Þjóðviljinn - 26.02.1955, Side 11
Laugardagur 26. febrúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (11
Erich Maria EEMARQDE:
Að elska ...
...09 deyfa
65. dagur
„Hvor? Ottó eða Karl?“
„Lítill roskinn máður sem minnir á stork.“
,,Ottó.“ Þjónninn leit á Gráber. „Ottó er dáinn. Vín-
stofan hrundi. Ljósakrónan féll í höfuðið á honum.
Ottó er dáinn, herra minn.“
Gráber þagði andartak. „Ég skulda honum peninga,“
sagði hann. „Fyrir flösku af víni.“
Þjónninn þurrkaði sér um ennið. „Þér getið afhent
mér þá, herra. Hvað var það?“ - .
„Flaska af Johannisberger Kahlenberg.“
Þjónninn tok lista upp úr vasa 'sínum og kveikti á
vasaljósinu. „Fjögur mörk, þökk fyrir. Með þjórfé, fjögu-r
og fjörutíu.“
Gráber rétti honum peningana. Þjónninn stakk þeim
í vasann. Gráber vissi aö hann mundi ekki afhenda þá.
„Komdu,“ sagði hann viö Elísabetu.
Þau gengu áfram milli rústanna. í suðri stóð borgin
í björtu báli. Himinninn var grár og rauður og reyk-
mekkir bárust fyrir vindinum. „Við verðum að fara og
aðgæta hvort íbúðin þín er ennþá til, Elísabet."
Hún hristi höfuðiö. „Það er alltaf tími til þess. Við
skulum vera undir beru lofti.“ ^
Þau komu að torginu meö loftvarnaskýlinu sem þau
höfðu farið í fyrsta kvöldið. Inngangurinn opnaði ginið
1 hálfrökkrinu eins og inngangur aö undirheimum. Þau
settust á bekk í skemmtigaröinum.
„Ertu svöng?“ spuröi Gráber. „Þú fékkst ekkert að
borða“.
„Þaö gerir ekkert til. Ég gæti ekki borðað neitt núna.“
Hann braut sundur frakkann sinn. Glamur heyrðist
og hann dró tvær flöskur upp úr vösunum. „Mér þætti
gaman aö vita hvaö það er sem ég hef náö í. Þetta lík-
ist mest konjaki.”
Elísabet starði á hann. „Hvar fékkstu þær?“
„í vínkjallaranum. Dyrnar stóöu opnar. Flöskur höfðu
brotnað í tugatali. Setjum svo að þessar hefðu brotnað
líka.“
„Og þú tókst þær bara?“
„Vitaskuld. Hermaöur sem vanrækir opinn vínkjall-
ara er ekki meö réttu ráði. í uppeldinu var mér kennt i
að vera hagsýnn. Boðorðin tíu gilda ekki í hernum.“
„Þaö má nú segja.“ Elísabet horfði á hann. „Og sama
er að segja um margt annað.“ Hún fór allt í einu að
hlæja. „Hvað veit maður eiginlega um ykkur?“
„Þú veizt þegar fullmikið.“
„Hvað veit maður eiginlega um ykkur?“ endurtók
hún. „Þetta er í rauninni ekki þú sjálfur. Þú ert það sem
þú kemur frá. Og hver veit neitt um þaö?“
Úr hinum frakkavösunum tók Gráber tvær flöskur í
viðbót. „Hér er ein sem ég get opnaö án tappatogara.
Það er kampavín.“ Hann losaði vírinn. „Ég vona þú'
hafir enga samvizku yfir að drekka það.“
„Nei. Ekki lengur.“
„Við skulum ekki fagna neinu með því. Svo að það
verði ekki okkur til óláns. Við drekkum það vegna þess
að við erum þyrst og höfum ekkert annað. Og líka vegn?
þess að við erum enn á lífi.“
Elísabet brosti. „Þú þarft ekki að útskýra þetta fyrir
mér aftur. Ég er þegar búin aö. læra það. En skýröu
annað fyrir mér. Hvers vegna borgaðirðu eina flöskuna,
þegai' þú tókst fjórar aðrar traustataki?“
„Þar er mikill munur á. Þar var um skuld að ræða.“
Þaö varö hljótt. Rauði bjarminn breiddi æ meira úr
sér. Allt varö óraunverulegt í hinni kynlegu birtu. „Nei,
líttu á tréð þarna fyrir handan“. sagði Elísabet allt i
einu. „Það er að blómstra."
Gráber leit á það. Sprengja hafði rifið tréð því næv
upp úr jöröinni. Sumar rætur þess voru í lausu lofti,
bolurinn var brotinn og margar greinar höfðu brotnað
af, en það var í rauninni þakið hvítum blómum sem
rauðleiti slikju sló á.
„Húsið hjá því hefur brunnið. Ef til vill hefur hitinn
örvað það,“ sagði hann. „það er komið lengra en öll
önnur tré hér í kring, og þó er það mest skemmt.“
Elísabet reis á fætur og gekk að trénu. Bekkurinn
stóð í skugga og hún gekk út í titrandi bjarmann frá
brunanum eins og dansmær sem gengur fram á upp-
lýst leiksvið. Bjarminn umlukti hana eins og rauðin'
vindur; eldurinn var í baksýn eins og risablys sem boð-
aði heimsendi eöa fæðingu frelsara.
„Það er í blóma,“ sagði hún. „Það heldur að þetta sé
vorið. Ekkert annað skiptir máli fyrir það.“
„Nei,“ sagði Gráber. „Þau eru sífellt að kenna okkur.
Um hádegi í dag var þaö linditré sem uppfræddi mig og
nú er þaö þetta tré. Þau vaxa og bera blöö, og þótt þau
séu rifin upp úr jörðinni að mestu leyti, heldur það litla
sem eftir er áfram að vaxa. Þau eru alltaf að kenna
okkur og þau kvarta ekki né vorkenna sjálfum sér.“
Elísabet kom hægt til baka. Hörund hennar ljómaði
í þessari skuggalausu kynjabirtu, og andlit hennar virt-
ist með töfrablæ, svipurinn búa yfir leyndarmáli sem
var nátengt laufskrúðinu og blómunum, evðingu gróð-
ursins og hinum eilífa vexti. Svo steig hún út úr bjarm-
anum eins og hann væri sviðljós og var aftur kominn
inn í
hana að sér og. tréð var allt í einu komið til þeirra,
stórt og mikilfenglegt, tréð sem teygði sig upp í rauð-
an himininn og blóm þess voru mjög nærri og þaö var
linditréð og síðan jörðin og hún hvelfdist og breytist
í engi og himin og Elísabetu.
15
Herbergi númer f jörutíu og átta var í uppnámi. Egg-
höfðinn og tveir spilamenn stóðu vígbúnir. Þeir höfðu
verið úrskurðaðir hæfir til herþjónustu og voru í þann
veginn að leggja af stað til vígstöðvanna.
Egghöfðinn var fölur. Hann starði á Reuter. „Þú með
þessa vesölu löpp þína! Ræfillinn þinn! Þú færð að
vera kyrr, en ég, fjölskyldufaðir, verð að fara!“
Reuter svaraði engu. Feldmann reis upp í rúminu.
Iþrótfir
l
Framhald af 9. síðu.
ir ferðamanna frá öðrum löndum
koma á mótið.
í skeyti sem U. P. hefur látið
hörð og eru þar tilnefnd Svíþjóð,
Bandaríkin og Tékkóslóvakía.
frá sér fara segir að hóteleigend-
ur hafi látið þær skoðanir og
óskir í ljósi að þeir vilji helzt
leikmenn frá Austur-Evrópu. Þeir
telja að það ríki betri agi meðal
íþróttamanna þaðan en margra
annarra landa, og þessvegna
betra við þá að fást. —
S.l. 4 ár hefur ekki verið svo
mikil þátttaka í móti þessu. Að-
eins Sviss og Sviþjóð hafa tekið
þátt í öllum HM-mótum eftir
stríðið. Ungverjaland er nú með
í fyrsta sinn en það er í annað
skuggann við hlið hans, hlý og lifandi. Hann dró sinn sem Sovetnkm og Jugo-
slavía er með í móti þessu.
Margir spá Pentieton VS frá
Kanada sigri og þjálfarinn Grant
Warwick er viss um að lið hans
standi sig betur en Toronto
Lyndhurst-liðið gerði í fyrra, og
sýni að beztu ísknattleiksmenn
heimsins eru enn í Kanada.
Sem fyrr segir hefst mótið í
dág og sténdur til 6. marz.
YiBar flikur og þröngar
Það eru miklar andstæður í
tízku dagsins, og hvergi ber
meira á því en í nýjum peys-
Mest her á tveim stefnum,
sléttum, þröngum peysum og
mjög víðum peysum. Við skul-
um fyrst líta á þröngu peys-
urnar.
Þröngu peysurnar undir
strika sjálfsagt fallegan vöxt
en leyna lieldur engu þegarv
um einhverja vaxtarágalla er
að ræða. Þrönga kasmírpeysan
frá Dior er með nýtízku sjó-
mannskraga, þröngum ermum
og handvegum og þröngt í mitt-
ið. Ekki er ólíklegt að farið
hefði betur að girða peysuna
niður í pilsið.
um, en einmitt peysur eru flík-
ur sem allir hafa áhuga á -að
fylgjast með. Þótt konur eigi
ekki mikið fataúrval, eiga þær
venjulega peysur til skiptanna.
Flestar þessar peysur eru
með stroffi sem nær frá mitti
og niður á mjaðmir; stroffið
byrjar því nær aldrei fyrir
ofan mitti.
Og meðan þröngu peysurn-
ar eru á dagskrá er rétt að
minnast á heldur leiðinlegan
galla í sambandi við þær.
Þröngi handvegurinn sem nær
alveg upp í holhöndina er ekki
hentugur þeim sem hættir til
að svitna undir höndunum.
Þótt notuð séu ennablöð og
alls kyns svitalyf getur verið
erfitt að bjarga málinu og þær
konur sem verða rakar undir
höndunum ættu heldur að velja
sér peysur með víðari hand-
vegi.
Víðu, stóru peysurnar eru
einkum notaðar sem sportpeys-
ur og oft virðist helzt sem
konurnar hafi villzt inn í fata-
skáp mannsins og tekið spari-
peysuna hans. Enginn munur
er á sniði á peysum karla og
kvenna.
Ef maður prjónar sjálfur er
það huggun að dæmalaust
auðvelt er að prjóna þessar
peysur. Þær eru oftast. slétt-
prónaðar eða með einföldum
prjónamynstrum, svo sern einni
rangri og einni réttri, en það
er mjög einfalt og afarhlýtt.
FISKGRATIN
Roð og bein hreinsað af fisk-
afgangi. Fiskurinn skorinn í
smábita, lagður í smurt eld-
fast mót ásamt soðnum kart-
öflusneiðum. Uppbakaðri sinn-
epssósu, tómat eða karrýsósu
hellt yfir, raspi stráð yfir og
fatið sett í heitan ofn í 10—
15 mínútur.
FISKKARBÓNAÐI
Fiskafgangur, ca. 250 gr., sem
roð og bein eru hreinsuð úr,
hakkaður, blandaður 250 gr.
soðnum, mörðum kartöflum og
þvínæst hnoðað með einu eggi,
50 gr. raspi, salti og pip&r.
Ðeigið mótað í litla bita sem
velt er uppúr eggi eða hveiti-
jafningi og fínmöluðum raspi
og steiktir ljósbrúnir í smjör-
líki.