Þjóðviljinn - 03.02.1955, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 03.02.1955, Qupperneq 3
Fimmtudagur 3. febrúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN (3 Brýtur gjöfin á Túngötu 18 í bága vlð stj órnarskrána? Krafa borin fram að borgarfógeti leggi lögbann viS afhendingu hússins Morgunblaðið skýrir frá því í gær að verið sé aö rýma stjómarráðsbygginguna að Túngötu 18, og verði hún afhent Vestur-Þýzkalandi formlega að gjöf einhvem næstu daga. í gæi' skrifaði Þorvaldur Þórarinsson lög- fræðingur borgarfógeta bréf, þar sem hann óskaði þess að lagt yrði lögbann við þessum fyrirhugaða verknaði, þar eð heimild skorti bæði í lögum og stjórnarski'á til þess aö ráðstafa þannig þessari sameign allra lands- manna. Þ j óðar tek j ur nar Framhald af 1. síðu. enn vaxið verulega — einnig í hlutfalli við breytt verðgildi. Hins vegar hefur raunverulegt tímakaup farið lækkandi í samanburði við verðlag ef allar aðstæður eru teknar til greina. -ýk Þjóðartekjurnar gætu verið miklu hærri. í sambandi við þjóðartekj- urnar ber að geta þess að þær gætu verið miklum mun hærri ef framleiðslutæki þjóðarinn- ar væru hagnýtt til hlítar. Sú óstjóm sem nú rikir í landinu dregur mjög úr þjóðartekjun- um, og er skemmst að minnast reynslunnar af þeim eina mán- uði sem liðinn er af þessu ári. Fyrstu viku ársins var allur bátafloti landsmanna stöðv- aður fyrir tilverknað ríkis- stjórnarinnar. Allan mánuðinn var bátafloti Vestmannaeyja stöðvaður, mikilvirkustu ver- stöðvar á landinu, samkvæmt fyrirskipun L. í. Ú. og ríkis- stjórnarinnar. Síðari hluta mánaðarins hafa farskipin svo verið að stöð\rast eitt af öðru án þess að ríkisstjórnin hafi nokkuð gert til að leysa vand- ann. Þannig er ástatt ár eftir ár og með því eru þjóðartekjurn- ar skertar svo skiptir hundruð- um milljóna, sem nota mætti til þess að bæta kjör almenn- ings. ★ Vilja íá hlut sinn aí vaxandi þjóðartekjum Þessar staðreyndir sýna glöggt hvílík fjarstæða sú kenning er að allt fari úr skorðum og í kaldakol ef kaup þeirra lægst- launuðu er hækkað. Verkamenn fara aðeins fram á það að þeir fái sinn hlut af sívaxandi þjóðar- tekjum, sem eru árangur af vinnu þeirra. Þær tölur sem birt- ar voru í upphafi sanna að það er hægt að hækka kaupið mjög mikið án þess að grundvöllur framleiðslunnar raskist — og gegn því mælir ekkert nema hagsmunir braskarastéttarinnar. Sjóprófín út of Agii raisSa hafi gefið um siglingu skipsins, enda hafi Nielsen oft áður látið 1 sambandi við þetta mál átti Þjóðviljinn stutt viðtal við Þor- vald Þórarinsson lögfræðing í gær. Hann lét blaðinu í té af- rit af bréfi sínu til borgarfó- geta. Væri krafa sín reist á síð- ari málsgrein 40. greinar stjórn arskrárinnar og óumdeilanleg- um skilningi ríldsréttarfræð- inga á henni, en að öðru leyti Þessi aukning er fyrst og fremst að þakka laugardags- sýningum, sem félagið hefur tekið upp, og hafa gefizt á- gætlega, þar sem sýningartím- inn kl. 5 hentar fjölda fólks, sem á óhægara með að sækja kvöldsýningar. Starfsemi sína á vetrinum hóf félagið með sýningum á sjónleiknum Erfingjanum, sem náði 18 sýningum, en Frænka Charleys hefur nú verið sýnd 32 sinnum frá því í haust, en samtals eru sýningarnar orðn- ar 66. Náði gamanleikurinn þeirri tölu í gærkvöldi og þar með hæstu sýningartölu, sem nokkurt leikrit annað hefur náð hjá L.R. á einu ári. Á sýn- ingunni í gærkvöldi tók Sig- ríður Hagalín við hlutverki einnar ungu stúlkunnar, sem kvaðst hann ekki sjá ástæðu til þess að ræða efni bréfsins nánar. Bréf Þorvalds er svo- hl jóðandi: „Hr. Kristján Kristjánsson, borgarfógeti, Tjamargötu 4 IV. hæð, Reykjavík. Samkvæmt heimildarbréfi, Helga Valtýsdóttir lék áður, en hún er ráðin í hlutverk hjá Þjóðleikhúsinu. Ný leikskrá hefur enn verið prentuð vegna Frænkunnar og er það fimmta prentun og upplag þá orðið 6000. Samtals hafa um 20 þús- und manns séð þennan vinsæla gamanleik hjá félaginu. Jólaleikritið, sjónleikurinn um Nóa, hefur nú verið sýnt sjö sinnum og verða áttunda og níunda sýningin föstudag og sunnudag. Hefur aðsókn að leiknum verið afbragðsgóð og bæjarbúar vottað Brynjólfi Jó- hannessyni þakklæti og aðdáun í afmælishlutverki hans, gamla Nóa. Leikstjórar þeirra þriggja leikrita, sem félagið hefur sýnt á vetrinum, hafa verið: Gunn- ar R. Hansen, Einar Pálsson og Lárus Pálsson. dags. 12. september 1949 og þinglýstu 14. sama mánaðar, er Ríkissjóður Islands eigandi fasteignarinnar Túngötu 18, hér í bæ, með tilheyrandi eign- arlóð, sbr. veðbókarvottorð, dags. í dag, er ég læt fylgja þessu bréfi. Undanfarið hefur gengið þrá- látur orðrómur um að í ráði sé að farga þessari verðmætu stjómarráðsbyggingu íslenzka ríkisins í hendur útlendingum án endurgjalds. Þessi orðrómur hefur í dag verið staðfestur með athugasemdalausri frétta- grein í aðalmálgagni forsætis- ráðherra, Morgunblaðinu. Þar eð heimild skortir bæði í lögum vorum og stjóraarskrá til þess að ráðstafa þannig þessari sameign allra lands- manna leyfi ég mér að óska þess, hr. borgarfógeti, að þér leggið eins fljótt og framast má verða lögbann við hinum fyrirhugaða verknaði. Fari gerðin fram á kostnað gerðar- þola, væntanlega fjármálaráð- herra fyrir hönd rikissjóðs, en á mína ábyrgð og gegn þeirri tryggingu sem talin verður hæfileg. Virðingarfyllst, Þorvaldur Þórarinsson.“ 1 sambandi við mál þetta vill Þjóðviljinn minna á að af- hending hússins var aðeins samþykkt sem heimildargrein í f járlögum, en engin lög sett um hana, en f járlög em ekki jafn- rétthá og venjuleg lög. 40. gr. stjórnarskrárinnar er þannig: „Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum. Ekki má heldur taka lán, er skuldbindi ríkið, né selja eða með öðm móti láta af hendi neina af fasteignum lands ins né afnotarétt þeirra nema samkvæmt Iagaheimild.“ Framhald af 12. síðu. Varð ekki var við að skipinu væri siglt Dómsforma'ður benti Guð- mundi ísleifi skipstjóra á að Nielsen hafi haldið því fram í framburði sínum á mánudaginn að á tímabilinu frá kl. 15,30— 18 hafi Agli rauða verið siglt í austur um það bil hálftíma og sé sá framburður studduP af framburði þeirra Joensen og Viderö. Kvaðst skipstjóri ekki hafa orðið þess var að skipinu hafi verið siglt á þessu tímabili og honum hafi ekki verið skýrt frá því að svo hafi verið gert, en venja hafi verið, er Agli rauða var kippt upp undir skipin und- ir Grænuhlíð, að hann (skipstjór- inn) eða fyrsti stýrimaður væri látinn vita. Telur skipstjóri að hann hefðj átt að verða var við það, ef skipinu hefði verið siglt á þessum tíma, því að hann hafi verið vakandi allan tímann. Ekki vildi hann þó fullyrða að skip- inu hefði ekki verið siglt. Ekki hefði hann heldur tekið eftir því að slakað væri á stýrinu til að halda beina stefnu, og hefði þó að jafnaði heyrzt mjög mik- ið í stýrisvélinni, sem verið hafi undir borðsalnum, hversu lítið sem stýrið var hreyft. Lagðist sjálfur á stýrið Skipstjórinn fullyrti að er hann hafi verið á leiðinni úr kortaklefanum að vélsímanum eftir að skipið tók fyrst niðri, hafi hann gefið skipun um að setja stýrið hart í stjómborða, en það hafi ekki verið gert og hafi hann því, er hann var bú- inn að hringja í aftur á bak ferð, hlaupið að stýrinu og sett | það hart í stjórnborða. Ekki S kveðst hann þá hafa tekið eftir S neinum öðrum í stýrishúsinu. B B B S Misskilningur ósennilegur S Skipstjóri taldi að Berg Niel- • sen myndi skilja íslenzku sæmi- j lega og vel væri hægt að halda B S upp samræðum við hann um ! algeng efni, svo sem sjómennsku ■ og heimilislíf, á íslenzku. Kvaðst 5 hann álíta að Nielsen myndi hafa ,5 skilið fyrirmæli þau, sem hann það í ljósi, ef hann var ekki ánægður með fyrirmæli skip- stjóra. Ekki kvaðst skipstjóri minnast þess að Nielsen hefði í umrætt skipti endurtekið fyrir- skipunina. Áframhaldandi réttarhöld í dag Auk skipstjóra voru í gær teknar skýrslur af bátsmanni og loftskeytamanni á Agli rauða. Einnig kom annar stýrimaður aftur fyrir dóminn. Sjóferðaprófin hefjast að nýju í dag kl. 14 og verður þá vænt- anlega tekin frekari skýrsla af Færeyingum, sem voru á stjóm- palli um það leyti er togarinn strandaði. Skákþing Reykjavíkur: Úrslit í 2. umferð meistaraflokks Á mándagskvöld var tefld 2. umferð í meistaraflokki á Skákþingi Reykjavíkur. Hefur flokknum nú verið skipt í 2 riðla, og hafa tveir nýir menn bætzt í hópinn, þeir Guðjón M. Sigurðsson og Jón Þor- steinsson frá Akureyri, er kemur í stað Benónýs Bene- diktssonar sem hætti eftir 1. umferð. Úrslit í 2. umferð urðu þessi: A-riðill. Gunnar Ólafsson vann Stíg Herlufsen og Jón Þorsteinsson vann Margeir Sigurðsson. Bið- skákir urðu hjá þeim Antoni og Gilfer, Freysteini og Inga R„ Ólafi Sigurðssyni og Ingi- mar Jónssyni. B-riðill Guðjón M. vann Steingrím Guðmundsson, Gunnar Gunn- arsson vann Hjálmar Theó- dórsson, og Ágúst Ingimundar- son vann Reimar Sigurðsson. Biðskákir urðu hjá Arinbimi og Ingimundi, og Ólafi Einars- syni og Hauki. Jón Pálsson átti frí í þessari umferð. Biðskákir úr 1. og 2. umferð voru tefldar í fundarsal Slysa- vamafélagsins í gærkvöld. UTSALA ó barna- og kvenf ainaði Hf AFSLATTUB FBA 25-60% <6- Telpuullarkápur Telpupelsar Telpukjólar Pils Peysur Drengjajakkaíöt Stakar buxur, stuttar og síðar Kvenkjólar Blúsgur Peysur Pils Undirfatnaður Notið þetta einstæða tækifæii — Gerið góð kaup EROS HAFNARSTBÆTI 4 VERZLUNIN Sími 3350 Leikfélag Reykjavíkur hefur haft 60 leiksýningar á vetrinum Um þessi mánaðamót hafði Leikfélag Reykjavíkur haft 60 leiksýningar á vetrinum. Er það 22 sýningum fram yf- ir meðaltal sýningafjölda síðustu árin miðað við sama tíma. 1

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.