Þjóðviljinn - 24.10.1954, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 24.10.1954, Blaðsíða 3
2) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 24. október 1954 „Skyldu þau, ergiftast vildu í hvert sinn. . .“ Þótt oss komi því eigi til hug- ar að heimta bólfestu eður fast jarðnæði handa öllum, er gift- ast megi viijum vér samt, að litið sé á fleira en tilskipunin frá 30. apríl 1824 um skyldu presta víkjandi hjónaböndun- tlm tiltekur. Vér viljum, að einnig sé haft tillit til, livernig hjónaefnin séu að sér gjör að öðru leyti: að kristilegri sið- semi, að trárækni, trúmennsku, iðjusemi, hófsemi, ráðdeild, kunnáttu og dugnaði til stöðu sinnar, samt hlýðni og liollustu, er þau ógift voru, annaðhvort heima hjá foreldrunum eða sem hjú hjá öðrum, og að þau sem ávöxt af þessu eigi nokkrar eigur við að styðjast og því betra, ef líka væri viðunanlegt fast hæli . . . . En til þess að einnig þessir áminnstu hæfileik- af yrðu fyrir augum hafðir, er hjónabönd stofnuð væru, álit- um vér, að nægilega hvetja mætti, ef lijónabandslög vor yrðu þannig lagfærð. 1) að í staðinn fyrir þá (þýð- ingarlitlu) svaramenn, sem að undanförnu hafa átt sér stað, yrði kosin af lireppsbændum 5 manna nefnd í hrepp hverjum, að meðtölduin sóknarprestinum, er skyldu sín á milli meta þá hæfileika að siðferði, ráðdeild, dugnaði og efnaliag, er út- heimtast ættu til hjónabands fram yfir það, er í hér enn gildandi lijúskaparlögum á- kveðið er, 2) Skyldu þau, er giftast vildu í hvert sinn, snúa sér til for- manns slíkrar nefndar og hún ábyrgjast álit sitt og atkvæði fyrir nefnd þeirrar sveitar, þar sem maðurinn ætti framfærslu- rétt .... < (Or bænaskrá 33 ipanna í Múlasýslu til alþingis 1869.) rr w LYF JABÚÐIR tPÓTEK AUST- •tCvöiavá.rzlá til URBÆJAR kl. 8 alla daga • nema laugar- HÖLTSAPÓTEK daga til kl. 6. Næturvarzla er í Laugavegsapóteki. Sími 1618. Helgidagslæknir er Björn Guðbrandsson Hraun- teigi 16, sími 82995. □ 1 dag er sunnudagurinn 24. október — Proclus. 297. dagur ársins. — Tungl í hásuðri kl. 10:31. — Árdegisháflæði kl. 4:41. — Síðdegisháflæði kl. 16:57. Knattspyrnufélagið Valur hefur sýningu í Bókabúð Lár- usar Blöndals á munum, sem 2. fl. félagsins voru gefnir I hinni sigursælu Þýzkalandsför í sept- embermánuði sl. I gær voru gefin saman í hjóna- band Sigríður Finnbogadóttir og Stefán Vil- helmsson flugvirki. — Heimili þeirra er á Sogaveg 148. AnnaS spila- kvöld Sosíal- istaflokksins Annað spilakvöld Sósíal- istafélags Reykjavíkur á þessu hausti verður í Skátaheimil- inu í kvöld. Spiluð verður félagsvist að venju og góð verðlaun veitt. Þá segir Gunnar M. Magn- úss frá gangi undirskrifta- söfnunarinnar, og að lokum yerður svo dansað. Félagar eru áminntir um að koma það tímanlega að vistin geti hafizt kl. 9. Söfnin eru opina Landsbókasafnið kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka daga, nema laugar- daga kl. 10-12 og 13-19. Náttúrugripasafnið kl. 13:30-15 á sunnudögum, kl. 14-15 á þriðjudögum og fimmtudögum. Þjóðminjasafnið kl. 13-16 á sunnudögum, kl. 13-15 á þriðjud., fimmtu- dögum og laugardögum. Þjóðskjalasafnið á virkum dögum kl. 10-12 og 14-19. Dagskrá Alþingis Neðri deild mánudaginn 25. öktóbér' kP. 1:30. ' Gjaldaviðauki 1955, frv. 1. um- ræða. Tollaskrá o. fl., frv. 1. umr. Togarasmíði innanlands, frv. 1. umræða. Atvinnuframkvæmdir bæjar- og sveitarfélaga, frv. 1. umr. Efri deild mánudaginn 25. okt. klukkan 1:30. Vegalagabreyting, frv. 1. umr. Iðnskóli í sveit, frv. 1. umr. Útvarpið í dag: Kl. 9:10 Veðurfr. 9:20 Morguntón- leikar (plötur): (9:30 fréttir). a) Forleikur að „Töfraflautunni" eftir Mozart (Sinfóníuhljómsveit brezka út- varpsins; Toscanini stj.). b) Sin- fónía í D-dúr nr. 93 eftir Haydn (Konungl. philharmoníuhljómsv. í London; Beecham stjórnar). c) Sinfónía nr. 7 í E-dúr eftir Bruckner (Philharm.hljómsv í Berlín; Jascha Horenstein stjórn- ar). d) Þættir úr „Örlagagát- unni“, óratóríi eftir Björgvin Guðmundsson (Kantötukór Ak- ureyrar og einsöngvarar syngja; höfundur stjórnar). 13.00 Dagur Sameinuðu þjóðanna. Ávörp flytja: Forseti íslands, herra Ás- geir Ásgeirsson og dr. Kristinn Guðmundsson utanríkisráðherra. 15.15 Fréttaútvarp til íslendinga erlendis. 15.30 Miðdegistónleikar (plötur): Þættir úr óperunni „Pagliacci" eftir Leoncavallo. — Guðm. Jónsson söngvari flytur skýringar. 16.30 Messa í Laugar- neskirkju: Séra Árelius Níelsson. 17.30 Barnatími (Helga og Hulda Valtýsdætur): a) Þáttur um vet- urinn og trén. b) Sólveig Har- aldsdóttir (10 ára) leikur á pí- anó. c) Helga Valtýsdóttir og Helgi Skúlason lesa sögur. 18.30 Tónleikar (plötur): a) „Svana- söngur“, lagaflokkur eftir Schu- bert (Dietrich Fischer-Diskau syngur). b) Píanólög eftir Mend- elssohn (Cor de Groot leikur). c) Píanósónata í d-moll eftir Brahms (Joseph Szigeti og Egon Petri leika). d) Ungverskir dans- ar fyrir hljómsveit eftir Brahms. 20.20 Kórsöngur: Útvarpskórinn syngur; Róbert Abraham Ottós- son stjórnar (plötur): a) Offer- torium eftir Verdi. b) Eija Mater úr „Stabat Mater“ eftir Dvorák. 20.45 Leikrit: „Brúin, brúin brestur“ eftir Lars-Levi Lestad- ius, í þýðingu Elíasar Mar. — Leikstjóri: Haraldur Björnsson. Leikendur: Haraldur Björnsson, Hildur Kalman, Valur Gíslason, Valur Gústafsson, Jón Aðils, Arndís Björnsdóttir, Anna Guð- mundsdóttir og Nína Sveinsdótt- ir. 22.05 Danslög (plötur). — Ól.OO Dagskrárlok. Útvarpið á morgun: 18.00 fslenzkukennsla; II. fl. — Kennari: Bjarni Vilhjálmsson cand. mag. 18.30 Þýzkukennsla; I. fl. — Kennari: Dr. Jón Gísla- son skólastj. 18.55 Skákþáttur (Guðm. Arnlaugsson). 20.30 Út- varpshljómsveitin: a) Lög eftir íslenzk tónskáld. b) „Norma“, forleikur eftir Bellini. 20.50 Um daginn og veginn (Matthías Jo- hannessen stud. mag.). 21.10 Ein- söngur: Kristinn Hallsson syng- ur lög eftir Hugo Wolf við ljóð eftir Michelangelo; Frits Weissh- appel leikur undir á píanó. 21.25 íslenzkt mál (Bjarni Vilhjálms- son cand. mag.) 21.45 Upplestur: Kvæði eftir Pál S. Pálsson frá Winnipeg (Andrés Björnsson). 22.10 Útvarpssagan. 22.35 Létt lög: Heinz Sandauer o. fl. leika gömul, vinsæl danslög (plötur). Hekla, millilanda- flugvél Loftleiða, er væntanleg- til Reykjavíkur kl. 7.00 árdegis í dag frá New York. Flugvélin fer kl. 8.30 til Oslóar, Gautaborgar og Hamborgar. Edda, millilanda- flugvél Loftleiða, er væntanleg til Reykjavíkur kl. 19.00 í dag frá Hamborg, Gautaborg og Osló. Flugvélin fer til New York kl. 21.00. Starfsstúlknafélagið Sókn Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 25. okt. 1954 kl. 9 e. h. í Alþýðuhúsinu við Hverf- isgötu (gengið inn frá Hverfis- götu). — Stjórnin. Skipaútgerð ríkisins: Hekla fór frá Rvík í gær aust- ur um land í hringferð. Esja fer frá Rvík á þriðjudaginn vestur um land í hringferð. Herðubreið fer frá Rvík á morgun austur um land til Bakkafjarðar. Skjaldbreið er væntanleg til Rvíkur árdegis í dag að vestan og norðan. Þyrill er í Rvík. Skaftfellingur fer frá Rvík til Vestmannaeyja á þriðjudaginn. Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell kemur til Vestm- eyja í dag. Arnarfell er í Nap- oli. Jökulfell er væntanlegt til Oskarshamn á morgun. Dísar- fell er væntanlegt til Bremen í dag. Litlafell er í olíuflutning- um í Faxaflóa. Helgafell er væntanlegt til N.Y. þriðjudag- inn 26. þm. Sine Boye er vænt- anlegb til Hornafjarðar í dag. Kathe Wiaris hleður í Póllandi 28. þm. Gunnar Knudsen er í Reykjavík. Samtök herskálabúa halda fund annað kvöld kl. 8:30 í Tjarnarcafé, uppi. Rætt verð- ur um raðhúsin. Itrossgáta nr. 496. Lárétt: 1 syngur 7 sérhlj. 8 á fíl 9 skaut 11 skst. 12 jökull 14 flan 15 mjög 17 forskeyti 18 lærði 20 gengur greitt. Lóðrétt: 1 missa 2 suðuramer- ísk borg 3 leikfélag 4 lærði 5 kvennafn 6 fara í hengsli 10 hrós 13 getur 15 fyrir utan 16 skst. 17 dúr 19 menntastofnun. Lausn á nr. 495. Lárétt: 1 félag 4 tá 5 ás 7 enn 9 aum 10 ILO 11 möl 13 sá 15 la 16 landa. Lóðrétt: 1 fá 2 lón 3 gá 4 trans 6 svona 7 emm 8 Níl 12 önn 14 ál 15 la. Eimskip: Brúarfoss fór frá Rvík 21. þm. til vestur-, norður- og austur- landsins. Dettifoss fer frá N.Y. um 27. þm. til Rvíkur. Fjall- foss kom til Bergen 21. þm„ fer þaðan til Rotterdam og Ham- borgar. Goðafoss kom til Vest- mannaeyja í gærmorgun, fer þaðan í kvöld 24. þm. til Rotter- dam, Leníngrad, Kotka og Helsingfors. Gullfoss kom til Hamborgar 23. þm. fer þaðan til Kaupmannáhafnar. Lagar- foss fór frá Vasklot 21. þm. til Gdynia. Reykjafoss fór frá Rotterdam 21. þm. beint til R- víkur, viðkoma í Hull fellur niður vegna verkfalls. Selfoss fór frá Rvík 21. þm. til Akra- ness og þaðan vestur- og norð- ur um land til Aberdeen og Gautaborgar. Tröllafoss fer frá Vestm-eyjum í gær til Akra- ness og Hafnarfjarðar. Tungu- foss fór frá Rvík 15. þm. er væntanlegur til N.Y. í dag. Lúðrasveit verkalýðs- ins. Æíing í dag kl. 10 f.h. á Vegamóta- stíg 4. AUGLÝSIÐ í ÞJÓÐVILJANUM A skipsfjol var slegið upp veizlu, og Ugluspegill söng fyrir félaga sína, en Néla lék undir á flautu og Lambi kúlu- vambi barði trommuna. Ugluspegill söng hin hljómfögru þjóð- lög Flæmingjalands, en skipverjarnir tóku undir, svo að söngurinn ómaði um hafið. Einn dag í ágúst sat Lambi í þungum þönkum. Varðmennirnir stóðu á sínum stað í brúnni og litu fránum augum um liafflötinn. Ugluspegill kom þá til Lamba og sagði: — Þú ert farinn að horast vinur minn. Já, sagði Lambi, ég er bæði hryggur og þjáður, Hjarta mitt hefur tapað gleði sinni. Sunnudagur 24. október 1954 — ÞJÓÐVILJINN —* (3 Fást vélar I sementsverksmiðjuna og raforkuver frá Áustur-Þýzkalandi í skiptum fyrir fisk? Þingsálykíunartillaga Einars og Lúðvíks til umræðu á Alþingi Ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokks- ins er að reyna að telja íslendingum trú um að ekki sé hægt að koma upp sementsverksmiðju né öðrum stór- fyrirtækjum, nema með því eina móti aö knékrjúpa Al- þjóðabankanum bandaríska og sæta afarkostum hans. En allar líkur eru til að hægt væri að afla véla til sem- f.ntsverksmiðju, rafvirkjana og fleiri stórfyrirtækja, í Evrópu og greiða þær meö fiski á nokkrum árum. 1930—1940 mundi ekki óska eftir svipuðu ástandi á ný. Þingsályktunartillagan fjall- aði um að ríkisstjómin athugi Einar Olgeirsson lagði á- herzlu á þessi atriði í fram- söguræðu sinni á Alþingi í fyrradag, er til umræðu kom þingsályktunartillaga hans og Lúðvíks Jósefssonar um athug- un á útvegun véla í sements- verksmiðju og raforkuver frá Austur-Þýzkalandi. Áhugi fyrir kosningar Minnti Einar á þann brenn- andi áhuga sem vart hefði orð- ið hjá stjórnarflokkunum nokkru fyrir síðustu kosningar að hefjast handa um byggingu sementsverksmiðju, grunnur grafinn og óhemju af sandi dælt upp. En skömmu eftir kosningarnar hefði komið í ljós að komið var babb í bátinn með lánveitingu til fyrirtækis- ins frá þeirri lánsstofnun sem ríkíssstjórnin snýr sér jafnan til, Alþjóðabankans. Frá því war skýrt á Alþingi og ekki 'borið til baka að Alþjóðabank- inn hefði sett það skilyrði fyrir lánveitingu að Sementsverk- •smiðjan yrði ekki ríkisfyrirtæki eins -og ákveðið var í lögunum, ‘héldur skyldi henni komið í céigu emstaklinga. ísheTizkir auðkýfinga- ’ieppar E1 höfð væri í huga reynslan nieð Áburðarverk- ■smiðjuna væri Ijóst að þetta - væri stefnuatriði hjá. Al- ’þjóðabanltanum. Það ,sem fyrir honiun vekti væri sýni- lega að hér á íslandi risu upp auðkýfingar sem gætu notað fé ríkisins til að eign- ast stærstu fyrirtæki lands- Ins. Hvað sem liði vilja Jijóðarinnar og Alþingis ætl- uðu bandarísku auðkýfing- arnir að sveigja þróun at- vinnulífsins á Islandi inn á þessa braut. Ríkisstjórnin virðist hins vegar ekki enn hafa beygt sig fyrir þessum kröfum Alþjóða- bankans, en mun enn vera að reyna að komast að samning- um við hann um lán. Hins vegar virðist ríkisstjórnin á- líta að Islendingar megi ekki reisa sementsverksmiðju né önnur stórfyrirtæki nema með leyfi auðkýfinganna í New York. Það er ekki nóg að rík- isstjórnin þæfist fyrir og standi í þeirri meiningu að livergi sé hægt að fá lán ann- ars staðar. Vel er líklegt að hægt væri að fá lán í auðvalds- löndum Vestur-Evrónu og er sjálfsagt að athuga þann möguleika. Hitt væri þó bezt- ur kostur ef íslendingar gætu samtímis unnið fyrir þeim gjaldeyri sem til vélakaupanna þarf. Viðskipti við Austur- Þýzkaland Víst er að íslendingar geta selt miklu meiri fisk til Aust- ur-Þýzkalands en nú er gert. Treglega gekk að fá samninga um viðskipti við það land í gang, vegna þess að hér var við völd ríkistjórn sem var ekki um þau viðskipti gefið. Hins vegar hafa viðskipti við Austur-Þýzkaland reynzt mjög hagstæð, við fáum þar hæsta fiskverð og í staðinn góðar vörur á sæmilegu verði. A-Þýzkaland hefur þá sér- stöðu að þar mun hægt að fá flestar teg. véla í vöruskiptum við fisk. Okkur sem unnum að atvinnulegri uppbyggingu þjóð- arinnar eftir stríð hefðu þótt það fengur að eiga kost á slík- um viðskiptum, sagði Einar. Og við erum á þeirri skoðun sósíaiistar að heppilegra væri að flytja inn vélar í nauðsyn- legar verksmiðjur fyrir fisk- afurðir okkar en allt það gling- ur og óþarfa, sem nú er inn flutt, en þá mundu hins vegar máttarstólpar Sjálfstæðis- flokksins ekki græða eins mik- ið á innflutningnum! Einar kvaðst hafa vissu fyr ir því að hægt væri að gera vöruskiptasamninga eins og hér hefur verið minnzt á um vélar í hraðfrystihús. Og hann teldi mjög líklegt að einnig væri hægt að gera slíka samn- inga um vélar í sementsVerk- smiðju og raforkuver. Og væri hægt að greiða þær vélar með íslenzkum afurðum sem auð- velt er að framleiða miklu meira af en nú er gert, væri ekki vafamál að það væri heppi legri aðferð en stórkostlegar lántökur. Hver sem myndi hve erlendar lántökur hefðu verið landinu þungbærar á árunum i þessa möguleika. Því væri ekki slegið föstu að þeir séu fyrir hendi, en ef svo væri er tví- mælalaust rétt að athuga þessa leið. Bílamálið Framhald af 12. síðu. Kváðu þeir 200-300% lögð ofan á vegaskattinn, og nú ætti að hækka hann um 5 aura á lítra er renni í brúasjóð. Annað kvöld boðar FÍB til almenns borgarafundar, þar sem bílaeigendur ætla að skýra samborgurum sínum frá skatta- álagningunni, — sem bílaeig- endur kveðast ekki með nokkru móti geta unað við. Osvífin íhlutun í innri mál stcsrfs- stúlkna á sjúkrahúsum Þorsteinn Pétursson og Sóknarstjórnin í liðsbón hjá íorstjóra ríkisspítalannaU Þjóðviljanum barst seint í gær löng greinargerð frá >að til hans hefur verið farið í forstjóra ríkisspítalanna, hr. Georg Lúðvíkssyni, sem hðsbón af félagsstjórn Sóknar svar við grein Margrétar Auöunnsdóttur „Samningsbrot- og starfsmanni fulltrúaráðs in og Sóknarstjórnin“ sem birtist hér í blaðinu s.l. verkalýðsfelaSanna- aðilum fimmtudag. Vegna rúmleysis gat blaðið ekki birt þessa greinargerð í dag en birtir hana eftir helgina ásamt svari frá Margréti Auðunsdóttur. Þegar deilunni um fæðis- valdi að binda fyrir munninn greiðslurnar á Kleppi sleppir er þessi greinargerð forstjór- ans í fyllsta máta ósmekkleg íhlutun í innri mál þess stétt- arfélags sem ríkisspítalarnir eru samningsaðili við. Reynir forstjórinn að koma þeirri skoðun inn hjá lesendum og þá væntanlega ekki sízt starfs- stúlkunum, að stúlkur hafa hærra kaup en lágmarks- samningur ákveður, ættu að láta sér hægt um öll afskipti af kaupgreiðslum og stéttar- málefnum yfirleitt. Leggur forstjórinn mikla áherzlu á, að Margrét Auðunsdóttir, sé „ekki starfsstúlka“ heldur mat- reiðslukona og á hærra kaupi en samningur kveður á um! Kemst forstjórinn í lok greinar sinnar svo að orði: „En að vera ráðin hjá Landsspítálanum sem mat- reiðslukona (aðstoðarráðs- kona) með 2.500 króna mán- aðarlaunum, en gefa sig út fyrir að vera starfsstúlka með um 1.900 króna launum á mánuði, það eru óheilindi, sem varða stjórnendur ríkisspítal- anna og líklega starfsstúlkur í Sókn einnig“. Hvað er maðurinn að fara? Hverskonar hótanir eru hér eiginlega á ferðinni? Heldur þessi virðulegi þjónn þess op- inbera að það standi í hans á stéttvísum og dugandi fé- lagskonum í Sókn, þótt það fyrirtæki sem hann stjórnar neyðist til að greiða hærri laun, vegna vöntunar á vinnu- krafti, en lágmarkssamningur kveður á um? Matreiðsla á spítölunum heyrir undir starfssvið Sóknar og einskis sem annars stéttarfélags í alþýðu- samtökunum, þótt hann heiðri Margréti Auðunsdóttur að ó- fyrirsynju með því að titla hana „aðstoðarráðskonu", en því starfi gegnir allt önnur stúlka hjá Landsspítalanum og það ætti forstjóranum að vera kunnugt um. Georg Lúðviksson ætti að gæta sín fyrir ,,vinum“ sínum. Grein hans ber það með sér sem standa höllum fæti vegna slælegrar frammistöðu í þeim málum sem þeim var trúað fyrir og snertu viðskipti við þær stofanir sem honum er falin forstaða fyrir. Það er ekki vænlegt til bættrar sam- búðar eða gagnkvæms skiln- ings milli starfsstúlknanna á ríkisspítölunum og forstjórans, að hann skuli láta nota sig á jafn ófyrirleitinn hátt í inn- anfélagsdeilu um stéttarmál- efni og greinargerð hans ber vott um. Skal Georg Lúðvíkssyni ráð- lagt í fullri vinsemd og af heilum hug að hugsa ráð sitt betur áður en hann lætur nota sig í annað sinn í svipuðum tilgangi, þótt til hans verði leit- að af sömu aðilum. Væri hon- um hollt að gleyma því ekki að hann er fulltrúi opinberr- ar stofnanar en ekki vikapiltur afturhaldsins í verkalýðshreyf— ingunni. Iláskóli f slands settur Framhald af 12. síðu. ina, sem staðsett yrði í námunda /ið Landspítalann og starfa myndi í nánu sambandi við hann. En þetta verkefni yrði að bíða, því að á næstu árum hefði Háskólinn nóg fyrir stafni við að koma upp náttúrugripasafn- húsi. Vonandi verður hægt að byrja smíði þess húss á næsta ári, sagði háskólarektor. HAFIÐ ÞIÐ HEYRT ÞAD! 4 hlutaveltu Félags Borgfirðinga eystri Engin núll og ekker happdrætti í Í.R.-húsinu við Túngötu í dag klukkan 1 er hægt að vinna kjötskrokka, kartöflupoka, ryksugu, hveitipoka ásamt sælgæti, gosdrykkjum og f jölda annarra góðra og eigu- legra muna, sem of langt yrði upp að telja. Ókeypis aðgangur iyrir börn. Kr. 1.00 fyrir fullorðna. 4 nýir doktorar Á s. 1. ári veitti Háskóli ís— lands þrem mönnum doktors— nafnbót, heimspekideildin þeim. Guðna Jónssyni magister og cand. mag. Halldóri Halldórssyni dósent, og læknadeildin Bjarna Jónssyni lækni. Árnaði rektor hinum nýju doktorum allra heilla í nafni Háskólans. Þá lýsti Einar Ól. Sveinsson próf., forseti heimspekideildar, yfir því að deildin hefði hinn 15. þ. m. samþykkt að kjósa mag. scient. Árna Friðrikssyni heið- ursdoktor í heimspeki. Raktí próf. Einar í stuttu máli hin margþættu vísindastörf Árna Friðrikssonar á sviði fiskirann- sókna, en að því loknu lýsti Þor- kell Jóhannesson rektor yfir því að Árni væri rétt kjörinn dr, phil. honoris causa. Er rektor hafði lýst störfum Háskólans á liðnu ári, var enn fluttur þáttur úr tónverki Páls ísólfssonar, en því næst ávarp- aði rektor nýju stúdentana, minnti þá á að rækja störf sín af reglusemi og ástundun, og afhenti þeim síðan háskólaborg- arabréfin. Fór sú athöfn nú fram í hátíðasal skólans í fyrsta sinn um margra ára skeið. Há-f skólahátíðinni lauk með því aJ þjóðsongurinn var sunginn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.