Þjóðviljinn - 03.04.1955, Blaðsíða 1
Þátttakendur í verkfallinu
eru beðnir að hafa sam-
band við verkfallsskrif-
stofuna í Alþýðuhúsinu.
Flugfélag íslands stendur á bak við kúg-
unarráðstafanirnar gegn Loftleiðum
Thorsararnlr eru fengiliðurinn milli Flug-
félagsins, oliuhringanna, Vinnuveifenda-
sambandsins og rikissfjórnarinnar
Enn situr vi'ð það sama að Vinnuveitendasamband ís-
lands, olíuhringarnir og ríkisstjórnin banna Loftleiðum
að semja við verkalýðsfélögin. Lýsa olíuhringamir og
Vinnuveitendasambandið yfir því að Loftleiðir fái ekki
dropa af benzíni ef samið verður við verkalýösfélögin, og
flugmálaráðherra íhaldsins hefur gefið í skyn að félagið
verði svipt ríkisábyrgð fyrir láni ef það semur.
Af þessu og þessu einu stafar
stöðvunin á starfsemi Loftleiða.
Félagið er ekki í Vinnuveitenda-
sambandi íslands. Það vildi gera
sérsamninga við verklýðsfélög-
in, enda var það sjálfsagt hags-
munamál þess, þar sem stöðvun-
in kostar félagið 250.000 kr. á
viku í beinum útgjöldum auk
hins óbeina tjóns. En þegar til
samninga skyldi koma skárust
ríkisstjórnin, Vinnuveitendasam-
bandið og olíuhringarnir í leik-
inn og stöðvuðu með ofbeldi að
samið yrði.
|
'jíf Alstaðar thorsarar.
Þessi afstaða Vinnuveitenda-
sambands-klíkunnar og ríkis-
stjórnarinnar stafar ekki aðeins
af fjandskap þessara aðila við
verklýðssamtökin og kröfur
þeirra, heldur kemur þarna einn-
ig til greina baráttan milli Flug-
félags íslands annarsvegar og
Loftleiða hinsvegar. Flugfélag ís-
Olíumálið tekið
nýju eít-
ir páskana
fyrir ú
Eins og kunnugt er var
oliumálinu’ frestað hinn 24.
f.m., á fjórða degi málflutn-
ingsins í Hœstarétti. Var
þessi frestun byggð á því að
afla þyrfti nokkurra gleggri
upplýsinga og frekari gagna.
Þessar nýju upplýsingar lágu
fyrir hinn 29. marz. Átti að
halda málflutningnum áfram
sídegis þann dag en þá and-
aðist annar verjandinn, Ein-
ar Arnórsson, um hádegisbil-
ið.
Nú hefur verið ákveðið að
olíumálið verði tekið fyrir
að nýju til flutnings í Hæsta-
rétti eftir páska, annaðhvort
14. eða 15. apríl n.k. Verjandi
í stað Einars heitins Arnórs-
sonar verður nú Guðmundur
Ásmundsson hdl., en hann er
gagnkunnugur þessu máli,
flutti það f. h. Sigurðar Jón-
assonar o. fl. í héraði. Þetta
er fyfsta prófmál Guðmund-
ar fyrir Hœstarétti.
lands sér nú leik á borði að
kreppa kosti Loftleiða sem mest
og ganga helzt af félaginu dauðu.
í Flugfélaginu eru thorsararnir
sem kunnugt er áhrifamestu
hluthafarnir. Ríkisstjómin lýtur
forsæti thorsara. í Vinnuveit-
endasambandi íslands hefur
thorsari forustuna. Shell er eitt
af auðfélögum thorsaranna og
þeir hafa þannig úrslitaáhrif á
starfsemi olíuhringanna. Það eru
því hæg heimatökin fyrir Flug-
félag fslands að skipuleggja bar-
áttuna gegn keppinautnum — á
sama hátt og áður var búið að
bola Loftleiðum frá öllum flug-
ferðum innanlands.
* Krókódílatár.
Nú hlakkar í þessari auðklíku
yfir því að hafa getað kúgað
L'oftleiðir og komið lélaginu á
kné. Ekki má þó sýna þann fögn-
uð opinberlega, og þess vegna
gráta ofbeldismennirnir krókó-
dilatárum í stjórnarblöðunum yf-
ir afleiðingum verka sinna. Sá
ieikaraskapur blekkir þó engan.
Almenningur þekkir staðreynd-
irnar og veit að þarna er fjand-
skapurinn við verkalýðsfélögin
jafnframt hagnýttur til þess að
klekkja á atvinnurekenda sem
ekki er í náðinni hjá þeim
voldugustu.
Sáttanefnd og
deiluaðilar ræða
Loftleiðamálið
Sáttanefndin í vinnudeilunni
hóf fund með deiluaðilum kl. 2
í gær. Var fundi framhaldið eft-
ir kvöldmat og var ekki lokið
þegar blaðið fór í pressuna.
Hafði til þess tíma einvörðungu
verið rætt um Loftleiðamálið.
3864 króour
3864 kr. er upphæð sem allir landsmenn þurfa að festa
sér vel í minni. Það er sú uppliæð sem Dagsbrúnarverka-
maður myndi fá í mánaðarkaup, ef gengið væri að ölliun
kröfum félagsins og hann ynni allar stundir og sleppti
aldrei úr degi.
Er nokkur sá maður til sem heldur því fram að fjöl-
skylda gæti lifað mannsæmandi lífi af Iægra kaupi? Er
nokkur sem dirfist að halda því fram að kröfurnar séu
ósanngjarnar?
Eflaust heyrast slíkar kenningar í kokkteilpartíum
heildsalafrúnna í fínu pelsunum og milljónaranna í doll-
arabílunum, fólksins sem hirðir liundruð þúsunda og
milljónir í árskaup og lifir lúxuslífi sem vandfundið mun
meðal annarra. þjóða. En fólkið í landinu, vinnandi menn
til sjávar og sveita, veit að kröfur verkanjanna eru full-
komið réttlætismál, sem ekki verður hvikað frá. Sú klika
sem nú hefur stöðvað framleiðsluna í 15 daga og kastað
milljónatugum á glæ til þess að berjast gegn því að
verkainenn hafi 3864 kr. í mánaðarkaup ætti að hug-
leiða það á milli kokkteilanna og viskísjússanna að í þessu
máli hefur hún á móti sér einliuga þjóð — og það vald er
sterkara en allt fé innlendra auðburgeisa, þótt \ið séu
lagðar milljónamútur frá erlendu hemámsliði.
76 kínverskir stúdentar fá að
fara heim frá Bandaríkjunum
Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að
þaö heföi veitt 76 kínverskum stúdentum, sem haldið hef-
ur verið nauðugum i landinu, heimfararleyfi.
Borgarbílstöðin stofnar enn
til verkfallsbrota
ÞaS var Borgarbllsfö'Öin sem safnaði
slagsmálaliÖi gegn verkalýÖnum 1952
l gær fyrir hádegi gerðu 10 bílar eða fleiri tilraun
til þess að smygla benzíni í bæinn en voru stöðvað-
ir af verkfallsvörðum. Var farið með bílana niður
að Hálogalandi og tók lögreglan í sína vörzlu bíl-
lykla nokkurra smyglaranna.
Benzínsmyglarar Borgarbíl-
stöðvarinnar voru brátt stöðv-
aðir af verkfallsvörðum uppi hjá
Smálöndum. Myndaðist þar brátt
mikil umferðastöðvun, því að
smyglararnir voru ekki á því að
hleypa vegfarendum er ekkert
höfðu af sér brotið gegn verk-
fallsmönnum frain hjá sér. Var
lögreglan kvödd uppeftir og varð
samkomulag um að benzin-
smyglararnir færu með lögreglu
og fulltrúum verkfallsvarða nið-
ur að Hálogalandi. Þegar þangað
kom víldu Borgarbílstjórarnir
ekki láta leita hjá sér né af-
henda benzinið. Nokkrir stungu
af á leiðinni í bæinn. Loks varð
samkomulag um að lögreglan
geymdi lyklana að bílum smygl-
aranna fyrst um sinn.
Það voru einmitt bílstjór-
ar af Borgarbílastöðinni sem
söfnuðu slagsinálaliði gegn
verkalýðnum 1952, eins og
frægt er orðið. Virðast for-
ráðamenn Borgarbílstöðvar-
innar líta á það sem sérstakt
hlutverk sitt að troða illsakir
við verkalýðssamtökin. Láti
þeir ekki af uppteknum hætti
hlýtur alþýða bæjarins að
líta á Borgarbílstöðina sem
fjandsamlega verkalýðnum,
og svara því á viðeigandi
hátt.
Þessir bílar voru þátttakendur
í benzínsmyglaraflotanum í gær:
G 255, R 2143, R 6401, R 312,
R 1785, R 3230, R 155, R 3536
R 824, R 2167.
Orðsending frá Sjómannaféiagi Reykjavíkur
Styrkjum verkfallsmenn
Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur vill liérmeð
hvetja þá meðlimi félagsins, sem enn eru í atvinnu,
að taka virkan þátt í þeirri söfnun' sem nú er haf-
in til styrktar því fólki, sem í verkfalli stendur.
Framlögum ver&ur veitt mótttaka í skrifstofu fé-
lagsins.
Sjómenn, athugið að kaupgjaldsbaráttan er háð
fyrir samtökin í heild. v
Reykjavík, 2. apríl 1955
Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkurt
-<8>
<•>-
4>
Þegar alþýðustjórnin tók við
völdum í Kína voru fjölmargir
kínverskir menntamenn við
nám í Bandaríkjunum. Margir
þeirra hurfu þá þegar heim,
en enn fleiri urðu þó eftir til
að ljúka námi sínu. Þegar Kór-
eustríðið brauzt út ákvað
Bandaríkjastjórn að neita öll-
um kínverskum stúdentum um
heimfaraleyfi.
■»
Hún hélt því fram, að aðeins
örfáir þessara manna vildu
fara heim til Kína, en bar fram
þá ástæðu fyrir heimfararbann-
inu, að þekking þeirra og lær-
dómur gæti komið kínverska
hernum að notum.
í vetur sagði utanríkisráðu-
neytið að aðeins 25 kínverskir
menntamenn héldu fast við um-
sóknir sínar um heimfararleyfi,
en nú hefur það eins og áður
segir veitt 76 heimfararleyfi.
Svifflugstarfsemi
sýnd börnum í dag
Sunnudagaskólinn á Reykja-
víkurflugvelli hefst í dag kl. 2
síðdegis. Svifflugfélag íslands
býður þá börnum að skoða starf-
semi félagsins, svifflugur og ann-
að þess háttar. Hinsvegar verð-
ur flugvöllurinn sjálfur og önn-
ur starfsemi þar ekki til sýnis
í dag. Inngangur á flugvöllinn
verður frá Miklatorgi, en börnin
eiga ;að. safnast saman við
stjórnturnjnn.