Þjóðviljinn - 26.02.1955, Side 3
Laugardagur 26. febrúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Dómur Hæstaréttar í Veiðivatnamálinu í gæi:
Krafa Landmannahrepps um einkarétt
til veiði í vötnunum ekki tekin til greina
— en íbúar hreppsins cuarat íbuum Hoitahrepps 09 býlanna
Næfurholts og Hóla í Rangárvallahreppi taldir hafa sameiginlega skrifstofu féJagsins Edduhúsmu.
veiðirétt í vötnunum
Hæstiréttur kvaö í gær upp dóm í Veiöivatnamálinu
svonefnda, en þar var sem kunnugt er deilt um rétt til
veiði í vötnum og vatnsföllum á Landmannaafrétti. Urðu
úrslit málsins þau, að íbúar Landmannalirepps, Holta-
hrepps og býlanna Næfurholts og Hóla í Rangárvalla-
hreppi voru taldir eiga sameiginlega veiðirétt í vötnum á
afrétti þessum. Þar með virðist slegið föstu að aðrir hafi
ekki rétt til veiði í vötnunum.
Mál þetta, var upphaflega
höfðað af hreppsnefnd Land-
mannahrepps og þess krafizt
að viðurkenndur yrði einkarétt-
ur hans til veiði í Fiskivötn-
um (Veiðivötnum) suðvestan
Vatnajökuls. Til andmæla þess-
um stefnukröfum risu land-
búnaðárráðherra fyrir hönd
ríkissjóðs, hreppsnefnd Holta,-
hrepps. f.h. hreppsins og
hreppsnefnd Rangárvallahre^ps
f.h. ábúenda jarðanna Næfur-
holts og Hóia þar í hreppi.
í héraði urðu úrslit málsins
þau, að viðurkenndur var
einkaréttur stefnanda, Land-
mannahrepps, til veiði í öllum
Vötnum og vatnsföllum á
Landmannaafrétti innan nokk-
urra tilgreindra takmarka, en
málskostnaður látinn falla nið-
ur. Dómi þessum var skotið til
Hæstaréttar og gekk dómur
hans í gær eins og fyrr segir.
Eiga sameiginlega upprekstrar-
rétt á Landmannaafrétti
Forsendur Hæstaréttardóms-
ins eru mjög itarlegar og of
langar til að birta þær hér i
heild. Fyrst er þar tekinn til
athugunar ágreiningur aðila
um það, hvemig réttindum
þeiira til notkunar afréttarins
sé háttað og komizt að þeirri
niðurstöðu að íbúar Hjjlta-
hrepps og ábúendur Næfurholts
og Hóla í Rangárvallahreppi
eigi sameiginlega með íbúum
Landmannahrepps upprekstrar-
rétt á Landmannaafrétt. Siðan
segir: „Kemur þá næst til at-
hugunar, hvernig rétti til veiði
í Landmannaafrétti muni vera
háttað.
Ekld eignarhefð
„Ekki hafa verið leiddar sönn-
ur að því, að hrepnsfélögin
sjálf hafi öðlazt eignarrétt að
afréttinum, hvorki fyrir nám,
löggerninga, hefð né með öðr-
um hætti. Réttur til afrétt-
arins virðist í öndverðu hafa
orðið til á þann veg, að íbúar
á landsvæði framangreindra
hreppa og býla hafi tekið af-
réttarlandið til sumarbeitar
fyrir búpening og, ef til vill,
annarrar takmarkaðrar notkun-
ar. Um afréttamotkun og fjall-
skil voru snemma settar opín-
berar reglur, sem sveitarstjóm-
um var falið að annast fram-
kvæmd á. Eins og notkun af-
réttarlandsins hefur verið hátt-
að, hafa hreppsfélögin, annað
eða bæði, ekki unnið eignar-
hefð á því.
Sámeiginlegur veiðiréttur
„Þar sem framangreindir
afréttaraðiljar hafa sam-
kvæmt framansögðu ekki
beinan eignarrétt á Land-
mannaafrétti, koma hér tií á-
lita ákvæði 5. gr. laga nr.
112/1941 um rétt til veiði í
vötnum á afréttum. 11. töhi-
lið þeirrar greinar segir, að
noti héruð afrétt með lög-
legri heimild, sé héraðs-
mönnum þar öllum veiði
jafn heimil. Þar sem íbúar
Landmannahrepps, Holta-
hrepps og býlanna Næfur-
holts og Hóla í Rangárvalla-
hreppi nota Laudmannaaf-
rétt með löglegri heimild,
hafa þeir sarakvæmt greindu
ákvæði sameiginlega veiði-
rétt í vötnum á afrétti þess-
um. Orðið afrétt í 2. töiu-
lið 5. gr. verður að skýra
svo þröngt, að það taki ekki
til afrétta, sem notaðir eru
með löglegri heimild, svo
sem í 1. tölulið segir. Ekki
verður séð, að sldlyrði haft
verið fyrir hendi til þess,
að stefndi hafi helgað sér
einkarétt á veiðinni fyrir
hefð.
Með skírskotun til þess, sem
að framan segir, verður krafa
stenda um einkarétt til veið-
innar ekki tekin til greina1'.
Staðfest voru ákvæði héraðs-
dóms um málskostnað í hér-
aði en talið rétt að hver aðili
bæri sinn kostnað af málinu
fyrir Hæstarétti. Þá var ríkis-
sjóður dæmdur til að greiða
laun talsmanns Holtahrepps
(Kristins Gunnarssonar hdl.)
11 þús. kr., laun taismanns
Rangárvallahrepps (Ragnars
Ólafssonar hrl.) 7 þús. kr. og
laun talsmanns Landmanna-
hrepps (Magnúsar Thorlacius
hrl.) 14 þús. krónur.
Kosningar í Fél. ísl. rafvirkja verða í
dag og á morgun frá kl. 2—10 e.h.
Kosið er í skrifstoíu félagsiru í Edduhúsinu
Kosningar í Félagi ísl. raf-
virkja verða í dag og á morgun
frá kl. 2—10 e. h. Kosið er í
Allsherjaratkvæðagreiðsla um
stjórn og aðra trúnaðarmenn Fé-
lags ísl. rafvirkja hefst í dag kl.
2 e. h. og stendur yfir til kl.
10 í kvöld og á sama tíma á
morgun. Ber öllum öðrum raf-
virkjum en þeim er búa eða
dvelja langdvölum utan Reykja-
víkur, að greiða atkvæði sitt á
þessum tíma. Rafvirkjar, sem
búa eða dvelja langdvölum utan
Reykjavikur fá kjörgögnin send
og þurfa þeir að koma þeim aft-
ur í hendur kjörstjórnar fyrir
kl. 12 á hádegi 19. rnarz n. k.
í kjöri eru að þessu sinni tveir
listar: A-listi, listi fráfarandi
stjórnar og trúnaðarmannaráðs,
með Óskar Hallgrímssyni í for-
mannssæti og B-listi, borinn
fram af tilskildum fjölda félags-
manna, skipaður eftirtöldun'.
mönnum:
Formaður: Vigfús Einarsson.
Varaform.: Matthías Kristjáns-
son.
Ritari: Bolli Sigurhansson.
Gjaldkeri: Ragnar Bjarnason.
Varagjaldkeri: Björn Júlíusson.
Varamenn í stjórn: Júlíus Frið-
riksson, Pálmi Rögnvaldsson.
Rafvirkjar, fjölmennið á kjör-
stað í dag og á morgun. Kjósið
B-listann. Fellið' hægri manr.-
inn Óskar Hallgrímsson.
SÍS leigir verzlim Ragnars
Blöndals til 10 ára
Frá SÍS barst Þjóðviljanum eftirfarandi í gær: Sam-
band ísl. samvinnufélaga hefur samiö um leigu á verzl-
unarhúsnæði og fest kaup á vörubirgðum verzlunarinnar
Fagnar Blöndal h.f. í Austurstræti 10 í Reykjavík.
Norræna þjiðréttartímaritið 25 ára
Laugardaginn 26. febrúar eru
25 ár liðin síðan norræna þjóð-
réttartímaritið Nordisk Tids-
skrift for international Ret kom
út í fyrsta sinn. Ritinu stjórnar
ritnefnd þjóðréttarfræðinga, og
eru allir helztu sérfræðingar
Norðurlanda í nefndinni, en
formaður hennar er Per Fed-
erspiel, fyrrv. ráðherra. Nýtur
tímaritið styrkja úr ríkissjóð-
um Finnlands og Svíþjóðar, frá
Nóbel-nefnd norska Stórþings-
ins, frá Rask-örsted-sjóðnum
í Danmörku og víðar að. Frá
hverju Norðurlandanna er einn
ritnefndarfélagi ritstjóri. Þann-
ig sitja í ritnefndinni af Islands
hálfu Bjami Benediktsson
dómsmálaráðherra, Gunnar
Thoroddsen borgarstjóri og
Hans G. Andersen þjóðréttar-
fræðingur, og er sá síðastnefndi
ritstjóri af hálfu íslands. Rit-
stjórar skipta með sér verkum,
og er einn þeirra hverju sinni
aðalritstjóri og ábyrgðarmað-
ur. Afmælisritinu stýrir finnski
ritstjórinn, próf. Erik Castrén.
Stofnandi ritsins og útgef-
andi frá upphafi er dr. jur. Er-
ik Briiel, Kaupmannahöfn.
Aðstöðu þá, sem Sambandið
fær með kaupum þessum,
hyggst það nota til þess að
bæta söluaðstöðu fyrir fram-
leiðslu samvinnuverksmiðjanna,
svo og til að gera tilraunir með
nýjungar í smásöluverzlun.
Verksmiðjur samvinnumanna
hafa á undanförnum árum ver-
ið stækkaðar stórkostlega og
búnar hinum fullkomnasta véla-
kosti, þannig að framleiðslu-
geta þeirra hefur vaxið hröðum
skrefum, en framleiðsluvörurn-
ar tekið stakkaskiptum hvað
gæði og fjölbreytni snertir.
Starfa nú um 400 manns við
þessi fyrirtæki, aðallega á Ak-
ureyri, en þeirra stærst eru
Ullarverksmiðjan Gefjun, Skó-
og skinnaverksmiðjan Iðunn og um
Fataverksmiðjan Hekla. Hing-
að til hafa verksmiðjur þessar
haft ófullnægjandi aðstöðu til
að kynna vörur sínar í Reykja-
vík og er ætlunin að bæta að um
einhverju leyti úr þvi.
Aðalfundur SÍS hefur tvíveg-
is lagt fyrir framkvæmdastjórn
Sambandsins að gera í Reykja-
vík tilraunir með nýjar að-
ferðir í smásölu og margs kon-
ar tækni á því sviði, sem ryð-
ur sér mjög til rúms erlendis
og hefur gerbreytt verzlunar-
háttum nágrannalandanna. —
Hingað til hefur ekki verið
hægt að gera slíka tilraun
vegna húsnæðisleysis, en nú
skapast til þess hentug aðstaða.
Sú reynsla á nýjungum, sem
fæst, verður síðar hagnýtt af
kaupfélögunum um land allt
eftir aðstæðum á hverjum stað.
Verzlunarmenn
Framhald af 12. síðu.
félagsins að bera upp síðasta
hluta tillögunnar, en hann var
á þessa leið:
..Og skorar fundurinn á
stjórn félagsins að gera tillögur
um sameiginlega uppstillingu til
stjórnar, trúnaðarmannaráðs og
aðra trúnaðarmenn, er
kosnir verða á aðalfundi félags-
ins“.
Mæltist þessi framkoma for-
manns illa fyrir hjá fundarmönn-
líiokkunnni
Sósíalistaíél. Reykjavíkui
1. ársfjórðungur féll í gjald-
daga 1. janúar. Greiðið flokks-
gjöld ykkar skilvíslega í skrif-
stofu flokksins.
í samninganefnd félagsins
voru endurkosnir þessir menn:
Ingvar Pálsson, Björgúlfur Sig-
urðsson, Guðmundur Jónsson,
Gyða Halldórsdóttir, Gunnlaugur
Briem, Jónas Gunnarsson og
í>orsteinn Pétursson, og til vara:
Böðvar Pétursson, Októ Þor-
grímsson og Gunnlaugur l>or-
björnsson.
Kröfur félagsins hafa verið
sendar atvinnurekendum og er
þess að vænta, að samningavið-
ræður hefjist þegar í stað. Verzl-
unarfólk er hvatt til að fylgjast
vel með gangi þessara mála og
vinna ötullega að sigri í kaup-
og kjarabaráttu sinni. Aðalfund-
ur félagsins verður n. k. mánu-
dag í Sjálfstæðishúsinu.
Vill rikisstjórnin
lækka kaupið?
Framhald af 1. síðu.
komu — þeim sem vinnu hafa.
Það er ósæmilegt um miðja
tuttugustu öld að birta hag-
fræðilega útreikninga sem byggð-
ir eru á því að menn verði a<5
þræla sér út í eftirvinnu til þess
að komast af.
• Reynsla heimilanncil
Annars skal viðskiptamálaráð-
herra íhaldsins bent á það að þaði
er óþörf fyrirhöfn fyrir hann og
starfsbræður hans að láta eyða
tíma og fé í frekari hagfræðilega
útreikninga — almenningur hef-
ur af þeim þá reynslu að orðið
hagfræði er að verða eitt a£
skammaryrðum tungunnar. Sú'
hagfræði sem máli skiptir í sam-
bandi við kröfur verklýðsfélag-
anna nú er hagfræði heimilanna,
reynsla verkafólksins sjálfs. Og
hún stendur óhögguð hvað seni
allri talnaleikfimi líður. Sú hag-
fræði segir að kaupmáttur tíma-
kaupsins hafi rýrnað að mun.
ekki aðeins á síðustu tveimur
árum, heldur á síðustu átta ár-
Hún segir að kröfur verk-
um.
lýðssamtakanna séu hófsamleg-
ar, byggðar á reynslu hins dag-
lega lífs.
ia» ■■■■*■»■■■»■■■■■■»■•■•■■■■■■•■•*■■■•■■■••■■•■■■■■■■•■••■■■■*■■■•*■'
Verzlið við þá sem auglýsa í Þjóðviljanum
Lofthitunarfæki
Upphitun húsa mpð lofthi:-
unartækjum ryður sér nú ört
til rúms hér á landi. Er liðið
á þriðja ár, síðan Olíufélagið
hf. flutti til landsins fyrstu
lofthitunartækin af Gilbarco-
gerð, og hefur reynslan af þeiin
verið hin bezta. Alls er nú
þegar búið að setja þessi tæki
í 75 hús, víðs vegar á landinu,
Eru þar á meðal fjöldi íbúðar-
húsa, samkomuhús, kirkja og
verksmiðjubyggingar, og er
reynslan alls staðar jafn góð.