Þjóðviljinn - 15.02.1955, Side 1
VILIINN
Þrlðjudagur 15. febrúar 1955 — 20. árgangur — 37. tölublað
Fjölmennnr aðalfnndnr Dagsbrúnar
einhnga nm kröfur íélagsins
Aðalíundur Dagsbrúnar var haldinn í gærkvöldi
í Iðnó. Að loknum aðalíundarstöríum ílutti ritari íé-
lagsins írams'ögu um kröfur þær sem stjórn, trúnað-
arráð og fjöldi félagsmanna hefur unnið að undan-
farið. Voru þær að loknum ýtarlegum umræðum
samþykktar einróma.
Hannes Stephensen flutti í
fundarbyrjun ársskýrslu stjórn
arinnar. Á árinu gengu 343 ný-
ir félagsmenn í Dagsbrún, þar
af voru 76 yfirfærðir úr öðrum
félögum. Á árinu höfðu 23 fé-
lagsmenn látizt og heiðruðu
fundarmenn mimiingu þeirra
með því að rísa úr sætum.
Umfangsmikið, giftu-
drjúgt starf.
í skýrslunni kom það fram
að stjóm Dagsbrúnar hefur
unnið mjög umfangsmikið
starf á s.l. ári. Átti félags-
stjórain mikinn hluta ársins í
kjarasamningum fyrir 'fjöl-
marga starfshópa félagsins og
náði fram margháttuðum
kjarabótum. — Verður sagt
nánar frá starfsskýrslunni á
morgun.
Samþykkt með lófataki
Þá skýrði formaður frá því,
sem Dagsbrúnarmenn munu
allir hafa vitað áður, að stjóra
in hefði ákveðið að styrkja sjó-
mennina í Vestmannaeyjum
með 10 þús. kr. í hinni hörðu
baráttu þeirra og var þeirri á-
Síðustu fréttir frá Egjunt:
SJómeim og vélstjór-
ar kolfelldu „miðl-
unartillöguna"
Kl. 1 í nótt bárust pær fréttir frá Vestmannaeyjum aö
„miðlunartillaga“ sáttasemjara heföi veriö kolfelld í Jötni
og Vélstjórafélaginu en samþykkt af hálfu útvegsmanna.
kvörðun fagnað og hún sam-
þykkt með lófataki.
Kröfumar einróma
samþykktar.
Eðvarð Sigurðsson, ritari
Dagsbrúnar, flutti ýtarlega
ræðu um kröfurnar, sem stjóra
trúnaðarráð og fjöldi annarra
trúnaðarmanna Dagsbrúnar
liafa unnið að undanfarið.
Munu kröfur félagsins aldrei
hafa verið undirbúnar eins
rækilega eins og nú. Að ræðu
Eðvarðs lokinni urðu allmiklar
umræður, en kröfurnar síðan
samþykktar í einu hljóði.
Fundi Dagsbrúnar lauk rétt
fyrir miðnætti og verður nán-
ar sagt frá honum á morgun.
Krati reyuir
stjómaripiáin
í Frakklandi
Pineau úr flokki sósíaldemó*
krata reynir nú að mynda
stjórn í Frakklandi. Pflimlin Úr
kaþólska flokknum gafst upp
við stjórnarmyndun vegna skil-
yrða sem Réné Mayer úr hægri
armi róttæka flokksins setti
fyrir að taka að sér embætti
utanríkisráðherrans.
Pineau ræddi við Mendés*
France fráfarandi forsætisráð-
herra og kvaðst myndi fylgja
sömu stefnu og hann ef sér
auðnaðist stjórnarmyndun. —■
Ekki eru taldar miklar líkur
á að til þess komi að Pineau
myndi stjórn. Búizt er við að
sá næsti sem fær að spreyta
sig verði Réné Mayer, sem
sem felldi flokksbróður sinn
Mendés-France.
Hannes Stephensen
I Sjómannafélaginu Jötni var
tillagan felld með 65 atkv.
gregn 24, en 2 seðlar voru auð-
ir.
1 Vélstjórafélagi Vestmanna-
eyja urðu úrslit einnig þau,
að tillagan félL Greiddu 27
atkv. með henni en 47 á móti.
I Útvegsbændafélagi Vest-
mannaeyja var tillagan hins
vegar samþykkt, en ekki er
blaðinu kunnugt um atkvæða-
tölur.
Hafa útgerðarmenn sýnilega
talið sig sleppa vel, hefði dell-
an leystst á grundvelli „miðl-
xuiartiUögunnar‘'. Sjómenn hafa
hins vegar sýnt einhug og
festu um réttlætiskröfur sínar
og hafnað þeim smánarboð-
um sem í tUlögunni fólust.
Eðvarð Sigurðsson
■■■■■■■■■•
Þeirra barátta er okkar barátta:
Iðja leggur fram 4ooo kr. til
sjóinanna í Vestmannaeyjum
Stjórn Iðju, félags verksmiðjufólks í Rvík,
samþykkti á fundi sínum í gær að leggja
fram 4000 kr. úr félagsSjóði til sjómanna í
Vestmannaeyjum. Áður hafði Verkamannafé-
lagið Dagsbrún lagt fram 10.000 kr., eins og
skýrt hefur verið frá, og Alþýðusambandið og
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík s
hafa skorað á allt s'téttvíst verkafólk að bregða
fljótt og drengilega við og veita verkfalls-
mönnum í Vestmannaeyjum fjárhagslegan
stuðning.
Tekið er á móti fjárframlögum í skrifstofu
Fulltrúaráðsins, Hverfisgötu 21.
S>-
Járasiilr leggja
fram 5000 kr.
Félag jámiðnaðar-
manna samþykkti á fé-
lagsfundi í gærkvöldi að
leggja fram 5000 kr. úr
félagssjóði til stuðnings
verkfallsmönnum í Vest-
mannaeyjum.
Brýn þörf ráðstafana til verndar lífi og
r
eignum Islendinga fyrir ágangi Breta
Miigsályktimartfllaga flutt í sameinuðu Alþlngi
Einar Olgeirsson flytur í sameinuðu Alþingi tillögu til
þingsályktunar um vernd á lífi og eignum íslendinga
gegn ágangi Breta. Er tillagan þannig:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að herða
á löggæzlu og vernd á lífi og eignum íslendinga
þeirra, er sjó s'tunda úti fyrir Vestfjörðum, til þess
að reyna að hindra, að brezkir togarar grandi lífi og
eignum þessara íslenzku fiskimanna."
í greinargerð segir flutnings-
maður:
Undanfarið hafa verið mikil
brögð að því, að brezkir togarar
hafi sýnt' fantaskap í framferði
sínu gagnvart islenzkum fiski-
mönnum úti fyrir Vestfjörðum.
Kveður svo rammt að þessu, að
tveir íslendingar hafa þegar lót-
ið lífið af þeim sökum, þegar
brezkur togari sigldi bátinn
„Súgfirðing“ í kaf.
að vera venja brezkra togara-
skipstjóra eða annarra sjómanna.
Regla sjómanna er bræðralag og
hjálpsemi á höfum úti. Er auð-
séð, að hér er um framferði
að ræða, sem er skipulagt frá
ákveðnum aðilum í Bretlandi.
Brezka togaraauðvaldið hefur
undanfarið verið að grípa til ör-
þrifaráða gagnvart oss íslend-
ingum, eftir að það hefur beðið
algerlegan ósigur í löndunar-
bannsmálinu. Brezkir togaraeig-
Þetta framferði er fjarri því endur ætluðu að brjóta sjálf-
stæðisbaráttu vora í landhelgis-
málunum á bak aftur með lönd-
unarbanninu. En vopnin hafa
snúizt svo í hendi þessa brezka
auðvalds, að löndunarbannið hef-
ur orðið oss til blessunar, en ekki
bölvunar, af þvi að þjóð vor
hefur náð góðum viðskiptasamn-
ingum við Sovétríkin og önnur
ríki, sem reynzt hafa oss vin-
samleg, þar sem afstaða hins
volduga brezka auðvalds til vor
íslendinga hins vegar mótast nú
meir og meir af fjandskap.
Hinum ríka brezka auðhring,
er að baki togaraeigenda stend-
ur, mun þykja hart að verða að
láta í minni pokann fyrir oss ís-
lendingum og hafa ekki einu
sinni von um, að íslendingar
hætti við frekari stækkanir land-
helginnar né láti erlenda dóma
dæma um aðgerðir sínar hingað
til.
Þess vegna hafa brezkir tog*
araeigendur nú skipulagt fjand-
samlegar aðgerðir gagnvart ís-
lendingum, annars vegar níð og
róg um íslendinga í brezkum
blöðum, og það gera þeir opin-
berlega, en hins vegar virðast
þeir á laun Jeggja fyrir skip-
stjórnendur að beita slíkum að-
ferðum við varnarlausa íslenzka
báta, að frekar hæfa sjóræn-
ingjum en heiðarlegum sjómönn-
um. Er það að vísu ekki í fyrsta
skipti í sögunni, sem brezkir
auðmenn láta skip sin stunda
mannvíg og árásir á höfum úti.
En óþarfi er fyrir íslendinga að
þola slíkan ágang, sízt af öllu
af þjóð, sem kallað er að sé í
bandalagi við íslendinga um
„samstarf í efnahagsmálum“ og
um „varnir gegn árásum".
Alþingi fslendinga ber að láta
Framh. á 11. síðu