Þjóðviljinn - 03.02.1955, Page 12

Þjóðviljinn - 03.02.1955, Page 12
þlÓÐVILUNN Fimmtudagur 3. febrúar 1955 — 20. árgangur — 27. tölublað Hin nýja búsáhaldabúð KKON að Skólavörðustíg 23. KRON opnar nýja glæsilega búð Búsáhaldadeildin ílutt á Skólavörðustíg 23 Eins og kunnugt er, hefur búsáhaldadeild KRON aö undanförnu búið i þröngu tvíbýli við bókabúð félags- ins í Bankastræti 2, og hafa hin ónógu húsakynni haml- að mjög vexti beggja þessara deilda. Úr þessu er nú bætt, þar sem KRON hefur opnað nýja og glæsilega búð fyrir búsáhaldadeild sína að Skóla- vörðustíg 23. Sjóferðaprófin í gær Skipstjórinn heldur fast við fyrri framburð sinn Kveðst haia geíið skipun um að sigla að innsta skipisra og gengið sjáliur á stýrið, er togarinn tók íyrst niðri Sjóprófunum út af strandi Egils rauöa var haldið á- fram í gær og kom þá Guðmundur ísleifur Gislason skip- stjórí aftur fyrir dóminn. Hélt hann fast við fyrri fram- burð sinn og kvaö hann gefinn eftir beztu vitund. Skipstjórinn kvaðst hafa mið- að skip það, er hann sá ljósin á, og hafi það reynst í N'A eftir áttavitanum. Er hann hafi sagt að kippa skyldi Agli rauða að skipi þessu hafi hann staðið við hliðina á Berg Nielsen í stýris- húsinu. Ekki kvaðst hann muna Er hin nýja búð mjög smekk- Verkalýðs- og sjé- mannafélag Ólafs- fjarðar endurreist Verkamenn og sjómenn í Ól- afsfirði hafa nýlega endurreist félag sitt, Verkalýðs- og sjó- mannafélag Ólafsfjarðar, en starfsemi þess hefur legið niðri um skeið. Hin nýkjörna stjórn er skip- uð þessum mönnum: Formað- ur: Gunnlaugur Magnússon, ritari: Stefán Ólafsson, gjald- keri: Halldór Kristinsson, vara- formaður: Ragnar Þorsteins- son, meðstjórnandi: Hartmann Pálsson. Félagið gerði nýja samninga við atvinnurekendur um ára- mótin og hækkaði þá grunn- kaup verkamanna í almennri vinnu úr kr. 9,00 í kr. 9,24. Verkamenn í Eyjum hafa gert nýjan kjarasamning Sements'kaup hækkar og rétt mjólkurverð kemur loks til framkvæmda Verkalýðsfélag Vestmannaeyja hefur gengið frá nýjum samningum við atvinnurekendur og voru þeir staöfestir á félagsfundi 1 fyrrakvöld. leg og haglega innréttuð, og hefur hf. Byggir séð um það verk. Málningu annaðist Anton Bjarnason málarameistari, raf- lögn Þorsteinn Sætran rafv.m. en Ólafur Gíslason rafmagns- fræðingur sá um fyrirkomu- lag lýsingar., Arkitekt við breytingu hússins og innrétt- ingu var Sigvaldi Thordarson. I þessari nýju búð hefur KRON nú á boðstólum hin fjölbreytt- ustu búsáhöld, rafmagnsvörur, postulíns- og leirvörur, leikföng o. m. fl., og má gera ráð fyr- ir, að félagsmönnum og öðrum viðskiptavinum verði tíðförult þangað næstu daga, bæði til að líta á hin nýju húsakynni og til að gera hagkvæm innkaup. Hallbjözg eadurteknr Hallbjörg* Bjarnadóttir end- urtekur í kvöld skemmtun sína í Austurbæjarbíói. Aðsókn að fyrri skemmtun hennar var á- gæt og undirtektir hinar beztu. Samkvæmt hinum nýju samn- ingum hækkar grunnkaup í se- mentsvinnu úr kr. 9,90 í kr. 12,00 á klst. Vaktavinna í fiskimjöls- verksmiðjum breytist þannig að tveir vinnuflokkar, sem skipta með sér þriðju vaktinni og hafa fengið 50% álag á kaupið fram að þessu, fá nú 75% álag. Þá hefur það og gerst í sam- bandi við hina nýju samninga, að ákvæði desembersamning- anna frá 1952 um að mjólkur- verð í Eyjum lækkaði, kemur nú loks til framkvæmda. Verður mjólkin eftirleiðis seld þar á kr. 2,70 eins og annars staðar á landinu. Tókst Alþýðusam- bandinu nú að knýja ríkisstjórn- ina til þessara aðgerða og hefur félagsmálaráðuneytið staðfest samkomulagið. Loks er það ákvæði í hinum nýju samningum, að hækki kaUp hjá Dagsbrún í Reykjavik á samningstímabilinu, skuli kaup verkamanna í Eyjum einnig hækka um sama hundraðshluta. hvort hann nafngreindi Berg Ni- elsen, þegar hann gaf þessi fyr- irmæli, en talið víst að Nielsen hlustaði eftir þeim, þar eð hann hafi verið vaktformaður. Skipstjóri sagði að þegar hann hafi miðað skip þetta hafi Egill rauði legið flatur fyrir vindi, en þegar hann fór niður hafi skip- ið verið farið að snúast í þá stefnu, sem gefin var. Kvað hann togarann hafa snúið inn með hliðinni í stefnunni suð-aust- ur til suðaustur að suður og hafi honum verið snúið á bakborða. Hafi stýri skipsins verið hart í bakborða í þetta skipti. Kvað skipstjóri skipið hafa aðeins ver- ið farið að snúast í umrædda stefnu, þegar hann fór af stjórn- palli. Dýptarmælirinn ekki notaður Tvo dýptarmæla kvað skip- stjóri hafa verið í skipinu og hafi annar verið sjálfritari og í lagi. Ekki kvaðst hann hafa sett mælinn í gang í umrætt skipti né sagt Nielsen að gera það. Sagði hann að Nielsen hefði ekki kunnað á ratsjána en hins- vegar hefði hann (skipstjórinn)' sýnt Nielsen hvernig ætti að setja dýptarmælinn í gang. Framhald á 3. síðu. Frejgjti gefur 3G00 hr. í Sig- fúsarsijóð til minningar um Þ>nríði Friðríhsdóttur Aöalfundur Þvottakvennafélagsins Freyju var haldinn s.l. mánudag. í upphafi fundar minntist varaformaður Guöríður Einarsdóttir, Þuríöar Friðriksdóttur, er lézt 13. des. sl. en Þuríður var formaður félagsins óslitið frá stofnun. Fundarkonur vottuðu minningu þessarar látnu forustukonu sinnar virðingu og þakklæti með því aö rísa úr sætum. Fundurinn samþykkti ein- róma að gefa 5000 kr. í Sig- fúsarsjóð til minningar um Þuríði Friðriksdóttur, en auk þess söfnuðust á fundinum 600 kr. sem sjóðnum verður fært í sama skyni. Fundurinn samþykkti og að breyta nafni styrktar- og glaðn ingssjóðs félagsins, er stofnað- ur var á sínum tíma að frum- kvæði Þuríðar, þannig að eftir- leiðis heitir sjóðurinn „Styrkt- ar- og glaðningssjóður Þuríðar Friðriksdóttur." 1 stjórn félagsins voru ein- róma kosnar: Hulda Ottesen formaður, Sigríður Björns- dóttir varaformaður, Kristín Einarsdóttir ritari, Guðrún Björnsdóttir gjaldkeri, Guðrún Stephensen meðstjórnandi, Ás- laug Jónsdóttir vararitari og Guðríður Einarsdóttir vara- gjaldkeri. Tuttugu og fjórir íslenzkir lista- * menn senda verk sín til Rómar Sýning á verkunum opnuS i Lisfa- mannaskálanum klukkan 1 I dag Hin umdeilda Rómarsýning íslenzkra listamanna verð- ur opnuð í dag í Listamannaskálanum kl. 1 e.h. Þátttakendur í sýningunni eru alls 24 og skiptist þaö þalnnig að 17 málarar senda 84 málverk, 6 senda 24 svart- listarverk og 4 myndhöggvarar senda 16 verk. Samsýning norrænna lista- manna hefst í Róm 2. apríl n. k. og er fyrsta norræna sam- sýningin sem haldin er þar í borg. Á sýningunni í Listamanna- skálanum, sem opnuð er kl. 1 í dag, eru 78 málverk, en auk þess verða í Róm 6 mál- verk, eru 3 þeirra nú í Höfn en 3 í París, eftir þær Júlí- önu Sveinsdóttur og Nínu Tryggvadóttur. Kjarval á þarna flest mál- verk, samtals 13, en flestir aðrir 2-5. Á sýningunni eru nokkur málverk frá Listasafni ríkisins. Málverk. Þessir málarar eiga verk á sýningunni: Jóhannes Kjarval, Gunnlaugur Scheving, Þorvaldur Skúlason, Svavar Guðnason, Benedikt Gunnarsson, Hörður Ágústsson, Hjörleifur Sigurðsson, Kristín Jónsdóttir, Júlíana Sveinsdóttir, Valtýr Pétursson, Sverrir Haralds, Snorri Arinbjarnar, Kjartan Guðjónsson, Jóhannes Jóhannesson, Sigurður Sigurðsson, Guðmunda Andrésdóttir, Karl Kvaran. Svartlist. Þessir sex senda svarlistar- myndir: Barbara Ámason, Eiríkur Smith, Valtýr Pétursson, Sverrir Haralds, Karl Kvaran, Bragi Ásgeirsson. Höggmyndir. Þessir höggmyndir: Ásmundur Sveinsson, Sigurjón Ólafsson, Magnús Á. Árnason, Gerður Helgadóttir. Nú er að koma og sjá. Það er Islandsdeild Norræna listbandalagsins er stendur að þessari sýningu, en Félag ísl. myndlistarmanna er aðili að því bandalagi. Það er ítalska menntamálaráðuneytið og borg- arstjórn Rómar sem býður til sýningarinnar. Þeir sem völdu verk íslenzku listamannanna á sýninguna eni Gunnlaugur Scheving, Svavar Guðnason, Þorvaldur Skúlason og Ásmundur Sveinsson. — Og nú er tækifærið kl. 1 í dag að fara og sjá þessa umdeildu sýn- ingu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.