anagangur er ríkjandi er ekki
von að árangurinn verði betri.
Til eru menn sem halda því
fram að það sé ekki rétt að
krefjast neins af þessum mönn-
um. Þetta séu áhugamenn sem
hljóti að mega lifa og láta
eins og þei'm sýnist. Svo eru
aðrir sem halda því fram að
þetta sé háskaleg skoðun og
er sú skoðun fullkomlega studd
hér. — Knattspyrnufélögin í
Reykjavík eru rekin sem
koppnisfélög með það fyrir
augum m.a. að sýna íþróttir
og taka peninga fyrir (í meist-
arafl.) Með tilliti til þessa
væri annað óhæfa en gera
vissar lágmarkskröfur til
þeirra manna sem gefa kost
á sér að æfa með þetta fyrir
augum. Það verður ekki séð að
forráðamenn félaganna geri
það og þessvegna eiga þeir
mikla sök á því ástandi sem
er.
Við erum komin í samstarf
við erlend lönd með landsleiki
og aðrar gagnkvæmar heim-
sóknir. Það þykir þjóðarheið-
ur hvernig til tekst og samt
má ekki gera þá kröfu til
manna að þeir undirbúi sig
sem bezt. Nei, hér verður ein-
hverju að breyta ef við eigum
að ná fram því bezta úr okk-
ar óneitanlega góða stofni.
(Framhald).
Vinsamleglr blaðadómar am sýningar
fimleikaflokks KR í Noregi
KR hefur sent blaðinu eftir-
farandi þýðingar á ummælum
tveggja norskra blaða um
sýningar fimleikaflokks félags-
ins, sem þátt tók í 15. lands-
móti norskra fimleikamanna í
Halden.
Smaalenes Amtstidende rit-
ar þann 5. júlí: .... Að lokum
kom svo hinn sterki 8 manna
flokkur frá Reykjavík. Þeir
heilsuðu áhorfendum með
glæsibrag með íslenzka fánan-
um og hlutu hjartanlegar mót-
tökur með dynjandi lófataki.
Flokkurinn sýndi frá því hann
steig á völlinn og gegnum
leikniæfingar og staðæfingar
að íslenzkur „Turn“ og leik-
fimi eru á háu þroskastigi.
Sérstaklega dáðumst við að æf-
ingum í hringjum og hinum
mjög vel samsettu æfingum á
dýnu. Sýningin var glæsilegur
endir á stórfenglegum degi á
„Halden Stadion". .
Sportsmanden 8. júlí: Is-
landsflokkurinn sýndi margar
og fagrar æfingar, sérstaklega
í staðæfingum og líka áhöld-
um, svifrá, hringjum, tvíslá og
dýnu, þó eiga þeir ýmislegt ó-
lært á stökkbretti. (Það skal
tekið fram að hér fer víst eitt-
hvað á milli mála hjá Tönns-
berg, því flokkurinn sýndi eng-
ar æfingar á stökkbretti —
trampolin).
Eftir sýningu KR-flokksins
var kallaður saman fundur í
framkvæmdanefnd mótsins og
stjórn norska fimleikasam-
bandsins og einróma sam-
þykkt að veita forseta íslenzka
íþróttasambandsins Benedikt
G. Waage, sérstök heiðursverð-
laun vegna þess mikla þroska
er íslenzki flokkurinn hefði
sýnt á sýningunni. Samskonar
heiðursverðlaun voru veitt full-
trúa sænska sambandsins......
Heiðursverðlaunum þessum er
úthlutað 2-3 sinnum á ári og
aðeins við alveg sérstök tæki-
færi. Þetta er því vafalaust
mikil viðurkenning fyrir ís-
lenzka flokkinn.
11G GUB IBTBTW