Þjóðviljinn - 12.02.1955, Síða 6

Þjóðviljinn - 12.02.1955, Síða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 12. fébrúar 1955 EJ þlÓOVIUINN Útgefandi: Sameinin garflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkuriim. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarnl Benediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, MagnÚ3 Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig 19. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Ömurlegt hlutverk í gær dregur heldur af Morgunblaðinu í tilraunum þess til að afsaka það ábyrgðarlausa framferði ríkisstjórnarinnar og út- gerðarmanna að stöðva allan bátaflota Vestmannaejúnga til þess eins að reyna að hafa af sjómönnum réttmætan og til- dæmdan hlut þeirra í andvirði aflans. Það er engu líkara en S ritstjómarskrifstofur blaðsins hafi borist fregnir um að níð- skrif þess að undanförnu um sjómannasamtökin hafi ekki fallið S góðan jarðveg hjá almenningi. En þótt ofsinn sé ekki eins hástemmdur og verið hefur er Morgunblaðið þó enn við sama heygarðshomið í fomstugrein- inni í gær. Réttlætiskrafa sjómanna um að fá í sinn hlut rétt fiskverð heitir á máli Morgunblaðsins „pólitísk valdstreyta". Virðist Morgunblaðið engu skipta þótt réttur sjómanna hafi verið viðurkenndur með dómi bæði í undirrétti og Hæstarétti. Eftir sem áður ber krafa sjómannanna vott um ,,ofbeldi“, s,óbilgimi“ og ,,pólitíska valdstreytu" að dómi Morgunblaðsins. Vitanlega reynir þetta málgagn rikisstjórnarinnar, millilið- anna og braskaranna ekki að rökstyðja fullyrðingar sínar með neinum frambærilegum rökum og það af þeirri einföldu ástæðu að rökin eru ekki til. í þess stað rígheldur Morgunblaðið sér í eigin fölsun á ummælum Kaiis' Guðjónssonar á Alþingi, og það jafnt þótt fölsunin hafi verið sönnuð á blaðið með birtingu á orðréttri ræðu Karls hér í blaðinu í fjTradag. Það er slæmur málstaður og óverjandi sem þarf að grípa til ertdurtekinna falsana sér til vamar. Og málstaður Morgunblaðsins er vissulega slíkur. Það hefur valið sér það hlutskipti í þessari vinnudeilu sem oðrum að hamast gegn réttlætiskröfum vinnandi fólks og af- íflytja málstað þess. Morgunblaðið hefur enn einu sinni sannað a.ð það er málgagn auðvalds og rangsleitni, að það metur meir þjónustuna við ríkisstjórnina og bátagjaldeyrisbráskarana, sem vilja fá að ræna áfram hluta af því verði sem fiskkaupendur greiða fyrir aflahlut sjómanna, heldur en halda sig við stað- reyndir og viðhafa heiðarleika í málfutningi. Og hver gat ætlast til annars af Morgunblaðinu, sem hefur því hlutverki að gegna að verja alla spillingu braskarastéttar- innar, hvern þjófnað hennar og hverskonar y-firgang við vinn- andi fólk og þjóðina í heild. Þetta er hlutverk Morgunblaðs- manna, þótt það sé ömurlegt og ekki öfundsvert, og því verða þeir að gegna nauðugir viljugir, til þess að fjárstraumurinn frá auðmannastéttinni til blekkingastarfsemi Sjálfstæðisflokksins gangi sinn eðlilega gang. En Morgunblaðið ætti að vara sig á að vera ekki of opin- ekátt í þjónustunni, vilji það ekki eiga á hættu að jafnvel augu folindustu stuðningsmanna þess opnist fyrir óheilindunum og folekkingunum. Það er t.d. ekki ótrúlegt að flestum sem á málin líta með skynsemi og sanngirni sýnist ekkert óeðlilegt við það eða þjóðhættulegt, að sjómenn standi fast á þeim óumdeilda og dæmda rétti sínum að fá óskert verð síns eigin aflahlutar. Og Morgunblaðið má ekki gleyma því í ákafa sínum við að Verja athæfi sofandi ríkisstjórnar og fégráðugra gjaldeyris- foraskara, að sjómenn í Vestmannaeyjum höfðu þau skýru á- kvæði í kjarasamningum sínum sem tryggðu þeim óskertan hiut í aflaverðmæti bátaflotans, einnig bátagjaldeyrisfríðindun- «m, og að á þessum ákvæðum reistu bæði undirréttur og Hæsti- réttur úrskurðinn sem féll sjómönnum i vil. Fasta umsamda verðið frá fyrra ári, sem samkomulag varð tan vegna þess að dómur var þá ekki fallinn, gilti aðeins þar til sjómenn gátu sagt upp samningum næst og sá samningur Bvipti þá engum rétti til þess að krefjast óskerts hluts, þegar cJómur væri fallinn og tækifæri gæfist með nýjum samningum. Þessari sjálfsögðu kröfu sjómanna hafa skjólstæðingar Morg- únblaðsins svarað með þvi að stöðva allan Vestmannaeyjaflot- ann um sex vikna skeið, svifta sjómenn og verkafólk atvinnu og lífsmöguleikum og þjóðina alla miklum gjaldeyristekjinn. Og bak við þetta atferli stendur sjálf ríkisstjóm landsins, sem teargsinnis hefur sannað að hún er handbendi braskara og milli- Jiða en lætur sig velgengni framleiðslunnar og þjóðarhag engu ,Varða. Og þennan málstað hefur Morgunblaðið tekið að sér að verja. fczö er sannarlega ekki öfundsvert. Dag Hwnmarskjöld, framkvœmdastjórí SÞ,rœðir við Sjú Erúæ, forsœtis- og utanríkis- ráðherra Kína, í Peking. Yfirgangur Bandaríkjavma gagnvart Kína mælist hvarvetna illa fyrir OrSrómur uppi um aS Dag Hammar- skjöld hyggi á nýtt ferSalag til Peking Langt er nu komið flutningi bandaríska flotans á 15.000 hermönnum og 18.000 eyjar- skeggjum frá Taséneyjum til Taivan. Flutningaleiðin er 300 km. löng meðfram strönd Kína. Eini verulegi áreksturinn sem til hefur komið við þessa flutn- inga er að bandarísk flugvél var skotin niður. Viðurkenndi bandaríska flotastjómin að hún hefði flogið yfir eyju á valdi Kínahers og kvaðst því myndi láta málið kyrrt liggja. Þarna er kominn saman mik- ill bandarískur floti skammt frá helztu flugstöðvum Kín- verja, en ljóst er af því sem gerzt hefur til þessa að báðir aðilar gera sér far um að forðast átök að svo stöddu. / ótt þessum herflutningum ljúki vandræðalaust er öðru nær en að hættuástandið þarna eystra sé nokkuð ná- lægt því á enda. Enn situr her Sjang Kaiséks sem fast- ast á eyjunum Kvimoj og Matsú uppi í landsteinum Kína og lokar tveim helztu hafnarborg- um á suðausturströndinni. Sjang sjálfur lætur ekkert tækifæri ónotað til þess að lýsa yfir að hann muni hið fyrsta fyrirskipa mönnum sín- um að gera innrás á meginland Kína. Hefur hann sérstaklega tekið fram að brottflutningur- inn frá Taséneyjum sé undir- búningur að þeirri herferð. Jafnframt tilkynnir Eisenhów- er Bandaríkjaforseti að Bandaríkin muni aldrei sleppa því tangarhaldi, sem þau hafa náð á kínversku eynni Taivan og innlima hana í herstöðva- kerfi sitt á vestanverðu Kyrra- hafi. Ekki verður annað séð en að stjóm hans sé staðráðin 1 því að efla Sjang Kaisék til að halda uppi sífelldum loftaras- um á meginland Kína, hjálpa honum að koma þangað njósn- urum og skemmdarverkamönn- um og aðstoða flota hans og flugher í að hertaka skip á siglingaleiðum við Kína og ræna þeim og farmi þeirra ef svo býður við að horfa. Allt þetta hefur Sjang aðhafzt und- r Erl end tíðin di _______________________J anfarin ár í skjóU bandarísks hervalds og ekkert bendir til að bandarísk stjórnarvöld hafi í hyggju að stöðva það fram- ferði. Ráðabreytni þessi hefur gert það að verkum , að Banda- ríkjastjóm stendur uppi nær einangruð. Tilburðir hennar til að leggja undir sig Taivan, sem hún sjálf hefur viðurkennt að sé hluti af Kína, eru í alla staði óverjandi. Fimbulfamb um að Bandaríkin hernemi eyju 100 kílómetra undan strönd Kína í varnarskyni er svo mikil fjarstæða að enginn tekur það alvarlega. „Ef sjö- undi flotinn dregst inn í hem- aðaraðgerðir mun engum tak- ast að fá brezkan almenning ofan af þeirri skoðun að Banda- ríkin hafi bakað sér það sjálf- skaparvíti með bUndni sinni og fíflsku", segir brezka sósí- aldemokratablaðið New States- man and Nation. Attlee, foringi Verkamanna- flokksins, sem kann að verða næsti forsætisráðherra Bretlands, hefur tekið af skar- ið og lýst yfir að hann álíti að Bandaríkin hafi gerzt sek um freklega íhlutun í borgara- styrjöld í Kína. Þau hafi ekki hinn minnsta rétt til að inn- lima Taivan i herstöðvakerfi sitt. Dnew Middleton, fréttarit- ari New York Times í London, segir í blaði sínu 7. febrúar að í þessu máli sé Attlee „meiri Bevanisti en Bevan sjálfur". Hann hafi gert þá Verka- mannaflokksforingja, svo sem Morrison, Gaitskell og McNeill sem vilji veita Bandaríkjun- um að málum, gersamlega á- hrifalausa. Með afstöðu sinni hafi Attlee sameinað flokk sinn að baki sér og stefna hans sé svo vinsæl í Bretlandi að sig- urhorfur Verkamannaflokksins í þingkosningum í ár , hafi vænkazt að mun. Uppsteiturinn út af Taivan hefur orðið til þess að mál bandarísku flugmannanna, sem Kínverjar dæmdu fyrir njósn- ir, hefur horfið í skuggann. Bandarískir ráðamenn forðast nú að minnast á það. Fyrir skömmu hótuðu þeir hver um annan þveran hafnbanni eða öðrum hernaðaraðgerðum gegn Kína ef flugmönnunum væri ekki sleppt. Dag Hammarskjöld, framkvæmdastjóri SÞ, fór í kringum hnöttinn til þess að ræða málið við Sjú Enlæ, for- sætis- og utanríkisráðherra Kína. Hann kom aftur með boð frá Kínastjóm til fjölskyldna fanganna um að þeim væri heimilt að heimsækja þá. For- eldrar, eiginkonur og systkini tóku að búa sig til farar strax og það vitnaðist að ferða- kostnaðurinn yrði greiddur fyrir þau. En þá tók Banda- ríkjastjóm i taumana. Dulles utanríkisráðherra tilkynnti að Framhald á 8. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.