Þjóðviljinn - 13.02.1955, Síða 12
Fá Norðfirðingar nýtt skip í
stað Egils ranða Innan eins árs?
Sendinefnd NorSfirSinga leggur áherzlu
á að fá smiðaðan nýtizku togara
Síðastliðinn sunnudag kom nefnd manna frá Nes-
kaups'tað þess erindis að útvega nýjan togara í stað
Egils rauða, sem fórst 26. f.m. Nefndarmennirnir
leggja allir — og Norðfirðingar yfirleitt — áherzlu
á að fá smíðaðan nýtízku togara í stað Egils rauða
fá nýtt skip en ekki að taka atvinnutæki frá öðrum
bæjum.
Nefndin hefur rætt við ríkisstjórnina um málið og
fengið vinsamlegar undirtektir.
Nefndin leggur áherzlu á
IMÓÐVUJINN
Sunnudagur 13. febrúar 1955 — 20. árgangur — 36. tölublað
Stjómarkjöxi í Félagi járniðnaðaimanna
lýkur kl. 6 í kvöld
161 af 350-360 kusu i gœr
Stjómarkjöri í~ Félagi jámiðnaðarmanna hófst í gœr
og kusu pá 161 af 350—360 á kjörskrá.
Kosning hefst í dag kl. 10 f.h. og stendur til kl. 6 í
Allir stjórnmálaflokkar sem
fulltrúa eiga í bæjarstjóm Nes-
kaupstaðar tilnefndu sinn
mann hver í nefndina og eru
í henni þessir menn:
Oddur A. Sigurjónsson
skólastjóri frá Alþýðuflokkn-
um, Ármann Magnússon út-
gerðarmaður frá Framsóknar-
flokknum, Lúðvík Jósefsson al-
þingismáður frá Sósíalista-
flokknum og Axel V. Tuliníus
frá Sjálfstæðisflokknum.
Sendinefndin ræddi við
blaðamenn í gær og sagðist
henni frá á þessa leið:
Þegar togarinn Egill rauði
fórst með þeim hörmulegu at-
burðum, sem alþjóð er kunnugt,
stóðu íbúar Neskaupstaðar and-
spænis þeirri bláköldu stað-
reynd, að auk hryggilegs mann-
tjóns, sem snerti djúpt hugi
allra, var horfið úr bænum at-
vinnutæki, sem hafði árlega
veitt um fimm millj. í vinnu-
launum inn í bæinn.
Bæjarstjórn var ljóst að hér
verður að hafa hraðar hendur,
ef slíkt áfall atvinnulega séð, á
ekki að leiða til stóraukins brott-
flutnings úr bænum.
Eina varanlega úrræðið
Eftir nána athugun komst
bæjarstjórn að þeirri niðurstöðu,
að úr atvinnutjóninu yrði ekki
á annan hátt bætt, en að fá nýj-
an togara til bæjarins. Um þetta
sameinuðust allir flokkar í bæj-
arstjórn og óhætt að segja allir
bæjárbúar.
1. Þá sérstöðu, sem skapazt
hefur í atvinnumálum Neskaup-
staðar við það að annarri aðal-
stoð atvinnulifsins er kippt
burtu.
2. Auk beinnar verkamanna-
vinnu, sem skerðist gífurlega,
hverfur að hálfu leyti rekstrar-
grundvöllur fyrirtækja, sem ná-
Þetta tiltæki bændanna stafar
af megnri óánægju þeirra með
það verð, sem þeir fá greitt fyrir
afurðir sinar og hefur hún brot-
izt út hvað eftir annað að und-
anförnu í ýmiskonar mótmæla-
aðgerðum.
Fyrir nokkrum dögum héldu
bændur fund i borginni Lille og
gengu þá fylktu liði til ráðhúss-
ins til að krefjast hærra verðs.
Sló þá í bardaga við lögreglu og
meiddust um 50 bændur. Var
aðförum lögreglunnar mótmælt
næstu helgi á efþr með því að
Framhald á 5. síðu.
tengd eru togaraútgerðinni, s. s.
frystihúsa, beinavinnslu, ísfram-
leiðslu, .vélaverkstæðis og neta-
verkstæðis, en allt er þetta
byggt upp m. a. með rekstur 2ja
togara fyrir augum.
3. Einungis nýtt skip, sem
byggt yrði samkvæmt reynslunni
um hagkvæmasta rekstur, þykir
hér koma til mála. Það hefur
komið glöggt í ljós, að diesel-
skipin eru langtum sparneytnari
á eldsneyti og engu síðri fiski-
skip, en eldsneytisspamaður er
geysiþýðingarmikið atriði fyrir
skip, sem þurfa að sigla tiltölu-
lega langt með aflann af miðum.
Því leggjum við áherzlu á slikt
skip.
Hér við bætist að skarðið, sem
kom í íslenzka fiskiflotann við
strand Egils rauða, verður ekki
Framhald á 3. síðu
kvöld og er pá lokið.
A-listinn, sem borinn er fram
af stjóm og trúnaðarráði, við
kjör stjómar og trúnaðarráðs
Félags jámiðnaðarmanna f>T-
ir árið 1955, skipa þessir menn:
Formaður: Snorri Jónsson,
varaformaður: Hafsteinn Guð-
mundsson, ritari Tryggvi Beni-
diktsson (Landssam.), vararit-
Pflimlin nú
vongóSur
Horfur vom á því i gær,
að Piérre Pflimlin myndi tak-
ast að mynda stjóm í Frakk-
landi. Hann hafði að visu að-
eins hlotið vilyrði Róttæka
flokksins, kaþólskra og eins
smáflokks (UDSR) um þátt-
töku í stjóminni, en líkur tald-
ar á að gaullistar myndu ekki
greiða atkvæði gegn stjóminni.
Pflimlin sagðist vera vongóður
um að geta haft ráðherralista
sinn tilbúinn í dag.
ari: Bóas Pálsson (Héðinn),
fjármálaritari Bjami Þórarins-
son (Héðinn). Gjaldk., utan stj.:
Loftur Ámundason (Landssm).
í trúnaðarráð, auk stjórnar:
Kristján Huseby ('Hamar),
Ingimundur Bjamason (Héð-
inn), Sigurjón Jónsson (Stál-
sm.), Gunnar Guðmundsson
(Landssm.) — Varamenn í
trúnaðarráð: Guðmundur Hjalti
Jónsson (Héðinn), Ámi Krist-
björnsson (Stálsm.),. Eíinar
Magnússon (Sig. Sveinbj.)
Á B-listanum er Sigurjón
Jónsson og aðrir flokksmenn
atvinnurekendaflokksins.
Jámiðnaðarmenii! Mun-
ið að kosningunni lýkur
kl. 6 í kvöld. Tryggið
framtíð félagsins og
hagsmuni ykkar í kom-
andi átökum með því að
fylkja ykkur um A-list-
ann. ,
X A
Tíuveldafundur í Delhi
eða Sjanghai um Taivan
Bandaríkjastjórn andvíg tillögu sovét-
stjórnarinnar um samninga
Bændur tálma umferð
um franska þjóðvegi
Gefa vegfarendum jarðarávexti ;em þeir
segja að borgi sig ekki að selja
Umferð um þjóðvegi í Frakklandi stöðvaðist víða í gær,
sökum þess að baendur höfðu lokaö vegunum í mótmæla-
skyni viö stefnu stjórnarvalda í verðlagsmálum land-
búnaðarins.
Fyrsta strætisvagnaleið án
endastöðvar á Lækjartorgi
Kaupa þarf 6 nýja strætisvagna, auk tveggja til end-
urnýjunar og taka upp 4 nýjar leiðir
Volvo-strcetisvagnarnir nýju.
Sovétstjórnin hefur lagt til, að í þessum mánuði verði
haldin ráðstefna 10 ríkja um Taivanmálið og verði fund-
arstaðar annaöhvort Sjanghai eða Nýja Delhi.
Á þriðjudaginn kemur byrja Strætisvagnar Reykjavík-
ur á nýrri leið milli úthverfanna: Kleppsholt — Kapla-
skjól, með endastöövum í Kleppsholti og hringakstrinum
við Nesveg. — Er þetta fyrsta sinni að horfið er frá því
aö hafa endastöð á Lækjaxlorgi.
Frá því í des. s.l. hafa Strætisvagnamir fengið 3 nýja
80 manna Volvovagna, en forstjóri Strætisvagnarma tel-
ur þörf 6 nýrra vagna, auk tveggja til endumýjunai' eldri
vögnum.
Moskvaútvarpið sagði frá þess-
ari tillögu sovétstjórnarinnar í
gær. Hún var afhent sendiherra
Breta í Moskva, sir William
Hayter, og sendifulltrúa Ind-
lands 4. febrúar s. 1. og hefur
siðan verið rædd bæði í London
og Moskva.
Sovétríkin, Indland
og Bretland
í tillögunni er gert ráð fyrir,
að Sovétríkin, Bretland og Ind-
land standi fyrir ráðstefnunni og
boði til hennar Kína, Bandarík-
in, Frakkland, Indónesíu, Pakist-
an, Burma og Ceylon. Ekkert er
minnzt á stjórn Sjangs Kaiséks
á Taivan í tillögunni.
Bandaríkjastjóm fráhverf
Talsmenn Bandaríkjastjórnar
sögðu í gær, að hún myndi hafna
tillögu Sovétríkjanna og neita að
taka þátt í slíkr.i ráðstefnu.
Brezka Stjórnin hefur skýrt
sovétstjórninni frá því, að hún
telji ekki hægt að halda slíka
ráðstefnu nema með þátttöku
stjórnar Sjangs Kaiséks og hef-
ur spurzt fyrir um það, hvort
sovétstjórnin gæti fallizt á það.
Öryggisráð SÞ kemur saman á
fund í New York á morgun til
að ræða Taivanmálið.
Á bæjarstjórnarfundi 20. maí
1954 flutti Sigurður Guðgeirsson
bæjarfulltrúi Sósíalistaflokksins
svohljóðandi tillögu:
„Bæjarstjórnin samþykkir að
beina því til forstjóra Strætis-
vagnanna að hafnar verði hið
fyrsta strætisvagnaferðir miili
úthverfanna í bænum“.
íhaldið vísaði tillögunni frá til
bæjarráðs, eins og venja þess er
með tillögur minnihlutaflokk-
anna, — en á þriðjudaginn kem-
ur hún til framkvæmda!
Leiðin vigð
Hin nýja leið mllli úthverfanna
var vígð í gær með því að
Strætisvagnamir buðu bæjar-
fulltrúum og ýmsum fyrirmönn-
um í ökuferð um hana. Að henni
lokinni var haldið í veitingasal
Loftleiða og skýrði Eiríkur Ás-
geirsson, forstjóri Strætisvagn-
anna frá því í ræðu að þetta
væri vísir að nýju fyrirkomulagi
á akstursleiðum strætis%ragn-
anna. — Fram að þessu hafa
allir strætisvagnarnir haft enda-
stöð á Lækjartorgi.
Hin nýja leið milli úthverf-
anna, sem verður nr. 19, er sem
hér segir:
Leiðin hefst við Svalbarða í
Kleppsholti og liggur um Lang-
holtsveg, Suðurlandsbraut,
Tunguveg, Sogaveg, Réttarholts-
veg, Hólmgarð, Grensásveg,
Miklubraut, Hringbraut, Sóleyj-
Framhald á 3. síðu.