Þjóðviljinn - 05.02.1955, Síða 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 5. ferbúar 1955
t5>
ÞJÓDLEIKHÚSID
Fædd í gær
eftir: Garson Kar.in
Þýðandi Karl ísfeld
Leikstjóri:: Indriði Waage
Frumsýning í kvöld kl. 20.00
UPPselt
Frumsýningarverð
Óperurnar
Pagliacci
Og
Cavalleria Rusticana
sýning sunnudag kl. 20.00
Gullna hliðið
sýningar þriðjudag kl. 20.00
UPPSELT
og föstudag kl. 20.00
Aðgöngumiðasalan opin frá
kl. 13.15—20. Tekið á móti
pöntunum, simi: 8-2345, tvær
línur.
Pantanir sækist daginn fyr-
ir sýningardag, annars seldar
öðrum.
Sími 6485.
Brimaldan stríða
(The Cruel Sea)
Myndin, sem beðið hefur ver
ið eftir. Aðalhlutverk:: Jack
Hawkins, John Stratton, Vir-
ginia McKelina.
Þetta er saga um sjó og seltu,
um glímu við Ægi og misk-
unnarlaus morðtól síðustu
heimsstyrjaldar.
Myndin er gerð eftir sam-
nefndri metsölubók, sem kom-
ið hefur út á íslenzku.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9,15.
Sími 1475.
Söngur
fiskimannsins
(The Toast of New Orleans)
Ný bráðskemmtileg bandarísk
söngmynd í litum. Aðalhlut-
verkin leika og syngja
Mario Ianza og
Kathryn Grayson
m. a. lög úr óp. „La Traviata“,
„Carmen" og „Madame Butt-
erfiy“.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Gullna antilópan
Rússnesk litteiknimynd — og
fleiri gullfallegar barnamynd-
ir.
Sýnd kl. 3.
Laugaveg 30 — Siml 82209
Fjölbreytt úrval af steinhringum
- Póstsendum —
6. vika:
Vanþakklátt hjarta
ttölsk úrvals kvikmynd eft-
ir samnefndri skáldsögu, sem
komið hefur út á íslenzku.
Carla dei Poggio
(Hin fræga nýja ítalska
kvikmyndast j arna ),
Frank Latimore.
Myndin hefur ekki verið
sýnd áður hér á landi.
Danskur skýringatexti.
Bönnuð börnum
Sýnd kl. 9
Frænka Charleys
Afburða fyndin og fjörug ný
ensk amerísk gamanmynd í
litum.
Sýnd ki. 7.
Simi 1384.
Á kvennaveiðum
(About Face)
Bráðskemmtileg og f jörug, ný,
amerísk söngva- og gaman-
mynd í litum.
Aðalhlutverk:
Gordon MacRae, Eddie Brac-
ken, Virginia Gibson.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Simi 6444.
Læknirinn hennar
(Magnificent Obsession)
Stórbrotin og hrífandi ný
amerísk úrvalsmynd, byggð
á skáldsögu eftir Lioyd C.
Douglas. — Sagan kom í
„Familie Journalen" í vetur,
undir nafninu „Den Store
Læge“.
Jane Wyman, Rock Hudson,
Barbara Rush.
Myndin var frumsýnd i
Bandaríkjunum 15. júlí s.l.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sími 1544.
Séra Camillo
snýr aftur
(Le retour de Dan Comilla)
Bráðfyndin og skemmtileg
frönsk gamanmynd eftir sögu
G. Guareschis, sem nýlega
hefur komið út i ísl. þýðingu
undír nafninu Nýjar sögur af
Don 'Camillo. Framhald mynd-
arinnar Séra Camillo og
kommúnistinn.
Aðalhlutverk: FERNANDEL
(sem séra Camillo) og GINO
CERVI (sem Peppone borgar-
stjóri).
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
-.1/ VMH
'REYKJðVÍKDIO
Frænka Charleys
Gamanleikurinn góðkunni.
67. sýning
í dag kl. 4,30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2
N O I
Sjónleikur í 5 sýningum.
Brynjólfur Jóhannesson
í aðalhlutverkinu.
Sýning annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 3
í dag. — Sími 3191.
HP ' 'l'l"
Inpoiibio
Simi 1182.
Ég dómarinn
(I, The Jury)
Afar spennandi, ný amerísk
mynd, gerð eftir hinni vin-
sælu metsölubók „ÉG DÓM-
ARINN“ eftir Mickey Spillane,
;r nýlega hefur komið út í
íslenzkri þýðingu.
Aðalhlutverk:
Biff Elliot, Preston Foster,
Peggie Castle.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára
Sala hefst kl. 4.
Sími 81936.
PAULA
Afar áhrifamikil og óvenju-
leg ný amerísk mynd um ör-
lagaríka atburði, sem nærri
kollvarpa lífshamingju ungr-
ar og glæsilegrar konu. Mynd
þessi, sem er afburða vel leik-
in, mun skilja eftir ógleyman-
leg áhrif á áhorfendur. —
Loretta Young, Kent Smith,
Alexander Knox.
Sýnd kl. 7 og 9.
Captain Blood
Afar spennandi sjóræningja-
mynd um hina alþekktu sjó-
ræningjahetju R. Sabatinis.
Sýnd kl. 5.
Sýning á morgun kl. 3 í Iðnó:
Baldur Georgs sýnir töfra-
brögð í hléinu.
! Aðgöngumiðar seldir frá kl.
11 á sunnudag. Sími 3191.
Ræða Haralds Jóhannssonar
Framhald af 7. síðu.
nú líklegt til þess að rjúfa frið-
inn, — nema þá helzt Banda-
ríkin. Af þeim sökum er ó-
hætt að fullyrða, að ísland er
ekkj líklegt til þess að þurfa
á hervernd Bandaríkjanna að
halda í náinni framtíð gegn
árás. Sá málflutningur ríkis-
stjórnarinnar og málsvara
hennar stenzt ekki athugun.
III.
En ef við gerum þrátt fyrir
allt ráð fyrir, að svo láti að
ólíkindum, að ný styrjöld
brjótist út, að Bandaríkjunum
takist að stofna til nýrrar
heimsstyrjaldar í Asíu, hvað
líður þá hinum þættinum í
málflutningi ríkisstjórnarinn-
ar, þeim að íslandi sé her-
vernd nauðsynleg á styrjald-
artímum? Áður en þessari
spurningu er svarað virðist
þurfa að svara annarri: Eru
horfur á, að ísland verði ófrið-
arvettvangur í nýrri styrjöld?
Hefur ísland hernaðarlegt
gildi, og ef svo er, þá hvers
vegna? f greinaflokki, sem dr.
Gylfi Þ. Gíslason skrifaði i Al-
þýðublaðið haustið 1953 og
hlotið hefur minni athygli en
hann verðskuldar margra hluta
vegna, svarar hann þessari
spurningu þannig: „Ef hér
væri enginn stór flugvöllur,
yrði landið ekki hertekið af
öðrum en þeim, sem ráða haf-
inu umhverfis landið. Hernað-
arþýðing þess er fyrst og
fremst fólgin í því að þaðan
verður ráðið siglingum um At-
lanzhaf norðanvert. Gæzla
þeirra krefst stórs flugvallar.
Hann bætir hins vegar skil-
yrði árásaraðila, sem ræður
ekki hafinu umhverfis landið
til þess að hertaka það eða
valda hér alvarlegum truflun-
um“. (Alþbl. 7. ág. 1953). Mér
sýnist sem það sé rétt athug-
að, að landið hafi fyrst og
fremst það hernaðarlegt gildi,
að herstöðvar hérlendis geta
skapað aðstöðu til þess að ráða
miklu um siglingar um norðan-
vert Atlanzhaf Eg held þó, að
hernaðarlegt gildi landsins
hljóti jöfnum höndum að hvíla
á því, að héðan er góð aðstaða
til loftárása á meginlöndin í
austri og vestri. En um hitt
eru menn sammála, að ísland
hafi herstöðulegt gildi en ekki
annað hernaðarlegt mikilvægi.
Það jafngildir því, að takist
þeim styrjaldaraðilanum, sem
ekki á yfir herstöðvunum hér-
lendis að ráða, að eyðileggja
herstöðvarnar er hernaðarlegt
gildi landsins úr sögunni að
minnsta kosti um skeið. Og
hafi herstöðvarnar hérlendis
verið eyðilagðar, skiptir það
ekki miklu máli fyrir stríðsað-
ila, hvort hann heldur landinu
eða ekki, meðan nýjum her-
stöðvum verður ekki komið
upp. Og þá er rétt að hafa
það hugfast, að eyðileggja má
herstöðvarnar í landinu án
þess að hertaka landið. Leik-
mönnum mun vera hyggileg-
ast að tala gætilega um hluti
sem þessa, en það mun ekki
ofsagt, að bylting síðustu ára
í hertækni hafi fært herjum í
hendur vopn, sem búa yfir
eyðingarmætti er furðum sæt-
ir. Og í þessu sambandi má
taka undir þessi ummæli dr.
Gylfa Þ. Gíslasonar í fyrr-
nefndum greinaflokki: „Varð-
andi þá kenningu að Rússar
kynnu að gera tilraun til þess
að hernema ísland í upphafi
styrjaldar til þess að eyðileggja
hér mannvirki og trufla flutn-
inga frá Bandaríkjunum til
Evrópu á alvarlegasta tíma,
er það að segja, að Rússar
þyrftu tæplega að hemema
landið til þess að stofna hér
til stórfelldra eyðilegginga".
En hve víðtækar yrðu þær
stórfelldu eyðileggingar, sem
dr. G. Þ. Gíslason talar hér
um? Brezki eðlisfræðingur og
Nóbelsverðlaunahafinn P. M.
S. Blackett hefur skrifað um
vetnissprengjuna: „Um spreng-
ingamátt hennar er það að
segja að gera má ráð fyrir að
hann sé þúsund sinnum meiri
én kjarnorkusprengjunnar frá
1945, — þótt smíða megi stærri
sprengju. Slík sprengja getur
orsakað algera eyðileggingu á
svæði, sem hefur 10 mílna
geisla eða um 300 fermílur.
Það er álíka stórt svæði og
Lundúnaborg nær yfir“. (New
Statesman and Nation 21. ág-
úst 1953). Þannig farast þess-
um heimskunna vísindamanni
orð. Og það svæði, sem er
lífshættulegt er margfalt
stærra en það, sem gereyðing-
in nær til. Með tilliti til hern-
aðarlegs gildis Keflavíkur-
flugvallar þarf ekki að draga
í efa, að óvinir þeirra, sem
yfir vellinum ráða, mundu fátt
til spara að ryðja flugvellinum
úr vegi. Þegar vopnabúnaður
hefur náð því stigi, sem hann
stendur á í dag, og aðeins ó-
skeikul vörn kemur að haldi,
er vart að sökum að spyrja
um endalokin. En ef vetnis-
sprengja félli á Keflavíkur-
flugvöll, væri, vægt sagt, vafa-
samt, að Reykvíkingar lifðu
þann atburð af. Og hvaða
vernd er af herstöðvum, sem
sjálfar verða eftirsóttasta skot-
markið í landinu og bjóða
þeirri hættu heim, að helming-
ur landsmanna verði máður
út?
Sá málflutningur ríkisstjórn-
arinnar, að íslendingum sé
þörf herverndar á styrjaldar-
tímum, er þannig tvímælalaust
reistur á sandi. Þvert á móti
má segja, að íslendingar væru
öruggari án herstöðvanna en í
„skjóli" þeirra.
Það getur engum dulizt, sem
kynnir sér þessi mál, að hvor-
ug þeirra meginröksemda, sem
ríkisstjórnin hefur notað til
þess að réttlæta með hervernd-
arsamninginn, dvöl erlends
herliðs í landinu, standast,
þegar þær eru athugaðar. Það
hlýtur þess vegna að vera krafa
þjóðarinnar að herverndar-
samningnum verði sagt upp án
tafar.