Þjóðviljinn - 26.03.1955, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 26.03.1955, Blaðsíða 1
 Þátttakendur í verkfallinu eru beðnir að hafa sam- band við verkfallsskrif- stofuna í Alþýðuhúsinu. Laugardagur 26. marz 1955 — 20. árgangur — 71. tölublað Ríkisstjórnin gerir enn eina tilraun til að hindra samninga Birtir á Alþingi villandi og ranga ,skýrslu' um kostnað- arauka rikissjóðs af grunnkaupshœkkunum verkamanna Ríkisstjórnin flutti á Alþingi í gær enn eina skýrslu, sem ætluö er til þess að tefja fyrir því aö verkamenn fái sanngirniskröfum sínum um kjarabætur framgengt. Var það skýrsla sem Ólafur Thórs flutti á fundi í neðri deild um kostnað ríkissjóðs af því að verkamenn fengju grunnkaupshækkun. Heldur ríkisstjómin þvi fram að 7% grunnkaupshækkun kosti ríkissjóð 22 milljónir króna, en 26% hækkun 78.7 milljónir, og raunar meira, þegar á næsta ári!! Einar Olgeirsson spurði nánar um nokkur tiltekin at- riði þessai'ar skýrslu, og sýndi fram á, að fengnum svör- um ráðherrans, að megintölur hennar eru alger mai'k- leysa hvaö snertir kostnaðarauka ríkissjóðs af grunn- kaupshækkunum verkamanna. Einar benti þá á, að með því móti væri hér um allt Eitt meginatriði „kostnaðar- áætlunarinnar" sem ríkisstjórn- in lagði fram var að laun sem rikíssjóður greiddi hækkuðu um 12 milljónir króna ef yrði 7% grunnkaupshækkun, en 42 millj. króna, ef hækkunin næmi 26%. Einar spurði hvort hér væri eingöngu um að ræða kostnað- arhækkun á laun þeirra verka- manna sem nú væru í verkfalli og hliðstæðra. Ólafur Thors svaraði að svo væri ekki. I þessari tölu fæl- ist, að reiknað væri með launa- hækkun starfsmanna ríkisins, sem gert væri ráð fyrir að vrði. Paií sarsamningarnir: Breytingar sama og-að fella þá Pinay, utanríkisráðh. Frakk- lands, flutti ræðu í efri deild franska þingsins í gær, en það var þriðji dagur umræðunnar um fullgildingu Parísarsamn- inganna. Búizt var við að um- ræðan mundi standa langt fram á nótt og talið ósennilegt að henni mundi ljúka í dag. Pinay lagði áherzlu á það að deildin yrði að samþykkja samningana óbreytta og sagði að sérhverjar breytingar eða viðbótarákvæði við samningana mundu jafngilda því að deildin hafnaði þeim. Skoraði hann eindregið á deildina að sam- þykkja samningana með mikl- um meirihluta. Pinay sat sjálf- ur hjá við atkvæðagreiðsluna um samningana í neðri deild þingsins. Gromiko, aðstoðarutanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, ræddi í gær í rúman klukkutíma við Östen Undén, utanríkisráðherra Svíþjóðar, í Stokkhólmi. Ekki er vitað hvað þeim hefur farið á milli. Síðar um daginn ræddi Gromiko við Erlander forsset- isráðherra. [ embættismennimir fengu lang- mest, en láglaunastarfsmenn- irnir nær ekkert. Hins vegar hefði þá upphæðin, 12 milljónir króna, engum vaxið í augum, ekki einu sinni Eysteini. ,,Skýrsla“ ríkisstjórnarinn- ar er bví mjög villandi og niðurstöður liennar koma ekki nema að litlu leyti við lausn núverandi vinnudeilu. Sýndi Einar fram á að fleiri atriði „skýrslunnar" væru álíka undirbyggð. Einar-hélt því fram að jafn- vel þótt lausn vinnudeilunnar annað og meira mál að ræða en það sem skýrslunni væri ætlað að sýna, kostnaðar- auka ríldssjóðs af grunn- kaupsliækkunum verkamanna í yfirstandandi deilu. Hér reiknaði ríkisstjómin með kostnað af þeim ráðstöf- unum, sem hún hygðist gera varðandi launahækkun til allra starfsmanna ríkisins, ef lægst launuðu verkamennirnir knýja fram grunnkaupshækkun. Laun allra starfsmanna ríkisins kvað Einar mundu yfir 100 miiljónir króna. Af 12 milljónunum sem ríkis- stjórnin reiknaði með ættu því að minnsta kosti 7, en kannski 8-*9 milljónir, að fara til starfsinanna ríkis- ins, en einungis 3-4 milljón- ir til verkamanna. Væri hærri upphæðin tek- in, sem ríkisstjórnin teldi að leiða mundi ai, 26% grunn- kaupshækkun verkamanna, væri ljóst af upplýsingum Ólafs að yfir 30 milljónir af þeirri upphæð væri fyrirliug- uð lauriahækkun til starfs- manna ríkisins. Einar minnti á að Alþingi samþykkti nú fyrir nýárið 12 milljóna króna útgjöld vegna launahækkunar starfsmanna ríkisins, og hefði ríkisstjórnin hagað þeirri launahækkun svo vísdómslega, að hæstlaunuðu Samningafundur boðaður í dag kl. 2 Viðræðufundur hefur verið boðaður með samninganefnd verklýðsfélaganna og samn- inganefnd atvinnurekenda og sáttanefnd ríkisstjórnarinnar. Hefst fundurinn kl. 2 í dag. Er þetta fyrsti samninga- fundurinn síðan sl. sunnudag. hefði í för með sér nokkurra milljónatuga kostnað fyrir rík- issjóð, væru það ekki tölur sem ástæða væri til að óttast. Hitt væri margfalt meira og alvarlegra tjón fyrir rík- issjóð og þjóðarheildina alla, ef hindrað væri dögum og vikurn saman að samningar takist í vinnudeilunni og vertíðin við Faxaflóa látin stöðvast af þeim sökum. Af því hlytist tjón sem væri raunverulegt, og gætí grafið undan gengi íslenzku krón- unnar, en grunnkaupshækk- un yrði ekki tíl þess. Lagði Einar þunga áherzlu á nauðsyn þess, að samið væri tafarlaust um kröfur verklýðs- félaganna. Enginn alþingismað- ur hefði dirfzt að bera brigður á að erfitt sé að framfleyta heimili af núverandi kaupi Dagsbrúnarmanns. Alþingi og ríkisstjórn bæri að stuðla að skjótri lausn deilunnar í stað þess að torvelda hana. Auk Einars tóku til máls Gylfi Þ. Gíslason, Eggert Þor- steinsson og CBergur Sigur- björnsson. INSI boðar fund um kjaramálin og skólamálið Iðnnemasamband íslands held- ur almennan iðnnemafund á morgun. Fundurinn verður í Tjarnarkaffi (uppi) og hefst kl. 2 e. h. Umræðuefni eru tvö. I fyrsta lagi: Kjarabarátta iðnnema. I öðru lagi: Iðnskólafrumvarpið- á Alþingi. Bæði þessi mál eru nú ofar- lega í hugum iðnnema, og er þess að vænta að þeir fjöimenni á fundinn. Bretar fá að liorfa á vetnistilraun Bandaríska landvarnaráðu- neytið tilkynnti í gær, að brezk- um og kanadískum vísinda- mönnum hefði verið boðið að vera viðstaddir tilraunir með kjarnorkuvopn í Nevadaeyði- mörkinni á næstunni. Yfirmað- ur kjarnorkurannsókna Breta, sir William Penney, dvelst nú í Bandaríkjunum. Þetta er í fyrsta sinn síðan kjarnorkusprengja var sprengd á Bikini í Kyrrahafi 1946 að Bandaríkjamenn leyfa annarra þjóða mönnum að fylgjast með kjarnorkutilraunum. Skipstjórínn á Leníngrad neitaði að taka þátt í verkfallsbrotum Ríkisstjórnin hefur bannaS Oliufélaginu að selja oliuna úr Smeralda ur landi Alþýðusamband íslands skrifaði skipstjóranum á rússneska olíuskipinu Leningrad og skýrði honum frá að olíuskipin íslenzku væru verkfallsbrjótar og í banni Alþýðusambandsins. Þegar er skipstjórinn hafði fengið þessar upplýsingar neitaði liann að vera þátttakandi í verkfallsbroti. Sigldi Leningrad á brott síð- degis í gær. Þá hefur ríkisstjórnin neitað beiðni olíufélaganna um að selja olíuframinn úr olíuskipinu Smeralda úr landi. Eftir að Skeljungur hafði losað á Patreksfirði og var því kominn í bann Alþýðusambands Dagsbrúnarmenn! Manið fundinn í Iðnó á mánudaginn Dagsbrúnarmenn! Dagsbrúnarfundur verður á mánu- daginn kemur kl. 2 e.h. Umrœðuefni fundarins verður verkfallsmálin, en verk- fall hefur nú staðið í viku, og augljóst af öllu að atvinnu- rékendur cetla sér í stríð við verkamenn, en Dagsbrúnar- menn hafa fyrr mætt fjandsemi peirra, og eru einráðir í að vinna sigur. Allir Dagsbrúnarmenn þurfa pví að kom á fundinn í Iðnó, frœðast um gang rnálanna og undirbúa áframhald baráttunnar fyrir sigri Dagsbrúnar. ins og ætlunin var að hann fyllti sig að nýju úr rússneska olíuskipinu Leníngrad var skip- stjóranum á skipinu skýrt frá málavöxtum og fóru nokkrir menn í fyrrinótt frá verkfalls- stjórninni út í rússneska olíu- skipið þar sem það lá á Kolla- firði. Höfðu þeir meðferðis svo- hljóðandi bréf til skipstjórans frá Alþýðusambandi íslands: iReykjavík 24. marz 1955. „Herra skipstjóri tankskipinu Leningrad, Reykjavíkurhöfn. Alþýðusamband íslands vill hér með tilkynna yður að hér á landi er nú mjög víðtækt verkfall, og að íslenzku skip- in Skeljungur og Litlafell eru verkfallsbrjótar, sem látnir hafa verið í afgreiðslubann, Þess vegna teljum vér oss skylt áð senda yður þá aðvörun, að ef áðurnefnd skip verða lest- uð á ný frá skipi yðar eftir þau verkfallsbrot, sem þau hafa nú framið, þá mun A'lþýðusam- band Islands ekki sjá sér fært annað en að tilkynna erlendum alþjóðasamb'. verkamanna, ' að skip yðar hafi blandað sér í verkfallið á Islandi, og mundi Alþýðusambandið því biðja um að skip yðar verði sett í bann og neitað um afgreiðslu í er- lendum höfnum. Það eru því vinsamleg til- mæli vor til yðar, að þér til- kynnið Olíufélaginu, að þér haf- ið fengið þessa aðvörun og get- ið ekki tekið á yður eða skip yðar afleiðingar af verkfalls- brotum hins íslenzka olíufélags og munuð því ekki leyfa, að olía sé sett úr skipi yðar í íslenzku tankbátana Skeljung og Litla- fell. Virðingarfyllst Alþýðusamband íslands". Skipstjórinn tjáði verkfalls- mönnum er hann hafði lesið Framhald á 12. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.