Þjóðviljinn - 15.02.1955, Blaðsíða 12
Aðkomumenn í Eyjum styðja
málstað sjómanna í deilunni
Kref jast tafarlausra samninga, telja sig annars
lausa allra mála og heimilt að hverfa burt
Sjómenn og verkamenn utan af landi sem bíða að-
gerðalausir í Vestmannaeyjum vegna fis'kverðsdeil-
unnar héldu fund í gær í Alþýðuhúsinu í Eyjum og
sótti hann mikið fjölmenni.
Aðkomumenn lýstu yfir
fullu samþykki við kröfu
sjómanna um vertíðarkjörin
og fiskverðið. Einnig ákváðu
þeir á fundinum að gera
kröfu til sinna at\innurek-
enda um 3000 kr. mánaðar-
tryggingu frá þeim degi er
þeir komu til Eyja.
Þá ákváðu aðkomumenn
einnig að krefjast þess að
samningar yrðu komnir á
eigi síðar en um hádegi á
miðvikudag (þ.e. á morgun)
enda teldu þeir sig lausa
alira mála við atvinnurek-
endur og sér heimilt að
hverfa burt eftir þann tíma.
1 gærkvöld lagði fulltrúi
sáttasemjara fram miðlunartil-
lögu, sem Sjómannafélagið Jöt-
unn, Vélstjórafélag Vestmanna-
eyja og Otvegsbændafélagið
áttu að greiða atkvæði um til
miðnættis í gærkvöld.
Miðlunartillagan fól í sér
ef tirfarandi:
1. Hlutur 10. manns greiðist
að hálfu af hásetum og að
hálfu af útgerðinni. — Krafa
sjómanna var að útgerðin
greiddi allan hlutinn.
2. Matsveinn fái 400 kr. í
grunn umfram einn hlut.
3. Fiskverð verði óbreytt þ.e.
kr. 1,22, þó þannig, að aðgerð-
arkostnaður falli niður, en það
er talið þýða 5,4 aura hækkun
á fiskkílói.
Skugga-
Sveinn
í Hveragerði
Hveragerði.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Leikflokkur frá Vík í Mýrdal
sýndi Skugga-Svein í Hveragerði
kl. 2,30 og aftur kl. 8 á sunnu-
daginn. Hvert sæti var skipað í
bæði. skiptin. Áhorfendur
skemmtu sér vel, klöppuðu leik-
endum lof í Iófa og færðu þeim
blómvendi að ieikslokum.
Leikstjóri er Ragnhildur Stein-
grímsdóttir leikkona, og fer hún
jafnframt með hlutverk Ástu.
Flutningur leiksins er látlaus og
smekkvís, og fóru margir leik-
enda myndarlega með hlutverk
sín.
Kvenfélag Hvammshrepps og
Ungmennafélagið Skarphéðinn
gangast fyrir sýningum leiksins
til ágóða fyrir félagsheimili í
Vík.
Áður hafði leikritið verið sýnt
4 sinnum í Vík og einu sinni á
Hellu, og er ákveðið að sýna
það enn á báðum þeim stöðum.
Leiktjöld gerði Helgi Halls-
son, starfsmaður lóranstöðvar-
innar á Reynisfjalli, og sómdu
þau sér hið bezta.
Snorri Jónsson
Hafsteinn Guðmundsson
HldÐVIUVNN
Þriðjudagur 15. febrúar 1955 — 20. árgangur — 37. tölublað
Afturhaldlð að tapa í HIP
Vinstri menn hafa meir en tvöfaldað
atkvæðatölu sína á 3 árum
Það hallar ört undan fæti fyrir afturhaldsfylkingit
hœgri krata og íhalds í 'prentarafélaginu.
Fyrir prem árum áttu vinstri menn aðeins priðjung
atkvæða í félaginu en nú munaði aðeins 13 atkvœðum
um kosningu formanns. Hafa vinstri menn pannig meira
en tvöfaldað atkvœöatölu sína í félaginu á prem ámm>
úr 52 atkvœðum í 106.
Atkvæði um stjórnarkjör í
Hinu ísl. prentarafélagi voru
talin Si.1. sunnudag. Ekki er
venja að birta kosningaúrslitin
fyrr en á aðalfundi félagsins,
en Vísir sletti sér enn fram í
starfsvenjur prentarafélagsins og
birti úrslit stjórnarkjörs.
Úrslitin urðu þau að Magnús
Ástmarsson, formannsefni aftur-
haldsins var kosinn með 119
atkv., en Sigurður Guðgeirsson,
formannsefni vinstri manna fékk
106 atkv.
Fylgisaukning vinstri
manna hefur verið injög hröð
Glæsilegur einingarsigur í Fé-
lagi járniðnaðarmanna
A-listinn k]örinn meS 191 atkv. en
afturhaldiS fékk aSeins 130
Einingarmenn unnu mikinn sigur við stjórnar-
kjörið í Félagi járniðnaðarmanna. Hlaut A-listinn
191 atkv. og alla frambjóðendur sína kjörna en B-
listi íhalds og hægri krata aðeins 130 atkvæði.
Þessi glœsilegi sigur einingaraflanna er pví eftirtektar-
verðari sem vitqö er að í félaginu hafa tekizt á nokkurn
veginn jafnar fylkingar árum saman. Nú hafa orðið al-
gjör páttaskil og yfirburðir einingarmanna óumdeilan-
legir.
áróðri þess algjörlega á bug.
Með stjórnarkjörinu hafa reyk-
vískir járniðnaðarmenn séð svo
um, að félag þeirra búi við
reynda, trausta og örugga for-
ustu í þeim miklu hagsmuna-
átökum sem verkalýðsstéttin á
framundan.
Fleipur Morgunbl.
um Ögmund
Sigurðsson
Morgunblaðið hefur verið
með fleipur um, gð ;einn
samninganefndarmaður Jöt-
uns í Vestmannaeyjum, Ög-
mundur Sigurðsson, hafi gert
tilraun til að róa í verkfallinu.
Rétt er að taka það fram
að fregn Morgunblaðsins er
hreinn uppspuni. Útgerð
þess báts sem Mbl. nefndi er
Ögmundi Sigurðssyni óvið)-
komandi með öllu.
Við stjórnarkjörið 1953 vann
afturhaldið kosninguna með
fjögurra atkvæða mun en ein-
ingarmenn 1954 með nítján atkv.
mun. Við kosningu á Alþýðusam-
bandsþing s.l. haust unnu ein-
ingarmenn með þrjátiu og átta
atkv. mun, en meirihluti þeirra
nú reyndist sextíu og eitt atkv.
eða nær 50% yfir afturhaldið.
■ j
Hamagangur afturhaldsins
— Reykbombur sprengdar.
Úrslitin í Félagi járniðnaðar-
manna eru ekki sízt athyglisverð
þegar þess er gætt, að sjaldan
eða aldrei hefur íhaldið lagt sig
eins fram í undirbúningi og smöl-
un. Holstein var í fullum gangi
báða kjördaga, bombur voru
sprengdar í Morgunblaðinu, sem
að vísu reyndust reykbombur
einar, og Alþýðublaðið skoraði
eindregið á lið hægri manna að
veita íhaldinu fulltingi í kosn-
ingunum.
i
Traust og örugg forusta
Járninðnaðarmenn hafa nú
svarað afturhaldinu á eftirminni-
legan hátt. Þeir hafa sýnt at-
hyglisvert fordæmi um stéttar-
lega samstöðu og vísað sundr-
ungartilraunum afturhaldsins og
Stjórn og trúnaðarráð.
Hin nýkjörna stjórn Félags
járniðnaðarmanna er skipuð
þessum mönnum: Snorri Jónsson,
formaður, Hafsteinn Guðmunds-
son, varaformaður, Tryggvi
Benediktsson, ritari, Bóas Páls-
Sósíalistafélag Rvíkur
Fulltrúaráðs- og
trúnaðarmanna-
fundur
verður í kvöld kl. 8.30 í
Baðstofu iðnaðarmanna.
DAGSKRÁ:
Verkalýðsmál o. fl.
: Áríðandi að allir mæti.
Stjórnin.
\
son, vararitari, Bjarni Þórarins-
son, fjármálaritari. Gjaldkeri
(utan stjórnar) er Loptur Á-
mundason.
í trúnaðarráði eiga sæti, auk
stjórnar: Kristján Huseby, Ingi-
mundur Bjarnason, Sigurjón
Jónsson (Stálsm.), Gunnar Guð-
mundsson. Varamenn: Guðm.
Hjalti Jónsson, Árni Kristbjörns-
son og Einar Magnússon.
síðustu árin í félaginu. I kosn-
ingunum 1953 fékk formanns-
efni afturhaldsins 147 atkv.
en formannsefni vinstri
manna 52 atkv. í fyrra fékk
afturhaldið 135 atkv. en
vinstri menn 85. Nú voru töl-
urnar 119:106, og þarf ekki
um að deila hvert stefnir.
í stjórn með Magnúsi Ást-
marssyni voru þessir kosnir nú:
Guðbjörn Guðmundsson vara-
formaður, Ellert Magnússon rit-
ari og Sigurðúr Eyjólfsson með-
stjórnandi. Fyrir voru í stjórn-
inni Kjartan Ólafsson, gjald-
keri og Meyvant Hallgrímsson
meðstjórnandi. — Kvennadeild
félagsins hefur enn ekki kjörið
fulltrúa sinn í stjórnina. —
Petroffmól í
Kaupm.-höfn
Mál svipað Petroffmálinu í
Ástralíu er komið upp í Dan-
mörku. Bílstjóri við rúmenska
sendiráðið hefur beðið um hæii
þar sem hann sé pólitískur
flóttamaður og jafnframt held-
ur hann því fram að kona sín
sé fangi í sendiráðinu. Hefur
lögregluvörður verið settur við
bygginguna. Sendiherrann hef-
ur tilkynnt, að bílstjórinn sé
sekur um fjárdrátt og sé að
reyna að koma sér undan refs-
ingu.
Frumvarp um takmarkanir á fjölda
leigubílstjóra rætt á Alþingi
Nokkrar umræður hafa orðið
undanfarna daga á fundum
neðri deildar um frumvarp varð-
andi f jölda leigubifreiða í kaup-
stöðum.
Segir í frumvarpsgreininni að
samgöngumálaráðuneytinu sé
heimilt, „að fengnum tillögum
hlutaðeigandi stéttarfélaga, að
takmarka fjölda leigubifreiða í
Reykjavík, hvort heldur eru fólks
eða vörubifreiðar, annað hvort
eða hvorttveggja.“
Við 2. umræðu í gær var sam-
þykkt að bæta í greinina sams-
konar heimild varðandi Hafnar-
fjörð og Akureyri.
Einar Olgeirsson flutti tvær
breytingartillögur við frumvarp-
ið en tók þær aftur til 3. um-
ræðu samkvæmt beiðni fram-
sögumanns samgöngumálanefnd-
ar.
Voru breytingartillögur hans
þessar:
„1. Við l. gr. Aftan við grein-
ina bætist:
Skal í upphafi takmarkað, að
því er tekur til fólksbifreiða í
Reykjavík, við tölu þeirra
manna, er hafa atvinnuleyfi
samkvæmt samningum bifreiða-
stjórafélagsins Hreyfils við bif-
reiðastöðvarnar í Reykjavík.
2. Á eftir 1. gr. laganna komi
ný grein, svo hljóðandi:
Nú losna atvinnuleyfi innan
þeirra takmarkana, sem felast í
lögum þessum, og sxal þeim þá
ráðstafað samkvæmt reglugerð
sem viðkomandi bifreiðastjórafé-
lag setur og staðfest hefur verið
af samgöngumálaráðherra, enda
verði í reglugerðinni fyrir það
girt, að atvinnuleyfi geti orðið
verzlunarvara.“
Flugvél týnist
I fyrradag hvarf belgísk far-
þegaflugvél frá félaginu SA-
BENA á flugi frá Brussel til
Rómar. Vélin hafði ekki fund-
izt þegar síðast fréttist í gær-
kvöldi.