Þjóðviljinn - 12.01.1955, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 12.01.1955, Qupperneq 6
— ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 12. janúar 1955 ------* þlÓOVILJINN I Ötgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður GuSmundsson (áb.) Fréttastjóri: Jón Bjarnason. B’.oCamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Bcnediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. N - - , ' -r í Benjamínið gert út af örkinni Sendimaöur ameríska auðvaldsins á íslandi, Benjamín Eiríksson, hagfræðingur og bankastjóri Framkvæmda- bankans, maðurinn sem hlotið hefur nafngiftina Álfur úr Krcki vegna erindreksturs síns hérlendis í þágu erlendra -ha"smuna, hefur að midanfömu látið ljós sitt skína í ' báöum aðalmálgögnum stjórnarflokkanna um kaupgjalds málin á íslandi. Og eins og vænta mátti úr þeirri átt er tilgangurinn sá einn að „sanna“ lesendunum að hækkun kaupgjalds sé aðeins til bölvunar. Þetta er að vísu engin ný kenning. íslenzkur verkalýður og launþegar kannast við boðskapinn. Hann hefur verið fluttur alþýðunni og samtökum hennar linnulaust af atvinnurekendum og umboðsmönnum þeirra í hvert skipti sem verkalýðurinn og launþegarnir hafa barizt fyrir hækkun kaups og bætt- um kjörum. Samábyrgðarmaður Benjamíns að gengis- lækkuninni 1950, Ólafur Björnsson prófessor hefur á síð- ari ámm verið hvatvísasti talsmaður þessarar kenningar og \-afalaust talið túlkun hennar nytsamt framlag í þágu þeirra launþegasamtaka sem hafa falið honum forustu, þ.e. Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Hvað veldur því, að Álfur úr Królci nútímans er gerður út örkinni einmitt nú með kenningu atvinnurekenda og Ólafs- Björnssonar að veganesti? Eklci þarf lengi að leita orsakanna. Óheillastefna auðstéttarinnar í efna- hagsmálum þjóðarinnar, sem knúin hefur verið fram af . raunverulegum húsbændum Benjamíns Eiríkssonar hefur nú gengið svo nærri lífsafkomu verkalýðsins og launþeg- -amia að óhugsandi er að búa við það öllu lengur án breyt- inga. Það liggur í loftinu að verkalýðurinn tygi sig til nýrrar baráttu fyrir því að rétta hlut sinn. Þetta er á- stæðan til þess að Benjamín er látinn skrifa langhunda sína í Morgunblaðið og Tímann. Köfuðröksemd benjamínsins gegn hækkun kaupgjalds er að framleiðslan sé rekin með halla og henni haldið gangandi með opinberum styrkjum sem teknir séu af al- 'xnenrúngi og þá um leið launþegum. Manni skilst að með- an svo sé eigi verkalýðurinn að sætta sig við hlut sinn mög’unarlaust og það jafnt þótt hann hætti að fullnægja nr rðsynlegustu þörfum. Með þessari kenningu gengur bcnjamínið vitanlega út frá því sem sjálfsögðu að nú- verendi skipting á arði framleiðslunnar sé réttlát og þar verði engu um breytt. Tolla- og skattabyrði ríkisvaldsins, . élagningargróði heildsalastéttarinnar, vaxtaokur bank- annn, okurgróði olíuhringanna, flutningaskipafélaganna og einokunarherranna sem drottna yfir útflutningnum — allt er þetta fullkomlega réttmætt að dómi benjamínsins -og engin ástæða til að bollaleggja um hugsanlegar breyt- inner framleiðslunni í hag. Benjamínið veit að hlutverk þess er ekki að benda á möguleika til að létta okurgróða auðvaldsins af framleiðslunni og vinnustéttunum heldur ®ð sætta verkalýðinn við kjaraskerðingar og telja honum trú um tilgangsleysi allrar kaupgjaldsbaráttu. Þessu hiutverki er benjamínið trútt eins og ritsmíðir þess í stiórnarblöðunum sanna. Þessar kenningar benjamínsins eru að því leyti gagn- legar, að um leið og verkalýðurinn undirbýr þá nauðvörn se:o felst í nýrri kaupgjaldsbaráttu verða þær til þess að minna á mikilvægi stjórnmálabaráttunnar. Verkalýður- inn verður samhlíða sigursælli kaupgjaldsbaráttu að efla pólöíska einingu sína og ná þannig þeim stjórnmálaá- hrifum sem tryggja árangrana af hagsmunaátökunum við auðstéttina og gera þá varanlegri en verið hefur hing- að til. Ekkert er nú þjóðinni nauðsynlegra en sköpön samfylkingar alþýðustéttanna og allra heiðarlegra vinstri afla. Slík samtök eru ein megnug þess að draga vígtenn- .urnar úr því arðránsvaldi sem situr hvarvetna yfir hlut vir nandi fólks og hirðir bróðurpartinn af arði allrar frr mleiðslustarfsemi 1 landinu. En höfuðskilyrði þess að slí’' samfylking verði sköpuð og nái þeim árangri sem al- þý ' an væntir er aukinn máttur hinna pólitísku samtaka ve> ’-.alýðsins. Samhliða hagsmunabaráttu sinni þarf því ver':alýðurinn að fylkja sér einhuga um Sósíalistaflokk- ’ýtónn og gera gengi hans sem mest með þjóðinni. — ---------- - - — - " ~ ~ • ' i r—f1 FAGNAÐARRfKT BLESSPARTÍ FYRIR 82nd FIGHTER INTERCEPTER SQUADRON Meðal þeirra gesta sem Sjálf- stæðisflokkurinn, Framsókn og Alþýðuflokkurinn buðu afnot af íslenzkri grund, til iðkunar stríðslist, var flugsveit ein mögnuð sem á tungu sinni nefndist 82nd Fighter Intercept- er Squadron, undir stjóm hins mikla flugforingja Lt. Col. Em- est B. Nuckols, jr. ★ Vann hún margt til frægðar á íslandi til vemdar vestrænu lýðræði og er hún flaug af landi til verndar sama lýðræði' annars staðar í heiminum hélt hún 26. febrúar 1954 eitt glórulaust blesspartí í The Army Meeks Mess Hall, sem mun reyndar. vera einhvers- staðar á Keflavíkurflugvelli, þó nafnið hljómi ekki vel íslenzku- lega. í bók um afrek flugsveitar- innar segir að hún hafi Byrjað þjónustu á Keflavíkurflugvelli 1. apríl 1953, en ferðin til ís- lands hafizt með jámbrautar- lest 7. marz 1953 frá Larson AFB, Washington, þar sem sveitin hafi áður dvalið. Síðustu flugvélarnar hafi lent á Kefla- víkurflugvelli 9. maí 1953. ★ í>á hefst upptalning á hinum gífurlegu erfiðleikum sem hinir hraustu bandarísku flugmenn hafi orðið að sigrast á, svo sem plássleysi, skemmtanaleysi og birgðaleysi, þar til Keflavíkur- flugvöllur varð þeim bærilegri dvalarstaður. Mikil ánægja hafi þeim verið að skyndiferð- um til Englands, Skotlands og Þýzkalands. Einnig hafi menn 82. flugsveitarinnar reynzt sig- ursælir í hinum margvíslegustu íþróttum, þeir hafi fengið að fara í rútubílaferðalög til ým- issa staða á íslandi, meira að segja hafi hafi þeir fengið að renna færi fyrir silung og í salt vatn. Þá hafi nokkrum tekizt að næla sér í konur sínar að vest- an og hafi M/Sgt. Barrett orðið fyrstur til þess að flytja fjöl- skyldu sína til íslands. Hinsveg- ar hafi A/IC Sanford Moore orðið fyrsta fórnarlamb hins fagra kyns á íslandi, og óskar flugsveitin honum og Lindu konu hans allra heilla, Svo virðist sem frægur sigur Óskadraumur hinna hraustu pilta 82. orustufiugsveltarlnnar. hafi unnizt á birgðavandræðun- um, því matseðillinn í bless- partíinu var þannig: MENU ASSORTED HORS’ D’OUEVRES MIXED NUTS CQLD SLICED ROAST TURKEY ROAST TENDERLOIN OF BEEF SLICED VIRGINLA HAM ASSORTED REAL GONE ICELANDIC CHEESES POTATO SALAD LOBSTER SALAD RELISH TRAY PARKER HOUSE ROLLS ASSORTED BREADS ICELANDIC CRJEAM CAKE ICE CREAM COFFEE MILK SOFT DRINKS OH YES! BEER "k Þá fluttu hinir bandarísku drengir friunsamið leikrit og fluttu kvæði Life of an Airman og var aðalefni þess, að ekki komi til mála að nokkur maður úr þessari flugsveit fari til hel- vítis, þvi þeir séu þegar búnir að taka út refsingu í víti — á íslandi. Síðasta erindi þessa gagn- merka kvæðis var þannig, lýs- andi himnaför eins þeirra: „That’s when St. Peter will greet me And he will loudly yell Here’s an Airman from the 82nd Fighter He’s served his time in HELL“. * í bókarlok gefur svo foring- inn mönnum flugsveitarinnar hinn bezta vitnisburð, hrósar þeim fyrir „káta og ágenga framkomu“, sem megi gera þá „pretty darn proud“, skramb- ans ári hreykna. Og hafi eng- inn bandarískur hermaður reynzt þeim fremri. Undirritað Ernest B. Nuckols. Jr. Lt Col, Commander, USAF. Á blaðsíðunni á móti er svo á heilsíðu teikning sú sem hér er birt, og virðist eiga að sýna frá hverjum afrekum hinir djörfu, ágengu piltar 82. sveit- arinnar hafi flogið að loknu blesspartí sínu, „skrambans ári hreyknir”. k Hver blaðsíða í þessari bók er eins og skýring á því, sem Bandaríkjamenn virðast aldrei skilja, að Evrópumenn yfirleitt og kannski alveg sérstaklega íslendingar líta á þá sem strák- fífl sem aldrei verði fullorðnir. Verður að virða íslendingum til vorkunnar, þó þeir brosi að frægðarsögu 82. flugsveitarinn- ar á íslandi, — og það þótt brosið verði kalt, í vitund um alvöruna sem liggur að baki. 9-------------------------------- Úrslit í 1. leikviku getrauna: Arsenal 1 — Cardiff 0 I. Bristol 2 — Portsmouth 1 1 Bury 1 — Stoke 1 x Derby 1 — Manch. City 3 2 Fulham 2 — Preston 3 2 Hull 0 — Birmingham 2 2 Lincoln 1 — Liverpool 1 x Middlesbro 1 — Netts Co .4 2 Rotherham 1 — Leicester 0 1 Sheff.Utd 1 — Nottingham 3 2 Sunderland 1 — Burnley 0 1 West Ham 2 — Port Vale 2 x Bezti árangur reyndist 10 rétt- ir/ og varð hæsti vinningurinn 654 kr. fyrir kerfi með 2 röðum með 10 réttum, og 9 réttum í & röðum. Hæsti vinningur var 424 kr. fyrir 1/10 og 6/9. Vinningar skiptust þannig: 1. vinningur: 148 kr. fyrir 10 rétta (5). 2. vinningur: 46 kr. fyrir 9’ rétta (32).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.