Þjóðviljinn - 09.10.1954, Page 3
r-
£■
ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 9. október 1954
Þá lagðist
Fróðafriður
Fróði konungur sótti heimboð
í Svíþjóð til |;ess konungs, er
Fjölnir er nefndur; þá keypti
hárih ambáttir tvær, er hétu
Fenja og Menja; þær voru
miklar og sterkar. f þann tíma
fannst í Danmörku kvernstein-
ar tveir svo miklir, að engi
var svo sterkur, að dregið
gæti; en sú náttúra fylgdi
kvernunum, að það mólst á
kverninni, sem sá mælti fyrir,
er mól. Sú kvern hét Grótti.
Hengikjaptur er sá nefndur,
er Fróða konungi gaf kvern-
ina. Fróði konungur lét leiða
ambáttirnar til kvernarinnar
og bað þær mala gull, og svo
gerðu þær, mólu fyrst gull og
frið og sælu Fróða. Þá gaf
hann jjeim eigi lengri hvíld eða
svefn en gaukurinn þagði eða
ljóð mátti kveða. Og áður en
létti kvæðinu, mólu þær her
að Fróða, svo að á þeirri nótt
kom þar sá sækonungur, er
Mýsingur hét, og drap Fróða,
tók þar herfang mikið. I>á lagð-
ist Fróðafriður.
(Úr Snorra-Eddu).
□ f dag er laugardagurinn 9.
okt., ! dagur ársins. Díom
ýsusmessa. Tungl í hásuðri kh
23:13. Árdegisháflæði kl. 3:55.
12.50. Óskajiög
'.júklinga (Ingi-
ijörg Þorbergs).
(3.30 Setning Al-
Dingis: a) Guðs-
þjónusta í Dómkirkjunni (Ás-
mundur Guðmundsson prédik-
'ar. Organleikari: Páll Isólfs-
son). b) Þingsetning. 19.30
Þingfréttir. 20.30 Tónleikar:
Cor de Groot leikur píanólög
eftir ýmsa höfunda. 21.00 Leik-
rit: Næturregn eftir H. C.
Branner, í þýðingu Gunnars
Árnasonar — Leikstjóri: Valur
Gíslason. Leikendur: Guðbjörg
Þorbjarnardóttir og Róbert
Arnfinnsson. 22.10 Danslög pl.
— 24.00 Dagskrárlok.
Kvæðamannafélagið Iðunn
heldur fund í Baðstofu iðnaðar-
manna í kvöld klukkan 20:00.
Kvöld- og næturvörður
er í læknavarðstofunni, Austur-
bæjarskólanum. — Sími 5030.
Næturvarzla
í Lyfjabúðinni Iðunni. — Sími
7911.
En hyað . er þetta — hikk —
hikk er íangur veggnr — hikk.
Er liann alveg endalaus?
V erkakvennaf élagið
Framsókn
heldur fund á morgun kl. 3
e.h, í Alþýðuhúsinu. Fundar-
efni: Kosning fulltrúa á Ál-
þýðusambandsþing, rætt um 40
ára afmæli félagsins, og önn-
ur mál, sem fram kunna að
koma. Félagskonur sýni skír-
teini eða kvittun.
Söfnin eru opinl
Listasafn Einars Jónssonar
er nú opið aðeins á sunnudög-
um kl. 13:30—15:30.
Landshðkasafnlfl
-:: Kí. 10-12, 13,-49 ftg . 20^22 alla
virka de.ga, nema laugardaga
kl. 10-12 og 13-16.
< • • i .'•» • 'I f J AÍL*-’ l> > .
N fiitúrugrlpasaínlB
kl. 13:30-15 á sunnudögum, kl.
'14-15 á þrlðjudöglim og ffirirótu-
dðguzn. ' ■
M e s s u r
á
m o r g u n
Laugarnesprestakall
Enginn messa. Sóknarprestur.
Nesprestakall
Messað í kapellu Háskólans kl.
2. Séra Jón Thorarensen.
Langholtsprestakall
Messa kl. 2 í Laugarneskirkju.
Ferming. Árelíus Níelsson.
Háteigsprestakall
Messað í hátíðasal Sjómanna-
skólans kl. 2. Sr. Jón Þorvarðs-
son.
Bústaðaprestakall
Messað í Fossvogskirkju kl. 11.
Ath. breyttan messutíma. Sr.
Gunnar Árnason.
Fríkirkjan
Messað kl. 2. Sr. Þorsteinn
Björnsson.
Dómkirkjan
Messa kl. 11. Sr. Öskar J. Þor-
láksson. Síðdegismessa kl. 5.
Sr. Jón Auðuns.
Sigfúsarsjóður
Þeir sem greiða smám samai
framlög sín til sjóðsins en
minntir á að skrifstofan á Þórs
götu 1 er opin alla daga kl
10—12 og 2—7, nema laugar
daga aðeins fyrir hádegi.
Minningargjafarsjóður
Landspítala lslands.
Spjöld sjóðsins fást afgreidd á
eftirgreindum stöðum: Landsíma
Islands, á öllum stöðvum hans;
Hljóðfæraverz’.un Sigríðar Helga-
dóttur, Bókum og ritföngum
Laugavegi 39, og hjá forstöðukonu
Landspítalans. Skrifstofa hennar
er opin kiukkan 9-10 árdegis og
4-5 síðdegis.
Æ. F. II.
Skrifstofan er opin alla virka
daga frá kl. 6—7 nema laugar-
dasa kl. 3—5.
Listasafn ríkisins
kl. 13-16 á sunnudögum, kl. 13-
15 á þriðjudögum, fimmtudög-
um og laugardögum.
Vlinningarspjöid Krabbamelns-
félags fslands
fást í öllum lyfjabúðum í Reykja-
vik og Hafnarfirði, Bióðbankan-
um við Barónsstíg og Remedíu.
Ennfremur í öllum póstafgreiðsl-
um á landinu.
Bæjarbókasafpi^ ,. Æ,
(Jtlán virka daga kl. 2-10 síð-
degis. Laugardaga kl. 1-4. Les-
stofan er opin virka daga kl.
10-12 átdegis og 1-lQ ,§íðdegi§.
Laugardág'a kí. lÓ-ÍÍTí&g vl-*4.
Lokað á sunnudögum yfir sum-
armánuðina.
G^ngÍKfikráning
1 steriingspund ...... 45,70 kr
1 Bandaríkjadoilar .. 18,32 —
1 Kanadadollar ........ 16,90 —
100 danskar krónur .... 236,30 —
100 norskar krónur .... 228,50 —
100 ssenskar krónur .... 315,50 —
100 finnslc mörk ........ 7,09 —
1000 franskir frankar . • 46,63 —
100 belgískir frankar .. 32,67 —
100 svissneskir frankar . 374,50 —
100 gyllini ........... 430,35 —
100 tékkneskar krónur . 226,67 —
100 vestur-þýzk mörk .. 390,65 —
1000 lírur ............. 28,12 —
Kaupgengi:
1 sterlingspund ...... 45,55 kr
1 Bandaríkjado’.Iar .. 16,26 —
1 Kanadadollar ........ 16,26 —
100 danskar krónur .... 235,50 —
100 norskar krónur .... 227,75 —
100 ssenskar krónur .... 314,45 —
100 finnsk mörk .........
1000 franskir frankar .. 46,48 —
100 belgískir frankar .. 82,56 —
100 svissneskir frankar . 373,30 —
100 gyllini ............. 428,95 —
100 tékkneskar krónur . 225,72 —
100 vestur-þýzk mörk .. 389,35 —
1000 lírur ................ 26,04 —
Bókmenntagetraun
Vísurnar í gær voru úr man-
söng eftir Sigurð Breiðfjörð.
Þetta er öllu eldra.
Selja mun eg við sufli
sverð mitt, konungr verða
og, rymskyndir randa,
rauðan skjöld við brauði.
Hungrar hilmis drengi.
Hér göngum vér svangir.
Nær dregr hrygg að hvoru
(Haraldr sveltir mig) belti.
Millilandaflug:
Hekla, millilanda
flugvél Loftleiða
er væntanleg til
Rvíkur kl. 11 í
dag frá N. Y.
— Flugvélin fer héðan klukkan
12:30 áleiðis til Gautaborgar
og Hamborgar.
Gullfaxi fór í morgun til Kaup-
mannahafnar og er væntanleg-
ur aftur til Reykjavíkur kl.
17:45 á morgun.
Innanlandsflug: í dag er áætl-
að að fljúga til Akureyrar,
Blönduóss, Egilsstaða, Isafjarð-
ar, Patreksf jarðar, Sauðárkróks
og Vestmannaeyja. Á morgun
eru ráðgerðar flugferðir til Ak-
ureyrar pg Vestmannaeyja.
■ -r. .
Krossgáta nr. 483.
Lárétt: 1 fljóðið 4 ábendingar-
fornafn 5 boðháttur 7 fora 9
fæddu 10 yfir á 11 erlent nafn
13 tónn 15 tenging 16 karl-
mannsnafn.
Lóðrétt: 1 nautgrip 2 veiðar-
færi 3 ónotuð 4 sæti 6 kristnin
7 lin 8 fyrstir í stafrófinu 12
elskar 14 ryk 15 tilvísunar-
fornafn.
Lausn á nr. 482.
Lárétt: 1 krakkar 7 ao 8 árla
9 uku 11 ólu 12 ná 14 ið 15
garg 17 oo 18 áar 20 kristni.
Lóðrétt: 1 kaus 2 rok 3 KÁ 4
kró 5 Alli 6 rauði 10 Una 13
árás 15 bor 16 gat 17 Ok 19
RN.
E I M S K I P :
Brúarfoss fór frá Rotterdam í
gær til Hull og Rvíkur. Detti-
foss fór frá Rvík 5. þm. til N.
Y. Fjallfoss kom til Rvíkur í
gærmorgun 8. þm. frá ísafirði.
Goðafoss hefur væntanlega far-
ið frá Hamborg 7. þm. til R-
víkur. Gullfoss fór frá Kaup-
mannahöfn í dag til Leith og
Rvíkur. Lagarfoss fór frá K-
höfn 6. þm. til Leníngrad, Ham
ina og Helsingfors. Reykjafoss
fór frá Vestmannaeyjum 4. þm.
til Rotterdam og Hamborgar.
Selfoss fór frá Rotterdam 7.
þtm. til Rvíkur. Tröllafoss fór
frá N.Y. 28.9. væntanlegur til
Rvíkur síðdegis í dag. Tungu-
foss fór frá Gibraltar 4. þm. til
Rvíkur.
Skipadeild S.Í.S.
Hvassafell er i Ábo. Arnarfell
er í Hafnarfirði. Jökulfell fór
frá Akureyri í gær til Vest-
fjarðahafna. Dísarfell er á
Norðurlandshöfnum. Litlafell
er.á Norðurlandshpfnum; Helga
fell er í Keflavík. Magnhild er
í Hafnarfirði. Baldur fór frá
Rvík 29. fm. áleiðis til Ham-
borgar. Sihe Boye Iqstar kol í
Póllandi. H t -v> -,.r.
Ríkisskip
Hekla kom til Reykjavíkur í
gærkvöld að vestan. Esja er á
Austfjörðum á suðurleið. Herðu
breið er á Austfjörðum á leið
til Bakkafjarðar. Skjaldbreið
fer frá Reykjavík til Snæfells-
ness og Breiðafjarðarhafna.
Þyrill er í Reykjavík. Skaftfell-
ingur fór frá Reykjavík í gær-
kvöld til Vestmannaeyja.
t=£K5=
Kvenréttindafélag íslands.
Fundardagur félagsins í vetur
er 3. mánudagur í hverjum
mánuði en ekki 2. eins og áð-
ur hefur verið tilkynnt.
Stjórnin.
Handavinnudeild
Kennaraskólans,
Laugaveg 118, efnir til 3ja
mánaða námsskeiðs í handa-
vinnu. — Upplýsingar í síma
80807 næstu daga klukkan
9—3 e.h.
Hví gefur þú þeim það? Þeir launa
þér aldrei, sögðu hermennirnir. — Og
svo hvísluðust þeir á og sögðu sín á
milli: — Hann hefur lofað að frelsa
þá. Við skulum gæta hans vel.
Þeir komu til Brýlu í morgunsárið.
Hraðboði bar aðmírálnum fréttina um
komu þeirra. Hann kom ríðandi og,
fylgdu honum margir menn alvopnaðir.
—- Sælir verið þið, munkar, sagði Lummi
aðmíráll og var enn grimmdarlegri en
vanalega. Hann var hár vexti með hauk-
frán augu.
— Upp með hendurnar! sagði hann
hranalega. Hendur ykkar sýnast hvítar
sem mjöll. En þið gabbið mig ekki. Eg
veit að hendur ykkar eru roðnar blóði
margara góðra föðurlandsvina, munka-
hundar.
Laugardagur 9 október 1954 — ÞJÓÐVIUINN — (3
Öðrum en Íögskipuðum uppboðshöldurum er
óheimilt að fara með opiubert uppboðshald
Hæstirétfiur dæmir Sigurð Benediktsson i 2000 króna sekt fyrir að hafa
haldið listmunauppboð án þess að hafa tii þess réttindi
S.l. miðvikudag kvaö Hæstiréttur upp dóm 1 máli, sem
ákæruvaldiö höfðaöi gegn Sigurði Benediktssyni fyrir
að halda tvö listamannauppboð á síðast liönu sumri
án þess að hafa til þess réttindi. í sakadómi var Sig-
nrður dæmdur í 2000 króna sekt og staðfesti Hæstirétt-
ur þá niðurstöðu.
Forsendur dóms Hæstaréttar
eru þessar:
„Opinber uppboð munu lítt
hafa tíðkazt hér á landi fyrr en
á 18. öld, en á 19. öld eru þau
orðin algeng söluaðferð, bæði um
frjálsa sölu og nauðungarsölu
og jaínt um sölu á fasteignum
sem lausafé. Tilskipun um upp-
boðsþing í Danmörku og Noregi
frá 19. desember 1693, sem til
er vitnað í ákæruskjali, mun
aldrei hafa verið birt hér á
landi og því ekki öðlazt hér gildi
sem' sett lög. En tekið var að
fylgja ákvæðum tilskipunar þess-
arar í framkvæmd fyrir alda-
mótin 1800 og býggt á þeim sem
gildándi rétti í filskipun frá 21.
júní 1793, sem löglega var birt
hér- á landi árið 1794. Tilskipun-
in frá 1693 eða ákvæði úr henni
hafa þannig verið framkvæmd
hér á landi í meira en hálfa
aðra öld og jafnan verið tekin
upp í lagasöfn um gildandi ís-
lenzk lög; og er þess þá að jafn-
aði getið, að tilskipunin hafi ekki
verið birt hér, e'n fylgt í fram-
kvæmd. Þar sem svo lengi hefur
verið farið eftir ákvæðum til-
skipunarinnar frá 1693, hafa
þau helgazt af venju og yngri
Iögum og orðið gildandi íslenzk-
ar réttarreglur.
Þau ákvæði tilskipunarinnar,
sem hér skipta helzt máli, eru i
1. og 5. gr. hennar. Segir þar, að
mönnum skuli vera heimilt að
láta selja fjármuni sína á opin-
beru uppboði, hvort heldur fast-
eignir eða lausafé, en þó verði
það að gera menn þeir, sem til
þess eru skipaðir, þ. e. bæjar-
fógetar í kaupstöðum og héraðs-
fógetar til sveita. Samkvæmt 29.
gr. laga nr. 85/1936, sbr. 3. gr.
laga nr. 65/1943, og 2. gr. íaga
nr. 57/1949 fara nú með uppboð
sýslumenn í sýslum, bæjarfóget-
ar í kaupstöðum og borgarfógeti
í Reykjavík.
í framangreindri tilskipun frá
21. júní 1793 segir svo í 3. gr.:
„Lausafjármuni má seljandi...
láta flytja'til sölunnar hvert er
hann vill, og þangað er hann
ætlar, að þeir seljist bezt, ög
ber uppböðshaldaránum, þar
sem þeir eru seldir, uppboðshald-
ið á þeim“. Hefur þannig þegar
á 18. öld verið ákveðið í setturn
lögum, að opinberir uppboðshald-
arar einir hefðu rétt til að halda
opinber uppboð. Nefnd 3. gr. er
talin meðal lagaákvæða, sem
felld voru úr gildi með 50. gr.
laga nr. 57/1949, en þar sem þau
lög taka ekki til frjálsra upp-
boða, eins og ljóst er af orðum
þeirra og greinargerð við frurn-
varp til laganna, þá breytir þetta
Silfurtúnglið frumsýnt í kvöld
Framhald af 12. síðu. i hafa lagt mikla vinnu í það að
væru þessar aðstæður til stað- | strika út úr leikritinu allt bók-
legt mál og mál, sem bæri
Bðrgarfjsrðarkvikmyndin sýnd
í kaust heima í héraði, siðan hér
Bntnf»3ingafélagið heldar áfram kvik-
myndmt þréunarsögn héraðsins
Borgfirðingafélagið, sem er eitt athafnasamasta áttliagafélagið,
hélt aðalfund sinn 1. þessa mánaðar.
Starfsemi félagsins var með
svipuðu sniði sl. ár og undan-
farið, en aðalverkefni félagsins
var kvikmyndun héraðsins og
er því verki nú það langt kom-
ið, að þegar er komin löng og
fróðleg mynd af héraðinu. Er
ráðgert að sýna hana í Borg-
arfirði á þessu hausti og síð-
an hér í Reykjavík. Kvikmynda-
tökunni verður þó haldið áfram
þvá ætlunin er að kvikmynda
ekki aðeins héraðið á yfirstand-
andi tíma heldur og síðar, og
geyma þannig á kvikmynd þró-
unarsögu héraðsins.
Unnið var áfram að örnefna-
söfnun. Hefur Ari Gíslason
kennari ferðazt um al't hér-
aðið, hæði Mýra- og Borgar-
fjarðor<:’',7qiur, komið á hvern
bæ í b'iðum súolum, auk þess
sem hann hefur átt tal við
fjölda hrottfhittra, kunnugra
manna, og á. bann bát.t skráð
mikinn fjölda brottfluttra ör-
nefna. Örnefnaskráin er nú orð-
in 1300 vélritaðar blaðsíður og
í henni eru 25 þús. örnefni,
er skiptast þannig að á hvern
bæ í Borgarfirði koma ná-
lega 60 örnefni en um 80 í
Mýrasýslu.
Hagur félagsins batnaði um
30 þús. kr. á árinu og er eign
þess nú rúmlega 135 þús. kr.
er skiptist milli ýmissa sjóða,
byggðasafnssjóðs, Snorrasjóðs,
trvggingarsjóðs, íþróttasjóðs,
félagssjóðs og byggingarsjóðs,
en hinn síðastnefndi var stofn-
aður á fundinum með 10 þús.
kr. framlagi, og skal sjóðurinn
vera grundvöúur að væntan-
legri húsbyggingu félagsins ein-
hverntíma í framtíðinni. Var
ákveðið að halda hlutaveltu í
haust til ágóða fyrir bygging-
arsjóðinn.
Starfsemi félagsins í vetur
verður með liku sniði og áður.
Félagsmenn geta orðið allir
Borgfirðingar hér og heima í
héraði. Er árgjaldið 20 kr. fyr-
ir karla og 15 kr. fyrir konur,
en ævifélagsgjald 150 og 200
kr.
Stióm. félagsins var öll end-
urkjörin og skipa hana Eyjólf-
ur Jóhannsson formaður, Guð-
mundur IUugason, Þórarinn
Magnússön, Steingrimur Þóris-
son, Sína Ásbjamardóttir, Þor-
geir Sveinbjamarson og Sig-
urður Halldórsson.
engu um réttarreglur þær, sem
um frjáls uppboð hafa gilt og
gilda.
Samkvæmt því, sem hér
hefnr verið rakið, er öðrum
mönnum en lögskipuðum upp-
boðshöldurum óheimilt að
fara með opinbert uppboðs-
hatd. Ákærði hefur því, með
þvs að halda opinbert uppboð,
svo sem í héraðsdómi greinir,
hrotið gegn ákvæðum 116. gr.
lag nr. 19/1940. Og með því
að fallast má á ákvæði hins
áírýjaða dórns um sektargreiðslu,
vararefsingu og sakarkostnað,
ber að staðfesta dóminn, þó svo,
að greiðslufrestur sektarinnar
verði 4 vikur frá birtingu dóms
þessa.
Eftir þessum úrslitum ber á-
kærða að greiða allan áfrýjunar-
kostnað sakarinnar, þar á meðal
laun skipaðs sækjanda og verj-
anda fyrir Hæstarétti, kr. 1500.00
til hvors“.
Byggingu sjúkra-
hússins miðar vel
Neskaupstað
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Byggingu sjúkrahússins í Nes-
kaupstað hefur miðað vel á-
fram á þessu ári. Múrhúðun
beggja aðalhæðanna má heita
lokið, miðstöð er að mestu lögð
og verið er að Ieggja síðustu
hönd á húsið úti.
1 sjúkrahúsinu verða um 30
rúm og elliheimili bæjarins
verður á efstu hæð. Þá hefur
og komið til tals að hafa lækn-
isíbúð í húsinu.
Tekizt hefur að útvega lán
fyrir öllum lækningatækjum,
húsbúnaði ofl. og á húsið að
geta tekið til starfa þegar er
byggingu þess er lokið.
Það virðist tryggt að unnt
verði að vinna að byggingunni
í allan vetur. Ekki verður um
það sagt að svo stöddu hvenær
sjúkrahúsið getur tekið til
starfa, en komi ekkert ófyrir-
sjáanlegt fyrir má gera ráð
fyrir að það verði á árinu 1956.
Leikhnsgestír
hresstir
1 vetur verða veitingasalir
Þjóðleikhúskjallarans opnir sér-
staklega fyrir leikhúsgesti í
sambandi við leiksýningar. Sal-
imir verða opnaðir kl. 6 á
kvöldin og geta leikhúsgestir
þá fengið mat, í sýningarhléi
verða kaffiveitingar eins og
verið hefur, en að loknum leik-
sýningum fást allskonar veit-
ingar. í matmálstímanum verð-
ur leikin sígild tónlist en á
kvöldin dansmúsik.
ar í Þjóðleikhúsinu og því
hefði hann ráðizt í samningu
leikritsins, en auk þess væri
geysileg eftirspum eftir leik-
ritum ekki aðeins hér á landi
heldur og hjá leikhúsum um
alla Evrópu, og þetta „leik-
■ritahungur“ hefði m.a. átt þátt
í því að hann spreytti sig á
þessu ágæta tjáningarformi.
Gamanleikur með tragiskum
undirtón
Um efni leiksins vildi Lax-
ness lítið segja. Segja mætti
að þetta væri gamanleikur með
tragiskum undirtón og gæti
gerzt hvar sem væri í heim-
inum, nokkur hluti hans
kannski helzt fyrir noi'ðan á
Blönduósi eða Sauðárkróki
nokkur hluti í Reykjavík. Ann-
ars hefði leikstjórinn, Lárus
Pálsson, ekki lagt neina á-
herzlu á að binda leikinn við
ákveðna staði.
Ágætt samstarf.
Halldór Laxness rómaði mjög
allt samstarf við Lárus Páls-
son ög kvaðst háfa liáft ó-
blandna ánægju af því að vinna
með öllum leikendunum. Þá
kvaðst hann einnig vilja
minna sérstaklega á þann á-
gæta þátt, sem Jón Nordal
ætti í verkinu, en hljóðfærin,
sem leikið er á, em næsta ó-
venjuleg, þ e. saxófónn, túba,
trompet, harmoníka, og munn-
harpa.
Skrifað í fyrra
Laxness kvaðst hafa haft
leikritið lengi í huga en skrif-
að það mest í fyrrasumar og
fram eftir vetri. Hann kvaðst
Kllt
Aðalfundur ÆFR verður
haldinn þriðjudaginn 12. okt.
í Baðstofu iðnaðannanna og
hefst kl. 20:30.
Dagskrá:
1 Venjuleg aðalfundarstörf.
2 Um 13. sambandsþing
ÆF: Adda Bára Sigfús-
dóttir.
3 Frásögn af Kínaför: Ingi
R. Helgason.
4 Kvikmynd.
Félagar f jölmennið.
Stjórn ÆFR
keim af þýðingu, og reynt að
finna einhvern meðalveg máls-
ins sem nota mætti á leik-
sviði, mál sem yrði munntamt
og létt í meðförum leikcnda.
Sýningar erlendis
Eins og áður hefur verið
skýrt frá verður Silfurtúnglið
sýnt í Moskvu á þessu hausti.
en einnig í Folketeatret í Osló
og Þjóðleikhúsinu í Helsinki.
Sýnir trúarlega
kvikmynd á
á hverjum sunnu-
degi
Sunnudaginn 17. okt. n. k.
byrjar skozki presturinn séra
Lamont Murdoch sýningar í
Stjörnubíói á nýrri trúarlegri
kvikmynd, sem nefnist „Eg sá
dýrð hans" (I Beheld His Glory).
f rnynd þessari er rakin saga
hundraðshöfðingjans Korneiíus-
ar, sem snerist tii kristinnar trúar
eftir að hafa séð þá atburði, er
kvikmyndin feýnir: krossfestingu
Jesú og upprisu. Á þessu ári
munu 300 þús. manns hafa séð
mynd þessa í New Gallery
Centre í London, og töldu brezk
blöð hana vera eina athyglisverð-
ustu kristilegu kvikmyndina,
sem sýnd hefur verið síðustu 25
árin. Kvikmyndin hefur verið
lánuð hingað til afnota í fjóra
rnánuði og verður sýnd í Stjörnu-
bíói kl. 14.30 á hverjum sunnu-
degi fram eftir vetri.
Eins og áður var greint frá
verður fyrsta sýning myndarinn-
ar annan sunnudag og flytur þá
séra Murdoch stutt erindi, Guð-
mundur Jónsson syngur einsöng
og Róbert Abraham aðstoðar við
almennan söng. Aðgangur að öll-
um sýningunum í vetur verður
ókeypis og verða aðgöngumiðar
afhentir í Stjörnubíói og í Rit-
fangaverzlun ísafoldar. Börn fá
því aðeins aðgang að þau séu í
fylgd með fullorðnum.
Séra L. Murdoch hefur starf-
að í evangelísku kirkjunni í
Skotlandi um þrjátíu ára skeið
og haldið samkomur víða í Skot-
landi og Norður-Englandi. Þetta
er í fyrsta skipti sem hann kem-
Lur til íslands.
Til aihuguitar lyrir gjaMeyrissaínara
Sterlingspund eldri en 16 ára ógild
Stolið úrum
1 fyrrinótt braut maður
nokkur rúðu í sýningarglugga
Úra- og skartgripaverzlunar
Magnúsar Ásmundssonar Ing-
ólfsstræti og stal sjö úrtim. —
Ekki hefur þjófurinn náðst enn.
Samkvæmt tilkynningu Eng-
Iandsbanka eru allir 10 punða
og stærri seðlar, sem gefnir eru
út af Englandsbanka, ásamt 5
punda seðlum, sem gefnir eru út
fyrir 2. septeinbcr 1944, hættir
að vera löglegur gjaldmiðill.
í þessu sambandi hefur verið
gerð sú tilslökun varðandi inn-
flutning á sterlingseðlum til
Bretlands, að nú er eigendum
framangreindra seðla heimilt,
hvort heldur þeir vilja póstsenda
þá beint til innlausnar í brezk-
um bönkum eða að láta við-
skiptabanka sína annast inn-
lausn þeirra. Að öðru leyti gild-
ir áfram bann við innflutningi á
öðrum sterlingseðlum til Bret-
lands að undanteknum þeim
seðlum, sem ferðamenn mega
taka með sér, að upphæð 10
pund hver einstaklingur.
Alþjóðaráð tónskálda
er stofnað var á Þingvöllum
17. júní sl. heldur stjórnarfund
í París í lok þessa mánaðar
um leið og haldinn er aðalfund-
ur tónmenntaráðs UNESCO,
menningarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna. Almennur alþjóða-
fundur tónskálda verður þar
einnig um sama leyti. — Jón
Leifs, framkvæmdastjóri Tón-
skáldaráðsins, mun sitja fundi
þessa fyrir hönd Tónskáldafé-
lags Islands. j