Þjóðviljinn - 05.03.1955, Page 12
1206 Húsvíkingar hafa leitað atvinnu
j syðra á vertíðénni
Húsavík. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Undanfarið hefur það farið saman að verið hefur ótíð'
í hér og beitulaust. Nú er koniin beitusíld frá Noregi, en
■ ekki hefur gefið á sjó og hefur því verið aigert atvinnu-
leysi hér undanfarið,
Hafa aldrei jafnmargir Húsvíkingar leitað suður á
: land í vertíðaratvinnu, en í vetur fóru suður héðan um
> 200 manns.
■■■■■■■«■■■■»■■■■■>•■■■■■■■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■!■■
Danslagakeppni S.K.T. hefst í kvöld
Þetta er 6. danslagakeppnin og vinsældir
þeirra £ara stöðngt vaxandi
Það er í kvöld í Góðtemplarahúsinu sem danslaga-
keppni S.K.T. hefst. Er þetta sjötta danslagakeppnin sem
S.K.T. efnir til. Úrslitakeppnin fer fram 19. og 20. þ.m.
HlðfSVILJINN
Laugardagur 5. marz 1955 — 20. árgangur — 53. tölublað
Isf. verkfrœðinemar heim-
sœkja Kastrupflugvöil
Nýlega bauö Flugfélag íslands íslenzkum verkfræöinem-
um, sem stunda framhaldsnám í Kaupmannahöfn, í
kynnisferð til Kastrupflugvallar.
Keppnin hefst með gömlu
dönsunum í kvöld, annað kvöld
verða nýju dansarnir. Næsta
laugardagskvöld heldur keppn-
in áfram í gömlu dönsunum og
nýju dönsunum á sunnudaginn.
Hvert kvöld verða fjögur lög
valin til úrslitakeppninnar, eða
alls 8 lög í hvorum flokki. Alls
eru 36 lög í keppninni.
Þrenn verðlaun í hvorum
flokki.
Þrenn verðlaun verða veitt í
hvorum flokki. Eru það 500 kr.
fyrir það lag sem bezt þykir,
300 fyrir næstbezta og 200 fyrir
það þriðja. Verða þannig sex
verðlaun, að upphæð 2 þús. kr.
Áheyrendur og dómnefnd.
Áheyrendur greiða að vanda
atkvæði um lögin í öllum keppn-'
unum, en jafnframt verður
dómnefnd, sem hefur helming
atkvæða móti áheyrendum.
Úrslitakeppninni verður út-
varpað, og þá geta áheyrendur
einnig greitt atkvæði og sent
þau til S.K.T.
Firmaheppni
Steíðaráðsins
Skíðaráð Reykjavíkur gengst
fyrir firmakeppni í svígi n.k.
sunnudag 6. marz kl. 14, og fer
keppnin fram við Skíðaskálann
í Hveradölum.
Keppnin verður. forgjafar-
keppni, svo öll firmun hafi sem
jafnasta sigurmöguleika.
Allir helztu skíðamenn
Reykjavíkur taka þátt í keppn-
inni.
Keppt er um fagran bikar
sem verður farandgripur.
Ferðir á mótsstað verða frá
B.S.R. við Lækjargötu, kl. 14
og 18 í dag, og á morgun
kl. 9 og 10.
Ferðasknfstofa líkisins:
Skíðaferð um
helgina
Eins og að undanförnu, mun
Ferðaskrifstofa ríkisins efna til
skíðaferða, um helgar, þegar
færi og veður leyfir.
Verður fyrsta ferðin farin kl.
10 árdegis, n.k. sunnudag. Ráð-
gert er að þá verði farið að
Skíðaskála Reykjavíkur, í
Hveradölum.
Sérstakur maður verður með,
til aðgæzlu unglinga og annara
þátttakenda.
Lagt verður af stað frá af-
greiðslu skrifstofunnar, Hafnar-
stræti 23, sem nú er í suður-
hlið hússins.
Textakeppni einnig.
S.K.T. efndi fyrir nokkru til
textakeppni og barst nú tölu-
vert af textum sem yfirleitt eru
taldir jafnbetri en textar und-
anfarinna ára. Verða einnig
veitt verðlaun fyrir bezta text-
ann. Þá hafa einnig margir aðr-
ir textar borizt við lög sem
send hafa verið til keppninnar.
Breimbaninn.
Áður en S.K.T. efndi fyrst til
danslagakeppni voru erlendir
textar við erlend danslög næst-
Eigendur Isbúðarinnar eru
Þorvarður Árnason og Gylfi
Hinriksson. Keyptu þeir vélar
þær, sem notaðar eru við fram-
leiðsluna, frá Bandaríkjunum
og fengu um leið einkaleyfi á
framleiðsluaðferðinni.
Efnið, sem notað er í mjólk-
urísinn — ísblandan — er að
mestum hluta nýmjólk blönduð
undanrennudufti, hleypi og
sykri. Er blandan útbúin í
Mjólkurstöðinni en fryst í sér-
stakri vél að Hjarðarhaga 10.
Mjólkurísinn er síðan seldur í
mismunandi skömmtum —
kostar minnsti skammtur 2
krónur en sá stærsti 35 — bæði
Stjórnarsam-
vlnnan í Bonn
óstöðug
Dr. Adenauer, kannslari V-
Þýzkalands, ræddi í gær við
dr. Dehler, leiðtoga annars
stærsta stjórnarflokksins,
Frjálsra demókrata, og var
lýst yfir eftir viðræðurnar að
þeir hefðu orðið ásáttir um
framhald stjórnarsamvinnunn-
ar að svo stöddu.
Dr. Dehler réðst harðlega á
-Saarsamningana á þingi nú í
vikunni er Parísarsamningarnir
voru fullgiltir og greiddu marg-
ir flokksmenn hans atkvæði
gegn þeim.
Óvíst er talið, þrátt fyrir
yfirlýsingu flokksleiðtoganna,
hve haldgóð stjórnarsamvinnan
verður.
Árás á ey við
Matsú?
Útvarp Sjang-Kaisékstjórn-
arinnar skýrir svo frá að í gær
hafi um 40 fallbyssubátar, og
aðrir bátar gert tilraun til
landgöngu á smáey í Matsú-
eyjaklasanum.
Hafi bátarnir ætlað að kom-
ast óséðir að eynni vegna
dimmrar þoku, en orðið frá að
hverfa vegna skothríðar úr
strandvirkjum Sjanghersins á
eynni.
Bandarískir hernaðarsér-
fræðingar halda áfram viðræð-
um við herstjóm Sjang Kai-
séks á Taivan og fóru í gær í
sameiginlega eftirlitsferð til
ýmissa helztu hernaðarmann-
virkja á eynni.
Blöð á Taivan skýrðu svo
frá í gær, að Foster Dulles
hefði lofað Sjang því á dögun-
um að Bandaríkjastjóm tæki
ekki þátt í neinum samningum
varðandi landsvæði sem nú er
á valdi Sjanghersins nema láta
stjórnina á Taivan fylgjast
með og hafa hana með í ráð-
um.
Eden í Irak
Framhald af 1. síðu.
land yrði breytt í það horf, að
betur samrýmdist hinum nýja
hernaðarsamningi við Tyrk-
land.
Eden heldur áfram fór sinni
í dag, til Beyrut og Rómar.
í kökuformum og pappahylkj-
um og eru allar umbúðir inn-
fluttar.
Eins og áður er sagt, er
mjólkurís ekki talinn fitandi og
er það m.a. ein orsök þess að
neyzla hans hefur aukizt mjög
mikið á undanförnum árum í
Bandaríkjunum og víðar þar
sem tekið er að framleiða hann.
Fitumagn íssins er 6% en til
samanburðar verður venjulegur
rjómaís að hafa a.m.k. 15%
fitu skv. gildandi reglum.
íshúðin að Hjarðarhaga 10
er opin daglega á svipuðum
tíma og almennar veitingastof-
ur, en auk þess eru útsölu-
staðir mjólkurísa á 12 öðrum
stöðum hér í bænum og víðar
út um land.
Bókmenntakynning þessi hefst
kl. 4 í hátíðasal Háskólans;
fyrst flytur formaður stúdenta-
ráðs, Skúli Benediktsson, ávarp,
en að því loknu tekur Jakob
Benediktsson magister til máls
og ræðir um skáldskap Laxness.
Síðan hefst uplestur úr verk-
um skáldsins. Þorsteinn Ö.
Stephensen flytur kafla úr
Eldi í Kaupinhöfn. Þá kemur
Undir leiðsögn tveggja starfs-
manna F.I., þeirra Birgis Þór-
hallssonar, sem veitir forstöðu
skrifstofu félagsins í Höfn, og
Ásgeirs Magnússonar vélvirkja,
voru þeim sýndar ýmsar fram-
kvæmdir á Gullfaxa, sem fram
fara á verkstæðum SAS. Auk
þess var íslenzku verkfræðinem-
unum boðið að skoða vélaverk-
stæði SAS í Kastrup, en þau
eru talin einhver fullkomnustu
í heimi.
Konur í Horna-
íirði safnatil
sjúkraflugvélar
í tilefni af fjársöfnun S.V.F.Í.
1. góudag, til kaupa á hreyfli í
sjúkraflugvélina, þá gekkst
kvennadeildin „Framtíðin11 á
Hornafirði fyrir fjársöfnun í
þessu skyni og söfnuðust alls
kr. 3.850,00, sem deildin hefur
þegar afhent Slysavarnafélaginu.
Starfsemi kvennadeildarinnar á
Hornafirði stendur með mikl-
um blóma. í deildinni eru 70
félagar. Samanlagðar tekjur
deildarinnar á s.l. ári námu rúm-
lega 14 þús. krónum. Formaður
deildarinnar er Jónína G. Jóns-
dóttir.
röðin að skólanefndarfundin-
um í Ljósvikingnum, og flytja
hann þrír háskólastúdentar —
þeir Jón Haraldsson stud.
odont, Sigurður Líndal stud.
jur. og Sveinn Skorri Höskulds-
son stud. mag.
Að lokum les höfundur sjálf-
ur úr Gerplu.
Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
Að lokinni kynnisferðinni
þáðu verkfræðinemamir veit-
ingar hjá Flugfélagi Islands,
sem fram voru bornar í veit-
ingasölum flugvallarins.
Gullfaxi, millilandaflugvél
Flugfélags Islands, hefur verið
á Kastrupflugvelli við Kaup-
mannahöfn frá því skömmu
eftir áramót. Þar hefur verið
framkvæmd á fiugvélinni svo-
nefnd 8000 tíma skoðun, en al-
þjóðareglur mæla svo fyrir, að
allsherjarskoðun skuli fara
fram á flugvélum, þegar þeim
hefur verið flogið í 8000
klukkustundir.
Ponfecorvo
Framhald af 1. síðu.
En jafnframt kvaðst hann vilja
minna blaðamennina á, að
Sovétríkin ynnu af alefli að
friði og vildu að kjarnorku-
vopn yrðu bönnuð.
Stalínverðlaun fyrir
kjarnorkurannsóknir.
Einn blaðamannanna spurði
hvenær Pontecorvo hefði gerzt
sovézkur þegn og var svarað
því að hann hefði orðið það
1952. Spurningu um hvort
hann hefði hlotið Stalínverð-
laun fyrir kjarnorkurannsókn-
ir, svaraði Pontecorvo játandi.
Brezkur blaðamaður spurði
hvort Pontecorvo teldi að starf
hans í Sovétríkjunum miðaði
fremur til almannaheilla en.
starf hans í Bretlandi, og svar-
aði Pontecorvo því að Sovét-
ríkin legðu aðaláherzlu á nýt-
ingu kjarnorkunnar til frið-
samlegra þarfa en það væri
óhugsandi í auðvaldsþjóðfélagi.
Viðtal Pontecorvo vakti heims-
athygli, ekki síður en grein-
arnar sem tvö Moskvublöð
birtu eftir hann fyrr í vikunni.
Hefur mikið verið bollalagt
um hann og störf hans frá
því hann „hvarf“ fyrir hálfu
fimmta ári, en þá vann hann
að kjarnorkurannsóknum í
Bretlandi, sem kunnugt er.
Framhald ó 3. síðu.
Fraileiisla á mjólkurís hafin hér
Nýjung sem ruft hefur sér mjög til rúms
erlendis á undanförnum árum
ísbúðin, Hjaröarhaga 10, nefnist nýtt fyrirtæki, sem
hafið hefur framleiðslu og sölu á mjólkurís. ís þessi, sem
er framleiddur meö sérstakri aðferð, er miklu fituminni
en venjulegur rjómaís og hefur þó meira næringargildi.
Kynning á verkum Hall-
dórs Kiljans Laxness
Á morgun verður 2. bókmeimtakynning stúdentaráðs Háskóla
fslands á þessum vetri, og verða að þessu sinni fluttir kaflar úr
verkum Halldórs Kiljajns Laxness.