Þjóðviljinn - 02.12.1954, Page 5
Fimmtudagur 2. desember 1954 — ÞJÓÐVILJINN —- (5
Bonnráðherra aðalræðu-
maðuráfunditrylltranazista
AndsfœSingar hervœcSingar kal'aSir
landráSamenn og gyBingasvln
Einn af blaðmönnum danska ílialdsblaösins Berlingske
Tidende, Bonde- Henriksen, hefur verið í Berlín og send-
ir blaði sínu hrollvekjandi lýsingu á fundi, sem nazistar
héldu í íþróttahöll nazista og einn af ráðherrum Aden-
auers flutti aðalræöuna á.
Á fundinum voru 6-7000 naz-
istar, margir þeirra í einkenn-
isbúningum stormsveitanna.
Þeir hrópuðu í kór: „Heil
Deutschland,“ — og þegar dr.
Seebohm, samgöngumálaráð-
herra Bonnstjórnarinnar réðst
á þá Þjóðverja sem mótmælt
hafa hervæðingunni öskruðu
þeir: Landráðamenn! Gyðinga-
svín! Þið hafið víst naumlega
sloppið frá gasofnunum!
Stríðsglæpamenn hylltir.
Fundarmenn létu fögnuð
sinn óspart í ljós, þegar ráð-
herrann krafðist þess, að allir
Þjóðverjar sem afplána -fang-
elsisdóma fyrir stríðsglæpi verði
látnir lausir.
Ráðherrann sagði: „Það lýð-
ræðisuppeldi sem þýzka þjóðin
hefur fengið síðan 1945 hefur
ekki haggað hinum ævaforna
grundvelli hennar“. Og síðan
komu magnaðar lýsingar á
göfgi hins þýzka kynstofns í
Blut-und-Erde stíl, svo að hin-
um danska blaðamanni datt
helzt í hug að kynþáttafræðing-
ur nazista, Rosenberg, sem
hengdur var í Nurnberg, væri
risinn úr gröf sinni.
„Deutschland iiber alles“.
Að ræðu ráðherrans lokinni
Churchill lýsti því yfir fyrir
nokkrum dögum, að hann hefði
í stríðslok gefið Montgomery
marskálki fyrirskipun um að
safna saman þýzkum vopnum
og geyma þau svo að nota
mætti þau til að vopna þýzkan
her gegn Sovétríkjunum síðar
meir.
Barbara Castle lýsti yfir, eft-
ir að þessi ummæli Churchills
urðu kunn, að hún væri sann-
færð um, að margir þingmenn
hefðu látið hjá líða að hylla
hann á afmælinu, ef þeir hefðu
haft hugboð um þessi dæmafáu
óheilindi hans í garð banda-
manna Breta á stríðsárunum.
Vopnin voru geymd til 1948.
Eins og áður hefur verið
skýrt frá hér í blaðinu hefur
Churchill sætt mikilli gagnrýni
fyrir þessi ummæli, enda stang-
ast þau óþyrmilega á við þann
áróður vesturveldanna, að Sov-
étríkin hafi byrjað „kalda
stríðið."
reis söfnuðurinn á fætur og
söng „Deutschland, Deutsch-
land uber alles“. Ráðizt var á
þá sem ekki þóttu nógu fljót-
ir til að rísa úr sætum sínum
með spörkum og höggum „eftir
beztu fangabúðafyrirmynd,“
segir Bonde-Henriksen.
Ráðízt á blaðamenn.
„Erlendum blaðamönnum,
sem ekki tóku undir þennan lof-
söng heimsvaldasinna, var hót-
að barsmíðum og voru kallaðir
„kommúnistasvín.“
Áður en Seebohm tók til
máls lék lúðrasveit vinsælustu
hersöngvana frá dögum Hitlers,
m. a. „Die Wacht am Rhein“ og
„Deutsch ist die Saar.“ Gestir
voru boðnir velkomnir, þ.á.m.
frá „Hilfsgemeinschaft ehemal-
iger Angehörigen der Waffen
SS“ (stormsveitunum), og
fagnaðarlátunum ætlaði aldrei
að linna þegar þessir „góðu
og heiðvirðu þýzku borgarar"
voru hylltir.
Blaðamenn kæra.
Félag erlendra blaðamanna í
Berlín hefur lagt fram kæru
vegna framkomu fundarmanna
við tvo erlenda blaðamenn, sem
á fundinum voru. Gerður var
Brezka utanríkisráðuneytið
hefur gefið út tilkynningu í til-
efni af þessum ummælum
Churchills, og segir í henni,
að þýzku vopnin hafi verið
geymd til ársins 1948. Þá hafi
þau verið eyðilögð að nokkru
leyti, en nokkrum hluta þeirra
skipt á milli hernámsliða vest-
urveldanna.
Skýrir bann.
Þessi tilkynning skýrir hvern-
ig á því stóð að Bretland og
Bandaríkin bönnuðu eftirlits-
foringjum Sovétríkjanna að
fylgjast með afvopnun þýzka
hersins og eyðileggingu vopna
hans, eins og ráð hafði verið
fyrir gert í Potsdamsamningn-
um. Á sama tíma skoðuðu
brezkir, bandarískir og fransk-
ir foringjar í hvern krók og
kima á hernámssvæði Sovét-
ríkjanna og sannfærðust um,
að þau höfðu staðið við gerða
samninga og eyðilagt öll vopn,
allar hergagnaverksmiðjur og
öll hernaðarmannvirki.
frá ýmsum nazistásamtÖkum
aðsúgur að þeim þegar þeir
neituðu að taka undir nazista-
söngvana. Kæran hefur verið
send Bonnstjórninni. Formaður
sóknarfélags Gyðinga í Berlín,
Galinski, og formaður verka-
lýðsfélaga Vestur-Berlínar,
Scharnowski, hafa einnig sent
mótmæli til Bonnstjórnarinnar
út af þessum fundi.
135 millj* hr.
landhelgiseht
Blöð í Lima, höfuðborg Suð-
ur-Ameríkuríkisins Perú, skýrðu
frá því í gær að vátrygginga-
félagið Lloyds í London hafi
fallizt á að greiða þriggja millj-
óna sterlingspunda (135 millj.
króna) sekt sem skipstjórinn
á hvalveiðimóðurskipi gríska
útgerðarmannsins Onassis hef-
ur verið dæmdur í.
Fyrir hálfum mánuði tóku
herskip og flugvélar móðurskip-
ið og fimm af tólf hválveiði-
bátum að veiðum innan við
200 mílna landhelgislínu Perú.
Onassis tryggði skip sín fyrir
landhelgissektum hjá Lloyds
áður en hann sendi þau til
veiða .
Hrakfavir heims-
meisfaraima
Framhald af 1. síðu.
uðum sem liðnir eru síðan
þeir urðu heimsmeistarar. —
Fyrst töpuðu þeir fyrir
Frökkum 3:1 og svo fyrir
Belgum 2:0.
1 leiknum í gær settu Eng-
lendingar eitt mark í fyrri
hálfleik. Ensku mörkin skor-
uðu þeir Bentley, Allen og
Shackleton. Leikurinn fór
fram á Wembley og áhorf-
endur voru 100.000.
Dvalarheimili
aldraðra sjómanna
Minningarspjöld fást hjá:
Happdrætti D.A.S. Austur-
stræti 1, sími 7757 — Veiðar-
færaverzlunin Verðandi, sími
3786 — Sjómannafélag Reykja-
víkur, sími 1915 — Jónas
Bergman, Háteigsveg 52, sími
4784 — Tóbaksbúðin Boston,
Laugaveg 8, sími 3383 —
Bókaverzlunin Fróði, Leifs-
gata 4 — Verzlunin Lauga-
teigur, Laugateig 24, sími
81666 — Ólafur Jóhannsson,
Sogabletti 15, sími 3096 —
Nesbúðin, Nesveg 39 — Guðm.
Andrésson gullsm., Laugaveg
50 sími 3769
í Hafnarfirði:
Bókavertlun V. Long, 9288.
Otbreiðið
Þjóðviljann!
Tók czftur cdmælis-
gjöf til Churchills
Einn af þingmönnum brezka Verkamannaflokksins,
Barbara Castle, tók aftur gjöf sína í afmælissjóð sir
Winstons Churchills, þegar hann ljóstraði upp um að
hafa þegar áður en stríði lauk setið á svikráðum við
Sovétríkin.
tíandaríska hernámsliðið í Vestur-Þýskalandi hefur ver~
iö búið kjarnorkuvopnum. Myndin er tekin þar í landi ný*
lega af fallbyssu sem skjóta má úr kjarnorkuskeytum.
Kisfa Karls Marx
flyfl í nýja gröf
Kista Karls Marx í Highgate-kh’kjugarði í London hef-
ur verið flutt á annan og betri staö í garðinum. ;
Þetta var gert að fyrirlagi^
minningarnefndar Karls Marx.
Gröf hans var
á afviknum
stað í kirkju-
garðinum og
var erfitt fyr-
ir ókunna að
rata að henni.
Minnisvarði
með nafni
hans verður
Karl Marx látinn standa
— •>
á gömlu gröf-
inni.
Kistur hans, konu hans
Jenny, eins af barnabörnum
hans, Harrys Longuet, og vinnu-
konu þeirra hjóna, Helenu Del-
muth, voru allar fluttar í hinn
nýja grafreit.
Sótt var um leyfi til flutn-
ingsins til ensku stjórnarinnar
og veitti hún það fúslega.
Minningarsjóður
íslenzkrar alþýðu um
Sigíús Sigurhjartarson
Tjarnargata 20
Munið að gera skil á greiðslu-
loforðum til sjóðsins.
Bandalag USA og
Sjang Kaiséks
Framhald af 1. síðu.
samninginn, að Bandaríkja-
stjórn hefði ekki haft samrádí
við brezku samveldislöndin uini
að gera hann og stjórnum.
þeirra væri ókunnugt um efni
hans.
Blaðamennirnir spurðu Dull-
es um afstöðu hans til kröfafc
Knowlands öldungadeildar-
manns um hafnbann á Kína tit
að kúga Kínastjórn til að láta.
lausa 13 Bandaríkjamenn, sens.
dæmdir hafa verið fyrir njósn-
ir. Dulles svaraði, að ef ekkí
tækist að fá fangana lausa me&
friðsamlegu móti, gæti svo far-
ið að bandaríska flotanum yrðt
skipað að setja hafnbann á
Kína.
Churchill
Framhald af 1. siðu.
staðfesta samningana um her—
væðingy Vestur-Þýzkalands tet.
ég að kominn sé rétti tíminn tiL
að taka upp samninga við sovét—
stjórnina.