Þjóðviljinn - 05.02.1955, Síða 7

Þjóðviljinn - 05.02.1955, Síða 7
Laugardagur 5. febrúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7 TAFARLAUS UPPSÖGN HERVERNDAR- SAMNINGSINS hlýtur að vera hraia allra þjoðhollra íslendinga i. Þegar ísland endurheimti stjómarfarslegt sjálfstaeði sitt 1918 var lýst yfir ævarandi hlutleysi íslenzka rikisins. Yf- irlýsing þessi byggðist ekki síð- ur á viðurkenningu staðreynda stjórnmálanna en siðferðilegu mati. Óvopnuð þjóð getur ekki haldið sjálfstæði sinu nema með því að varðveita hlutleysi sitt. Ef óvopnuð þjóð neyðist til að þiggja hervernd erlends ríkis, felur hún því ríki að nokkru forsjá sinna mála. Um leið hefur fullveldi hennar ver- ið skert. Þegar óvopnuð smáþjóð fell- Ur frá hlutleysi, hljóta þannig að því að hníga svo sterk rök, að nauðsyn brjóti lög. Þannig hafa íslenzkar ríkisstjórnir jafnan lagt sig allar fram til þess að telja þjóðinni trú um, að önnur leið hafi ekki verið fyrir hendi en sú, sem farin var, hvert sinn sem fallið hef- ur verið frá hlutleysi lands- ins. Ekki hefur skipt máli, hvort um hefur verið að ræða kvaðningu bandarísks setuliðs inn í landið sumarið 1941, samþykkt Keflavíkursamnings- ins eða aðildina að Atlanz- hafsbandalaginu. Og gerð her- verndarsamningsins við Banda- ríkin er hér engin undantekn- ing. Bandaríska setuliðið kom hingað að morgni 7. maí. Sama dag var birtur samningur, sém íslenzka ríkisstjómin hafði gert við ríkisstjórn Bandarikjanna tveim dögum áður. í samningi þessum var kveðið svo á, að Bandaríkin tækju að sér hervernd íslands. Sámningur þessi, sem er einn mikilvægasti milliríkjasamn- ingur, er ísland hefur nokkru sinni gert, var ekki lagður fyrir Alþingi til samþykktar áður en hann var staðfestur í ríkisráði. Samningurinn var einungis ræddur á fundi, sem skotið var á með þingmönnum þriggja stjórnmálaflokka. Þegar ríkisstjórnin lét birta herverndarsamninginn, sendi hún frá sér greinargerð um aðdraganda og orsakir samningsgerðarinnar. í grein- argerð þessari er meðal ann- ars komizt svo að orði: „Þegar íslendingar gerðust aðilar Norður-Atlanzhafssamningsins ákváðu þeir þar með að verða aðilar varnarsamtaka Norður- Atlanzhafsríkjanna ... Vegna sérstöðu íslendinga var það hins vegar viðurkennt, að ís- land hefði engan her og ætlaði ekki að stofna her og að ekki kæmi til mála, að erlendur her eða herstöðvar yrðu á íslandi á ófriðartímum. — Hins vegar var það fastmælum bundið, að ef til ófriðar kæmi mundi bandalagsþjóðunum veitt svip- uð aðstaða og í síðasta stríði og yrði það þá algerlega á valdi íslands sjálfs, hvenær sú aðstaða yrði látin í té...“ Síðar í greinargerðinni segir: „Samningur þessi er gerður með það fyrir augum, að á slikum hættu- og ófriðartím- um, sem nú eru, sé séð fyrir vörnum íslands, þannig að al- gert varnarleysi leiði ekki hættur yfir íslenzku þjóðina og friðsama nágranna hennar. — Jafnframt er það tryggt, að íslendingar geta með hæfileg- um fyrirvara sagt samningn- Ræða sú, sem Har- aldur Jóhannsson, hagfræðingur, flutti á fundi Samvinnu- nefndar hernáms- andstæðinga í fyrrakvöld. um upp, þannig að við getum látið vamarliðið hverfa úr landinu, er við viljum og telj- um það fært af öryggisástæð- um“. — Þau ákvæði her- vemdarsamningsins, sem fjalla um uppsögn hans og hér er vikið að, eru í VII. gr. hans og hljóða þannig: „Hvor ríkis- stjórnin getur, hvenær sem er, jað undanfarinni tilkynningu til hinnar ríkisstjórnarinnar, farið þess á leit við ráð Norð- ur-Atlanzhafsbandalagsins, að það endurskoði, hvort lengur þurfi á að halda framan- greindri aðstöðu og gert tillög- um þsð, hvort ssmningur þessi skuli gilda áfram. Ef slík málaleitan um endurskoð- un leiðir ekki til þess, að rík- isstjómirnar verði ásáttar inn- an sex mánaða frá þvi, að málaleitunin var borin ffam, getur hvor ríkisstjórnin, hve- nær sem er eftir það, sagt samningunum upp, og skal hann þá falla úr gildi tólf mán- uðum síðar. Hvenær, sem at- burðir þeir verða, sem 5. og 6. grein Norður-Atlanzhafs- samningsins tekur til, skal að- staða sú veitt, er með samn- ingi þessum látin er í té og á sama hátt. Meðan aðstaðan er eigi notuð til hernaðarþarfa, mun ísland annaðhvort sjálft sjá um nauðsynlegt viðhald á mannvirkjum eða heimila Bandaríkjunum að annast það“. I greinargerð þeirri, sem fylgdi hervemdarsamningn- um úr hlaði er þannig ský- laust viðurkennt, að dvöl er- lends herliðs í landinu sé í sjálfu sér til mikilla vand- ræða og þess vegna til bráða- birgða og verði aðeins réttlætt í krafti mjög viðsjarverða al- þjóðlegra aðstæðna. Sá mál- flutningur,, sem rikisstjórnin og málsvarar hennar hafa not- að til þess að réttlæta her- verndarsamninginn er byggð- ur á tveim forsendum, að bezt verður sé. Sú fyrri er, að ný heimsstyrjöld sé yfirvofandi, en hin síðari, að íslandi sé hervernd nauðsynleg á síyrj- aldartímum, sökum þess að landið muni sogast inn í styrj- aldarátökin. Umræður um upp- sögn herverndarsamningsins snúast þess vegna eðlilega um það, hvort hér sé um réttan skilning að ræða á þeim að- stæðum, sem ísland á nú við að búa, Ef þetta mat á aiþjóð- legum aðstæðum reynist vera á rökum reist, er unnt að rétt- læta herverndarsamninginn og dvöl erlends herliðs í landinu. Ef rnat þetta reynist hins veg- ar ekki vera x samræmi við staðreyndirnar, á herverndar- samningurinn sér vart nokkra réttlætingu. II. Athugum nú þennan mál- flutning ríkisstjórnarinnar og þá. fyrri lið hans fyrst. Eru horfur á, að ný styrjöld brjót- ist út á næstunni? Þeirri spuniingu verður ekki svarað án þess að drepa stuttlega á atburðarás síðustu ára. Samt skal ekki farið út í þá sálma, hver eigi höfuðsök á kalda stríðinu, átökum þeim í milli- ríkjamálum, sem skipt hafa heiminum í tvær andstæðar fylkingar alvopnaðar, heldur vikið að þeim atburðum, sem síður orka tvímælis: hvernig og hvers vegna dregið hefur úr stórveldaátökunum að und- anförnu. Um áramótin 1950—’51 urðu greinileg þáttaskil í þróun milliríkjamála eftir lok II. heimsstyrjaldarinnar. Þegar hersveitir Mac Arthurs sóttu í árslok fast undir landamæri kínverska alþýðulýðveldisins, skárust kínverskir hermenn í leikinn og lirökktu hersveitir Bandaríkjanna og stuðnings- rikja þeirra suður á bóginn. Yfirhershöfðingi þeirra Mc Arthur fór þá fram á heimild ríkisstjómar sinnar til þess að hefja loftárásir á kinverskt iandsvæði. Þótt slíkar loftárás- ir hefðu sennilega orðið upphaf allsherjarstyrjaldar í Asíu, hugðist bandaríska ríkisstjórn- in verða við þeirri kröfu hers- höfðingjans. Þegar sú frétt barst brezku Verkamanna- flokksstjórninni, flaug forsæt- isráðherra hennar vestur um haf og tilkynnti bandarísku ríkisstjórninni, að Bretland sliti hernaðarbandalagi sínu við Bandaríkin, ef árásir yrðu hafnar á Kína. Þar eð öunur Evrópuríki hefðu farið að dæmi Bretlands og Bandarik- in staðið andspænis nýrri stór- veldastyrjöld einangruð stjórn- málalega og hernaðarlega, féll ríkisstjórn Bandarikjanna frá þessum fyi'irætlunum sinum. Þetta er staðreynd sem for- ystumenn brezka Verka- mannaflokksins hafa haldið mjög á loft og það að verð- leikum, þótt önnur sjónarmið en friðarást kunni að hafa ,Ver- ið þyngst á metunum. Hlið- * stæðir atburðir og þessi end- urtóku sig, áður en vígstöðva- hernaður var látinn niður falla í Austur-Asíu. Þegar kyrrstaða komst á í stríðinu i Kóreu, fóru að heyrast háværar radd- ir um það í Bandaríkjunum, að færa ætti út vettvang styrj- aldarinnar. Flotamálaráðherra Bandaríkjanna, Kimball, og oddviti flotaráðs þeirra, Fechteler aðmíráll, lýstu því báðir yfir 24. janúar 1952 að Bandaríkin hyggðust ekki leng- ur einskorða hemaðaraðgerðir sína í stríðinu í Kóreu við það land eitt, heldur búast til þess að lýsa hafnbanni á Kína og hefja' loftárásir á samgöngu- leiðir og iðjuver í Mansjúriu. Stassen, sá ráðherra Banda- ríkjanna, sem nú hefur um- sjón með svonefndri efnahags- aðstoð þeirra við önnur lönd, krafðist þess um miðjan febr- úar 1952, að Bandaríkin efldu leifar hers Sjang Kaiséks til innrásar í Kína, í því augna- miði að stofna til gagnbylting- ar. John Foster Dulles, nú ut- anríkisráðherra Bandaríkj- anna, sagði í útvarpsviðtali 10. febi'úar 1952, að „Bandaríkin mundu ekki sitja aðgerðarlaus hjá, meðan nokkur hluti heimsins væri undir yfirráð- um kommúnistísks eða fasist- ísks einræðis" og „aðgerðir Bandaríkjanna í Kóreu væru skref í þá átt að stofna til gagnbyltingar í Kína“). Um vorið 1952 hófu Bandaríkin síðan ákafar loftárásir á orku- ver á landamærum Kóreu og Mansjúríu. En þá endurtók sig sama sagan og gerðist um áramótin 1950—’51, að ríki þau, sem veittu Bandaríkjun- um að málum í styrjöldinni, komu þeim í skilning um, að þau drægju sig í hlé og lýstu yfir hlutleysi sínu ef Banda- ríkin hæfu hernaðaraðgerðir gegn Kína. Bandaríkin sáu sig þá til þess knúin að fallast á umræður um vopnahlé það í Kóreu, sem að lokum náðist fram. Forráðamenn BandaríkJ- anna voru þó ekki af baki dottnir. í fyrra sumar, þegar ljóst varð, að Frakkar höfðu tapað styrjöldinni í Indó-Kina og voru reiðubúnir að ganga til friðarsamninga við Viet Minh, fóru Bandaríkin þess formlega á leit við bi'ezku ríkisstjórnina, að hún tæki með sér þátt í hernaðaraðgerð- um til þess að leysa virkisbæ- in Dien Bien Phu úr umsátri. Brezka ríkisstjórnin hafnaði þeirri málaleitan og utanrikis- ráðherra hennar fór um hana þessum orðum í umræðum í brezka þinginu 23. júní 1954: „Það er satt, að við vorum aldrei fáanlegir til að styðja slíkar aðgerðir. Til þess liggja þrjár ástæður. .. í fyrsta lagí var okkur tjáð, að loftárásir einar hefðu ekki dugað. í öðru lagi hefði hvers kyns íhlutun af þessu tagi lokað öllum sam- komulagsleiðum í Genf. í þriðja lagi kynni það að hafa orðið upphaf allsherjarstyrj- aldar í Asíu“. Svo mörg eru þau orð brezka utanríkisráð- herrans. Þarf frekari vitna við um friðarvilja Bandaríkjanna í Asíu? — Enn hafa ýmsir leiðtogar Bandaríkjanna ekki gefið upp alla von um gagn- byltingu í Kína, eins og at- burðir síðustu daga bera með sér. Fullreynt má þó teljast, að þeir geta ekki fengið neitt annað stórveldi í lið með sér. En hvað um það, þá verður ekki um það deilt, að friðar- horfur hafa batnað stórlega að undanförnu og ekkert virðist Framhald á 8. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.