Þjóðviljinn - 05.02.1955, Page 1
ÆF
Fundur verður haldinn í
sambandsstjórn Æskulýðs-
fylkingarinnar á morgun ki.
2 að Þingholtsstræti 27,
II. hæð.
Rlkisstjómin hefur gerzt sek um vítavert ábyrgð-
arleysi gagnvart framleiðslustöðvun i Vestmanna-
eyjum og stöðvun kaupskipaflotans
Forsætisráðherra svarafátt við ádeilum þingmaima verkalýðsflokkanna
Er Alþingi kom saman í gær að' loknu þinghléi deildu
þingmenn verkalýðsflokkanna fast á ríkisstjórn íhalds
og Framsóknar fyrir ábyrgðarleysi hennar gagnvart
framleiösluscöðvuninni í Vestmannaeyjum og stöðvun
kaupskipaflotans.
Var Ólafur Thors einn til varnar og fórst hún óhöndug-
lega, ympraöi enn á gengislækkun en fór nú hægar í sak-
imar en áður.
Einar Olgeirsson hóf máls á
því utan dagskrár, hvort ríkis-
stjómin hefði gert sér ljóst hvaða
vandræðaástand væri að skapast
í landinu, og hvað hún hygðist
gera til að ráða fram úr því.
V andræðaástand
Benti Einar á, að nú láti
skipafélögin stöðva hvert skip-
ið af öðru, og væru að segja
upp sjómönnum. Þessi sömu
skipafélög njóti margvíslegra
friðinda og hafi því skyldum
að gegna við þjóðfélagið. Nú
þegar væri orðinn vöruskortur
víða um land vegna stöðvunar
skipanna.
Þessi sömu skipafélög, sem
stöðva flotann vegna kröfu um
lagfæringu á kaupi fárra manna,
hafa gífurlegan gróða af rekstri
sínum.
Skýrði Einar frá því að
eitt skipafélagið hefði grætt
eina milljón króna á einni
ferð til útlanda.
Um Vestmannaeyjar minnti
Einar á að sú verstöð gefi um
100 milljónir króna útflutnings-
verðmæti á vertíðinni. Nú hafi
útgerðarmenn, sem njóti marg-
víslegra fríðinda, með róðra-
banni sínu stöðvað framleiðsl-
una þarna í heilan mánuð og
valdið þar með þjóðinni stór-
tjóni..
Taldi Einar engum efa bundið
að með þessu hefði skapazt vand-
ræðaástand, sem ekki væri við-
unandi, og gæti ríkisstjórnin
ekki látið slíkt afskiptalaust.
Haraldur Guðmundsson tók
undir ádeilu Einars og fyrir-
spurnir, og spurðist fyrir um
þingsályktunartillögu Hannibals
og Gylfa frá í haust, um ráð-
stafanir til að minnka dýrtíðina.
Ríkisstjórnin
er hrædd
Ólafur Thors var óvenju hóg-
vær og svaraði fáu. Deilurnar
Óskastundin
Blað í blaðinu!
I DAG hefur göngu sína nýtt
og nýstárlegt blað. Birtist það
á 9. og 10. síðu Þjóðviljans og
nefnlst Óskastundin. Blaðið er
ætlað börnum og imglingum,
og mun birtast á hverjum
laugardegi. Ætlazt er til að
það verði klippt ót úr Þjóð-
idljanum og síðan brotið sam-
an þannig að það myndíst
fjórar síður. Síðar mun Þjóð-
viljinn hafa á boðstólum inöpp-
ur til að geyma blaðið í.
AÐ ÖÖRU LEVTI kynnir
blaðið sig sjálft, en Þjóðvilj-
inn va'ntir þess að fá sem
bezta sani\innu \-ið yngstu
lesendurna.
------------------------1
væru í höndum sáttasemjara og
ekki venjulegt að ríkisstjórnin
gengi inn í þær á því stigi.
Taldi launadeiluna á kaupskipa-
flotanum mikið mál, þar væri
verið að reisa launahækkunar-
öldu. Og ríkisstjómin hefði látið
í ljós þann ótta sinn, að almenn
kauphækkun- hlyti að leiða til
gengislækkunar. Hún hefði nú
skrifað nokkrum aðilum sem á-
huga hefðu á myndun verðlags
í landinu og kæmu fulltrúar 8
slíkra aðila til fundar með rík-
Verkfallsstjórnin sem kosin
var í fyrrakvöld tók þegar til
starfa. Einn vélbátur gerði sig
líklegan til þess að brjóta verk-
fallið í fyrrinótt, en verkfalls-
verðir komu í veg fyrir það. Er
nú stöðugur verkfallsvörður
við höfnina í Vestmannaeyjum.
Fulltrúar sjómanna og vél-
stjóra, svo og fulltrúar útvegs-
Farskipadeilan:
Viðræður hófust
í gærkvöldi
Samningaviðræður milli full-
trúa Sambands matreiðslu- og
framreiðslumanna og fulltrúa
skipafélaganna hófust í gær-
kvöldi kl. 8.30.
Ekki hafði frétzt hvað þar
fór fram þegar blaðið fór í
prentun.
Kviknar
í vélbáti
Bolungavík í gærkvöld. Frá
fréttaritara Þjóðviljans.
Um kl. 6 í morgun kom upp
eldur í vélbátnum Vikingi héð-
an, er hann var að draga lóðir.
Skipverjar yfirgáfu bátinn og
fóru yfir í Einar Halfdáns. Her
móður er á leið með Víking til
ísafjarðar og kemur þangað
um áttaleytið.
bænda í Eyjurn komu hingað
til bæjarins í gær og kl. 4 hóf-
ust samningaviðræður með
sáttasemjara ríkisins, Skiptust
fulltrúarnir á þeim fundi á
skoðunum — sem báðum aðil-
um voru raunar kunnar áður.
Fundinum lauk kl. 4. Fundur
hefur verið boðaður í dag kl.
2 e.h.
Steingrimur Aðalsteinsson ráðinn
starfsmaður Fulltrúaráðsins
Framhald á 3. síðu.
Yerkfallsstiórn kosin - Við-
rœður hafnar hér í qœr
SjómatonafélagiÖ Jötunn og Vélstjórafélag Vestmanna-
eyja kusu 13 manna sameiginlega verkfallsstjórn á fund-
inum 1 fyrrakvöld.
í gær hófst hér í Reykjavík samningaviöræöur fyrir
tilstilli sáttasemjara ríkisins.
Stjórn Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík
réði í gær Steingrím Aöalsteinsson starfsmann Fulltrúa-
ráðs verkalýðsfélaganna.
Steingrímur Aðalsteinsson var um tveggja áratuga
skeiö helzti forustumaður verkalýðssamtakanna á Ak-
ureyri.
Steingrímur er fæddur 13.
jan. 1903. Hann missti ungur
föður sinn og varð því snemma
að vinna fyrir sér. Var fyrst
í vinnumennsku, síðan verka-
maður og hefur alla ævi unnið
sem verkamaður og bílstjóri.
Hann tók gagnfræðapróf á Ak-
ureyrí 1924.
Hann var mjög ungur valinn
til forustu í verkalýðssamtök-
unum og var formaður Verka-
mannafélags Glæsibæjarhrepps
í Krossanesverkfallinu 1930,
einu harðasta verkfalli er hér
hefur verið háð. Eftir að hann
fluttist til Akureyrar varð
hann forustumaður verka-
manna á Akureyri og formaður
verkamannafélagsins í Nóvu-
deilunni frægu. Þá hafði hann
einnig forustu í Verkalýðssam-
bandi Norðurlands. Hann var
kosinn á þing 1942 og er fyrsti
verkamaðurinn sem verður for-
seti efri deildar Alþingis.
Steingrímur hefur þannig
verið forustumaður verkalýðs-
Ins á Akureyri um 20 ára skeið,
Steingrímur Aðalsteinsson
alltaf verið jafn traustur og í
senn gætinn og harðfylginn og
því notið hins bezta trausts. Er
það reykvískum verkalýð mik-
ið happ að fá að njóta starfs-
krafta slíks manns og vænta
þau sér mikils góðs af starfi
hans. Steingrímur tekur við
starfi sínu í dag.
Norðfirðingar einhuga um
að Sáta smíða nýjan togara
Nefnd fulltrúa allra flokka I bœjarstjórn
vœnfanl. til að rœða málið við rikisstjórn
Neskaupstað. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Á bæjarstjórnarfundi í Neskaupstað í gær varð
bað samkomulag með ölFum bæjarfulltrúum að bæj-
arstjórnin beiti sér fyrir smíði nýtízku togara í stað
Egils rauða.. og skulu allir flokkar bæjarstjórnar eiga
jafna hlutdeild að malinu.
Þessi einhugur bæjarstjórnarinnar er táknrænn
fyrir afstöðu bæjarbúa almennt til málsiins og trygg-
ir að þeir muni standa saman sem einn maður.
I nefnd til að útvega nýjan
togara skipaði bæjarstjórn eft-
ir tilnefningu flokkanna: Lúð-
vík Jósepsson alþm. og til vara
Bjama Þórðarson bæjarstjóra,
tilnefnda af Sósíalistaflokkn-
um, Odd A. Sigurjónsson skóla-
stjóra og til vara Ólaf Magn-
ússon bókara, tilnefnda af Al-
þýðuflokknum, Ármann Eiríks-
son útgerðarmann og til vara
Ármann Magnússon tilnefnda
frá Framsóknarflokknum og
Axel Túliníus bæjarfógeta og
til vara Reyni Zoega vélsmíða-
meistara tilnefnda af Sjálfstæð-
isflokknum.
Vilja nýjan togara —
ekki gamlan.
Nefndin mun fara til Rvíkur
á fund ríkisstjórnarinnar,
leggja fyrir hana greinargerð
um málið og leita eftir fyrir-
greiðslu hennar.
Mjög mikill og almennur á-
hugi er fyrir málinu í bæn-
um og menn eru sammála um
að stefna beri að- ,|því að
láta smíða nýjan togara, en
ekki að kaupa gamlan.
Vænta fastlega að fá
nýtt skip.
Bæjarbúar fagna því að bæj-
arstjórn skyldi bera gæfu til
að standa saman í málinu og
treysta því fastlega að nýtt
skip fáist í bæinn.
Bæjarstjórn telur að áætla
megi að Norðfirðingar leggi
fram 2 millj. kr. til skipakaup-
anna.