Þjóðviljinn - 07.11.1954, Side 6

Þjóðviljinn - 07.11.1954, Side 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 7. nóvember 1954 ----- llJÓOVIUINN Útgefandi: SameiningarfloUkur alþýSu — Sósialistaflokkurinn. ! Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)' ' Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson. Bjarnl Benediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, ilagnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu3tlg lfl. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. 1 Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. ' fsland og Sovétríkin ' Síðan Þjóðvarnarflokkurinn var stofnaður hefur hann gagnrýnt sósíalista harðlega fyrir það að þeir fást ekki til að taka þátt í hatursáróðrinum gegn sósíalismanum og fyrst og fremst Sovétríkjunum. Klifar blað Þjóðvarn- armanna á því að með þessu hafi sósíalistar dæmt sig úr leik í baráttu íslendinga gegn hernáminu og bandarískri ásælni. Eina rétta leiöin sé að taka hástöfum undir Eússaníðið og mótmæla jafnframt afsali landsréttinda, enda hefur þeirri reglu verið fylgt mjög trúlega í Frjálsri þjóð og ræðum Þjóðvarnarleiðtoganna. Það er ástæöa til að benda á að þetta er mjög hættu- leg rökleysa. Að sjálfsögðu er þaö fráleit ósvífni að ætl- ast til þess að íslenzkir sósíalistar fari að níða félaga sína í öðrum löndum sem eru að byggja upp hjá sér nýjan heim. En sú afstaða að láta undan síga fyrir Itússagrýlunni er ekki síður fráleit fyrir aöra hernáms: andstæðinga; með því að taka undir söng hernámsbláð- anna um þau efni eru þ^ir að berjast gegn sínum eigin stefnumiðum (sé um heilindi áð ræða) og festa hernáms- öflin í sessi. Rússaníöið á sér ekki fyrst og fremst forsendur og skýringar austur í Sovétríkjunum heldur hér á íslandi. Þegar stjórnarblöðin reka upp gól sín eru skýringarnar ævinlega atburðir sem eru. aö gerast hérlendis, ýmist bar- átta gegn nauðsynjamálum eða röksemdir fyrir óþurft- arverkum. Þegar verkalýðssamtökin heyja kjarabaráttu, upphefst sevinlega ófagur söngur um Sovétríkin, og sagt er að það séu Rússar sem eru áð æsa upp kröfugirnina í íslend- ingum. Þegar borin eru fram á þingi réttlætismál alþýðu eru svörin jafnan fúkyrðaaustur um þessa fjarlægu við- skiptaþjóð okkar. En fyrst og fremst hefur Rússaníðinu verið beitt til þess að rökstyðja hernámið og allar aðgerðir í sambandi við það. Það er sagt að við verðum að hafa hér erlenda '•stríðsmenn vegna þess að Sovétríkin bíði þess grá fyrir járnum að geta hremmt landið. Er klifað á þessu með fjölþættustu tilbrigðum dag eftir dag, og oft fær áróð- nrinn á sig hinn skoplegasta blæ; þannig getur fljúgandi lómur orðið æsingaefni dögum saman og sönnun um skuggaleg áform Sovétrússa svo ekki sé minnzt á búsá- höldin í loftinu. En hins er ekki aö dyljast að þessi áróð- ur hefur haft áhrif, hann er einasta ,,röksemdin“ fyrir hernáminu, einasta réttlæting jafnt forustumanna her- námsflokkanna sem fylgjenda þeirra. Væri grýla þessi ekki mögnuð sem ákaflegast gætu þeir með engu móti aísakað svik sín viö sjálfstæði og réttindi þjóðarinnar. Af þessu leiðir að það hlýtur að vera eitt brýnasta verkefni allra einlægra hernámsandstæðinga að tæta þessar blekkingar sundur, því um leið og Rússagrýlan er farin veg allrar veraldar er ekki stætt á hernámi lands- ins. Þetta veröur aöeins gert með því aö láta Sovétríkin og önnur sósíalistísk lönd njóta sannmælis, birta sjónar- inið þeirra óbrengluð og auka hlutlæga þekkingu hvers einasta íslendings, þannig að menn geti lagt sjálfstætt mat á aðstæður heimsstjórnmálanna og gleypi ekki við fráleitum þvættingi af þekkingarskorti. Félagið Menn- ingartengsl íslands og Ráöstjórnarríkjanna hefur þegar unnið mjög gott verk á þessum sviðum, aukið gagn- kvæma þekkingu og persónuleg tengsl milli landanna. Það er ástæða til að þakka félaginu sérstaklega þetta mikilvæga framlag til sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar; á þessu sviði sem öörum mun þekkingin gera okkui’ frjálsa. En það er glöggt dæmi um öfuguggahátt og rökleysur Þjóðvarnarmanna, að þeir hafa lagt sérstakt kapp á að afflytja þessa starfsemi MÍR — ef skýringanna er þá ekki að leita í enn lakari hvötum. ‘ Sovétríkin eru nú mikilvægasta viðskiptaland fslend- ánga. Hlutlæg þekking á Sovétríkjunum og stefnumiðum þeirra er ein meginforsenda þess að við höldum skynsam- 2ega á okkar eigin vandamálum. Fram hjá þessum stað- reyndum verður ekki komizt. SKAK Ritstjórii Guðmundur Arnlaugsson Svissneskur sigur í Amsterdam í neðra flokki skákmótsins í Amsterdam var keppnin afar tvísýn fram á síðustu stund. Framan af leit út fyrir að bar- áttan um fyrsta sætið mundi standa milli Kanada og Aust- urríkis, en þegar fór að síga á seinni hlutann kom þriðji kandídatinn til sögunnar, Sviss- lendingar, er unnu þessar þjóð- ir hvora um sig með 3 vinn. gegn 1 og voru þá komnir jafn langt þeim. Spenningurinn óx með hverri umferð og á síðustu skák mótsins valt röð þessara þriggja þjóða. Henni lauk svo að Svisslendingar hrepptu fyrstu verðlaun með 37 vinn., Kanada önnur með 36 vinn. og Austurríki þriðju með 36 vinn- inga. Rétt neðan við þessar þrjár þjóðir koma Danir með 34(4 vinn., en síðan er góður spölur niður að næstu löndum: Ítalíu, Kólombíu, Belgíu, Finn- landi, Frakklandi, Saar, Noregi, Grikklandi, írlandi og Lúxem- burg. Þessi sigur Svisslendinga kom mönnum á óvart, en þeir voru vel að honum komnir. Þeir unnu alla leiki sína nema tvo: gerðu jafntefli við Dani og töpuðu 3:1 gegn Grikkjum. Lið þeirra var að verulegu leytí skipað ungum lítt þekktum mönnum: J. Kupper, M. Blau, E. Nievergelt, E. Bhend, E. Walther og O. Zimmermann. Hæstu vinningahlutfalli náði Bhend, 10 vinningum af 13, en þeir Walther og'Kupper voru aðeins lítið lakari. Hér fer á eftir ein af skákum Svisslend- inganna. Sikileyjarleikuv. Bhend Lokvenc (Sviss) (Austurríki) 1. e2—e4 c7—c5 2. Rgl—f3 Rb8—c6 3. d,2—d4 c5xd4 4. Rf3xd4 Rg8—f6 5. Rbl—c3 d7—d6 6. BH—e2 e7—e6 7. 0—0 a7—a6 8. Bcl—e3 Bf8—e7 9. f2—f4 Dd8—c7 10. Ddl—el 0—0 11. Del—g3 Hf8—d8 12. Hal—dl Ha8—b8 Hrókurinn stendur ekki vel á b8 eins og fljótt kemur í ljós. 13. Kgl—hl Rc6xd4 14. Be3xd4 b7—b5 Með þremur síðustu leikjum sínum hefur svartur ætlað sér skæruhemað á jaðrinum drottningarmegin, en þeir leiða hann beint til tortímingar með furðu skjótum hætti. 15. e4—e5! Rf6—e8 Að drepa á e5 kostar skipta- mun eða annað verra, svo að riddarinn verður að fara til e8, en þaðan hindrar hann mát á g7 eftir að hvítur hefur leikið exd6. 16. e5xd6 Be7xd6 17. Rc3—e4! Hótar að vinna skiptamuninn á einfaldan hátt með Rxd6 og Be5. Við þessu er engin sæmi- leg vöm, Bf8 strandar á Be5, og De7 á Rxd6, Hxd6, Bc5. Lokvenc reynir að valda e5 og g7, en tapar bara á annan hátt. 17. ... n—f6 18. Re4xf6f Re8xf6 19. Bd4xf6 Hd8—f8 20. Bf6xg7! Bd6xf4 Svartur reynir að vinna annað péðið aftur. Skárra var Dxg7, en leiðir þó einnig til taps. Hvítur á leik og mátar ekki síðar en í þriðja leik! TAFLLOK eftir F. J. Prokop, Tékkóslóv. í tafllokum eru eins og í öðrum skáldskap tvær höfuð- stefnur, rómantíska stefnan og raunsæisstefnan. Sumir tafl- lokahöfundar eru alveg ó- hræddir við að láta gamminn gelsa, spinna hverja furðusög- una af annarri og kæra sig kollótta þótt fram komi fárán- legustu og ólíklegustu taflstöð- ur. Aðrir hafa hið teflda tafl sífellt í huga og eftir þessum tafllokum að dæma virðist Pró- kóp í þeírra hóp. Þessi staða gæti sem hæglegast verið úr tefldri skák og framhaldið er í stíl við upphafsstöðuna. Hvítur á að vinna. Liðsaflinn er svipaður, en hvítur stendur betur að því leyti að svarti kóngurinn á að- eins einn reit fyrir utan þann sem hann stendur á, og má því gæta sín að verða ekki mát. Þetta færir hvítur sér í nyt. 1. Kgl. Hótar máti, bæði með Bfl og Bd7. Nú eru góð ráð dýr. 1. _ Hg8t 2. Khl Re3! Snjall leikur og eina vörnin. Ef nú 3. Bxe3 þá 3. — Kg3 4. Bc6 Hf8 5. Kgl Hxf3 6. Bxf3 Kxf3 og skákin verður jafntefli. 3. Bd7t Rg4. Bersýnilega eina vörnin. Nú dugar hvorki Bxg4ý né fxg4 nema til jafnteflis. Hvemig á hvítur þá að fara að? 4. Kgl! Kóngurinn heldur aftur heim á fl til þess að losna við patthættuna. 4. — Hg7 5. Bf5 Hg5 Svartur á ekki um annað að velja. 6. gxf5 Nú er hvítur búinn að vinna mann, biskuparnir og peðið vinna hægt og sígandi gegn hróknum ef svartur hefst ekki eitthvað að. Hvítur þarf þá aðeins að gæta sín að gefa svarti ekki kost á að skipta hróknum fyrir annan biskupinn og peðið, en hjá þvi er unnt að komast með lagni. En hvern- ig er það þá með pattið? 6. — Hxg5ý Síðasta tilraunin! 7. Kfl! Nú er svartur í leik- þröng, hann missir því hrókinn og hvítur vinnur í fáum leikj- um, eitthvað á þessa leið: 7. — Kh2 8. Bxg4 Khl 9. Be3 Kh2 10. Bf4t Khl 11. Bf3 mát. Þannig vann hvítur taflið á einfaldan en snotran hátt, með því að ná valdi á h2 með kóngi sínum og sleppa því síðan aftur. Euwe — Stáhlberg. Rétt í því að þessar línur voru ritaðar hringdi til mín einn ágætur skákmaður hér í bæ og benti mér á, að Stáhl- berg á betri vörn í skákinni við Euwe í síðasta þætti, ef hann leikur Df7 í stað Db6 i 28. leik. Með því að láta skipta- mun ef svo ber Undir getur svartur knúið fram tafllok með drottningu gegn tveimur hrók- um, þar sem að minnsta kosti er ekki jafri auðvelt að rekja vinning og í skákinni sjálfri. Samkeppnin. Ein úrlausn hefur borizt í samkeppninni um vinningsleið Guðmundar Pálmasonar í skák- inni við Rossetto og verður væntanlega birt í næsta þætti. Menn eru því beðnir að hraða sér ef þeir ætla að taka þátt. | fslenzk tónlistaræska er að hefja annað starfstímabil sitt og býður : meðlimum sínum á hljómleika Sinfóníuhljóm- sveitarinnar, sem haldnir verða í Þjóðleikhúsinu ] þriöjudaginn 9. nóv. kl. 9 e.h. Meðlimir, sem hafa ekki enn greitt félagsgjald | sitt fyrir þetta ár, svo og þeir er óska að gerast meðlimir, geta vitjað aðgöngumiða í tónlistar- : skólann, Laufásveg 7, n.k. mánudag og þriðjudag kl. 5-7, og greitt árgjaldið um leið, sem er 100 \ krónur fyrir 10 hljómleika.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.