Þjóðviljinn - 09.10.1954, Side 11
Laugardagur 9 október 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (U
Stúdentamót
Framhald af 7. síðu.
láta ekki kommúnistagrýluna,
sem er mikið afl í þjóðfélagi
okkar um þessar mundir,
villa sér svo sýn, að þeir
reyni ekki að taka þátt í al-
þjóðasamvinnu stúdenta,
hvort .sem hún er við austur
eða vestur. Væri þörf, að ís-
lenzkir stúdentar gerðu sitt
til að draga úr öfgum þeim,
sem nú drottna.
VI.
Að lokum vil ég þakka rót-
tækum stúdentum fyrir að
hafa gefið mér kost á að
sækja þing þetta. Þótt löngun-
in væri mikil að kynnast
stúdentasamtökunum, skal ég
játa, að enn meiri var ákefðin
í að kynnast Ráðstjórnarríkj-
unum, þessu stórkostlega og
umdeilda landi.
Eg hef notið ómælt sovét-
listar: ballets, kvikmjmda,
hljómleika, þjóðdansa, óperu-
söngs o.s.frv Eg hef siglt á
skipaskurði Moskvuborgar og
Dnjepr, skoðað samyrkjubú,
kynrizt skólum og rússnesk-
um ptúdentum — og drukkið
vodká! ' "
1 ' 'A n,- :»0'3 I. . -■
Eg hef því fræðzt og séð,
að það er fjölmargt, sem við
getum lært af Rússurn og
hitt/iA að;-það *-er .margt,,
ekld á erindi til okkar. Mév ei'
enn Ijósar en áður, að íslend-
ingar eiga að vara sig á þeirri
blekkingu, að allt sé annað-
hvoi't svart eða hvítt í einu
landi, því að sú forsenda hef-
ur leitt til þess, að íslending-
ar hafa látið ginna sig til að
ganga í hernaðarbandalög,
verða liður í slíkum öfgum.
íslendingar eiga hvorki að
vilja hernaðarbandalag við
Bandaríkin, Sovét eða neina
aðra þjóð; þeir eiga að lifa
einir í sínu landi, rækta það
og ala sína þjóð á eigin fjár-
magni og styrkja sína sér-
stæðu menningararfleifð.
Állt annað er blekking.
St jörnubíó:
Ógiftur faðir
(sænsk)
Sænskum kvikmyndastjórum,
hefur ástin verið hugleikið við-
fangsefni, og er það að vonum:
En oft hefur þeim tekizt betur
og er þó ekki þar með sagt,
að þeim hafi tekizt illa í þetta
skipti. -— Eilífðarvandamálið
mikla: Hvað á að gera við ó-
velkomið barn? er sýnt í til-
tölulega réttu ljósi án allra sið-
ferðisprédikana. — Leikurinn
er mjög þokkalegur og ljó’s-
myndun allgóð; einkum ber
mikið á skemmtilegum útisen-
um. — Sem sagt sjáandi. —
H. E.
Samhent verkalýðshreyfing
Elnkcsritari
Starf einkaritara flugmálastjóra ríkisins er
laust til umsóknar frá 15. nóvember n.k. að telja.
Laun samkvæmt launalögum. Umsóknir ásamt
upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
skrifstofu minni á Reykjavíkurflugvelli fyrir 1.
nóvember n.k.
.^eykjayjík, 9r pkt.óbpr 1^54 ‘pr.
Fiugmálasfjóriin
Húsnæði
Flugmálastjórnin óskar eftir fæði og húsnæði
fyrir danskan kennara 1 mánaðartíma. Æskilegt
í nágrenni Melaskólans eða miöbæjarins.
Upplýsingar í síma 7430
Framhald af 4. síðu.
stundarsigri bitlingaklíkunnar í
Alþýðuflokknum.
Alþýðusambandið telur nú
hátt á þriðja tug þúsunda vinn-
andi manna. Engum blandast
því hugur um að undir sterkri
og samhentri forustu er það
sterkasta samtakaheild, sem til
er í landinu. Gegn henni er ekki
hægt að standa, ef hún sækir
fram í einni fylkingu. Þetta vita
auðmennirnir, sem standa að
málgögnum afturhaldsins og
þess vegna reka þau upp rama-
kvein, þegar nokkur hundruð
verkamenn á Akureyri ríða á
vaðið og móta sameiginlega
stefnu sína á sinn einfalda og
augljós hátt. Þau vita ofurvel
að þegar verkamennirnir gera
sér Ijóst, hvers samtök þeirra
eru megnuð og kasta fyrir borð
allri beinni og óbeinni leiðsögn
afturhaldsins, þá hriktir í þeim
feisknu viðum, sem enn styðja
völd þeirra yfir örlögum alþýð-
unnar og þjóðarinnar allrar.
Þær fregnir, sem nú þegar
hafa hafa borizt af kosningun-
spá góðu um úrslitin. Fyrsti
stórsigur einingarinnar var
unninn hér í verkalýðsfélögun-
unum með allsherjarbandalagi
verkalýðsflokkanna, sem skotið
hefur sundrungaröflunum hér
slíkum skelk i bringu, að þau
þora sig hvergi að hræra. Ann-
ar stórsigurinn vannst fyrsta
kosningadaginn í Félagi járn-
iðnaðarmanna í Rvík, er listi
sameiningarmanna var kjörinn
með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða og vikapilti og aðal-
fulltrúa íhaldsins í stjórn ÁSÍ,
Sigurjóni Jónssyni, var alger-
lega hafnað sem hæfum full-
trúa félagsins á alþýðusam-
bandsþingi og fleiri og stærri
sigrar munu á eftir fara.
Stundarsigur hægri klíkunnar
í Alþýðuflokknum, sem á mál-
gögn ríkisstjórnarinnar að
einkavinum getur á engan hátt
orðið til þess að hindrá eða
tefja sameiningu alþýðunnar.
Samhent og sterk verkálýðs-
hreyfing er orðin söguleg nauð-
syn, sprottin af knýjandi þörf
alþýðunnar til þess að hrista af
sér klafa hrakandi lífskjara og
sækja fram í baráttu sinni fyrir
betri framtíð.
r kápu
MARKAÐURINN
Laugaveg 100
er komin í bókaverzlanir um allt land. í leikritinu
„Silfurtúnglið“ segir skáldið söguna af Lóu, íslenzkri
konu fyrir noröan, sem unir þar glöö við sitt, litla
snotra heimilið, drenginn sinn og barnagæluna sem hún
hefur tileinkaö honum. En jafnvel á bak við heiminn
leitar hinn mikli freistari manninn uppi og bíður
okkur í ferð um ríki veraldar til aö sjá þeirra dýrö, og ef
við erum ístööulaus og kannske ekki fullkomlega
ánægð með okkar hlutskipti, þá bíður hann jafnvel
að gefa okkur þetta allt.
Silfurtúnglið er eitt þeirra leikrita, sem nauðsynlegt er
cið lesa, helzt áður en hlustað er á það frá sjálfu
ieiksviðinu.
HELGAFELL
Fastir áskrifendur geta vitjað bókarinnar
á afgreiðslu okkar Veghúsastíg 7
(Sírni 6837) til klukkan tíu í kvöld og
á morgun til liádegis.