Þjóðviljinn - 28.09.1954, Síða 7

Þjóðviljinn - 28.09.1954, Síða 7
Þriðjudagur 28. september 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Picasso þekkja allir. Leynd- ardómurinn við frægð hans felst ekki aðeins í hinum at- hyglisverða frumleik listar hans. Nafnið Picasso er í vit- und heimsins nátengt friðar- hreyfingunni. Hann hefur helg- að hinar skínandi gáfur sínar, hálfrar aldar reynslu og ó- þreytandi skapandi arku hinu göfuga málefni, að bjarga mannkyninu frá ógnum nýrr- ar heimsstyrjaldar. Það er erfitt að finna þann afkima veraldar, sem íriðardúfa Pi- cassos hefur ekki flogið til.3) Ég og félagar mínir, en við erum sendinefnd stúdenta, sem heimsóttum Frakkland í ár, vorum svo lánsamir, að sjá nýja og afburðasnjalla mynd eftir Picasso, sem túknaði stríð og frið. I fornri aflangri grafhvelf- ::ingu, geíur að Hta tvær geysi- stórar kálkmyndir (fresko), hvora um sig 55 flatarmáls- metra að stærð og ná mynclirn- ar frá gólfi upp í mæni, mæt- ast þar og mynda heild. í hálfrökkri hvelíingarinnar verkar umhverfið á ímyndun- arafl gestsins, sem stríð og frið- ur: Hræðilegar vofur vopnaðar sverðum og spjótum tákna hin skuggalegu ófriðaröfl, miskunn- ailaus hernaðarskurðgoð, sem kremja undir fótum sér ávexti menningarinnar, en gegn þeim ris hermaður með spjót og skjöld á hvern er dregin dúfa. í ljós- um litum hefur Picasso málað plógmenn að verki. þungaðar konur, sem sveifla kornöxun- um. Þessar táknmyndir vinnu og friðar er tjáning lífsástar Það sem serir kalkmyndir Picassos sterkar og áhrifaríkar eru djarfar línur, hnitmiðuð niðurröðun rnikils litamagns, einfaldleiki hugmyndarinnar, óhefðbundin form og afburða- skrautleg listsmíð. Listaferill Pablo Picassos hef- ur verið mjög reikull. Frá lok- uni síðustu aldar, þegar hann sem 12 ára drengur dró sína fyrstu andlitsmynd til dagsins í dag, er hann gefur okkur *) Jafnvel Morgunblaðið í Reykjavík, hefur ekki komizf hjá að ■ sýna mynd Picassos af friðardúfunni, og kallaði ritstjórn blaðsins dúfu hans ,,rytjulegan fugl“ og heimskaði sig á að haíða listaverkið. kalkmynd sína „stríð og' frið- ur“, hefur hann látlaust verið leitandi svara í listtjáningu sinni, svara við hinum að- kailandi viðfangsefnum líðandi stundar. Hann þekkir fleiri en tímana tvenna, bláa timann, í heimsékn eftir G Skoroff rósa tímann, límann sem hann sökkti sér niður í Negralist, tímabil kúbismahs, tíma forn- listárinnar, tímanii sem hann hafði sem mestar mætur á af- skræmingu, en sinkt og heil- agt hefur Picasso leitað nýrra forma, nýrrar tjáningar. Mynd- in ,,Guernica“, sem Picasso rnálaði árið 1937 kom mörgum listunnendum nútímalistar mjög á óvart. Þetta málverk var svar hins reiða listamanns á giimmdaræði fasísmans. Það var þungur áfellisdómur yfir styrjöldum. Hún tjáði heimin- um viðhorf listamanns, sem jafnframt er mannvinur og málssvari smæling'jans. Fram til þessa höfðu mótmæli ein- staklingsins einkennt verk Picassos, en nú höfðu þau vax- ið í gjallandi þjóðfélagsmótmæli og allt frá þeim tíma hefur æ meir g'ætt hinna þjóðfélagslegu viðhorfa í verkum Picassos. Picasso segir að málaralist sé ekki aðeins veg'g'jaskraut. Málverkið er vopn, sem notist til að ráðast á óvininn með og til varnar okkur sjálfum. Vegferð Picassos frá einstakl- Picasso: Friðurinn ingshyggju til fjöldans var líkt og' Eluards, löng og bugðótt. . Frá biksvartri örvæntingu til vonar. Frá því að sökkva sér niður í allt sem var utangarna og abstrakt, slitið úr tengslum við lífið —- til varnar rétti manna til iífs og hamingju. Hann varð kommúnisti. Listaverk Picassos síðan að síðari heimsstyrjöldinni lauk, túlka afstöðu listamannsins til öriagarikustu viðburða vorra daga. Meðal þcssara verka er „Friðardúfan11, mannamyndir af Niko Beloiannis, Henri Mar- tin, Eluard, Juliusi og Ethel Rosenberg, málverk hans „Massacre en Corée“ teikning- ar hans „Visages de la Paix“ og' kalkmynd hans „Strið og friður. í Vallauris komum við í safn þar sem til sýnis var leirkera- smíði. Þetta safn og friðariiveif- ing'in er stolt bæjarins, sem kall- aður er „Bær hinna eitt hundr- að leirkerasmiða". Um margra ára bil hefur Vallauris verið miðstöð leirkerahandiðnaðar, en með tímanum lrefur sam- keppni stóriðjunnar komið handVerksmönnunum á vonar- völ. Picasso kom auga á feg- urð þessarar handiðnar og' tók sér fyrir hendur að endurlífga hana. í dag þykja leirkerasmíð- ar frá Vallauris svo verðmæt- ar, að listasöfn hvaðanæfa keppast. um að kaupa verk hinna frægu leirkerasmiða þeirra: Dervals, Caprons, Inno- centis, Laurents, Picaults og konu hans og Picassos sjálfs. Hálft í gamni og háift i al- vöru, komst einn af safnvörð- unúm í Vallauris svo að orði: „Svo er Picasso fyrir að þakka, að hin þrotlausa bar- átta milli leirsins og járnsins, hefur tekið alveg óvæntan snúning. Og það er fullt útlit fyrir að leirkyrnurnar gangi með sigur af hólmi“. Venjuiega skreytir og brenn- ir Picasso leirmuni sína sjálf- ur. Með fáeinum pensilstrikum breytir hann sivölu jdirborði lágkúrulegs blómsturvasa í mannsandlit í umgjörð tveg'gja handa. Á sama hátt breytir hann mjólkurkönnu í ugiu og hálsmjórri vínflösku í glaðleg- an ýstrumaga sem styður höf- uð sitt tveim höndum. List Picassos endurspeglar líf og lífsvenjur fólksins. Á leið okkar til Nissu komum við inn í brauðsölubúð í Antibes til þess að kaupa okkur brauð. Þegar við vorum að ganga út, heyrðum við alit í einu stúlku segja: „Gjörðu svo vel að láta mig hafa þrjá Picassoa“. Eg leit við og sá afgreiðslu- stúlkuna pakka inn þrem kök- urn. Þessar hrökku, brúnu kök- ur voru í laginu eins og manns- hendur með 4 fingrum og fjór- álma kertastjaki. Búðarstúlkan s' ’.i okkur að Picasso hefði teiknað formin og þess vegna kallaði íólkið þessar kökur Picasso. Ekki áræddum við að biðja hina örlátu gestgjafa okkar frá Landssambandi franskra stúd- enta, að koma þvi til leiðar að við fengjum að hitta Picasso. En einn stúdentanna stakk sjálfur upp á því og auðvitað urðum við himinlifandi og' tók- um boðinu fegins hendj. Vegurinn lá í bugðum um fjallJendi, sem var þéttvaxið sígrænum gróðri, en ströndin er fræg fyrir þennan g'róðxir. Brátt snerum við út á mjóan veg, sem lá frá þjóðveginum og staðnæmdumst fyrir framan lítið og venjuiegt hús með grárri timburgirðingu í kring. Það kom í Ijós að hliðið var læst. En eftir nokkurt hik stökk fararstjóri okkar yfir giröingi. una og gekk heim að húsinu. Að vörmu spori kom hann aftur, heldur en ekki hýr í bragði og sagði okkur að við værurn svo lánsöm að Picasso væri heima. í því ltom Picasso sjálíur brosandi út til okkar. Við tókum tii að klappa allt hvað aí tók, eins og' við hefð- um fvrirfram komið okkur sam- an uni það. Svona leit hann þá út listamaðurinn, sem hafði sent friðardúfuna hringinn í kringum hnöttinn. Hann var meðalmaður á hæð í ullarpeysu og haíði kast- að gráum jakka vfir öxl sér. Við urðum þegar i stað heilluð af látleysi hans og alúðlegri íramkomu. Svörtu, hviku aug- un hans geisluðu slíkum varma, að maður hlaut að finna að hcr var hjartagóður maður. Picasso fór með okkur inn í vinnustofu sína og sýndi okk- ur högg'myndir sínar: lítil stúlka að sippa, þunguð kona, geitarhöfuð. Þessi geit vakti á sínum tíma geysi athygli á list- sýningu í París. Hugmyndina hafði listamaðurinn úr þjóð- Framhald á 8. síðu. Sofandi kona

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.