Þjóðviljinn - 16.12.1954, Page 10
JO) — ÞJÓÐVTLJINN — Fimmtudagur 16. desember 1954 ——
Erich Maria REMARQUE:
Að elska.. •
... og deyja
V. _________________________J
9. dagur
5 *-» * X W * J .-v • C* • ' ■ - -* * *> *
orðið okkur svo samgróiö að við tökum ekki eftir því
lengur. Það er furöulegt að á þessari hetjuöld skuli
slefberar spretta upp eins og sveppir í rigningu. Manni
gæti dottið ýmislegt í hug, er þáð ekki?“
Gráber hikaði andartak. „Fyrst þú veizt þetta svo
vel, ættirðu að vara þig á Steinbrenner,“ sagði hann
loks.
„Mér stendur rétt á sama um Steinbrenner. Hann get-
ur gert mér minna mein en þér. Einmitt vegna þess að
mér stendur á sama. Maður eins og ég er ímynd heið-
' arleikans. Það væri grunsamlegt ef ég yrði allt í einu
of mjúkmáll. Gömul regla fyrrverandi flokksmanna til
að forðast tortryggni. Ertu ekki sammála?“
Gráber blés í kaun. „Kalt,“ salgði hann.
Hann vildi ekki fara út í stjómmálaumræður. Það
var bezt að flækja sér ekki í neitt. Hann vildi fá leyfi
sitt, það var allt og sumt, og hann vildi ekki eiga neitt
á hættu. Immermann hafði á réttu að standa; tor-
tryggni var ríkjandi 1 Þriðja Ríkinu. Enginn var nokkru
sinni óhultur. Og þegar maður er ekki óhultur er ör-
uggast að halda kjafti.
„Hvað er langt síðan þú hefur komið heim?“ spurði
Immermann.
„Tvö ár.“
„Það er fjándi langur tími. Þú verður hissa þegar þú
kemur þangað.“
Gráber svaraði engu.
„Hissa,“ endurtók Immermann, „á öllvun breyting-
unum.“
„Hvaða breytingar hafa orðið?“
„Þú átt eftir að sjá það.“
Grtber fann snöggan kvíða gagntaka sig, eins og
hnífur væri rekinn í hann. Þetta var kunnugleg tilfmn-
‘ ing; hún kom öðru hverju, allt í einu og að tilefnislausu,
og það var ef til vill ekki undarlegt í heimi, sem öll
öryggiskennd var horfin úr fyrir löngu.
„Hvernig veiztu það?“ spurði hann. „Þú hefur ekki
fengið leyfi.“
„Nei. En ég veit það. í agaskólanum fréttir maður
fleira en hér.“
Gráber reis á fætur. Hvers vegna hafði hann farið út?
' Hann langaði ekki til að tala. Hann hafði langað til aö
vera einn. Bara hann væri kominn burt! Þetta var orð-
in ástríða sem hann gat ekki losnað við. Hann vildi
vera aleinn, aleinn í nokkrar vikur til þess að hugsa,
það var allt of sumt. Hann hafði um svo margt að hugsa
Ekki hérna — heldur heima, aleinn, fjarri stríðiriu.
„Þú átt að fara að losna,“ sagði hann. „Ég skal ná
í dótið mitt og vekja Sauer.“
Drunurnar héldu áfram alla nóttina. Drunurnar og
leiftrin við sjóndeildarhringinn. Gráber starði í áttina
þangað. Rússarnir — haustið 1941 hafði Foringinn til-
kynnt að þeir væru að gefast upp, og það hafði litið
* þannig út. Haustið 1942 hafði hann tilkynnt það aftur,
og enn hafði litið út fyrir það. En svo hafði runnið upp
hinn furðulegi tími hjá Moskvu og Stalíngrad. Allt í
einu hættu þeir að sækja frajm. Þetta voru eins og töfr-
ar. Og allt í einu voru Rússarnir aftur komnir með stór-
skotalið. Drunurnar við sjóndeildarhringinn höfðu byrj-
að; þær höfðu kæft ræður Foringjans, þeim linntir,
aldrei og svö höfðu þær rekið þýzka herinn á undan
sér veginn heim aftur. Þeir höfðu ekki skilið neitt en
orðrómui’ komst á kreik um það að heil herfylki hefðu
gefizt upp og brátt vissu allir, að sigrarnir höfðu breytzt
í flótta. Sams konar flótta og í Afríku, þegar Kaíró vii’t-
ist svo skammt undan.
Gráber þrammaði í gegnum þorpið. Föl næturskíman
gerði allt óraunverulegt. Snjórinn endurkastaði henni
á;kynlegan hátt. Húsin virtust fjarlægaJri og skógarnir
nær en annars. Framandi þefur af hættu lá í loftinu.
Sumarið 1940 í Frakklandi. Gangan til Parísar. Hvin-
Stöðvast togaraflotinn ?
Framhald af 1. síðu.
felldar með 16:7 og 14:7 atkv.
Ólafur ThórS fór geyst af
stað í umræðunum í neðri deild
og hugðist sanna að ríkisstjóm-
in hefði í einu og öllu uppfyllt
þær óskir, sem milliþinganefnd-
in í togaramálum hefði talið
nauðsynlegar.
Sýndl rúðvfk fram á með út-
reikningi og skýrum rökum
hve langt væri frá því að rík-
Isstjórnin hefði með ráðstöftm-
um sínum uppfyllt kröfur út-
gerðarmanna og framkvæmt
tillögur milliþinganefndarinnar.
Spurðl hann Ólaf hvort ríkis-
stjórnin vildi gefa yfirlýsingu
um að mál þetta yrði tekið til
frekari athugunar og úrlausna
að þinghléi loknu. En Ólafur
kvaðst engar yfiriýsingar vilja
gera um það.
Virðist sjávarútvegsmálaráð-
herra landsins telja að afkoma
togaraútgerðanna væri nú slík
eftir stuðning ríkisstjóraarinn-
ar að allt væri í iagi, ekki
þyrfti meira með. Það sem á
vantaði til að rekstur togara-
útgerðarinnar stæði í blóma á
næsta ári gæti komið með betra
veðurfari og meiri aflabrögð-
um! Væri ákaflega fróðlegt
fyrir útgerðarmenn að kynna
sér ræður Ólafs í þessu máli,
Var gaman að sjá hvernig
Lúðvík Jósefsson tók ráðherr-
ann á skólabekk og reyndi að
koma honum í skilning um
raunverulegt ástand og horfur
togaraútgerðarinnar, eins og
hún er nú.
Minnti Lúðvík ráðherrann m.
a. á að ríkisstjórnin sjálf hefði
tekið beinan þátt í togara-
rekstri, með Siglufjarðartogur-
unum, og hefði þar orðið enn
meira tap á honum en annars-
staðar. Játaði Ólafur það, en
bætti við að þar hefði verið
„heilbrigð stjóra úr landi!“
Fór hógværð Ólafs vaxandi
með hverri ræðu, enda var
hann orðinn mun betur að sér
í málinu eftir uppfræðslu Lúð-
víks. Var lítið annað eftir af
,,rökum“ hans en handafl meiri
hlutans í atkvæðagreiðslu, þar
gat hann ráðið við tillögur Lúð-
víks. En augljós þekkingar-
skortur Ólafs Thórs á málum
þeim sem hann hættir sér í að
ræða á þingi er orðinn svo á-
berandi að furðu sætir, ekki
sízt í sjávarútvegsmálunum,
þar sem ætla mætti að hann
hefði þó nokkra undirstöðu-
þekkingu.
HúsnœSlsmál
Framhald af 1. síðu.
ariðnaðarmanna, byggingaríélaga
og einstaklinga, — þar sem at-
hugaðar verði allar nýjungar og
aðferðir til lækkunar á bygg-
ingarkostnaði, möguleikar á út-
vegun hagkvæmra byggingar-
lána og hvort grundvöllur sé
fyrir sameiginlegu átaki nefndra
aðila til að auka stórlega íbúð-
arhúsabyggingar í bænum.
Byggingarfram-
kvæmdir bæjarins
1. Hafin verði bygging 400
íbúða, sem sérstaklegá verði
ætlaðar því fólki, sem býr í her-
skálum og öðru heilsuspillandi
húsnæði.
2. Hafin verði bygging 100
tveggja herbergja íbúða, sem
leigðar verði ungu nýgiftu fólki.
3. Hafin verði bygging 50 smá-
íbúða, hentugra fyrir einstæðar
mæður, sem hafa börn ó fram-
færi sín«.
Heimilt er borgarstjóra, með
samþykki bæjarráðs, að taka
hagkvæmt lán til að hrinda þess-
um byggingum í framkvæmd á
þessu ári.
!
49 manna
samkomusalur
á góðum stað í bænum til
leigu um helgar og milli
jóla og nýárs.
Upplýsingar í síma 82207
\
1ig g n i leiðia
Góð |
værðarvoð
I frá I
■ 5 ■
■
■ ■
Álafossi
■ Z
m
■
■
■ _•
•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■•■■■■^
| Fyrir karlmenn:
■
■
Skyrtur
Sokkar
Bindi
■
■
Álafoss,
Þingholtsstræti 2
aíiQBostiaa
— Gljóir vel
“ Drjúgt
— Ffr.inUgt
Mesta og bezta úrval heimilisraftækjaer hjáokkur:
Vöflujárn Hringbattarofnar Hrœrivélar Þvottavélar Rakvélar
Straujárn Hraðsuðukatlar Bónvélar Uppþvottavélar Hárpurrkur
Brauðristar Hraðsuðukönnur Ryksugur Steikarofnar Vasaljós
Straubretti Kaffikönnur Strauvélar Eldhúsklukkur Barnalampar
Prjónavélar Kaffikvarnir Eldavélar Borðklukkur Hitabakstrar
Jólatrés-ljósasamstæður margar gerðir. Verð frá kr. 105.00. Ennfremur perur í jólatréssamstæður
Einnig rauðar, gular, grænar og bláar perur.
Um margt er að velja, sparið tíma og lítið fyrst til okkar. Afborgunarskilmálar ef óskað er, þegar um stærri tæki er að ræða. Öll stærri tæki send heim.
Véla- og raftækjaverzlunin
'■****■ ************* ib*****i*í !*********************,****•***••••••••••■•••••■■■•■■■■■•••■••■■■»•■•■■■»■•*•■« paMaMaaaaa»a«aaa*aaMaa*raaaaaBa*Baa*>aaaaBaaaH*a«*aaa*Maa**aaaaMMa«a«a