Þjóðviljinn - 20.10.1954, Page 4

Þjóðviljinn - 20.10.1954, Page 4
S). — Í*JÖÐVILJINN — Miðvikudagur 20. október 1954 Ffármagn ríkislns á að þjóna þjóðinnl en ekki gera hana að þræli sínum Rikisstjórnin hrifsar í tolla og skatta um 42% af fekjum fimm manna verkamannafjölskyldu Seinni hluti ræðu Karls Guðjónssonar við 1. umr. íjárlaga fyrir árið 1955. Fyrri hluti ræðunnar var birtur I gær. ------------- ★ Það er ekki úr vegi að rif ja það dálítið upp með hverjum bætti tekjur ríkisins og þar •með tekjuafgangur er feng- inn. — Þeir sem samþykkja •kenningu Eysteins um það, að Jjað sé hin frábærlega ágæta f jármálastjórn í landinu -sem ein hafi bjargað því, að ekki er allt hrunið í kaldakol og mest vegna þess hve atvinnu- vegirnir séu þungir ómagar ,á þjóðinni, gætu hugleitt það hvaða atvinna það er sem þessi Eysteinn stunnar og 'gefur svona miklar og góðar tekjur að ríkið bjargast af þrátt fyrir ómegðina. —- Á fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að skattar og tollar ársins 1955 nemi 382 'millj. kr. Þetta er 44 millj. kr. hækkun frá síðustu fjár- lögum og kemur furðu illa heim við þær fullyrðingar málsvara ríkisstjórnarinnar -að lækkaðar skyldu skatta- byrðar á þjóðinni. Við afgreioslu skattalag- anna á síðasta þingi lét ' stjómin það í veðri vaka að breytingarnar á útreikningi tekjuskatts og eignarskatts mundu lækka þá skatt- greiðslu um 20% eða urn 12 millj. kr. Á f járlögum þessa árs, sem samþykkt vom meðan eng- 5n breyting var enn orðin- á skattalögunum vom skattar , þessir reiknaðir 56]/> millj. kr. En í fjárlagafrumvarpinu 5 Ár: er'gsri: ráð fyrir hækkun á þessum lið upp í 62,8 millj. > "og er því augljóst að þjóðin 'fær að borga rneira í tekju og eignarskatt eftir lagabreyt- ; inguna en fyrir hana. — Það et að vísu rétt, að skattstig- ■inn lækkaði heldur við til- k'omu hinna nýju skattalaga, en áætlanir ríkisstjórnarinnar vom á engu viti byggðar, þær vom eins og fjárlagafrum- varpið, samhengislausar við ]íf og starf þjóðarinnar, þær voru krot ofan í garnlar töl- iur, krot sem ekki stóðst próf veruleikans. En þótt fjárlagafmmvarp- ið geri ráð fyrir 382 millj. króna tollum og sköttum heint í ríkissjóð þá verður þjóðin fyrir atbeina ríkis- valdsins að gjalda miklu hærri þegnskyldu en þeiri upphæð nemur. Þá er ótalið bátagjaldeyrisálagið sem nema mun um 90 millj. króna fyrir utan þá verzlunarálagn- ingu sem ofan á það kemur, ennfremur er þá ótalinn bíla- skatturinn nýi, hverju sem hann kemur til að nema á næsta ári. Forsætisráðherr- ann hefur upplýst hér á þinginu, að á þeim árshluta sem sá skattur nær til á yfir- standandi ári, en það er tæpt hálft ár, muni hann nema 13 til 16 milljónum króna. Báta- gjaldeyrir og bílaskattur á- samt verzlunarálagningunni á bátagjaldeyrinn mun því kosta þjóðina eitthvað yfir 150 millj. kr. á næsta ári. Til þess að gl'öggva sig bet- ur á því, hvað lagt er á hverja einstaka fjölskyldu í landinu til þess að þurfa ekki að skerða gróðamöguleika, bankanna, olíuhringanna, Eimskipafélagsins, SlS og út- flutningseinokraranna, Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna og SÍF og annarra þeirra sem sem nú græða á kostnað at- vinnuveganna í skjóli ríkis- stjórnarinnar, skulum við hugsa okkur fimm manna fjölskyldu, hjón með þrjú börn. Tekjurnar skulum við ætla 40.000 kr. yfir árið, en það munu nokkuð algengar tekjur alþýðumanna nú og eru nokkru hærri en ófaglærð- ir verkamenn hafa fyrir 8 st. vinnudag. Við skulum enn- fremur reikna með því að fjölskyldan eigi sinn eðiilega þátt í neyzlu þjóðarinnar og viðskiptum. Svo er vert að finna hverja þegnskyldu slíkri fjölskyldu er gert að inna af hendi í ríkissjóð og í aðra sjóði eftir lagaboði frá Albingi og reglugerðum stjórnarráðsins. Sá reikningur yrði eitthvað á þessa leið: þótt fjármálaráðherra lands- ins miklist af því að hafa náð af þegnunum einhverjum milljónum meira en þörf var á!! Og nú fer það allt að verða Ijósara í hverju fjár- málasnilld ráðherrans liggur. Sífellt hækkandi partur af tekjum alþýðuheimilanna er upptækur ger með lögum og reglugerðum — stöðug óvissa um framtíð atvinnuveganna, rekstararstöðvanir á hverju ári — einokun á útflutnings- verzluninni og allskyns höft til verndar gæðingum ríkis- stjórnarinnar á innflutningn- um og hingað til hefur sér- hvert strand, sem stjórnin hefur siglt hinum einstöku þáttum atvinnulífsins í verið leyst með nýjum álögum á al- menning í landinu. Væri nú ekki eins hyggilegt fyrir hæstvirta ríkisstjórn að reyna að læra eitthvað af sí- endurtekinni reynslu um stöðvanir atvinnutækjanna og framleiðslutap, reyna að end- urskoða sína fjármálastefnu, reyna að undirbyggja öruggt atvinnulíf í landinu í stað þess að endurprenta sífellt sama blaðið og hafa það að leiðarvísi án tillits til þróun-^ arinnar í þjóðlífinu? Væri það ekki líka hyggilegt, ao gera sér einhverja grein fyrir því, að einnig sá tekjustofn- inn, sem ríkisstjórninni ei; ó- sárast um að nota af algjöru sjóði. Fjármálastjórnina verð- ur fyrst og fremst að meta eftir því, hvort hún eykur hagsæld þjóðarinnar og tryggir framtíðarmöguleika sjálfstæðs atvinnulífs í land- inu, hitt kemur' að minnsta kosti ekki fyrr en í annarri röð, hvort tekjur og gjöld hafa staðizt á í ríkissjóði eða hvort einhver mismunur kann að hafa orðið. Fjár- magn ríkisins á sem sagt að þjóna þjóðinni en ekki gera hana að þræli sínum Það er höfuðsynd núverandi fjármálastjórnar landsins að hafa bókstaflega gefizt upp við að reka sjálfstæðan þjóð- arbúskap á íslandi. Hún hef- ur um langt skeið að undan- förnu séð fram hjá þörfum íslenzkra atvinnuvega, og vanrækt skyldur sínar gagn- vart þeim. Þar á móti hefur hún lagzt sem betlari að fót- um ameríslca herveldisins og þegið þar gjafir, sem þjóðin þó hefur orðið að gjalda hærra verði en nokkuð annað. Og enn í dag stuðlar ríkisstj. að því eftir föngum að draga vinnuafl þjóðarinnar frá ís- lenzkum atvinnuvegum til starfa við stríðsundirbúning vina sinna í Reykjaneshrauni, enda hafa stjórnarflokkarnir nú verulegan gróða sem um- boðsaðiljar Bandaríkjahers við hernaðarframkvæmdirnar þar syðra og munu nú eftir alllangt þref vera búnir að koma sér niður á skiptingu þeirra fjármuna eftir sinni al- kunnu helmingaskipta-reglu. Þegar þessarra staðreynda er gætt verður margt skiljan- legra um fálæti stjórnarinn- ar í garð íslenzks atvinnulífs og raunar eklcert óskiljanlegt við fjármálastjórnina nema litilmennskan sem í því felst, að íslenzkir aðiljar, sem falin hafa verið hin ábyrgðarmestu trúnaðarstörf í sínu þjóðfé- lagi, skuli telja sér sæmra að snuðra eftir gróðamögu- leikum flokksklíkum sínum til handa en að einbeita sér að ‘lausn vandamála þjóðar sinn- ar. Ekki þætti mér ótrúlegt að ríkisstjórnin eða málsvar- ar hennar reyndu að hrynda ádeilum á fjármálast.jórnina með því að telja lífskjör þjóð- arinnar góð um þessar mund- ir. Satt er það að oft á tím- um hefur þjóðin átt við þrengri kost að búa en nú. En þau kjör sem þjóðin býr við nú á hún alls ekki ríkis- stjórninni að þakka, heldur hefur hún unnið sér þau í baráttu við þau öfl sem nú stjórna landinu. Alþýða lands- ins hefur þrásinnis orðið að beita mætti samtaka sinna til varnar þeim lífskjörum, sem Framhald á 11. síðu. Þegnskylda 5 manna fjölskyldu, sem liefur 40.000 kr. árstekjur (lijón með 3 börn) I. Óbeinir skattar . tþ; ■ 1. Aðflutningsg.jöld- á vörur. ... , . . . • Skv. fjárlagafrumvarpinu. jWU!1, t ,e. ... 181,5 millj. X 5/150000 ...... 6.050,00 2. Söluskattur Skv. fjá'rlagafnihiVarpihu “ •■"■"•• 107 millj. X 5/150000 ........... 3.567,00 3. Ýmiskonar aukagjöld í ríkissj. s.s. Skv. fjárlagafrumvarpinu stimilgj., leyfisbréfagj. o. fl. 24 millj. X 5/150000 800,00 4. Bátagjaldeyrir og álög á hann ásamt bílask. c.a. 150 millj X 5/150000 ........................ 5.000,00 15.417,00 II. Nefskattar Tryggingaiðgj_, sjúgrasaml., náms- bókagj. o.fl. um................. 1.400,00 1.400,00 III. Beinir skattar Tekjuskattur ........................... 283,00 fM vat - írtn in 283,00 Þá er ótalið útsvar, sem nokkuð er mismunandi eftir því hvar er á landinu. En þótt útsvarið sé ekki talið með 'kemur í ljós að samkvæmt beinu lagaboði greiðir slík fjölskylda 42,75 kr. af hvej- um 100 krónum sem henni á- skotnast í þegnskyldu aðra en útsvar. Þegar þess er gætt að útsvar slíkrar fjölskyldu í bæjum landsins er 2 til 3 þúsundir króna verður Ijóst að rétt um helmingur tekn- anna er af slíkri fjölskyldu tekinn og allar þarfir sínar verður hún að greiða af helm- ingi laimanna. Það er hreint ekki að furða 17.100,00 hlífðarleysi, sem sagt álög- urnar á alþýðu manna, á sér líka takmörk og það er með öllu áhugsandi að hið opin- bera geti gengið öllu lengra en .nú er þegar gert í því efni? Eg efast ekki um að meðal liðsmanna ríkisstjórnarinnar eru margir, sem telja þífð hyggilegra að taka af meira raunsæi á vandamálum þjóð- félagsins en núverandi ríkis- stjórn gerir. Eg held meira að segja að flestir aðrir en þá hæstvirtur fjármálaráð- herra viti það fullvel að það er ekki allt fengið með ein- hverjum tekjuafgangi í ríkis- Skýrsla írá Raímacmsveitunni — Heimtaugagjaldið kr. 180.0, —• Lokun og opnun. 1 ' •*. •* ••• fi EFTIRFARANDI bréf hefur, Bæjarpóstinum borizt frá skrifstofu borgarstjóra: „Vegna. skrífa í ',Öæjarþósti‘; Þjóðyiljáhs 19. ók'tóber, um viðskipti konu nokkurrar við Breiðholtsveg við Rafmagns- veituna, hefur skrifstofa borg- arstjóra óskað eftir skýrslu um málið frá Rafmagnsveit- unni, og þykir rétt að birta eftirfarandi frásögn umrædds starfsmanns, sem rafmagns- stjóri hefur vottað, að sé rétt í alla staði. Nöfnum skal þó sleppt. ,í tilefni af grein í ,Bæjar- pósti1 Þjóðviljans í dag, þar sem skrifað er um viðskipti konu við Breiðholtsveg, vegna reiknings fyrir heimtaug í hús hennar, og ókurteisi af minni hálfu í sambandi við inn- heimtu heimtaugargjaldsins, leyfi ég mér að taka fram eftirfarandi: Heimtaug þessi er lögð 11. október 1952. Þegar sótt er um heimtaugina þann 9. október 1952, eru greiddar kr. 900.00, þ.e. helm- ingur heimtaugargjaldsins. — Þann 28. febrúar 1953 er heimtaugarreikningurinn skrif- aður út, með skuldareftir- stöðvum kr. 900.00. Siðan hef- ur reikningurinn verið sýndur allt að því mánaðarlega. Þar sem engin greiðsla hafði farið fram frá því reikningur- inn var fyrst sýndur, var skuldaranum í maí sl. send tilkynning um, að straumur yrðiö*tekinn af' heiintáúginni vegna vanskila. Þrátt fyrir þessa tilkynningu voru engin skil gerð, og lokun því fram- kvæmd 28. maí sl. Næsta dag- (29. maí) kom konan í skrif- stofuna, og með henni maður, sem kvaðst vera uppeldisbróð- ir hennar. Var maður þessi í mjög æstu skapi útaf því, að lokað hafði verið fyrir straum- inn að húsinu, og krafðist þess, að ég léti opna strax aftur, án þess að greitt væri inn á reikninginn. Þessu neit- aði ég, en gaf þeim kost á að tala við rafmagnsstjóra, sem þau gerðu. Varð þá samkomu- lag um að þau greiddu strax kr. 150.00, og síðan mánaðar- lega kr. 100.00. Að ég hafi sýnt konunni .megnustu ókurt- eisi‘ í maí sl., en það er eina skiptið, sem ég hefi talað við hana, eru ósannindi, og geta þeir, sem samtalið heyrðu, vottað það. Þegar sýnt var, að konan ætl- aði ekki að standa við gerðan samning, var henni á ný send tilkynning um lokun, sem framkvæmd yrði eftir 28. september sl. Þann 4. október sl. greiðir svo eiginmaður konunnar aðeins kr. 100.00, og tilkynnti ég Framhald á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.