Þjóðviljinn - 24.09.1954, Side 10
10) íJjÓÐVÍLJlN^ — löstu'dalgúir ’M Se&tfeíftfcéP'Ið&r^
tigem
Ö
iriiin
Eftir
Giuseppe Berto
7. DAGUR
„Ef þú vilt,“ svaraöi hann.
Seinna vínglasið mitt stóð enn á borðinu. En eitt
glas hafði nægt til þess áð gera mig öran og léttlynrlan.
Ég var viss um að hann hafði látið mig drekka í þeim
ákveðna tilgangi að fá vilja sínum framgengt. Og það
hjálpaði mér á leiðinni. Þáö var að minnsta kosti klukku-
stundar gangur til Ácquamelo og sóliri var farin að
lækka. á lofti og bráðiega mundi. hún setjast bakvið ,
fiöllin hinum megin í dalnum. Vegurinn var brattur.
Þökin í Grupa hurfu hvert af öðru, síðan olívutrjálund-
irnir og loks kornakrarnir. Svo tók skógurinn við, lit-
auðugur kastaníuskógur og sólin skein alls staðar í gegn
fpona þess að brumin vöru tæplega sprungin út. Áhrif
vínsins voru nú horfin, en ég var enn áhyggjulaus og
næstum sæll. Skógur og fjall og sól og ský — allt var
svo fagurt.
Þegar hærra dró varð vegurinn ekki eins brattur og
beykitré og eikur fóru að sjást innan um kastaníurnar
oe á milli voru stór rjóður þar sem lyng og runnar uxu.
Stundum sá ég fjallið allt í öllum sínum stórfengleik.
Jafnvel hæst uppi, þar sem þétti skógurinn tók við,
var allur snjór horfinn. En það var eins og allt væri í
svefni, biði komu vorsins sem var lengi á leiðinni upp
í hæðirnar. Hér og þar sást reykur úr kolagröfum. En
ekkert hljóð heyrðist nema stöku kvak í ósýnilegum,
fugli. Og í miðjum einmanaleiknum var Acquamelo.
Acquamelo er ekki þorp; það er aðeins staðarnafn. Og
að undanskildu húsi Ricadis var þarna ekkert nema
sögunarmylla, löngu yfirgefin, þakið brotið, hjólið óstarf-
hæft. Og nú er ekkert eftir af húsi Ricadis heldur nema
svartir, brunnir veggir. En þegar þetta var, var þaö
fallegt hús — hús heföarfólks, þaö leyndi sér ekki.
Inngangur og gluggakistur voru úr steini, veggirnir mál-
aðir og hvergi vantaoi rúður 1 gluggana. Ricadis fólkið
var landeigendur, auðugt fólk og ég gat ekki skiliö
hvaða samband var milli þess og sonar Francesco
Rende. Landareign þeirra var umgirt gaddavír og með-
fram girðingunni voru gróðursett grenitré. Þarna var
mikið graslendi, talsvert af plómutrjám og eplatrjám.
En það var eins og húsið væri manntómt. Aðeins einn
gluggi var opinn og helzt virtist sem hann hefði verið
skiiinn þannig eftir áriö áður. Visnuöu laufin umhverfis
húsið höfðu ekki verið hreinsuð burt, ekki einu sinni
fyrir framan dyrnar. Þegar ég gekk meðfram girðingunni
tók ég eftir öðrum smærri dyrum, en þær voru líka lok-
aðar. Lengra burt var laut sem í var vatnsból og ker
og skammt frá hafði dálítill skiki verið stunginn upp,
rétt eins og þar ætti aö setja niður kartöflur..
Maðurinn kom mér á óvart, þegar ég gekk í annaö
skipti framhjá húsinu. Ég heyröi fótatak hans fyrir aft-
an mig, og ég varð hræddur, þvíf að það var eins og
hann hefði komið upp úr jörðinni. Hann hlaut að hafa
komið út úr skóginum og fótatak hans heyrðist ekki
í grasinu. Hann var í veiðibúningi, í háum stígvélum,
með húfu, en hann var ekki meö byssu. Hann var dökk-
ur í andliti og augnaráð hans var tortryggið. Hann
spurði mig einskis; stóð aöeins og horfði á mig, rétt
eins og ég væri kominn til aö stela einhverju. Ég neyddist
til að hverfa á brott, og hann beið þangað til ég var
horfinn, áður en hann fór inn í húsið.
Ég fór til baka, faldi mig innanum runnana. Maðurinn
hafði lokað á eftir sér og ég vissi ekki hvað ég átti til
bragðs aö taka. Það var áreiðanlegt, að sæi hann mig
aftur á sveimi kringum húsið, tæki hann í lurginn á
mér. Hann var einmitt af þeirri manntegund, sem mundi
lumbra á ungurn strák. Andlit hans var svipljótt, yfir-
skeggið langt og mjótt. Hvað sem allri barsmíð leið, von-
aði ég að ég ætti aldrei,eftir að hitta hann framar. Ég
tók mér stöðu hinum megin við húsið, bakvið nokkra
runna. Ég ákvað að fara heim strax og sólina bæri við
fjallsbrúnma. Innan skamms seig sólin til viðar, og samt
beio ég. Ég gat ekki farið til mannsins aftur án þess aö
hafa gert neitt.
Seinna sá ég ljós á hreyfingu í herberginu, þar sem
glugginn var opinn. Einhver lokaöi hlerunum en ég gat ■
ekki séö, hvort það var karl eöa kona. Húsið var nú enn :
eyðilegra, allt var lokað og skuggarnir fóru að þéttast :
kringum það. Það var orðið ónotalegt. Uppi í fjöllunum ■
verður kalt um leið og sólin er sezt. Það væri bezt fyrir I
mig að fara heim. Ég færi beint heim til mín án þess :
að tala við hann. Samt hélt ég áfram að bíða. Og loks j
heyrði ég eitthvert hljóð; kona með vatnsskjólu kom út j
um litlu dyrnar og gekk í áttina aö vatnsbólinu án þess j
að hafa hugmynd um að horft væri á hana. Þetta var j •
roskin kona, klædd eins og bóndakona. „Ida,“ kallaöi ég j
stundarhátt.
Hún nam staðar og hlustaði.
„Ida,“ kallaði ég aftur,
Hún gekk hikandi !í áttina til mín, en náði sér aftur [
þegar hún sá að ég var bara lítill drengur. „Hver ert j
þú?“ spurði hún.
„Get ég fengið að tala viö húsmóður þína?“
„Hver ert þú,“ endurtók hún.
„Ég er með skilaboð til húsmóður þinnar,“ sagði ég. j
Hún virti mig fyrir sér eins og hún væri að reyna að j
lesá mig niður 1 kjölinn. „Ungfrúin er veik í rúminu,“ j
sagði hún. . j
Hún var áreiðanlega að segja ósatt. En hvaöa máli j
skipti það? ,,Ég kem frá Michele Rende,“ sagði ég.
Hún hrökk við eins og hún væri slegin þegar hún :
heyrði þetta nafn. Hún missti fötuna, spennti greipar og j
tautaöi: „Guð minn góður, guð minn góður, Michele j
Rende.“ :
„Þú veröur aö segja húsmóöur þinni,“ sagöi ég, „að j
Michele Rende sé kominn aftur og klukkan ellefu í kvöld j
muni hann væla eins og ugla.“
„Guð minn góður, guð minn góður,“ endurtók hún j
í sífellu.
„Skilurðu hvað það er sem þú átt aö segja húsmóður j
þinni?“ j
„Já, ég skil það, en það er ekki hægt. Þaö er ekki j
hægt.“
Ég skildi við hana þar sem hún stóð með spenntar j
7TTP
■ManSkð,
rn
Tveir vinir sem ekki höfðu
sézt í nokkur ár hittust og
annar var að skýra út fyrir
hinum mjög flókið mál.
Hann sagði: — Jú, sjáðu til,
ég giftist ekkju, sem átti upp-
komna dóttir, og þar sem fað-
ir minn var ekkjumaður þá
giftist ha.nn þessari dóttur
okkar, svo að þú sérð að fað-
ir minn er einnig tengdason-
ur minn.
— Það skil ég, sagði vinur-
inn.
— Jæja, þá er stjúpdóttir mín
stjúpmóðir mín og móðir henn
ar amma mín. Þeirri er ég
giftur, svo að þú sérð, að ég
er minn eigin afi.
•h
A: — Eg er að dey.ja úr tann
pínu, hvernig..get ég bætt úr
því ? ; ' ’ •
B: — Þú skalt ekki nota nein
læknislyf. Eg þjáðist mjög af
tannpínu í gær og fór ein-
faldlega heim, svo að konan
mín elskuleg gæti kysst mig,
eftir það batnaði mér sam-
stundis. Hvers vegna reynir
þú ekki það sama?
B: — Það vil ég gera, en er
konan þín heima núna?
★
A: — Tréfóturinn minn fór
illa með mig í gærkvöld.
B: — Hvernig vildi það til?
A: — Jú, kunningi minn sló>
mig í höfuðið með honum.
Barðlð isin í skápiim —
og það er korfið
Undir eldhúsborðinu er
skúffa og ágætu.r skápur.
Milli skúffu og skáps er komið
fyrir borði sem hægt er að
draga út og nota sem hjálpar-
borð í eldhúsinu. Borðið fellur
vel inn í eldhúsborðið og það
er auðvelt að komast að skápn-
um og þegar búið er að koma
borðinu fyrir og loka skápdyr-
unum tekur þetta sem sagt
ekkert pláss og lítur vel út.
Þetta er ágæt hugmynd fyr-
ir litið eldhús, én það þarf að
beita nákvæmni ef hún á að
ná tilgangi sínum og hætt er
við að hún verði dýr í fram-
kvæmd. En þar fyrir er hægt
að skemmta sér við að horfa
á þessa snjöllu hugmynd.
Lítill, sktoiKE stráhattuE
Hattar sem bundnir eru við
vissar árstíðir eru að hverfa úr
sögunni. Þær sem hafa efni á
að eiga fína skrauthatta, sem
aðeins er hægt að nota í bezta
veðri eru svo fáar, að þær hafa
engin áhrif á heildarhattasölu.
Hentugu hattarnir, er þola bæði
rok og dálitla rigningu, hafa
miklu meiri möguleika á að
verða vinsælir, þótt þeir' eigi
trúlega langt í land með að reka
klútana á flótta.
Þær sem dreymir um stráhatt
ættu . að athuga hentuga strá-
hattinn á myndinni. Hann fer
vel bæði við útikjól, dragt eða
kápu, og er i sínu gildi megnið
af árinu. Og ekki spillir það að
auðvelt er að breyta honum.
Breiða bandið með slaufunni
sem nær niður í hnakkann að
aftan er fallegt meðan það er
nýtt; ef það eyðileggst af regni
eða upplitast er hægt að skipta
um hattband og hatturinn breyt-
ir alveg um svip. Hugsið ykkur
þennan sama hatt með breiðu
dökku bandi með hvitum dopp-
um./
Ef maður hefur þörf fyrir
dálítil aukaliólf í eldhússkúff-
unni eða verkfæraskúffunni er
hér ágæt hugmynd, sem þi'ö
getið ef til vill notfært ykkur.
Það eru venjuleg málmhand-
föng sem fást í öllum járnvöru
verzlunum sem fest eru inná
skúffuna en ekki utaná hana.
Þeim er snúið við til þess að
hægt sé að geyma í þeim smá-
hluti, svo sem bréfaklemmur,
nagla, skrúfur og annað þess
konar.