Þjóðviljinn - 03.04.1955, Blaðsíða 5
Sunnudagur 3. apríl 1955 — ÞJÖÐVILJINN — (5
Géðsamir, gesirisnir
©g irábiinir ófriði
Fyrsti hvíti maðurism heimsækir þfóS sem
hefur ekhert samband vic umheimimt
Ungur Ástralíumaöur hefur skýrt frá heimsókn sinni
tii 20.000 manna þjóöar, sem býr í afskekktum dölum í há-
fjöllum Nýju Gíneu og hefur lengi ekki haft neitt samband
viö umheiminn.
Flugmenn komu fyrstir auga
á byggð fólks þess í ókönnuð-
um fjallgarði um miðbik hinn-
ar miklu eyjar norður af Ástr-
alíu.
James Kent, aðstoðarhéraðs-
stjóri áströlsku nýlendustjórn-
arinnar í Port Moresby, var fal-
ið að stjórna leiðangri til Ára-
dals þessa. Eftir að vegi þraut
varð Kent og menn hans að
ganga í þrjá mánuði og klífa
hina hrikalegu Hindenburg og
Star fjallgarða.
Höfðu aldrei séð hvítan
mann
Loks fann Kent dalinn sem
hann leitaði að og var þeim
félögum tekið með kostum og
kynjum. Fólkið hafði aldrei séð
hvítan mann fyrri og hafði
einungis óljósar sagnir af skipt-
um við aðra þjóðflokka innbor-
inna manna. Mál þess var þó
ekki frábrugðnara öðrum tung-
um frumbyggja Nýju Gíneu en
svo að Kent. gat rætt við það.
Tekið með fagnaðarlátum
„Á leið okkar um byggðar-
lög þeirra umkringdi okkur
skari syngjandi og dansandi
karla, kvenna og barna“, segir
Kent. „Fagnaðarhrópin glumdu
og við vorum faðmaðir, kreistir
og stroknir".
,,Höfðingjanir í þorpunum
kepptu hvor við annan í að láta
í Ijós vináttuhug í okkar garð“.
„Geðþekkasta fólk sem ég
hef kynnzt“
Kent kemst svo að orði að
þessi afskekkta þjóð sé „vin-
gjarnlegasta, gestrisnasta og
geðþekkasta fólk sem ég hef
nokkru sinni kynnzt".
Það tók ekki aðeins sjald-
séðum gestum vel heldur var
alúðlegt og hjálpsamt hvort við
annað. Ófriður milli ættflokk-
anna er næstum óþekkt fyrir-
bæri.
Mat hefur fólkið nógan því
að garðrækt þess er á háu stigi.
Það byggir sér víða hús í trjám
og gengur kvenfólk og karl-
menn hvort um sínar dyr.
Nýir stjórnendur
samyrkjubúa
Krústjoff, aðalritari Kommún-
istaflokks Sovétríkjanna, gerði
í gær grein fyrir fyrirhuguðum
breytingum ó stjóm samyrkju-
búanna í landinu. Skýrði hann
m. a. frá þvi, að tugir þúsunda
reyndra manna mundu skipaðir
formenn fyrir stjórnum sam-
yrkjubúa, og þá einkum þeirra,
sem dregizt hefðu aftur úr með
afköst.
Dó í leyni
Það vitnaðist í síðustu viku
að franski fasistinn Marcel Déat
dó á ítalíu 10. janúar. Hann
hefur farið huldu höfði síðan
í stríðslok. Déat var einn af
verstu böðlum Vichystjórnar-
innar og hann var dæmdur til
dauða in absentia.
Spraufur
v/ð nœrsýni
Læknar í Sovétríkjunuin
eru farnir að íækna nærsýni
að því skýrt hefur verið frá
í útvarpi frá Moskva. í stað
þess að Iáta hinn nærsýna
hafa gleraugu er sprautað í
hann Iyfjum, sem hafa þau
áhrif að sjónin verður eðlileg
á ný. Læknarnir telja að
lækningin sé varauleg en úr
því fæst ekki skorið með
fullri vissu fyrr en með tím-
anum.
Fró Ander-
senssýningu
Vegna 150 ára afmœlis
ævintýraskáldsins H. C.
Andersens hefur Kon-
unglega bókasafnið í
Kaupmannahöfn efnt til
sýningar á Anderseniana
— pað er að segja hand-
ritum, bréfum, teikning-
um og síöast en ekki sízt
bókum sem varpa Ijósi á
rithöfundarferil afmælis-
barnsins og sigurför
verka þess um allar jarð-
ir. Hér eru tvær myndir
frá sýningunni. Til vinstri
skuggamynd úr hebreskri
útgáfu á Nœturgalanum.
Til hægri heldur Erik
Dal bókavörður, sem sett
hefur upp sýninguna, á
einni hinna skemmtilegu
klippimynda, sem H. C.
Andersen gerði og gaf
vinum sínum.
<•>-
Vefifæki tínfr físk úr
Yötnum með rafstraumi
Ný uppfmmng þýzkra fiskiíræoinga vek-
ur reiði stangaveiSimarma
Nú geta menn setiö í makindum á bakka silungsvatns
eða laxár og seitt til sín fisk meö rafstraumi.
Strauminn leggur nýtt veiði-
tæki til. Það hefur hlotið nafn-
ið Salmo-Super og vegur 20
kíló.
Stillt eftir fisktegundum.
Veiðimaðurinn getur meira að
segja valið hvaða fisktegund
hann vill veiða af þeim sem
fyrirfinnast í vatninu. Hann
þarf ekki að gera annað en
snúa nokkrum skífum á tækinu
og ýta á hnapp.
Þýzkir vísindamenn við fiski-
rannsóknarstofnunina í Ham-
borg hafa smíðað Salmo-Super.
Yfirsmiðurinn er eðlisfræðing-
ur að nafni dr. Conradin
Kreutzer.
200 kíló á hálftíma.
Fyrir skömmu var tækið
reynt í Rín nærri Worms. Ár-
angurinn fór fram úr öllum
vonum. Á tæpum hálftíma
veiddust 200 kíló af fiski.
Vísindamennirnir voru stór-
hrifnir en öðru máli gegnir um
samtök stangaveiðimanna í
Þýzkalandi. Stjórn þeirra lét
frá sér fara harðorða fordæm-
ingu á þessari villimannlegu
veiðiaðferð. Á sumum 'fylkis-
þingum í Vestur-Þýzkalandi
hafa verið borin fram frum-
vörp um að banna með öllu
veiðar með Salmo-Super.
Hægt að hreinsa vötn.
Alllangt er síðan menn kom-
ust að raun um það að hægt
er að lokka fisk til sín og
veiða hann með því að senda
rafstraum í gegnum vatnið sem
fiskurinn er í. Forskaut á raf-
leiðslu er látið í vatnið en bak-
skautið jarðtengt. Þegar
straum er hleypt á tekur fisk-
urinn að synda að skautinu og
lamast þegar hann kemur nógu
nærri. Þá er hægt að hirða
hann með höndunum eða háf.
Dr. Kreutzer segir að mark-
mið sitt með smíði Salmo-Sup-
er hafi verið að gera mögulegt
að hreinsa til meðal fiskistofns-
ins í veiðivötnum. Með tækinu
megi tína úr gamlar geddur og
aðra ránfiska, sem gera mik-
inn usla meðal sambýlisfiska
sinna, og sömuleiðis sjúka og
lasburða fiska. Einnig er hægt
að hreinsa veiðivötn gersam-
lega, ef menn eru ekki ánægð-
ir með þær tegundir sem þar
eru, og ala upp nýjan stofn.
Xýjar áráMr
á Kýpur
Fjórar sprengjuárásir voru
gerðar í Nicosia, höfuðborg
Kýpur, í gær. Engan mann sak-
aði. Einni sprengju var varpað
að húsi brezks ofursta og
skemmdist það allmikið. Kveikt
var í stórri bifreið sem notuð
er til flutninga á skylduliði
brezkra hermanna, en enginn
maður var í bifreiðinni. 12
menn voru leiddir fyrir rétt i
Nicosia í gær, sakaðir um hlut-
deild í árásunum í fyrradag.
Dæmdur í fangelsi fyrir að taka
aftur loginn vitnisburð
BandaríkjamaÖurinn Harvey Matusow, sem játaö hefur
aö hafa boriö ljúgvitni í tvennum réttarhöldum, hefur
veriö dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir aö leitast viö aö
leiörétta framburö sinn.
Dómarinn R. E. Thomason í
E1 Paso í Texas úrskurðaði að
Matusow hefði „sýnt réttinum
lítilsvirðingu" með því að reyna
að fá tekið upp aftur mál gegn
Clinton E. Jencks, einum af
starfsmönnum sambands banda-
rískra málmnámumanna. Thom-
ason dæmdi Jencks í fimm ára
fangelsi fyrir að neita því að
liann væri kommúnisti. Mat-
usow var aðal vitnið í málinu
gegn Jencks. Nýlcga játaði
hann að liafa borið ljúgvitni
í því máli og öðru máli gegn
12 forystumönnum kommúnista
í New York í sami'áði við full-
trúa ákæruvaldsins.
Þora ekki að kæra
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkj
anna liefur ekki treyst sér til
að ákæra Matusow fyrir mein-
særi, því að af því myndu hljót-
a'st réttarhöld og leggja yrði
fram sannanir. I þess stað er
það ráð tekið að láta Thomason
j ’.íf
} '• ’-'úumiiU
dómara beita valdi sínu til að
fella dóm fyrir að „sýna rétt-
inum lítilsvirðingu", en það er
hægt án nokkurrar ákæru og
málsrannsóknar.
Matusow hefur áfrýjað dómn-
um og verið látinn laus gegn
tryggingu.
Bólvin komin út
Nýlega kom út í Bandaríkj-
unum bókin Ljúgvitni (False
Witness) eftir Matusow. Lýsir
hann þar þriggja ára ferli sín-
um, er hann var launað Ijúg-
vitni og bar vitni fyrir dóm-
stólum, þingnefndum og öðrum
stofnunum. Dómsmálaráðuneyt-
ið reyndi að hindra að bókin
kæmi út en tókst það ekki.
Það er nú kunnugt að a.m.k.
340 menn hafa farizt í jarð-
skjálftanum mikla á Mindanao
aðfaranótt fimmtudagsins,
Mörg hundruð slösuðust hættu-
lega og er sumum ekki hug-
að líf, en tugir þúsunda misstui
heimili sín.
Flestir biðu bana þegar flóð-
alda sem myndaðist á Iligan-
flóa skall á þorpi einu á strönc-
inni og skolaði því burt.
Kaup hœkkað
Óstaðfestar fréttir sem bár-
ust til Kaíró í gær hermdu, að
konungurinn í Arabarílcinu
Jemen, Imam Ahmed, hefði ver-
ið settur af.
lœkkaður
— í Frakklandii
Franska stjórnin gaf út til-
skipun í gær, þar sem hækku<5
eru lágmarkslaun lægstlaunuðui
verkamanna og jafnframt af-
numinn söluskattur á ýmsum
matvælum, aðallega grænmeti.
Bætur handa f jölskyldum í borg
um munu einnig verða hæklö*
aðar.
fftt* HIMfl V * it tfM f