Þjóðviljinn - 26.03.1955, Side 4
4) — ÞJÖÐVILJINN — Laugardagur 26. marz 1955
H&MigÞ - Sala
Regnfötin,
sem spurt er um, eru fram-
leidd aðeins í Vopna.
Gúmmífatagerðin VOPNI,
Aðalstræti 16.
Matarstell
.12, manna, 20 skreytingar,
verð frá 398.00 til 1918.00.
Kaffistell 12 manna, 26
skreytingar, verð frá 207.00
til 970.00 Bollapör, margar
tegundir Ávaxtasett, íssett,
vínsett, vínglös, vatnsglös o.
m. fl.
Glervörudeild
Rammagerðarinnar,
Hafnarstræti 17.
Munið kalda borðið
að Röðli. — Röðull.
Nýbakaðar kökur
með nýlöguðu kaffíT-—
Röðulsbar.
Fyrst til okkar
Húsgagnaverzlunin
Þórsgötu 1
Munið Kaffisöluna
Hafnarstræti 16.
Otvarpsviðgerðir
Radió, Veltusundi 1.
Sími 80300.
Ragnar Ölafsson
hæstaréttarlögmaður og lög-
giltur endurskoðandi, Lög-
fræðistörf, endurskoðun og
fasteignasala, Vonarstræti 12,
SÍmi 5999 og 80065.
Sendibílastöðin h.f.
Ingólfsstræti 11. — Sími 5113.
Opið frá kl. 7.30-22.00. Helgi-
daga frá kl. 9.00-20.00.
Saumavélaviðgerðir
Skrifstofuvélaviðgerðir
S y 1 g i a.
Laufásveg 19, sími 2656.
Heimasími: 82035.
1395
Nýja sendibílastöðin
Sími 1395
Lj ósmy ndastof a
Laugaveg 12.
Viðgerðir á
rafmagnsmótorum
og heimilistækjum.
Raftækjavinnustofan Skinfaxi
Klapparstíg 30. — Sími 6484.
Sendibílastöðin
Þröstur h.f.
Sími 81148
I I
| Telpukápur i
á 2—14 ára. Verð
krónur 260—695.00
m
Fischersundi
Toledo
"SÁPU VERKSM IÐJAN SJ Ö FN, AKU REYR I
er hið albióðlega heiti fyrir carboxymethy.lcellu*
sem er framleitt úr cellulose. CMC hefur t>au
áhrif, að óhreinindi leysast betur og fljótar upp og
þvotturinn verður ónæmari fyrir óhreinindum eftir en*
áður - þvi CMC myndar varnarlag um þræði efnisins.
Stuttjakkaefni
Dragtaefni
Pilsefni
MARKAÐURINN
Bankastræti 4
Séia L. Murdoch
flytur erindi í Aðventkirkjunni
sunnud. 27. marz, kl. 5 síðdegis.
Efni:
Víxlsporið óbætanlega
Athugið:
Um leið og gengið er úr kirkju,
eiga þeir, sem þess óska, kost
á að fá fjölritaðan útdrátt úr
erindinu, sem flutt var s.l.
sunnudag, um efnið:
Er hægt að ná sambandi
við dána menn?
Ög ennfremur efnisskrá um væntanlegan erindaflutning
í apríl. — Allir velkomnir.
Píanótónleikur Jórunnar Viðar
Jórunn Viðar annaðist þriðju
tónleika Tónlistarfélagsins á
þessu ári, er fram fóru í Aust-
urbæjarbíói mánudaginn og
þriðjudaginn 21. og 22. þ.m.
Hún byrjaði með því að
leika sex af hinum fjölmörgu
prelúdium . rússneska tón-
skáldsins Alexanders Skrjab-
íns og fór einkár vel með öll
þau lög. Miður tókst hið mikla
verk Brahms, ,,Tilbrigði og
fúga um stef eftir Hándel“,
enda er það feikilega örðugt
tónverk og ekki heiglum hent
við að fást. Jórunn er ágætur
píanóleikari, en hún er ofur-
lítið mistæk og á í því efni
sammerkt við ýmsa aðra góða
listamenn. Það eiga ekki allir
því láni að fagna, að andinn
sé þeim æfinlega jafnnáðugur.
En svo er líka það, að liennar
sérgrein í píanóleik er ekki
stórglæsilegasta snillitækni, og
er síður en svo að það sé sagt
til hnjóðs, enda verða þeir
aldrei nema tiltölulega fáir,
sem þeim hæðum ná. Það er
því vafamál, hvort hyggilegt
er af henni að fara af stað
með erfiðustu verkefni tónbók-
menntanna. Það er margt ann-
að vel frambærilegt, og Jór-
unn hefur sýnt, að hún kánn
að flytja góða tónlist snjallt
og gáfulega. Kreisleríana
Schumanns sannaði það. Þenn-
an lagaflokk hins mikla píanó-
tónskálds lék hún einmitt á
þessum stað fyrir hér um þil
einu ári. Slikar endurtekning-
ar eru góðra gjalda verðar,
þegar um er að ræða sjald-
heyrð, en merkíleg tónverk
eins og þetta. Verkið var leik-
ið örugglegá og af næmleika
smekks Qg skilnings, og auð-
heyrilega lætur þessum píanó-
leikara einkar vel að fara með
verk Schumanns. — Síðast á
efnisskránni var svo „Grand
polonaise brillante“ með „an-
dante“-inngangi eftir Chopin,
óp. 22. Einstaklega fallega
leikin voru tvö aukalög, sem
listakonan varð að flytja á-
heyrendum að lokum.
B.F.
Tompinn
Nýjar skyrtuþvottsupplýsingar — Farþegi skriíar
um innanbæjarfarþega — Aurasparnaður og heilsu-
vernd í að ganga til vinnú
I TILEFNI af nýbirtri fyrirspurn
um verð á skyrtuþvotti, hefur
Bæjarpósturinn fengið þær
upplýsingar, að í þvottahúsi
einu í Hafnarfirði sé hægt að
fá skyrtur þvegnar fyrir 7
krónur og í því verði er inni-
falið heimsendingargjald, einn-
ig til Reykjavíkur. Hinsvegar
mun verð á skyrtuþvotti í
reykvískum þvottahúsum vera
kr. 8,00, þvf nær undantekn-
ingarlaust. Önundarverðið kr.
7.50 höfum við hvergi rekizt á.
FARÞEGI skrifar:
„Kæri Bæjarpóstur. Nú hef-
ur ferðum strætisvagna fækk-
að nokkuð vegna verkfallsins
og því eru vagnarnir fyllri en
nokkru sinni fyrr á sumum
símum sólarhringsins, t. d. um
hádegið og um sexleytið á
kvöldin. Oft er það svo að fólk
úr úthverfunum sem þarf að
komast til vinnu sinnar að
loknum hádegismat klukkan
eitt, kemst alls ekki á tilsettum
tíma, þótt ferðir viðkomandi
vagns séu miðaðar við það að
hann sé kominn í bæinn fyrir
eitt. Oftast er orsökin sú að
svo margt fólk kemur í vagn-
inn frá Hlemmtorgi og nið-
ur allan Laugaveg, eykur
þrengslin svo að til vandræða
horfir og torveldar þeim far-
þegum sem fyrir eru að kom-
ast út. Auðvitað er ekki hægt
að meina fólki að nota vagn-
ana ef það vill vinna þáð til
fyrir svo stutta leið og þegar
eitthvað er að veðri. En mér
hefur oft runnið það til rifja
að sjá ungt og hraustlegt fólk
norpa eftir strætisvögnum í
lengri tíma, til þess að standa
í þeim t. d. frá Barónsstíg og
niður að Bergstaðastræti eða
frá Hlemmtorgi og niður á
Klapparstíg, svo að eitthvað sé
nefnt. Fólkið væri oft komið
á leiðarenda á þeim tíma sem
það eyðir í að bíða eftir vagn-
inum, fyrir utan það hvað það
er langtum heilsusamlegra fyr-
ir hraust og heilbrigt fólk að
ganga í og úr vinnu, þegar
vegalengdirnar eru ekki lengri
en þetta og eftir steyptum
gangstéttum að fara. Öðru máli
gegnir um það fólk sem á
mjög langt í vinnu og er nauð-
beygt til að nota strætisvagn-
ana tímans vegná og því
gremst það oft og iðulega að
þurfa að mæta of seint til
vinnu vegna þess að fólk sem
hæglega getur komizt leiðar
sinnar gangandi tímans vegna
troðfyllir vagnana eftir ,að nið-
ur í aðalbæinn kemur. Því vil
ég biðja þig um Bæjarpóstur
góður að áminna fólk um að
ganga meira en það gerir. Það
er bæði sjálfu því í hag hvað
snertir fjárhag og heilsufar og
um leið gerið það úthverfafölki
mögulegt að komast stundvís-
lega til vinnu sinnar.
Vinsamlegast,
FarþegL“