Þjóðviljinn - 30.03.1955, Page 1
VILIINN
Miðvikudagur 30. marz 1955 — 20. árgangur — 74. tölublað
ALÞÝÐUSAMBANDIÐ 0G FULLTRÚARADK> SKIPULEGGJA FJÁRSÖFNUN TIL VERKFALLSMANNA:
Allir fyrir einn ojí einn fyrir alla
Sýnum verkfallsmönnum þegar í stað,að þeir eiga vísan stuðning allr-
ar alþýðu landsins, hversu lengi sem þeir þurfa að heyja verkfall sit!
Alþýðusamband íslands og Fulltrúaráð verkalýðs-
íélaganna í Reykjavík hafa sett á stofn nefnd til
þess að standa fyrir almennri fjársöfnun til styrkt-
ar verkfallsmönnum.
Póstmannafélag-
ið leggur fram
2000 kr.
Eftirfarandi tillaga var
samþykkt á fu'ndi Póst-
mannafélags íslands í gær-
kvöld.
„Aðalfundur Póstmannafé-
Iags íslands samþykkir að
leggja krónur 2000 í fjár-
söfnun Alþýðusambands Is-
lands og Fulltrúaráðs verka-
lýðsfélaganna í Keyltjavík
og skorar jafnframt á alla
félagsmenn Póstmannafélags
Islands J Reykjavík að
leggja fram til þessarar f jár-
söfnunar sem svarar einum
daglaunum hver.“
í nefndinni eiga sæti: Eggert Þoi’bjarnason, Óskar Hall-
grímsson og Sigríöur Hannesdóttir, sem er formaður
nefndarinnar.
Afgi-eiðsla söfnunaxinnar er í skrifstofu Fulltrúaráðs
vei"kalyösfélaganna að Hverfisgötu 21, og er hún opin
daglega kl. 10—12 og 4—6. Sími er 6438.
Starfsmaöur nefndarinnar er Steingrímur Aöalsteins-
son.
Avarp
Álpýðusarriband íslands og Fulltrúaráð verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík hafa ákveðið að efna til fjársöfnunar um
land allt til styrktar verkfallsmönnum og falið okkur und-
rituðum að veita henni forstöðu.
Við viljum beina athygli allrar alpýðu manna að nauð-
syn pess, að verkfallsmenn geti haldið út í verkfallinu
eins lengi og nauðsyn krefur. Málstaður verkfallsmanna,
barátta peirra fyrir bættum kjörum sínum, er málstaður
allra annarra launpega í landinu, málstaður allra peirra
íslendinga, sem vilja unna peim, er verðmætin skapa,
mannsœmandi lífskjara.
Á pví leikur enginn vafi, að peir hagsmunaávinningar,
sem verkfallsmenn berjast fyrir, muni falla annarri al-
pý&u manna í skaut.
Af pessum ástæðum beinum við peim tilmœlum til allra
annarra verkalýðsfélaga og launpegasamtaka, allra vel-
unnara verkalýðsins að rétta verkfallsmönnum hjálpar-
hönd í verki með almennri myndarlegri fjársöfnun allan
pann tíma, sem verkfallið kann að standa.
Kjörorð okkar í þessari söfnun er hin sígilda regla
verkalýðssamtakanna: Einn fyrir alla og allir fyrir
eínn.
Sýnum verkfallsmönnum þegar í stað. að þeir eiga
vísan sluðning allrar alþýðu landsins. hversu lengi
sem þeir þurfa að heyja verkfall sitt.
Sigríður Hannesdóttir
Óskar Hallgrímsson Eggert Þorbjarnarson
Eixthuga geta þjóðirnar komið
x veg fyrir kjarnorkustyrjöld
Söfnun undirskrifta að ávarpi gegn undirMningi
kjarnorkustyr jaldar þegar haf in
Kristinn E. Andrésson segir frá niðurstöðum fundar
framkvæmdanefndar Heimsfriðarráðsins í Vín
Úti í Evi’ópu, um gervallan heim, er hindrun kjarnorku-
styrjaldar, stöðvun vetnissprengjutilrauna og vígbúnað-
aræöis orðið mál málanna sem varöar líf hverrar þjóöar,
hvers manns. Vísindamenn hver af öðrum birta viövaranir
til jaröarbúa. Samvizka mannkynsins rís gegn hugmynd-
inni um tortímingu í kjai’noi’kustyrjöld.
Þannig fórust Kristni E. And-
réssyni orð í gser, er hann ræddi
við fréttamenn og skýrði þeim
frá helztu störfum og niðurstöð-
um fundar framkvæmdanefndar
Heimsfriðarráðsins, sem stóð yf-
ir í Vín dagana 11. til 14. þessa
mánaðar. Kristni var boðið að
sitja fund þennan og er nýkom-
inn heim til íslands aftur.
• Fulltrúar frá flestum
löndum heims
Tvö mál voru á dagskrá fund-
arins í Vínarborg:
1. Undirskriftasöfnun að á-
varpi Heimsfriðarráðsins frá 19.
jan. þar sem þess er krafizt að
kjarnorkuvopn séu eyðilögð og
framleiðsla þeirra bönnuð.
2. Undirbúningur að alþjóða-
þingi friðarsinna í Helsinki 22.
maí n.k. sem Heimsfriðarráðið
boðaði til á fundi sínum í Stokk-
hólmi í haust.
Mættir voru á fundinum full-
trúar úr flestum löndum heims,
og stóðu umræður í fulla þrjá
daga.
I
• Kjamorkuvopnum
sé útrýmt undir
ströngu eftirliti
Niðurstöður voru á þessa leið:
Bráð hætta af kjarnorkustyrj-
öld vofir nú yfir löndum jarðar,
yfir hverju heimili og hverjum
einstaklingi. í stað þess að
kjarnorkan sé tekin í þjónustu
mannkynsins er hrúgað upp
birgðum hræðilegustu vopna.
Forráðamenn þjóða hóta því op-
inskátt að beita kjamorkuvopn-
um. Reynt er að réttlæta það að
þessum hræðilegu vopnum sé
beitt og fá menn til að líta svo
á að þau séu trygging fyrir friði,
enda þótt þau stórauki árásar-
hættuna og geti ekki búið mann-
kyninu annað en dauða og tor-
tímingu.
Kristinn E. Andrésson
Hins vegar hafa verjendur
friðarins bjargfasta trú á því
að þjóðirnar geti komið i veg
fyrir kjarnorkustyrjöld með
því að rísa einhuga gegn
Framhald á 3. síðu.
Tillaga Guðmundar Vigíússonar samþykkt í bæjarráði:
Dtsvör verða ekki krafin við úffaorgun
til verkfallsmanna umjnánaðamótin
Bæjarráð Reykjavíkur samþykkti í gær eftirfarandi tillögu
frá Guðmundi Vigfússyni:
„Bæjarráð ákveður að fella niður útsvarsinnheimtu nú um
mámaðamótin af launum þess fólks er á í vmnudeilunni“.
Með þessari ákvörðun bæjar-
ráðs á það að vera tryggt að
ekki verði af hálfu Reykjavíkur-
bæjar skert laun bess mánað-
arkaupsfólks er fær nú um mán-
aðamótin greidd laun sín fyrir
fyrri hluta rnarzmánaðar, þ. e.
fram að vinnustöðvuninni. Hefði
slíkt líka verið óhæfa þar sem
rúmlega hálfsmánaðar kaup er
að ræða og fólkið búið að vera
um tvær vikur í verkfalli.
Sömu kröfu ber að sjálfsögðu
að gera til skattheimtu ríkis-
sjóðs. Það væri óverjandi að
taka nú af launum verkfalls-
manna upp í ógreidda ríkis-
skatta.
För ftaal»
ákveðin
Ríkisstjórn Austurríkis á-
kvað í gær að Raab forsætis-
ráðherra skyldi taka boði Sov-
étstjórnarinnar um að koma til
Moskva að ræða friðarsamn-
inga við Austurríki. Leggur
Raab af stað 11. apríl ásamt
þrem öðrum ráðherrum.
Ávarp gegn undirbúningi
kjarnorkustyrialdar
Ákveðnar ríldsstjórnir búast nú til að hleypa af stað
kjarnorkustyrjöld.
Þær leitast við að sannfæra almenning um að liún sé
óhjákvæmileg.
Beiting kjarnorkuvopna mundi leiða af sér allsherj-
ar eyðingu í styrjöld.
Vér lýsum yfir því, að liver sú ríkisstjórn, sem byrjar
kjarnorkustríð, lilýtur að fyrirgera trausti þjóðar sinnar
og kalla yfir sig fordæmingu allra annarra þjóða.
Vér munum nú og framvegis standa í gegn þeim sem
undirbúa kjarnorkustríð.
V7ér kref jumst þess að birgðir kjarnorkuvopna í öllum
löndum verði eyðilagðar og framleiðsla þeirra nú þeg-
ar stöðvuð.
Vín 19. jan. 1955.