Þjóðviljinn - 12.02.1955, Page 4

Þjóðviljinn - 12.02.1955, Page 4
4) __ ÞJÓÐVIUINN — Laugardagur 12. febrúar 1955 Sanngjarn launagrund- zöllur. Flestir munu telja að vart sé finnanlegur sanngjamari grundvöllur fyrir launa- greiðslu framleiðslustarfa en iblutdeild í framleiðslunni. Hitt er að ajálfsögðu jafnan roatsatriði hve mikinn hluta íramleiðslunnar beri að gjalda sem vinnulaun. Á íslenzka bátaflotanum befur þetta fyrirkomulag níðkast um langt skeið, þann- ig að sjómenn fá vissan hluta eflans sem kaup fyrir störf gín. Á löngu liðnum árum tíðkaðist það oft, að sjómað- ur fékk hlut sínum úrskipt og annaðist verkun hans og sölu sjálfur. En með fram- þróun tækninnar hefur sífellt rekið að því að slík vinnu- brögð þoka fyrir þeim yfir- burðum, sem stærri iðjuver hafa til hagkvæmari fram- leiðsluhátta. Sjómenn, sem litla sem enga aðstöðu hafa til að koma á stóriðju um fiskverkun hafa bví á síðari árum jafnan gert samninga um að selja útgerð- armanni sínum aflahlutinn. Jafnvirðisreglan gafst ágœtlegd. Verð aflans hefur oft orðið deiluefni í upphafi vertíðar. Sn í lok síðasta stríðs leystu sjómenn og útgerðarmenn í Vestmannaeyjum þetta flókna og sí-umdeilda vandamál ofur einfaldlega með því að á- kveða, að endanlegt fiskverð til beggja aðila skyldi jafnan vera hið sama. Þessu samkomulagi fögnuðu •báðir aðilar og gekk nú að því er þetta varðaði allt með iullkomnu samkomulagi um hríð. LÍÚ og ríkisstjórnin rufu þá reglu er bezt gafst. Kröfur sjómcmxta í Eyjum eru studdar óhrekjandi rökum Allar tilraunir til að ná bátagjaldeyrinum af sjómönnum eru vonlaus bellibrögð gjaldeyrisbraskara leita réttar síns og héldu á- fram í 3 ár að vinna eftir ó- breyttum samningi sínum án þess að fá nein dómsúrslit. Loks varö að tryggja skil- vísa greiðslu með nýjum samningi. En í ársbyrjun 1954 var svo komið, að sjómenn sáu sér ekki lengur fært að hefja vertíð án þess að tryggja sér með nýjum samningum, að svo óhófleg bið yrði ekki k uppgjöri sem nú var orðin. Sömdu þeir því í janúar í fyrra um fast fiskverð kr. 1,22 fyrir kg. af þorski, en við þá samningsgerð var því haldið fram af útgerðar- mönnum og sáttanefnd að það væri fullvirði fiskjarins og gjaldeyrisfríðindanna. Sjómenn hafa aldrei fengið aðstöðu til að fylgjast með af- urðasölunni né heldur verzl- uninni með bátagjaldeyrinn, stjórnarvöldin sjá svo um að það sé í höndum útgerðar- manna einna. Því töldu sjó- menn að kr. 1,22 væri full- virði fiskjarins og í því trausti var sá samningur gerður. Nú er því svo háttað, að ekki er gott að vita fyrirfram með fullri vissu hve mikils virði gjaldeyrisfríðindin kunna 'að reynast, og það má vel vera, að sáttanefnd og út- gerðarmenn hafi flutt málið í góðri trú. Samningar annarra skerða ekki rétt Eyja-sjómanna. Sumir þeir, sem um deilu þessa ræða og skrifa, telja það glata rétti Eyja-sjó- manna til fullvirðis fyrir sinn fisk, að sjómenn í ýmsum öðr- um verstöðvum hafi ekki sótt rétt sinn af nægilegri festu til árangurs. En því er þar til að svara, að réttur Eyja-sjó- manna verður aldrei af þeim tekinn, með samningum óvið- komandi aðila, hvort heldur eru L.I.Ú. og ríkisstjórnin eða sjómannafélög við Faxaflóa og samtök atvinnurekenda. Dómstólar staðfesta rétt sjómanna. Sjó- og verzlunardómur Vestmannaeyja dæmdi á s.l.. ári í bátagjaldeyrismáli sjó- mannanna og vísaði á bug þeirri kenningu L.Í.Ú.-for- kólfanna, að jafnréttisákvæð- ið næði ekki til bátagjaldeyr- isins. Hæstiréttur felldi dóm í þessu sama máli í s.l. mánuði og staðfesti í öllu héraðsdóm- inn. Formaður L.Í.Ú. hefur þó látið hafa það eftir sér, að þessum dómi verði ekki sinnt nema fyrir árið 1951, enda þótt óbreyttar aðstæður séu fyrir ’52 og ’53. Þegar útgerðarmenn bjóða sjómönnum að láta gerðardóm undir forsæti Hæstaréttar <?>- skera úr verðlagsmálunum nú, þá virðist liggja nær, að þeir viðurkenni og hlíti þeim dómi sem fyrir liggur. Öðru máli blandað í fisk- verðsdeiluna 1 umræðum um þessi mál er því oft blandað, að kjara- samningur sjó- og útgerðar- manna í Eyjum er einnig .op- inn. Þar höfðu nefndir Eyja- manna unnið að breytingum og virtist allt draga til sam- komulags þar. Eitt atriði var þó ekki komið samkomulag um, þegar þeirri samningsgerð var hætt. Það var, hvernig greiða skyldi aukamanni, sem stundum er tekinn á báta þeg- ar mést veiðist á netavertíð. Vildu útgerðarmenn að hlut- ur hans yrði að hálfu greidd- ur af aflaþriðjungi skipshafn- arinnar, en að hálfu af afla- hlut útgerðarinnar, Þessu höfnuðu sjómenn og töldu sanngjamara að greiðsla til aukamanns tækist af óskiptum afla. Á fundi í Sjómannafélaginu Jötni var tilboð útgerðar- manna sem sagt fellt með litl- um atkvæðamun. Þetta smáatriði reyna mál- svarar gjaldeyrisbraskaranna nú að gera að aðalatriði og telja það hafa haft úrslita þýðingu um það, að róðrar hófust ekki í janúarmánuði. Hitt er þó augljóst mál, að oslurlnn Troðningur og hrindingar á dansskemmtunum - Má hleypa inn ótakmarkað? — Fróðlegt erindi útvarpi — Um kosti sambýlis En árið 1951 gaf ríkis- isstjómin, eftir mikla samn- jngagerð við forráðamenn L.Í.Ú. út reglumar um báta- gjaldeyris fyrirkomulagið. Var það yfirlýstur tilgangur þeirra ráðstafana að hækka verð á bátafiski. Það kom jika í ljós að fríðindi þessi skiluðu uppbót á fiskverðið. En þegar útgerða'rmenn í ÍEyjum ætluðu að skila þeirri 'iippbót til sjómanna sinna, sem samningar stóðu til að þeir ættu, þá Iögðu L.I.Ú.-for- Qtólfarnir blátt bann við því óg töldu útgerðarmenn eina eiga þessa fiskverðsuppbót. Líklegt er að í þessu hafi þeir stuðst við ráðabmgg sitt iOg ríkisstjómarinnar, sem þá eins og nú taldi það helztu köllun sína að varna fram- 3eiðslustéttum landsins eðli- jegrar hlutdeildar í þjóðar- tekjunum. Sjómenn hvikuðu auðvitað í engu frá þeirri kröfu sinni, að fiskverð til hlutarsjó- manna yrði greitt eftir kjara- samningi þeirra, enda er það augljóst mál, að engan rétt 'iiöfðu ráðherrar og reykvískir "átgerðarbraskarar til að nema úr gildi kjarasamning sjómanna í Eyjum, þótt þeir gæfu út reglugerð um báta- gjaldeyri. Samningsrofin leiddu til Tangra málaferla. Sjómannasamtökin höfðuðu onál fyrir dómstólum til að Sannanlegt fiskverð er nú 139.6 aurar á kíló. En það sem reynist rangt á að leiðrétta. Og nú liggur ofur augljóslega fyrir að gjaldeyrisfríðindin verða ekki metin undir 54,6 aumm pr. kg. Þetta sést af því að frysti- húsin kaupa fisk þann sem engin gjaldeyrisréttindi fylgja á kr. 0,85. Útvegsmenn selja frystihúsunum hins vegar fisk á kr. 1,15 og láta þá fylgja til kaupandans 55% af gjaldeyrisfríðindunum. Það er því augljóst að 55% þessara fríðinda meta útvegsmenn á 30 aura pr. kg., en það svarar til þess að öll réttindin gefi 54.6 aura á kg. Samanlagt fiskverð er því 85 + 54,6=139,6 aurar. Sjómenn gœta állrar sctnngirni. Sjómenn fá hins vegar að- eins kr. 1,22 og er fiskverðs- krafa þeirra kr. 1,38 því mjög sanngjöm og tekur tíllit til þess kostnaðar, sem á fram- kvæmd þessa fyrirkomulags er. Þéir sem nú setja sig í veg fyrir, að það ákvæði úr kjara- samningum sem bezt hefur gefist, jáfnvirðisákvæðið, sé í heiðri haft taka -því á sig á- byrgð af því að deilur og framleiðslutruflanir verði ár- legt fyrirbæri í upphafi hverr- ar vertíðar. SAMKOMUGESTUR hefur beðið Bæjarpóstinn fyrir eftirfarandi athugasemd til samkomuhúsa: „ÞAÐ ER MARGT sem mér þyk- ir einkennilegt í sambandi við rekstur samkomuhúsa hér í bæ. Það eru dansskemmtanir ná- lega dag hvern og sjálfsagt ekkert við því að segja. Hitt er annað mál að þama er svo mörgum seldur aðgangur að maður er undraridi yfir að þarna skuli eiga að stíga dans. En í stað dansins verða þama hrindingar og troðningur og sé fölk vel búið er hætta á skemmdum á fötum. Hvað þá ef aliir vildu dansa í einu. Slíkt er með öllu útilokað. Fjöldinn situr við drykkju og dansa, enda. yrði þá hver að standa þar sem hann er kom- inn. Svo virðast þessir staðir hafa leyfi til að hækka að- gangseyri eftir vild og hefur aðgangur að dansskemmturium á laugardögum nýlega verið hækkaður ripp í 40 krónur þótt ekkert sé til skemmtunar nema dansinn. Mig langaði til að spyrja, hvort erígin tákmðrk væru fyrir því hve mörgu fólki mætti selja inn í húsin á svona samkomur. Það væri fróðlegt að fá upplýsingar um það. Samkomugestur“. HLUSTANDI skrifar: ,,Ég hlýddi um daginn á er- indi í útvarpinu sem vakti at- hygli mína og mér er kunnugt um að fjöldi fólks var ánægð- ur með það og þau sjónarmið sem þar komu fram. Þetta var erindi Skúla H. Norðdahls um samfélagshús. Alltof lítið hef- ur verið gert að því að kynna fyrir landsmönnum byggingar af þessu tagi og benda á kosti sambýlisins. Enda er það út- breidd skoðun hér að hámark frelsisins sé að eiga hús útaf fyrir sig. Það er að vísu gott og blessað en einbýlishús geta aldrei leyst húsnæðisvandamál- in. Þess vegna ber að fræða fólk um skipulag sambygginga og hvemig sambýlið héfur reynzt í verki þar sem tilraun- ir hafa verið gerðar með það. Margir óttast að sambýli af ' þessu tagi orsaki 'það að fólk 1 háfi aldrei frlð til að lifa einka- á þessu atriði hefði vertíð aldrei verið látin tefjast, ekki einu sinni í aprílmánuði, þegar þessi aukamaður kemur við sögu, hvað þá í janúar, þegar um engan slíkan mann er að ræða. Allt skraf um þetta smá- atriði nú er því einungis til þess ætlað að skyggja á þann megin tilgang útgerðarfor- kólfanna hér við Faxaflóa — sem telja sig þetta árið geta komist hjá að greiða fullt verð fyrir aflahlut sjómanna sinna — að nota útgerðar- menn í Eyjum sem skjöld fyr- ir sig, hvað sem það kostar Vestmanneyinga og þjóðar- heildina. Sjómenn hafa bent á ýmsar leiðir Sjóménn hafa í samninga- umleitunum bent á ýmsar samningsleiðir. Þeir hafa í aðaltillögu sinni bent á þá leið að fiskverðs- hækkun verði reynd með því að sjómenn og útvegsmenn semji sameiginlega við fisk- kaupendur um verðhækkun, enda verði þá öll bátagjáld- eyrisfriðindin seld með fisk- inum. Flestir smærri útgerðar- menn í Eyjum munu sam- þykkir þessari leið, enda eiga þeir í ýmsum erfiðleikum með að ná inn sínum hlut gjald- eyrisverðmætanna úr höndum L.Í.Ú. En ekki hafa samninga- menn útvegsmanna léð máls á þessu. Þá hafa sjómenn kannað, hvort þeir geti fengið hlut sín- um úrskipt og annast sölu hans sjálfir til frystihúsa. Einnig því neita útgerðar- menn. Enn hefur sú leið verið rædd, að sjómenn fái sömu út- Framhald á 8. síðu. lífi og nágrannarnir fylgist með hverju spori manns. Þetta er misskilningur.,1 fjölbýlishúsi er hægt að búa svo árum saman að maður hafi ekki minnstu samskipti við fólkið í húsinu. Sjálfur þekki ég þetta af reynslu því að ég bjó í þrjú ár í sambýlishúsi í Dan- mörku, að vísu ekki samfélags- húsi eins og þeim sem Skúli lýsti með sameiginlegum mat- sal, en þó byggingu með sam- eiginlegum hita, þvottahúsum, stigaræstingu o. fl. Og tengslin við aðra íbúa hússins urðu ald- rei rneiri en svo að kastast var á kurteisiskveðju á göngum ef fólk hittist þar eða í lyftunni. Allt í sambandi við hita, þvott og annað sameiginlegt átti sér stað fyrir milligöngu húsvarð- arins, sem var starfsmaður hússins og annaðist fyrir- greiðslu á öllu slíku. Ég er þeirrar skoðunar að byggingar af' þessu tagi séu hið eina rétta til lausnar húsnæðis- vandanum, hvort sem farið er út á þá braut að selja hinar einstöku íbúðir eða ieigja þær. nægjuiegt ef útvarpið sneri sér til fleiri ungra arkitekta sem hafa kynnt sér þessi mál er- lendis og fengi þá til að upp- •fræða almenning í þessum efn- um, ef verða mætti til að upp- ræta eitthvað af þeim hleypi- dómum sem fjöldi fólks virðist haldinn af. Hlustandi“

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.