Þjóðviljinn - 20.02.1955, Page 6

Þjóðviljinn - 20.02.1955, Page 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 20. febrúar 1955 «50» ÍMÓÐViUINN Útgefandi: Sameinlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Rltatjórar: Hagnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson Cfib.) Fréttastjórl: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Rltstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nfigrenni; kr. 17 annars staðar fi landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Óhæfur mennfamáiaráðherra Það er ekki aðeins á sviði atvinnumála sem ríkisstjórn íslands er allsendis óhæf til starfa sinna: þannig er á- statt á öllum sviðum, hvert sem litið er. Ekki hafði Bjami Benediktsson t.d. lengi farið með yfirstjórn menntamála þegar Alþingi var til neytt að ræða emb- ættisstörf hans og taka á dagskrá hvort samþykkja skyldi á hann vantraust. Urðu umræðurnar mjög lærdómsríkar og sýndu glöggt að viðhorf ráðherrans til skólamála einkenndust af glórulausu pólitísku ofstæki. Og nú síð- ustu vikurnar hefur dunið yfh' almenning deila mynd- listarmanna, en á henni og afleiðingum hennar ber Bjarni Benediktsson einn alla ábyrgð; hann hefur komið málinu í sjálfheldu með venjulegum þjösnaskap sínum; þegar öllu máli skipti að beitt væri lægni og stillingu, hegðaði hann sér líkt og stóðhross í postulínsbúð. Eins og kunnugt er af blaðadeilum voru tildrög máls- ins þau að ítalir buðu Norræna listabandalaginu að efna til sýningar í Róm. Félag íslen2;kra myndlistarmanna er aðili af íslands hálfu, og það hóf þegar undirbúning að þátttöku héðan. M.a. sótti það um fjárstyrk til Alþingis. Fékk sú málaleitun góðar undirtektir, en við þriðju um- ræðu gerðust þau tíðindi að menntamálaráðherra bætti við fjárveitinguna því skilyrði að í dómnefnd sýningar- innar skyldi Félag íslenzkra myndlistarmanna vera í minnihluta. Af þessari afskiptasemi ráðherrans er öll deilan sprottin; með henni var bundinn sá hnútur sem ekki hefur tekizt að leysa. Félag íslenzkra myndlistar- manna lýsti yfir því að það gæti ekki sætt sig við þetta valdboð ráðherrans og hefði raunar enga heimild til þess þar sem það eitt bæri ábyrgð á sýningunni gagnvart Norræna listabandalaginu, auk þess sem félagiö sé full- trúi mikils meirihluta íslenzkra myndlistarmanna. Þeir sem hafa klofið sig út úr félaginu og stofnað ný hafa jafn einarðlega lýst yfir því að óhjákvæmileg-t sé að hlíta fyrirmælum menntamálaráðherra og Alþingis. Um þetta hefur síðan verið deilt linnulaust, og þar hafa átzt við öndverðir hinir ágætustu listamenn sem sízt af öllu hafa áhuga á málþrasi. Enda vita kunnugir menn að auð- velt hefði verið að jafna þetta deilumál ef beitt hefði verið háttvísi og skilningi, en engir eiginleikar eru jafn íjarlægir Bjarna Benediktssyni menntamálaráðherra. Allir vita hvernig síðan hefur gengið. Félag íslenzkra myndlistarmanna undirbjó sýningu sína, bauð öllum þátttöku og gaf elztu og viðurkenndustu listamönnum þjóðarinnar sjálfdæmi. Sýningin hefur verið gagnrýnd réttilega fyrir það að þar vanti verk eftir ágæta lista- rnenn sem öll þjóðin ann — en það stafar af því einu að þeir neituðu allri þátttöku í samræmi við valdboð Bjarna Benediktssonar. Og deilurnar héldu áfram, úlfúðin magn- aðist. Þegar öllum fannst nóg að gert, uröu loks þau tíðindi sem furðulegust má teþ'a; ráðherrann tók sig til og dró inn í málið erlenda aðila í fimm þjóðlöndum! Honum þótti ekki nóg að hafa valdið ósættanlegum ágreiningi meðal íslenzkra myndlistarmanna og komið af stað hvim- leiðu málaþrasi hér innanlands; nú skyldi reynt að fá inn í deiluna myndlistarmenn í Danmörku, Noregi, Sví- þjóð og Finnlandi og sjálfa gestgjafana, ríkisstjórn Ítalíu og borgarstjórn Rómar!! Hefði það þó verið lágmark hátt- vísi að sjálfhelda sú sem ráðherrann olli hefði orðið al- gert innanlandsmál og sem allra minnstar fregnir hefðu borizt af henni út fyrir landssteinana. En ráöherrann Virðist hafa kynlegar hugmyndir um landkynningu, eins og flest annað. Þetta furðulega mál sýnir mætavel að Bjarni Bene- diktsson er öldungis óhæfur til þess að hafa með höndum yfirstjórn menntamála. Skapgerð hans er slík að hann kann ekki að jafna mál og finna leiðir í ágreiningi, held- ur anar áfram og sést ekki fyrir. Hefur þetta sjaldan kom- ið eins glöggt fram og í þessu dæmi — enda er þar um engin stjórnmálaátök að ræða. Munu margir flokks- bræður ráðherrans vera mjög undrandi á hátterni hans, og hefur það komið einkar ljóst fram í Morgunblaðinu sjálfu. En undrunin nægir ekki; því fyrr sem hægt er að losna við þennan ráðherra því betra. Gestirnir Bidstiup teiknaði SKAK ■-----------------------------------> Rit8tjórii Guðmundur Arnlaugsson Hvifagaldur Þriðja skákin er frá skák- mótinu í Amsterdam og er úr þeirri umftrð er sovétmeistar- arnir gerðu upp við hættuleg- ustu keppinauta sina á mót- inu: Argentínumenn. Rússarn- ir sendu aðalsveit sína til leiks, og var auðséð á öllu að þeir lögðu sig fram eins og fremst máttu, enda varð sigurinn eftir því: 3% gegn %. í þessari við- ureign tefldi Keres við Herman Piinik. Pilnik hefur hrafnsvart hár, sem er að vísu farið að grána, og er að öðru leyti einna suðrænastur allra Argentínu- mannanna, en er fæddur í Stuttgart í Þýzkalandi þrátt fyrir yfirbragð sitt. Það er reyndar svo um fleiri af fremstu taflmeisturum Argen- tinumanna að þeir eru bomir í þennan heim í Evrópu: Naj- dorf er Pólverji að uppruna eins og allir vita, og Elískases fæddur suður í Tíról. Keres sópaði að sér fleiri vinningum en nokkur annar í Amsterdam og ég stalst því til að fylgjast með taflmennsku hans eftir því sem unnt var. Af skákum þeim er ég sá brot af fannst mér engin jafn skemmtileg og þessi, enda hygg ég að hún sé mesta afrek hans á mótinu. Þótt skákirnar séu ólíkar minnti þessi mig á hina skákina, þá er ég sá hann tefla í Miinchen átján árum fyrr. Spænskur leikur. Pilnik. Keres. 1. e2—e4 e7—e5 2. Rgl—f3 Rb8—c6 3. Bfl—b5 a7—a6 4. Bb5—a4 Rg8—f6 5. 0—0 Bf8—e7 6. Hfl—el b7—b5 7. Ba4—b3 0—0 8. d2—d3 d7—d6 9. c2—c3 Rc6—a5 10. Bb3—c2 c7—c5 11. Rbl—d2 Ra5—c6 12. Rd2—fl Rf6—d7 13. a2—a4 Rd7—b6 14. a4xb5 a6xb5 15. Halxa8 Rb6xa8 16. Rfl—e3 Ra8—b6 17. d3—dí Hf8—e8 18. d4xc5 d6xc5 19. Ddl—e2 Bc8—d7 20. Hel—dl Orðstírinn hefur sín áhrif: svartur bauð peð en hvítur áræðir ekki að þiggja það. Eft- ir 20. Dxb5 Rd4 og Rxf3 er komið skarð í peðaborgina er skýlir hvíta kónginum, og and- spænis Keres taka menn ó- gjarnan á sig þá áhættu er slíku fylgir. 20..... Be7—f8 Tafllok eftir Bjöm Haggkvist, Svíþjóð. (Tidskrift för Schack 1945) Hvítur á að vinna. Lausn á 2. síðu. 21. Re3—d5 Rc6—-bR 22. Rf3—g5 h7—h6 23. Rg5—f3 Rb6xd5 24. e4xd5 e5—e4! Það var misráðið að drepa með kóngspeðinu, því að nú nær Keres sókn. Hvítur má auðvit- að ekki drepa peðið. 25. Rf3—d2 Bf8—d6 26. Rd2—fl Dd8—h4 27. b2—b4 Rb8—a6! En ekki cxb4, Bxb4, Hd4 og hvítur heldur nokkurn veginn jöfnu. 28. b4xc5 Ra6xc5 29. Bcl—a3 f7—f5 30. g2—g3 Dh4—h3 Hótar f5—f4. 31. De2—e3 Rc5—b7 32. Ba3xd6 Rb7xd6 33. Bc2—b3 Kg8—h7 34. Hdl—al Rd6—f7 35. Hal—a7 Rf7—e5 Nú er ekki unnt að svara ógn- uninni sem yfir vofir með Rd2: 36. Rd2 Rf3f! 37. Rxf3 exf3 og hótar máti á tveim stöðum í senn! 36. Bb3—dl Við 36. — Rf3t 37. Bxf3 exf3 38. Dxf3 Hel á hvítur vörnina Dg2 (Dd3 dugar aftur á móti varla vegna Bd7—e8—h5—f3). En nú kemur atlaga úr annarri átt! 36.... b5—b4! Fallegur leikur! Ef nú cxb4, þá Bb5, Rd2 (eða Be2) Rf3t og vinnur. 37. c3—c4 Re5xc4 38. De3—d4 Rc4—e5 39. Rfl—e3 f5—f4l! Nú kostar Dxe4t, Rg6 mann. 40. g3xf4 Re5—f3t 41. Bdlxf3 e4xf3 Nú kemur þýðing 39. leiksins í ljós: biskupinn er valdaður og tálmar mátinu á g7. Svartur Framhald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.