Þjóðviljinn - 16.12.1954, Side 6
— ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 16. desember 1954
lllÓÐVIUINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig
19. — Sími 7500 (3 linur).
Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavik og nágrenni; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviijans h.f.
Vanmáttarkennd Framsóknarleiðtoga
Óróleikinn sem gripið hefur um sig innan stjórnarflokk-
anna út af úrslitum Alþýðusambandsþingsins kemur nú skýrt
í ljós. Er Morgunblaðið sýnilega farið að óttast að vinstri sam-
vinnan muni gera fyrirætlanir íhaldsins um hreinan þingmeiri-
Muta að engu.
I leiðara Tímans í fyrradag er ráðizt harkalega á Sósíal-
istaflokkinn. Talað um „einræðis- kúgunar og helstefnu hans,
liundflatan undirlægjuhátt undir stjórninni í Kreml, fimmtu-
herdeild“ og fleiri slíkar „heiðurseinkunnir.“ Og endað með
oeyðarákalli um stuðning við Framsóknarflokkinn.
í gær kveður aftur við sama tón í því blaði. Allt em
þetta gömul margþvæld slagorð, löngu búin að missa mátt
ailan og áhrifavald. öll íslenzka þjóðin þekkir nú starf Sósíal-
istaflokksins nú í hálfan annan áratug. Hún veit að hann hefur
'barizt fyrir hverskonar framförum I atvinnulífi þjóðarinnar,
fi’rir byggingu nýs fiskiskipaflota, eflingu fiskiðnaðar, og ann-
ars iðnaðar. Hún veit að hann hefur barizt fyrir eflingu
iandbúnaðarins, fjölgun býla og allra flokka mest stutt að
því að bændur fengju viðunandi verð fyrir framleiðslu sína.
Hún veit einnig að hann hefur barizt fyrir hækkuðum tekj-
um verkafólksins og gegn verðbólgupólitík síðustú ríkisstjóma,
sem ætíð hafa markvisst reynt að ná aftur með hækkaðri dýr-
tíð hverri kjarabót, sem verkalýðurinn hefur öðlazt. Þjóðin
veit einnig að Sósíalistaflokkurinn hefur sífellt staðið fremst,
í baráttu fyrir félagslegum réttindum almennings, ekki sízt
í húsnæðismálum og fyrir útrýmingu heilsuspillandi íbúða. Og
síðast en ekki síst er hann eini aðili sem frá byrjun hefur
staðið heill og óskiptur gegn hernámi Islands og afsali ís-
Jenzkra landsréttinda. Sé þetta allt gert eftir fyrirskipunum
frá Kreml og í samræmi við hagsmuni Rússastjórnar, þá má
í-annarlega fullyrða, að þeir séu í merkilega góðu samræmi
við hagsmuni íslenzks almennings og íslenzku þjóðarinnar.
Enda veit hver maður að hér liggur allt annað til grundvallar.
Óp og öskur af þeirri tegund, sem hér er um að ræða,
stafa ætíð af sjúku sálarástandi þess er skrifar, og ber því
íyllsta vott um vanmáttarkennd gagnvart andstæðingnum.
Þessi sálsýki getur stafað af ýmsu, en í þessu tilfelli stafar
hún af tvennu. I fyrsta lagi þvi, að sá sem pennanum stjórnar
vcit sjálfur vel, að hann er að verja rangan málstað. Þess
vegna skortir hann rök og neyðist því til að beita ókvæðis-
•orðum í staðinn. Hin ástæðan er sú, að hann veit, að hans
e'gið fólk, sem hann skrifar fyrir, sér í gegn um blekkinguna
og er að yfirgefa flokkinn á ýmsan hátt vegna stefnu hans
og þjónkunar við það íhald, sem Tíminn öðrum þræði líkir við
fasistastjórnir annarra heimsálfa. Þar af stafa hin síendur-
teknu neyðarköll, um stuðning við Framsóknarflokkinn, en
hinsvegar forðast eins og heitan eld, að minnast á til hvaða
verka sá stuðningur á að vera. Og þegar dýpra er skyggnst inn
í þjóðmálabaráttu síðustu ára liggur samhengi þessarra hluta
Ijcst fyrir.
Nokkur hluti af sterkustu- auðmönnum þjóðarinnar hafa
hreiðrað um sig innan Framsóknarflokksins og samvinnuhreyf-
ingarinnar. Þaðan hafa þeir tengst harðsvíruðustu auðklíkum
Sjálfstæðisflokksins og í félagi við þær gert sér hernám ís-
lands að féþúfu. Samstarf þessara flokka er lífsskilyrði fyrir
hagsmunaaðstöðu þessara manna. En án stuðnings hinna ó-
breyttu heiðarlegu kjósenda getur það samstarf ekki haldið
áfram. Þegar þessir kjósendur sjá í gegn um vefinn, er eina
ráð foringjanna það, að hræða þá með Rússagrýlu og Kreml-
þjónustu Sósíalistaflokksins.
Nú sjá þessir menn fram á það, að þessi grýla er hætt
zö verka. Fólkið sér starfsemi Sósíalistaflokksins, það sér að
hann hefur staðið á verði fyrir hagsmuni þess, þess vegna hef-
ur það m.a. falið honum forustu í þýðingarmestu málum sín-
im. Þess vegna hefur sósíalistum verið falin forusta í stærstu
verkalýðsfélögunum. Og þess vegna heimtar nú fjöldi heiðar-
leg's alþýðufólks úr öðrum flokkum samvinnu við Sósíalista-
flokkinn. Einnig vegna baráttu hans gegn hersetunni og
landsréttindaafsali.
Þetta finna hægri leiðtogar Framsóknar, sem vita einnig
að með þessu er þeirra völdum í flokknum og fjárhagslegum
hagsmunum stefnt í hættu. Af því stafar sú vanmáttarkennd
er brýzt fram í skrifum sem þessum, þegar þeir halda um
pennann. *
Ævintýrabækur Enid Blyton hafa farið sigurför um
landið og eru sannkallaðar óskabækur allra barna
og unglinga. — Nýjasta bókin heitir
McCdll's
9945
:
■
s
!
a
i
Hér segir enn frá bömunum fjórum, vini þeirra Villa,
páfagaukinum Kiki og f jölda annarra söguhetja.
Þessi nýja Ævintýra-bók er ekíd síður skemmtileg
og spennandi en hinar fýrri.
Áður eru komnar út eftirtaldar Ævintýixu-bœkur:
Ævintýraeyjan Ævintýradalurinn
Ævintýrahöllin Ævintýrahaiið
eru allar skreyttar fjölda skemmtilegra mynda.
Hver bók er algerlega sjálfstæð heild og segir í
hverri þeirra frá nýjum ævintýrum, sem börnin rata í.
Athugið þaö, að ÆVINTÝRAFJALLIÐ veröur
vafalaust uppselt allmörgum dögum fyrir jól.
Draupnisútgófan
Skólavörðustíg 17 — Sími 2923
Mc Coll-snið
■
■
•
nýkomin — Athugið vnl |
á efni með hliðsjón af I
sniði. -- :
• ■
Til joiagjafa i
Jólalöberar, ísaumaðir, ó-:
dýrir margra ára eign. :
■
V, - , r :-: , •
Isaumuð púðaborð. :
Vatteraðir innisloppar. •
* |
;r: j
Undirfatnaður fyrir döm- •
ur, krépnælonbuxur, •
millipils, nælon-undir-:
föt, náttkjólar, , j
Glernælon sokkar, ame- •
rískir. :
R. .Rcvjxc. ■ :
Krépnælon sokkar, ame- •
rískir.
Hvítar barnahosur.
★
Sportsokkar, styrktir :
með nælon í tá og hæí. j
Kjólaefni, mikið úrval. •
* |
■
■
Kápuefni, margir lítir. •
* I
■
■
Peysur og golftreyjur, i
innlendar og erlendar. :
★ :
■
■
■
Treflar og hálsklútar. :
*
■
■
Saumakörfur.
* I
■
. . . • Á . - . . ■
Baðhandklæði.
* !
■
■
■
Skrautnælur og ýraiskon- •
ar skrautvörur.
Skólavörðustíg 12