Þjóðviljinn - 16.12.1954, Síða 8
M j ÞJÓÐVILJINN — F'immtudagur 16. desember 1954
BÆKUR frá Isafoldarprentsmiðj,
Kijóðmæli
Guðmaatdar
Guómundssonar
eru komin I bókaverzlanir.
Dr. Alexander Jóhannesson segir
í formálá m. a.: Þjóðhátíðarárið
1874 fæddist Guðmundur Guð-
mundsson skáld, er talinn hefur
verið einn Ijóðhagastur allra ís-
lenzkra skálda . . . Fáir hafa kennt
nánari skyldleika við náttúruna en
Guðmundur Guðmundsson. Ljóðin
liðu af vörum hans eins og hægur
andvari á sumarkveldi, og sál hans
fylltist fögnuði. Öll veröldin varð
að hljómdýrð, er barst til skáldsins
frá ströndum Huldulanda.
Ljóðvinir gefa þessa bók í jóla-
gjöf. — Það er fögur gjöf og veitir
varanlega gleði.
Fjadæg lönd og firamandi þjóðir
eftir RANNVEIGU TÓMASDÓTUR
Rannveig Tómasdóttir ferðaðist um Mexikó og V.-Indl.eyjar.
Nokkra þætti úr ferðasögunni las hún í útvarpið í sumar og hafa
fá erindi vakið almennari athygli, enda voru þau frábærlega
skemmtilega flutt. — Nú er þessi fallega bók komin í bóka-
verzlanir og verður ein af vinsælustu jólabókunum. — En dragið
ekki að kaupa bókina, hún verður að líkindum uppseld fyrir jóL
Þjéósögur Þorsfieins Erlingssonar
eru nú komnar í bókaverzlanir.
Þjóðsögur þessar eru með þrennu móti frá Þorsteini komnar:
Sumt skráð af honum sjálfum, og er það kjarni bókarinnr. Sumt
er skráð af öðrum eftir frásögn hans, og sumu hefur hann
sai'nað víðsvegar að. — Þetta viðfangsefni, þjóðsögur og sagnir,
var Þorsteini hugleikið frá fyrstu tíð. Næmleikur hins íslenzka
eðlis fyrir öllu því, sem dularfullt er að baki þess hversdagslega
og sýnilega, hefur verið honum í blóð borinn. AJlt, sem þjóðlegt
var og rarníslenzkt, fann hjá honum „næmasta grunninn". —
Og síst hafa þær þjóðlegu glæður kulnað á uppvaxtarárunum
hjá ömmu hans í Hlíðarendakoti, en þar ólst hann upp.
Riftsafin Ben. Gröndal F. -
Lokabindi.
I þessu bindi eru bréf Gröndals og skýringar. — Eins og al-
þjóð er kunnugt, hefur líklega enginn íslendingur skrifað
skemmtilegri og fjörlegri bréf en Benedikt Gröndal, og verðum
mönnum þetta þó ljósara nú, er bréf hans birtast í heild. —
Gröndal skrifar um allt milli himins og jarðar og gneistar
fyndnin og fjörið í hverju bréfi, svo að kunningjabréf um
lítilfjörlegustu efni verða að fáguðum perhim. — Nú þegar
ritsafn Gröndals er komið allt, er það ein veglegasta jólagjöfin,
sem nú er í bókaverzlunum.
Bókaverzlnn Isafoldarprentsmiðjn.
Sími 4527.